Morgunblaðið - 24.10.1990, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
ÁRNAÐ HEILLA
Gullbrúðkaup — Afmæli. Hjónin Gunnar Gunnarsson og
Guðfinna Lárusdóttir Miðtúni 72 áttu gullbrúðkaup 5.
október sl. í dag er Guðfmna sjötug. Þau hjónin verða á
heimili dóttur sinnar, Fremristekk 15, í kvöld.
í DAG-er miðvikudagur 24.
október, sem er 297. dagur
ársins 1990. Árdegisflóð í
Reykjavík er kl. 9.15 og
síðdegisflóð kl. 21.36. Fjara
er kl. 2.56 og kl. 15.36.
Sólarupprás er í Rvík kl.
8.44, sól í hásuðri kl. 13.12
og sólarlag kl. 17.38. Tungl
er í suðri kl. 17.51. (Alman-
ak Háskóla íslands.)
Ég beini augum minumn
á þá þeim til heilla og flyt
þá aftur inn í þetta land,
svo að ég megi byggja þá
upp og ekki rífa þá niður
aftur og gróðursetja þá
og ekki uppræta þá aftur.
(Jer. 24, 6.)
FRÉTTIR____________________
ÁRGERÐ 1991. Eftir þær
breytingar sem gerðar hafa
verið á reglugerð um
nýskráningu bíla er ljóst að
lítið verður um skráningu á
1991 árgerðinni fyrr en seint
í febrúar eða byrjun mars.
Ástæðan er sú að nú er farið
að skrá framleiðsluár bifreið-
anna en ekki þá árgerð er
framleiðandi gefur upp. Venj-
an hefir verið sú að nýjar
árgerðir hafa komið á haust-
dögum hingað til lands en
bifreiðaframleiðendur byrja
jafnan miðsumars að fram-
leiða nýja árgerð.
ELLIMÁLARÁÐ Rvíkur-
prófastsdæmis. Námskeið
verður haldið í Árbæjarkirkju
nk. laugardag kl. 9—16. Fyr-
irlestrar verða haldnir um
Öldrunarsálarfræði, helgihald
með öldruðum og þjónustu í
samskiptum. Námskeiðið er
öllum opið er styrkja vilja öld-
runarþjónustu í söfnuðunum.
Boðið verður upp á hádegis-
verð og kaffi en aðgangur er
ókeypis. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu dómprófasts í Ár-
bæjarkirkju fyrir fimmtudag.
ESKFIRÐINGAR og Reyð-
firðingar í Rvík og nágrenni
halda sitt árlega síðdegiskaffi
fyrir sveitunga nk. sunnudag
í Sóknarsalnum, Skipholti
50a, kl. 15.
BÓKSALA Fél. kaþólskra
leikmanna er opin í dag kl.
17—18 á Hávallagötu 14.
FÉLAGSSTARF aldraðra
Norðurbrún 1. Dagskrámið-
vikudagsins er þessi: Kl. 9
fótaaðgerð. Kl. 10 upplestur
framhaldssögu. Kl. 13 leður-
vinna og leirmunagerð. Kl.
14 félagsvist og kl. 15 kaffi.
HÚNVETNINGAFÉLAG-
IÐ í Reykjavík. Vetrarstarf
félagsins er nú hafið af fullum
krafti. Að venju halda Hún-
vetningar í Reykjavík upp á
1. vetrardag. Áð þessu sinni
verður efnt til fagnaðar og
haldið suður með sjó í gott
og fallegt samkomuhús í
Garðinum. Hljómsveitin
Lexía kemur að norðan og
leikur fyrir dansi. Farið verð-
ur með rútu frá Húnabúð,
Skeifunni 17, kl. 21 nk. laug-
ardag með viðkomu við Spari-
sjóð Hafnarfjarðar, Norð-
urbæ, kl. 21.20 og við sjopp-
una í Vogum kl. 22. Ekkert
fargjald. Upplýsingar í símum
91-31625 eða 91-19863.
ITC-deildin Melkorka held-
ur fund í kvöld, miðvikudag.
Fundarstef: „Sá sem vill læra
fínnur alls staðar skóla.“ Á
fundinum mun Kolbrún Hall-
dórsdóttir leikari aðstoða
ITC-félaga með framsögn.
Fundurinn er öllum opinn.
