Morgunblaðið - 30.09.1990, Síða 28

Morgunblaðið - 30.09.1990, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 28 C Minninff: Greipur Sigurðsson frá Geysi íHaukadal Þegar fyrstu hausthregg bylja á berst sú harmafregn að Greipur í Haukadal hafi orðið bráðkvaddur að störfum inni á Haukadalsheiði aðeins fimmtíu og tveggja ára að aldri. Eitt mesta hraustmenni þess- arar byggðar er fallið í valinn í blóma lífsins. Og enn er ljómi um orðstír þinn frá Ara í Haukadal. Enn eiga sömu orðin við um fall- inn Haukdæling sem helgaði líf sitt og starf ættaróðalinu fræga um- fram aðra staði þó víða væri hönd lögð á plóginn. Greipur í Haukadal var sonur hjónanna landskunnu Sigurðar Greipssonar bónda og skólastjóra sem fæddur var í Haukadal 1897 og Sigrúnar Bjamadóttur frá Bóli hér í sveit. Hann var næstelstur af fjórum sonum þeirra hjóna er upp komust. Greipur ólst upp við sérstæðar aðstæður sem var mannmarga menningarheimilið í Haukadal. Þar var rekið hótel á sumrin og íþrótta- skóli á veturna. Ungir fóru Hauka- dalsbræður að stunda íþróttir og ekki voru þeir gamlir er þeir kunnu öll helstu glímubrögðin. Þegar und- irritaður kom í Haukadalsskólann var Greipur 14 ára og þá þegar orðinn liðtækur giímumaður og á sextánda árinu er hann einn besti glímumaður Héraðssambandsins Skarphéðins. Afrekslistinn í íþrótt- unum er langur. Hann var marg- faldur skjaldarhafí Skarphéðins og einnig sigurvegari í hæfnisglímu HSK. Þó glíman væri á þessum árum uppáhaldsíþrótt Greips var hann einnig góður sundmaður og var mörg ár í keppnisliði Biskups- tungnamanna á Héraðsmótum í sundi. Einnig tók hann þátt í flest- um greinum fijálsra íþrótta, einkum köstum. Sinn glæsilega íþróttaferil endaði Greipur með því að hreppa gullverðlaun í starfsíþróttum á Landsmóti UMFÍ. Þetta voru ár mótunar og varð hann rólegur og yfírvegaður vinur sem leitað var til. Að loknu námi í Reykholts- og Haukadalsskóla hélt Greipur norður yfír heiðar til náms á Hólum í Hjaltadal þaðan sem hann lauk búnaðarnámi. Þar sem annars stað- ar var hann vel látinn og batt vin- áttu og tryggð við skólafélaga og kennara sem entist alla ævidaga. Að loknu námi sneri Greipur aft- ur heim á æskustöðvamar. Þar hafði hann ákveðið að hefja ævi- starfíð með hugsjón föður síns að leiðarljósi og rækta uppblásin heið- arlönd Haukadals og gróðursetja tijáplöntur í Haukadalshlíðum en skógræktargirðingin var jafngömul og hann frá árinu 1938. Árið 1961 verða þáttaskil í ævi Greips er hann gengur að eiga Kristínu Sigurðardóttur frá Úthlíð í sömu sveit. Hún var dóttir hjón- anna Sigurðar Jónssonar og Jónínu Gísladóttur. Ungu hjónin hófust strax handa við að byggja upp nýbýlið Haukad- al II. Húsin risu með ótrúlegum hraða. Það var íbúðarhús og gróð- urhús. Þá komu sér vel miklir hæfí- leikar Greips við að fást við smíðar. Þó hann væri ómenntaður smiður var hann besti völundur á jám og tré. Hann smíðaði öll sín hús sjálf- ur. Þá var vinnudagurinn langur en gleðin yfír áorkuðu dagsverki var honum næg laun. Er húsin voru risin hófst ræktun kringum þau. Með ævintýralegum blæ óx upp glæsilegur garður þeirra hjóna margverðlaunaður bæði frá Búnað- arfélagi og meðal garðyrkjubænda í Árnessýslu. Jafnframt garðyrkjubúskapnum í Haukadal var Greipur frá 1963 ýmist starfsmaður Skógræktar ríkisins eða og lengst af Land- græðslunnar. Þar lá stærstur hluti starfsævinnar, í tuttugu og sjö ár. í baráttunni við gróðureyðingu var Greipur ósigrandi með verkflokk sinn. Á hveiju ári var unnið sleitu- laust. Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið. (Jónas Hallgrimsson.) Þessi orð Jónasar Hallgrímssonar lét hann oft falla þegar hann hafði nægan starfa við uppgræðsluna og árangurinn lét á sér standa. Hann fór um allt með girðingarflokkinn til að friða land og verkefnin vom stór og erfið. Barist var alla tíð og oftast hafður sigur. En baráttan við uppblásturinn á hálendi íslands er hörð. Blásturinn getur á skammri stund breytt því sem áunnist hafði árinu fyrr í sömu auðnina. Þá reyndi á þolinmæðina og Greipur gafst ekki upp þó móti blési. Af þraut- seigju og hörku var merkinu haldið uppi, hvergi var gefið eftir. Mörg var glíman og langar voru loturn- ar, aðeins afburða þrekmenni getur staðið það af sér. Þó víða væri unn- ið að verkefnum allt austan úr Skaftafellssýslum og vestur í Dali, var uppáhalds verkefnið þó upp- græðslan á Haukadalsheiði. Það var Minning: Sr. Bjartmar Krist- jánsson fv. prófastur Fæddur 14. apríl 1915 Dáinn 20. september 1990 Hringur er ekki fullgerður, fyrr en hann lokast. Lífshlaup manns er ekki full- komnað, fyrr en hann er horfínn aftur til upphafs síns. 29. september hefur lokast sjötíu og fímm ára víður hringur. Sr. Bjartmar Kristjánsson var þá sung- inn til moldar, moldarinnar, sem hafði alið hann í upphafí, og við trúum því, að önd hans hafí fúslega horfið á vit annarra heima. Sá, sem þettá ritar, iðrast þess að hafa ekki notfært sér enn oftar en raunin varð gestrisni hjónanna á Laugalandi til andlegrar upp- byggingar. Hið hlýlega heimili sr. Bjartmars og frú Hrefnu Magnús- dóttur var notalegur stökkpallur upp í hugarheim húsbóndans. Þar var vítt til veggja og heiðið hátt. Þar voru ekki þræddar troðnar slóð- ir, og málin voru brotin til mergjar án þess að reyna að komast að ein- hveijum fyrirfram gefnum niður- stöðum. Undirrituðum kom ekki síður að gagni hæfni sr. Bjartmars að út- lista töfra íslenzkrar tungu. Hann unni móðurmáli _sínu og beitti því af smekkvísi. Á ritvellinum af- greiddi hann keppinauta sína með því vopni, sem þá skorti mest, vel- viljaðri, góðlátlegri kímni. Að minnsta kosti einu spaugyrði hans ætti að forða frá gleymsku. Þegar hann var á leið í eina af kvalafullum aðgerðum síðustu ár- anna, sagði hann: „Ég kvíði engu, ber fullkomið traust til lækna minna. Auk þess er ekki í kot vísað, ef þá skyldi bresta bogalistina.“ Hinum rammíslenzka hugsana- hætti hans hafði merkt skáld Iýst endur fyrir löngu þannig: því táknrænt að hann endaði sitt líf þar. Sá sem þessar línur ritar var með Greip 1963 að girða sex þús- und ha. sem auðnin spannar yfir. Þá lá svartur sandmökkurinn yfir ef blés svo varla var vinnuvært tímum saman. I haust sagði Greipur við mig að hann héldi að stutt væri í fullan sigur, kraftaverk hefði gerst á því gróðurríka sumri sem nú væri að kveðja. Melskúfurinn harði hefur enn sannað yfirburði sína yfir þær plöntur sem binda sand. Greipur var mikill hamingjumað- ur í sínu einkalífi. Með þeim hjónum ríkti mikið jafnræði og stóð Kristín kona hans sem klettur við hlið manns síns alla tíð, stjórnaði búi heima og einnig mötuneyti girðing- arflokksins. í gegn um árin höfum við Greip- ur oft tekið höndum saman í gleði og starfí. Börnin okkar eru á sama aldri. Fyrst fæddust okkur synir með níu daga millibili og svo komu dæturnar með átta daga bili. Sigurður Haukur er fæddur árið 1962. Hann er líffræðingur að mennt og vinnur að doktorsritgerð við háskóla á Englandi. Hrönn er fædd 1966. Hún er nemandi í við- skiptafræði við Háskóla íslands. Einnig hafði athvarf hjá þeim frá barnæsku Bragi Smith, nú nemandi við Menntaskólann að Laugarvatni. Greipur var vinsæll og vinmarg- ur. Hann var mikill höfðingi heim að sækja og á heimili þeirra hjóna var ávallt gestkvæmt. Það var ein- mitt hans mesta yndi í lífinu að vera hinn veitandi húsbóndi. Þeim sem að garði bar á hestum var fylgt nokkrar bæjarleiðir ef kostur var. Á slíkum ferðum var Greipur hrók- ur alls fagnaðar, mikill spaugari og líktist þá oft afa sínum Bjarna á Bóli. Þó Greipur væri aðeins fimmtíu og