Morgunblaðið - 24.10.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
Morgunblaðið/Sverrir
Útför Vals Gíslasonar leikara
Útför Vals Gíslasonar, leikara, var gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í gær. Séra Þórir Stephensen
jarðsöng. Ljóðakórinn söng og organisti var Hörður
Áskelsson. Einleikarar voru Inga Rós Ingólfsdóttir
og Unnur María Ingólfsdóttir. Félagar Vals Gíslason-
ar úr leikhúsinu báru kistu hans frá kirkju, þeir
Hákon Waage, Gunnar Eyjólfsson, Klemens Jóns-
son, Gísli Alfreðsson, Hallmar Sigurðsson, Steindór
Hjörleifsson, Róbert Amfinnsson og Sveinn Einars-
son.
Striplingur á Laugardalsvelli;
Bann á völlinn og
sekt yfirvofandi
STRIPLINGUR hljóp inn á Laugardalsvöll í gær, þegar leikur Fram
og Barcelona í Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu stóð yfir.
Þetta er í þriðja sinn á liðlega tveimur árum, sem maðurinn hleypur
ber inn á vöHinn, þegár leikur i alþjóðlegri keppni fer þar fram.
Áður slapp Knattspyrnusamband íslands með alvarlegar áminning-
ar, en nú gera hlutaðeigandi aðilar ráð fyrir strangari refsingu —
sekt og jafnvel banni á völlinn.
Fyrsta atvikið varð 21. ágúst 1988
á leik íslands og Sovétríkjanna í
undankeppni Heimsmeistaramótsins
og fékk KSÍ þá áminningu frá aga-
nefnd Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA. 30. maí sl. var mað-
urinn aftur á ferðinni, þegar þjóð-
söngur Albaníu var leikinn fyrir
landsleik í Evrópukeppni landsliða.
Eftir það fékk KSÍ áminningu frá
aganefnd Knattspymusambands
Evrópu, UEFA. Eftirlitsmaður leiks-
ins í gær sendir skýrslu um málið
til aganefndar UEFA, sem tekur
síðan ákvörðun um refsingu.
Stefán Konráðsson, framkvæmda-
stjóri KSI, sagði við Morgunblaðið
að KSI sæti í súpunni vegna þess
að vallar- og lögregluyfirvöld hefðu
brugðist í öryggisgæslunni — aðeins
átta lögreglumenn hefðu verið á veli-
inum. „Fram gæti fengið sekt og
leikjabann á vellinum,“ sagði Eggert
Ma.gnússon, formaður KSI.
Óryggisgæslan á Laugardalsvelli
brást enn einu sinni og sögðu tals-
menn KSÍ að vallaryfirvöld og lög-
reglan bæru ábyrgðina. Jóhannes
Óli Garðarsson, vallarstjóri, sagði að
það hlyti að vera mál lögreglunnar
að fylgjast með umræddum manni
vegna fyrri reynslu, „en við sofnuð-
um á verðinum og ekki síður lögregl-
an. Það er ekki hægt að koma í veg
fyrir að svona gerist nema með því
að reisa þriggja metra háa mann-
helda girðingu með göddum ofan á
umhverfis leikvöllinn og ef til vill
ýtir þetta undir slíkar framkvæmd-
Sala sjávarafurða til Sovétríkjanna:
Sovétmenn geta ekki staðið við
samninga vegna gjaldeyrisskorts
SOVÉSKA fyrirtækið Sovrybflot, sem annast hefur fiskkaup Sovét-
manna hér á landi, sendi seijendúm hér skeyti í gær, þar sem fram
kemur, að Sovrybflot geti ekki staðið við samninga um að kaupa
fiskafurðir af íslendingum umfram það sem þegar hefur verið flutt
út, að minnsta kosti það sem eftir er ársins. Astæðan var sögð gjald-
eyrisskortur í Sovétríkjunum.
Friðrik Pálsson framkvæmda-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna segir þetta koma sér illa
að því leyti, að enn eru liðlega þús-
und tonn af frystum karfa- og ufsa-
flökum í landinu sem búið er að
Frjáls afgreiðslutími verslana:
Litlar breytingar verði
tillagan samþykkt
- segir formaður VR
Á FUNDI borgarráðs í gær lagði borgarstjóri fram tillögu um breyt-
ingu á afgreiðslutíma smásöluverslana. Afgreiðslu tillögunnar var
frestað til næsta borgarráðsfundar, þar sem hún verður til umfjöllun-
ar á þriðjudag. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur segist ekki búast við að miklar breytingar verði í
kjölfar tillögunnar.
