Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 36
36 C
0*'***SPS’ 8 iMBpWöBjijpifc 0t& 4pjg
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
BAKÞANKAR
Að taka á því
Maður hefur komið víða við.
Það má nú segja. Ég er einn
með fyrstu vaxtarræktarmönn-
um þessa lands. Ég var byrjaður
að taka á lóðunum upp úr 1962.
Þá voru menn að
lyfta út í gamla
ÍR-húsi við Tún-
götu og gáfu lítið
eftir. Þá var orðið
vaxtarrækt ekki
til. Þá seldi Bók-
hlaðan amerísk
vöðvablöð frá
Weider. Ég
studdist við aug-
' lýsingu í slíku blaði þegar ég
skrifaði eftir mínum fyrstu lóð-
um. Ég mun seint gleyma þeim
degi er ég sótti lyftingatækin mín
í Faxaskála. Mér þótti sem Detti-
foss hefði fátt betra ferjað yfir
hafið.
Hetjur okkar í útlöndum á
þessum árum voru þeir Reg Park
og Steve Reeves. Steve Reeves
varð frægur af þvi að leika Her-
kúles. Reg Park kom einnig fram
í nokkrum kvikmyndum. Ég
man ekki betur en ég hafi við
annan mann ritað Reg Park
aðdáendabréf, CKæri Reg
Park . . . það er svo leiðinlegt að
taka á lappirnar. Hvað á maður
að gera til að fá svona flotta kálfa
eins og þú?“ Reg Park hefur
sennilega ekki haft tima til að
svara.
En mikið var það leiðinleg
æfing, að taka á lappirnar, þótt
gaman væri að æfa í ÍR-húsinu.
IR-húsið á sér merkilega sögu,
það var kirkja í eina tíð svo það
má með sanni segja, að það hús
hafi ekki verið hannað fyrir há-
stökk og réttstöðulyftu. En þarna
var elskulegur mórall og gott að
taka hraustlega á því þar til vöð-
varnir brunnu, skutlast svo í
sturtu og kaupa sér eina appelsin
hjá húsverði eftir æfingu.
Ég ætla ekki að halda því fram
að ég hafi verið einn af spámönn-
um þessa tima. Nei, því fer ijarri.
Ýmis nöfn koma upp í hugann.
Gunnar Alfreðsson. Björn Ing-
varsson. Finnur Karlson. Svavar
Carlsen. Guðmundur Sigurðs-
son. Þetta voru hraustir menn
sem kunnu að sína væsklum
umburðarlyndi. Því rétt er að
nefna, þar sem lyftingamenn
komu saman urðu menn að læra
handtökin og standa sig. Sá ný-
græðingur sem mætti með stóra
bumbu og vildi fá að vera með
varð að gjöra svo vel að ná af sér
bumbunni og hlaða kjöti á rétta
staði. Rindlar urðu að bíða eftir
því að stærri menn færu í bað
svo járnin losnuðu. Þá gátu þeir
sett léttu lóðin á. Allt var þetta
eðlilegt og sanngjarnt. Enginn
verður bankastjóri á fyrsta degi
i banka.
Það þótti heldur engin skömm
á þessum árum þó lyftingamenn
kíktu i glas um helgar. Eftir góð-
an snæðing, læri hjá múttu, var
valsað inn á veitingastaði með
trygga kjölfestu. Bæri einhver
kennsl á kraftajötun og slagaði
að og segði: Viltu koma í sjó-
mann, þá svöruðu hraustir
menn: Nei, vinur, mér þykir sjó-
maður frekar leiðinleg iþrótt.
Svo eitt kvöld varð ég eftir á
barnum fyrir fullt og allt en það
er efni í annan pistil.
Mér er minnisstætt að eitt
sinn er ég kom á æfingu ríkti
hálf döpur stemmning í búnings-
klefanum. Heimurinn hafði stig-
ið þangað inn. Það lét hann sem
betur fer oftast eiga sig. En nú
stóð Kúbudeilan sem hæst,
menn biðu þess þeir Krússi og
Kennedy rykju saman og kjarn-
orkustyrjöld hæfist. Horfði þá
þunglega með frekari æfingar.
Þá verður einum viðstaddra
að orði: „Við skulum fara upp og
taka rösklega á því drengir. Ef
við stöndum við okkar hluti, þá
er sá sem mesta burðina hefur
um hitt.“
Og þannig fór það líka. Engin
kjarnorkustyijöld varð. Og hún
er ekki komin enn. Ég held það
væri ráð að iáta sem flesta við
Persaílóann lyfta þessa dagana.
Það hafði svo ansi róandi áhrif á
heimsmálin síðast.
Því við rukum upp á loft,
pressuðum á bekk, jafnhöttuð-
um og snöruðum og tókum á
lappirnar eins og vitlausir menn.
eftir Ólaf
Gunnarsson
Hvar opnar Erama línan m heilsuvörnbnð á mánuöaginn?
Viltu lifa hollu og heilbrigðu lífi? Áttu í erfiðleikum vegna umframþyngdar?
Post Diet — Aðhaldslínan á Islandi er nýr og heilbrigður valkostur fyrir þig.
Hitaeininga- og hitaeiningabrennslutaflan. Hitaeiningainnihald
meira en 200 algengra fæðutegunda í föstu og fljótandi formi. Hjálpar
þér að fylgjast með.
Vigtarseðlar til að bókfæra árangur. Stuðningskort og minnisbók er
gott að hafa með í ferðalagið.
Símaþjónustan er alla laugardaga kl. 15-17 í síma 678583. Góð ráð
og uppörvun. r-, — ]
Post Diet „pakkinn" inniheldur 3 bækur, plakat með hitaeininga- og
hitaeiningabrennslutöflu, vigtarseðla, stuðningskort, vasabók og
símaþjónustu með ráðgjöf.
Nýr lífsstíll, bók 1,100 síður. Lykillinn þinn að varanlegum árangri í
breyttum lifnaðarháttum.
Ávextir, grænmeti, vítamín & steinefni.bók 2,20 síður. Geymir
upplýsingar um efnainnihald ávaxta og grænmetis, ásamt fróðleik um
vítamín og steinefni, m.a. skortseinkenni.
Post Diet „pakkinn“ kostar kr. 3.650.00
14 daga matseðlar, bók 3,20 síður. Tillögur að hitaeiningasnauðu fæði
í 14 daga, morgunverður, hádegisverður, kvöldverður. Ekkert hungur,
enginn megrunarkúr, en samt fellur vigtin.
að viðbættum sendingarkostnaði.
Pöntunarsímar
Lciö til hcilbrigði
og holluMu I lifsháttum
— bctri líðan og
hamingjurtkara llf
Ýmsir fróðleiksmolar
og upplýsingm um
tucringargiidi,
hitnciningftr og ftdm.
* tt * * [
. BEIKI ‘ ' B
IflEKM -;‘1
ANÆtJJV * *
UEG8AIÍF
. .
- *
WT ■HBH
í VISA
p' 14
iTTmv
I MAT- ÍEOLAR l illðgur uð hitneinlngasnauðu ftcði I 14 dngn
□ P O S T □ D I , E T □