tveggja ára er hann féll frá auðnaðist honum að koma miklu í verk hér á jörð. Hann hlaut flest það sem menn sækjast eftir. Sorg ástvina sem eftir lifa er mikU en þó lifir minningin um góð- an dreng og yljar um hjartaræturn- ar. Hann var drengur góður. Við fjölskyldan sendum Kristínu, Hrönn og Sigga okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Á meðan við lifum munum við minnast hans. Greip, þeim einlæga vin, sendum við að lokum þakkir fyrir samfylgdina og byðjum honum blessunar Guðs að eilífu. Björn Sigurðsson, Uthlíð. Æskuvinur minn, Greipur Sig- urðsson í Haukadal í Biskupstung- um, varð bráðkvaddur við Ás- brandsá hinn 19. september sl. Á fjöllunum hafði hann verið löngum við störf alla sína starfsævi. Á fjöll- unum lauk henni skyndilega í miðri dagsins önn. Glaðr ok reifr skyli gumna hverr, unz sinn bíðr bana. Sr. Bjartmar var ekki eins bar- áttuglaður og eldri bróðir hans, sr. Benjamín heitmn. Helzt hefði hann kosið að sitja í friðstóli og vinna prestsverkin sín í kyrrþey, enda vinsæll og virtur að sóknarbörnum sínum. Þegar til þess er hugsað, að ekki hafi ævinlega blásið friðlega í kring um þennan friðsemdarmann, rifjast upp smásagan Blindra Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd, að Greipur, þessi ímynd hreysti og holls lífernis, skuli deyja svo skyndilega. Fyrir okkur jafn- aldrana er þetta áminning um það, að tími kallsins getur verið nær en okkur grunar. Útivera, hreyfing og hollar lífsvenjur eru greinilega ekki nein trygging fyrir langlífi, þó að vissulega viljum við trúa því að slíkt sé lykillinn að því að ná háum aldri. Við Greipur kynntumst fýrst í Haukadal snemma á stríðsárunum. Við flugumst þá á eins og stráka er gjarnan siður. Þegar við eltumst lögðum við það af, sem betur fer fyrir mig, þar sem Greipur varð snemma miklu meiri að líkamsburð- um en ég. En eins og þeirra manna er oft siður, sem eru heljarmenni til burða, þá var Greipur manna friðsamastur og notaði afl sitt til þarflegra verka en geðprýði og glaða lund til þess að rækta vináttu við menn. Okkur var alla tíð vel til vina. Greipur fagnaði mér ávallt sem besta bróður og var ætíð boðinn og búinn að leysa minn vanda, hve- nær sem var. Sama máli gegndi raunar um bræður hans alla og foreldra, þar sem ég var oft á sumr- in í Haukadal og átti ánægjuleg samskipti við þessa ágætu fjöl- skyldu. Nutum við hjónin oft gest- risni þeirra hjóna, Greips og Kristín- ar, á heimili þeirra við Geysi. Karen dóttir okkar var einnig hjá þeim í vist um sumartíð við garðyrkju- störf. Því snertir þetta skyndilega fráfall Greips okkur djúpt og við söknum vinar í stað. Greipur Sigurðsson var fæddur 17. maí 1938, næstelstur fjögurra bræðra, sem upp komust og lifa bróður sinn. Foreldrar hans voru Sigrún Bjarnadóttir frá Bóli í Bisk- upstungum og hinn landskunni íþróttafrömuður og skólastjóri Sig- urður Greipsson frá Haukadal. Á Geysi hélt Sigurður einkaskóla sinn á vetrum en rak sumarhótel í skóla- húsinu auk búskapar yfír ferða- mannatímann. Bræðurnir ólust upp á þessu mannmarga heimili og voru allir manna dalur eftir brezka höfundinn H.G. Wells. Þar er lýst dal einum í Andesfjöllum, sem hafði ein- angrazt í skriðuföllum. íbúar dals- ins höfðu úrkynjazt í sifjarækt kyn- slóð eftir kynslóð þannig, að þeir fæddust allir blindir. Sagan hefst á því, að fjallgöngumaður hrapar nið- ur í dalinn en heldur lífi og limum. Með fulla sjón gæti hann orðið dalbúum að liði, en hinir blindu leið- togar þorpsins vilja ekki viðurkenna hann sem jafningja sinn, nema hann láti blinda sig. Dæmisaga þessi á vel við sr. Bjartmar. Hún skýrir áreitni þeirra, sem töldu það vera sáluhjálparatriði að vera bundnir á bás eigin for- dóma. Skondin var einkunnin, sem þeir gáfu sjálfum sér, að þeir kynnu að ærast, ef