Flutningsmenn tillögunnar eru
þau Davíð Oddsson borgarstjóri og
borgarráðsmennirnir Árni Sigfússon,
Katrín Fjeldsted og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson. í tillögunni er gert ráð
fyrir að afgreiðslutími smásöluversl-
ana verði frjáls frá kl. 7 að morgni
til kl. 23.30 að kvöldi
Sigrún Magnúsdóttir lagði einnig
fram breytingatillögu við gildandi
samþykkt, sem felur í sér að þeir sem
vilja hafa verslanir sínar opnar á
tímabilinu frá 23.30 til 7 að morgni
skuli sækja um sérstakt leyfi til borg-
arráðs. Afgreiðslu málsins var
frestað og vísað til umfjöllunar borg-
arráðs, en það kemur saman næsta
þriðjudag.
Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjómar og formann Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, sagði í
gær að tillagan væri eðlileg miðað
við þá þróun sem átt hefði sér stað
í nágrannasveitarfélögunum, en
hann bjóst hins vegar ekki við að
miklar breytingar yrðu í kjölfar til-
lögunnar. Samkvæmt núgildandi
samþykkt væri leyfilegt að hafa
verslanir opnar til kl. 10 aH-kvöldi
og til kl. 16 á laugardögum, en þær
skuli vera lokaðar á sunnudögum.
Reyndin væri sú að afar fáir nýttu
sér það að hafa verslanir sínar opnar
á kvöldin og viðbúið væri að mjög
drægi úr laugardagsverslun yrðu
verslanir opnar á sunnudögum, en
það hefði mikinn kostnað í för með
sér fyrir verslunareigendur.
„Ég vil einnig undirstrika það, að
eftir sem áður eru ákvæði í kjara-
samningum á milli VR og vinnuveit-
enda sem kveða á um ákveðinn af-
greiðslutíma, m.a. er heimilaður af-
greiðslutími til kl. 16 á laugardögum,
en að verslanir séu lokaðar á sunnu-
dögum. Þessi kjarasamningur er
bundinn til 15. september á næsta
ári, þannig að það verða ekki miklar
breytingar á þessu sviði alveg á
næstunni," sagði Magnús.
framleiða í sérstakar pakkningar
fyrir Sovétríkin og illmögulegt að
selja á aðra markaði. Verðmæti
þess er um 130 milljónir króna.
Heildarsamningar um viðskipti
íslands og Sovétríkjanna gera ráð
fyrir að á þessu ári kaupi Sovét-
menn hér 9.950 tonn af frystum
fiski fyrir um 1.220 milljónir króna.
Búið er að afgreiða stærsta hluta
þess magns. Auk þess sem búið er
að framleiða og Sovétmenn geta
ekki tekið við, er eftir að framleiða
fyrir um 250 milljónir króna upp í
samninginn.
Seljendur hér hafa svarað skeyt-
inu og meðal annars boðið Sovryb-
flot að gefa eftir þann hluta samn-
ingsins sem eftir er að framleiða
upp í, gegn því að tekið verði við
því sem bíður hér pakkað. Svar
hafði ekki borist í gærkvöldi.
Friðrik Pálsson segir það einkum
valda vandræðum, að illmögulegt
sé að selja þennan físk á aðra mark-
aði, sem þegar er búið að framleiða
fyrir Sovétríkin. Hitt valdi ekki
áhyggjum þó að Sovétmenn geti
ekki tekið við meiru, þar sem mikil
eftirspurn sé nú eftir físki og vanda-
laust að selja hann á aðra mark-
aði. „Eins og markaðsástandið er í
dag, þá er þetta ekki vandamál
fyrir framleiðslu eins og við sjáum
hana næstu misserin," segir Friðrik.
Utanríkisráðuneytið og sendiráð
íslands í Moskvu undirbúa nú við-
ræðufund íslendinga og Sovét-
manna um viðskipti landanna í
Moskvu í byijun næsta mánaðar.