Upplýsingar veita Guðrún í
síma 672806 og Guðrún Lilja
í síma 46751.
LOFTÞRÝSTINGUR. Mesti
loftþrýstingur sem mælst hef-
ir á Islandi mældist í Rvík
15. jan. 1942; 1058,5 mbar.
Minnsti loftþrýstingur mæld-
ist í Vestmannaeyjum 2. des.
1929; 919,7 mbar.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Aflagranda 40. Kl. 9 hár-
greiðsla. Kl. 9.30 almenn
handavinna. Kl. 10 verzlunar-
ferð, kl. 13 hárgreiðsla og
almenn handavinna. Andlits-,
hand- og fótsnyrting. Kl.
15.30 danskennsla.
KIRKJUR_______________
ÁSKIRKJA: Starf með 10
ára börnum og eldri í safnað-
arheimilinu í dag kl. 17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Opið
hús fyrir eldri borgara í dag
kl. 13—17. Fótsnyrting fyrir
aldraða er á fimmtudögum
fyrir hádegi og hársnyrting á
föstudögum fyrir hádegi.
Mömmumorgunn í fyrramálið
kl. 10.30.
DIGRANESPRESTA-
KALL: Fyrsti fundur Kirkju-
félags Digranesprestakalls á
þessu hausti verður í safnað-
arheimilinu Bjamhólastíg 26
í kvöld, kl. 20.30. Dagskrá:
Sumarferðalag safnaðarfé-
lagsins rifjað upp. Bjarni
Bragi Jónsson segir frá ferð
um Bretland og sýnir myndir
úr enskum kirkjum. Kaffiveit-
ingar. Helgistund í umsjá
sóknarprests.
FELLA- og Hólakirkja:
Guðsþjónusta í kvöld kl.
20.30. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Sönghópurinn
„Án skilyrða", undir stjórn
Þorvaldar Hálldórssonar,
annast tónlist. Samvemstund
fyrir aldraða í Gerðubergi
fímmtudag kl. 10—12. Um-
sjón: RagnhildurHjaltadóttir.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld-
og fyrirbænir í dag kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA:
Starf fyrir unglinga 10 ára
og eldri kl. 17. Þór Hauksson
guðfræðingur og Gunnbjörg
Oladóttir leiða starfíð.
NESKIRKJA: Fyrirbæna-
messa í dag kl. 18.20. Öld-
runarstarf: Hár- og fótsnyrt-
ing í dag kl. 13—18 í safnað-
arheimili kirkjunnar.
SELJAKIRKJA: Fundur
KFUM, unglingadeild, í dag
kl. 19.30.
DÓMKIRKJAN: Bænastund
í dag kl. 12.15.
SKIPIN_____________
REYKJAVÍKURHÖFN:
Stapafell kom af ströndinni
í fyrradag og Laxfoss að ut-
an. í gær fór norski togarinn
Drotholm. Þá kom rússneskt
rannsóknarskip sem heitir
Akadenik Vavilov. Mána-
foss kom af ströndinni í gær-
morgun og Ásbjörn kom úr
söluferð frá útlöndum. Mána-
foss var væntanlegur í gær.
Vigri var að búa sig til veiða
og Hekla var væntanleg af
ströndinni í gærkvöldi.
HAFNARFJARÐARHÖFN:
ísnesið fór í gærmorgun til
Njarðvíkur en það er að lesta
saltfísk. Þá var væntanlegt
danskt skip sem er að koma
frá Grænlandi með vélar sem
em í eigu ístaks. Það heitir
Estc Submerder 2. í morgun
var Mánaberg frá Ólafsfírði
væntanlegt inn til löndunar.
Þetta er stór togari og hét
áður Bjami Benediktsson.
Há vaðarifrildi formanns og varaforinanns á 45. flokksþingi Alþýöuflokksins:
Hörð rifrildi skerpa
ástina og kærleikann
Komdu aftur heim elskan. Ég skal lofa því að gera þetta aldrei aftur, eða þannig sko...
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna i Reykjavik, dagana 19.-25. október,
að báöum dögum meötöldum er í Borgar Apóteki. Auk þess er Reykjavikur Apótek
opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema sunnudaga.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sehjamarnes og Kópavog i Heilsuverndarstöð Reykjavik-
ur viö Barónsstíg frá kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólartiringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimiiislaekni eða nær
ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami simi. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í simsvara 18888.