þeim væri hleypt út á tún í nýstárlegu skini vorsólarinnar. En nú er saga sr. Bjartmars öll. Honum var ekki í kot vísað, er hann hvarf aftur til upphafs síns. Hringur ævi hans hefur lokazt. Nú getum við ekki hitt hann nema í minningu um góðan dreng. En til- veran er ekki öll, þar sem hún er séð. Hér vit skiljumk ok hittask munum á feginsdegi fira. Kári Valsson snemma miklir starfsmenn á búinu. Þarna var gestkvæmt á sumrum, áætlunarbílar komu og fóru og mikið var að gera á handvirkri landsímastöðinni. Man ég enn hvað mér þótti ungum syngja einkenni- lega í vírunum þegar kallað var á Reykjavík, sem þá var óralangt í burtu. Mér þótti gaman að koma þama, þarna var líf og fjör og öll fjölskyldan tók mér vel og hafði mig í hávegum. Greipur kvæntist Kristínu Sig- urðardóttur frá Úthlíð. Þau reistu sér fallegt heimili við Geysi. Þau áttu tvö börn sem upp komust, Sig- urð Hauk og Hrönn. Greipur starf- aði lengst af hjá Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Hann fór með girðingaflokka um land allt, bæði á fjöllum og láglendi. Var at- orku hans og kappi við brugðið. Hann var hagur maður og lagtækur og kunni vel til flestra verka. Greipur Sigurðsson var hár mað- ur vexti og herðabreiður. Ljós yfír- litum, hraustlegur og hermannlegur á velli. Hann var mikið hraust- menni til burða og vissu fáir afl hans allt. Hann var léttur í Iund og hláturmildur, góðgjarn og vin- sæll af alþýðu. Við fjölskyldan sendum eftirlif- andi ástvinum Greips Sigurðssonar innilegar samúðarkveðjur og mun- um varðveita minninguna um þenn- an góða dreng. Halldór Jónsson Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel við hveija hugsun sem hvarflar til þín. (H.H.) í dag kveðjum við okkar kæra vin og mág, Greip Sigurðsson, sem svo allt of fljótt er horfinn okkur. Minningarnar um þær fjölmörgu og góðu stundir sem við áttum með honum eru okkur dýrmætar. Aldrei fórum við austur í Bisk- upstungur án þess að koma við í Haukadal, fallega garðyrkjubýlinu sem þau Kristín byggðu upp af miklum myndarskap. Þaðan höfum við ætíð farið hlaðin grænmeti og góðgæti enda rausnin og gjafmildin einstök. Greipur var borinn og barnfædd- ur Haukdælingur enda bundinn staðnum sterkum böndum. Það var gaman að ganga með honum um hverasvæðið við Geysi á fallegu kvöldi þegar allir ferðalangar voru horfnir. Skoða Strokk og Sóða, Óveðursholu og Kóngshver. Hann kunni góð skil á svæðinu, þekkti hveija holu og hvern hrauk. Ekki var síðra að njóta leiðsagn- ar hans um skógræktarsvæðið í Haukadal, sem var honum afar kært, þar fylgdist hann með vexti og þroskaskilyrðum tijáplantnanna, enda vann hann þar á hveiju hausti við grisjun á barrtijám er líða tók að jólum. Þó var honum ef til vill kærust Haukadalsheiðin og þau svæði, sem hann vann við uppgræðslu á, mest- an hluta starfsævi sinnar. Hann var landgræðslumaður af lífí og sál. Við minnumst ferða með honum inn á heiði eða inn fyrir Bláfellsháls. Þá var glatt á hjalla í jeppanum hans og Greipur alltaf að stoppa til að sýna okkur mel- grasskúfa og annan gróður sem farinn var að festa rætur í svörtum sandinum eða rofabörðum. Hann gladdist yfír hveiju strái og hveijum skúf sem festi rætur í þessum hijúfa jarðvegi og trúði að „sú komi tíð að sárin foldar grói“. Þær eru óteljandi góðu stundirn- ar sem við hjónin höfum átt með Kristínu og Greip, síðan bömin okk- ar voru lítil og alltaf velkomin í fóstur „austur“ ef á þurfti að halda. Glettni hans og gamansemi höfðaði til unga fólksins ekki síður en þeirra eldri. Hér í Kópavoginum bjuggu þau sér annað heimili til að böm þeirra gætu notið sem bestrar menntunar og hér voru á vetrum treyst frænd- semi og vinabönd. Greipur undi þó aldrei lengi í þéttbýlinu, hugur og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.