Páll Eiríksson, yfirlögregluþjónn,
sagði að manninum hefði verið sleppt
úr haldi lögreglunnar á mánudag
eftir að hafa verið settur inn daginn
áður fyrir að gera þarfir sínar á
tröppum stjómarráðsins, en ekki
mætti halda honum lengur en í 24
tíma. „Það má kannski segja að það
hefði verið ástæða til að reyna að
leita hann uppi í dag [í gær] og taka
hann úr umferð, en það var ekki
gert.“ Hann sagði ennfremur að
fjöldi lögreglumanna inni á vellinum
væri fyrst og fremst miðaður við
hugsanlegar óspektir áhorfenda. „Úr
því að þessi maður fæst ekki settur
undir læknishendur má segja að það
sé ábyrgðarhluti að láta hann ganga
lausan, því það er aldrei að vita hvað
hann getur gert borgurunum. En það
er greinilegt að það þarf meiri gæslu
á meðan þessi maður gengur laus.“
Umræður um bráðabirgðalög:
Foragt á Alþingi
og siðferðisbrestur
- segir Ragnhildur Helgadóttir
BRÁÐABIRGÐALOG ríkisstjórnarinnar um kjarasamning BHMR voru
harðlega gagnrýnd í neðri deild Alþingis i gær. Ragnhildur Helgadótt-
ir gagnrýndi þann skilning forsætisráðherra að lítill munur væri á
bráðabirgðalögum sem nytu fylgis á Alþingi og lögum sem þingið
væri kallað saman til að samþykkja.
Ragnhildur sagði ummælin sýna
siðferðisbrést og lýsa „fullkominni
foragt“ á Alþingi og hlutverki þess.
Forsætisráðherra sem slíkt segði
ætti að segja af sér hið fyrsta.
Sjá nánar þingfréttir bls. 28.
Magnús Gimnarsson dreg-
ur uppsögn sína til baka
Sveitarfélög á
Austurlandi;
Framkvæmda-
stjóri ráðinn
STJÓRN Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi hefur ákveðið að
ganga til samninga við Björn Haf-
þór Guðmundsson, sveitarstóra á
Stöðvarfirði um stöðu fram-
kvæmdastjóra sambandsins.
Ráðið er til fjögurrá ára og bárust
níu umsóknir um stöðuna.
MAGNÚS Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF, hefur dregið uppsögn
sína til baka í kjölfar víðtækra stuðningsyfirlýsinga og áskorana
yfir 90% framleiðenda og stjórnar SÍF. „Maður væri með stein-
hjarta, neitaði maður eftir slíkar stuðningsyfirlýsingar,“ sagði Magn-
ús Gunnarsson, í samtali við Morgunblaðið. Magnús sagði af sér í
kjölfar félagsfundar SÍF fyrr í mánuðinum, en þar voru tillögur
hans og stjórnar um áherzlur
felldar.
Magnúsi hafa undanfarna daga
verið að berast áskoranir svo hljóð-
andi, undirritaðar af meira en 90%
framleiðenda: „Við undirritaðir
framleiðendur lýsum yfir eindregn-
um stuðningi við Magnús Gunnars-
son persónulega og sjónarmið hans
og stefnu í framleiðslu- og mark-
aðsmálum. Við 'skorum á Magnús
að draga uppsögn sína til baka og
halda áfram því uppbyggingar-
starfi, sem hann hefur sýnt ogsann-
að að hann er hæfastur til að
framkvæmd laga sölusamtakanna
stjórna."
Þá samþykkti 12 manna fundur
stjórnar SIF svohljóðandi ályktun í
síðustu viku: „Um leið og við undir-
ritaðir stjórnarmenn í SÍF lýsum
yfir fyllsta stuðningi við Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóra
SIF, og Dagbjart Einarsson, stjórn-
arformann fyrirtækisins, hörmum
við einlæglega þá ákvörðun Magn-
úsar að segja upp starfi sínu. Við
skorum á Magnús að endurskoða •
þessa ákvörðun sína og leiða fyrir-
tækið áfram í því öfluga markaðs-
og uppbyggingarstarfi, sem hann
hefur haft forystu um. Við fullyrð-
um að það eitt þjónar hagsmunum
íslenzks saltfiskiðnaðar í bráð og
lengd.“
„Mér kom nokkuð á óvart hve
víðtæk þátttaka framleiðenda var í
þessari undirskriftasöfnun og
gleðst auðvitað yfir þessum stuðn-
ingi. Eg vonast nú til að menn geti
í sameiningu haldið áfram að
byggja SÍF upp sem góð og fram-
sækin sölusamtök fyrir framleið-
endur. Ég geri mér grein fyrir því,
að framundan er mikið starf við
það að treysta innviði samtakanna
og reyna að fá alla félagsmenn í
SIF til að sameinast um skynsam-
lega stefnumörkun fyrir íslenzkan
saltfiskiðnað," sagði Magnús Gunn-
arsson.