Ónæmisaögeröir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram í Heilsuverndarstöð
Reykjavikur á þriðjudögum kl. 16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírleini. AÞ
næmi: Uppl.simi um alnæmi: Simaviðtalstimi framvegis á miðvikud. kl. 18-19, s.
622280. Læknir eða hjúkrunarfræöingur munu svara. Uppl. i ráðgjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar eru þess á milli tengdir þess-
um símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvandann vilja styðja smitaöa og
sjúka og aðstandendur þeirra, s. 22400.
Kraþbamein. Uppl. og raðgjöf. Krabbameinsfól. Virka daga 9-11 s. 21122, Félags-
málafulltr. miöviku- og fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmistæringu (alnæmi) i s. 622280.
Milliliöalaust samband við lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miövikudag kl. 18-19. Þess á milli er simsvari tengdur við númerið. Upplýs-
inga- og ráögjafasimi Samtaka ’78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein, hafa viðtalstíma á
þriðjudögum kl. 13-17 í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlið 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Sehjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070; Virka daga 8-17 og 20-21. Laugardaga
10-11.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apótekið: Virka daga kl. 9-18.30.
Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarftarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardögum kl. 10-14. Apótek Norftur-
bæjar: Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10
til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til iöstudag. Laugardaga, helgidaga og
almenna fridaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, simþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opiö til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum
kl. 10-12. Uppl. um læknavakt fást i símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. - Apótekið opið virka daga til kl. 18.30. Laugar-
daga 10-13. Sunnudaga 13-14. Heimsóknartimi Sjúkrahússins 15.30-16 og,19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og unglingum í vanda t.d. vegna vimu-
efnaneyslu, erfiðra heimilisaðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofan Ármúla 5 opin 13—17
miðvikudaga og föstudaga. Sími 82833.
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suðurgötu 10.'
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiösluerfíðleikafólks. Uppl. veittar í Rvík í símum
75659, 31022 og 652715. í Keflavik 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir foreldrum og
foreldrafél. upplýsingar. Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Áfengis- og fikniefnaneytendur. Göngudeild Landspitalans, s. 601770. Viðtalstimi
hjá hjúkrunarfræðingi fyrir aðstandendur þriðjudaga 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s; 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem
beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag islands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620.
Lífsvon - landssamtök til verndar ófæddum bömum. S. 15111 eöa ,15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriöjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22.
Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku-
dagskvöld kl. 20-21. Skrifst. Veslurgötu 3. Opiö kl. 9-19. Simi 626868 eða 626878.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðumúla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin 2.
hæö). Opin mánud.-föstud. kl. 9-12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10-12, s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða, þá er s. samtakanna 16373,
kl. 17-20 daglega.
FBA-samtökin. Fullorðin böm alkohólista. Fundir Tjarnargötu 20 á fimmtud. kl. 20.
i Bústaðakirkju sunnud. kl. 11.
Fréttasendingar Rikisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbylgju til Norðurianda,
Bretlands og meginlands Evrópu: Dagiega kl. 12.15-12.45 á 17493, 15770, 13830
og 11418 kHz. Kl. 18.55-19.30 á 15770, 13855, 11418 og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðuriöndum geta einning nýtt sér sendingar á 17440 kHz kl. 14.10
og 13855 kHz kl. 19.35 og kl. 23.00.
Kanada og Bandarikin: Daglega: kl. 14.10-14.40, 19.35-20.10 og 23.00-23.35 á
17440, 15770 og 13855 kHz.
Hlustendur í Kanada og Bandaríkjunum geta einnig oft nýtt sér sendingar kl. 12.15
og kl. 18.55.
Að loknum lestri hádegisfrótta á laugardögum og sunnudögum er lesiö fréttayfiriit
liðinnar viku.
isi. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.
Sœngurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl.
19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiríksgötu: Heimsóknartímar: Almennur kl. 15-16.
Feðra- og systkinatími kl. 20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Bamasprtali Hringsins:
Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspitalans Hátúni 10B: Kl. 14-20
og eftir samkomulagi. - Geftdeild Vífilstaftadeild: Laugardaga og sunnudaga kl.
15-17. Landakotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartimi
annarra en foreldra er kl. 16-17. - Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstu-
daga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14-17. - Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól
hjúkrunarheimili. Heimsóknartimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga til föstu-
daga kl. 16-19.30 - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstöft-
in: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.3030 til 16.30.
Kleppsspitali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshælift: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaftaspítali: Heimsóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20.
- St. Jósefsspftali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlift hjúkrunarheim-
ili i Kópavogi: Heimsóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkur-
læknishérafts og heilsugæslustöðvar: Neyöarþjónusta erallan sólarhringinn á Heilsu-
gæslustöð Suöumesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsóknartimi virka daga
kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akur-
eyri - sjúkrahúsið: Heimsóknarlími alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá
kl. 22.00-8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hrtavertu, s. 27311, kl. 17 til kl.
8. Sami simi á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafveha Hafnarfjarftar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud.-föstud. kl. 9-19, laugard. kl.
9-12. Handritasalur mánud.-föstud. kl. 9-19 og útlánssalur (vegna heimlána) sömu
daga kl. 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið mánudaga til föstudaga kl.
9-19. Upplýsingar um útibú veittar i aðalsafni, s. 694326.
Borgarbókasafn Reykjavikur: Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbóka-
safnift i Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaftasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima-
safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud. -
fimmtud. kl. 9-21. föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s.
27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640.
Opiö mánud. kl. 11-19, þriöjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomu-
staðir viðsvegar um borgina. Sögustundirfyrir börn: Aftalsafn, þriftjud. kl. 14-15.Borg-
arbókasafnið í Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miövikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. kl.
11-16.
Árbæjarsafn: Safniö er opiö fyrir hópa og skólafólk eftir samkomulagi frá 1. okt.—
31. maí. Uppl. í síma 84412.
Akureyri: Amtsbókasafnift: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahúsalla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafnið ó Akureyri: Opið sunnudaga kl. 13*15.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Llstasafn íslands, Fríkirkjuvegi. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Yfirlitssýn-
ing ó verkum Svavars Guðnasonar 22. sept. til 4. nóv.
Safn Ásgrims Jónssonar: Lokaö vegna viögerða.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún: Er opið alla daga kl. 10-16.
Húsdýragaröurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðvikudaga, kl. 13-17. Opinn um
helgar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar: Opiö laugardaga sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmynda-
garðurinn kl. 11-16, alla daga.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laugardaga og sunnudaga kl.
14-17. Þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofa safnsins opin. Sýning á andlitsmyndum.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opiö sunnudaga milli kl. 14 og
16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriðjud. fimmtud.
og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og laugardögum kl. 13.30-16.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.-föst. kl. 10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið laugardaga og sunnudaga Id. 14-18 og eflir sam-
komulagi. Simi 54700.
Sjóminjasafn íslands Hafnarfirfti: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Sími
52502.
ORÐ DAGSIIVIS Reykjavík sími 10000.
Akureyri s. 96-21840.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. - föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokaö í laug 13.30-16.10. Opið i böð og potta. Laugard. 7.30-17.30.
Sunnud. kl. 8.00-15.00. Laugardalslaug: Mánud. - föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laug-
ard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30. Vesturbæjartaug: Mánud. -
föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30. Breiö-
holtslaug: Mánud. - föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laugard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá
kl. 8.00-17.30.
Garðabær: Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard. 8.00-17 og sunnud.
8-17.
Hafnarfjörftur. Suðurbæjariaug: Mánudaga — föstudaga: 7.00-21.00. Laugardaga:
8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga - föstudaga:
7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30.
Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helg-
ar: 9-15.30.
Varmárlaug í Mosfehssvelt: Opin mánudaga - fimmtudaga kl. 6.30-8 og 16-21.45
(mánud. og miðvikud. lokaö 17.45—19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16—18.45. Laugar-
daga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30.
Sundmiðstöð Keflavikur: Opin mánudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnu-
daga 9-16.
Sundlaug Kópavogs: Opin mónudaga - föstudaga kl. 7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugar-
daga kl. 8-17. Sunnudaga kl. 9-16. Kvennatimar eru þriðjudaga og miövikudaga kl.
20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga - föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnu-
daga 8-16. Sími 23260.
Sundiaug Sehjarnarness: Opin mánud. — föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-
17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.