Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar á kjarasamning BHMR og ríkisins voru til umræðu í neðri deild alþingis í gær. Myndin var tekin þegar BHMR mótmælti lögunum við þingsetningu. Bráðabirgðalög á kjarasamning BHMR: Orð forsætisráðherra foragt á Alþiiigi og hlutverki þess - sagði Ragnhildur Helgadóttir, Sjálfstæðisflokki, við umræður í neðri deild BRÁÐABIRGÐALÖG þau sem kennd eru við BHMR voru til um- ræðu í neðri deild Alþingis í gær. Þingmenn voru margorðir og á stundum langorðir. Aðildarfélagar í Bandalagi há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna, BHMR voru fjölmennir á þingpöll- um í upphafi umræðunnár. Forsæt- isráðherra, Steingrímur Hermanns- son, mæiti fyrir málinu og lagði til að ijárhags- og viðskiptanefnd fengi það til umfjöllunar. Hann rakti m.a. aðdraganda laganna og tilurð kjarasamninga við BHMR í maí 1989. í máli hans kom fram að á þeim tíma hefði hann mjög horft í fyrirvara í 1. gr. samning- anna um að samanburður og hugs- anlegar kjarabætur til BHMR- félaga ieiddu ekki til röskunar á launakerfínu og „efnahagslegrar kollsteypu". Hann fór ennfremur orðum um 5. gr. samningsins en í því fólst að ef samanburði yrði ekki lokið fyrir 1. júlí 1990 skyldu laun hækka um 4,5%. Því miður hafi ekki auðnast að ljúka samanburði fyrir sett tímamörk og hækkunin komið til framkvæmda samkvæmt úrskurði félagsdóms. Kjarasamn- ingar og þjóðarsátt annarra laun- þega í febrúar og viðbrögð þeirra forystumanna og atvinnuh'fsins hafi leitt til þess að ríkisstjórnin hafi taiið að hækkun myndi brjóta niður þjóðarsáttina og leiða til víxlhækk- ana launa og verðlags. Ekki hafi tekist samkomulag við BHMR um frestun hækkaria. Ríkisstjórnin hafi séð sér þann nauðugan einn kost að setja bráðabirgðalög. Steingrímur svaraði nokkru spumingum þeim sem þingmenn Kvennalista beindu til hans í ut- andagsskrárumræðum 18. þ.m. Hann sagði það vera misskilning að bráðabirgðalögin hafí numið úr gildi dóm félagsdóms, dómnum sé í engu raskað heldur sé hlutum samningsins breytt þannig að greiðslur sem í samningnum fælist féllu niður frá 1. september 1990. Hann vísaði því algjörlega á bug að bráðabirgðalögin brytu í bága við stjómarskrána. Hann vék m.a. að því hvers vegna Alþingi var ekki kallað saman í ágúst til að fjalla um kjarasamning BHMR og sagði að ítarlegar tilraunir hefðu verið gerðar til að ná samkomulagi við BHMR en ekki tekist og málið ver- ið komið mjög í eindaga og sjaldan hafí brýnni nauðsyn borið til laga- setningar en í þetta skipti. Hann sjái heldur ekki mun, þegar búið sé að kanna að fylgi sé tryggt á Alþingi fyrir slíkum lögum. Um þörf á stjórnlagadómstóli sagði hann að venja væri að treysta á almenna dómstóla og setja ekki upp sérdómstóla. Steingrímur íjallaði einnig um afleiðingarnar af því ef ekki hefði verið gripið til ráðstafana og taldi að af hefði hlotist öng- þveiti í efnahagsmálum. Siðferðisbrestur Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK/Rn) sagði lögin koma þremur mánuðum of seint fyrir þingið og sagði það m.a. alvarlegt að ríkið skyldi ekki standa við gerða samn- inga og þótti lítið til koma um „svo- kölluð svör“ ráðherra. Hún sagði að framkvæmdavaldið ætti ekki að setja lög á dómsvaldið, sagði lögin siðlaus og af þeim skaða. Það væri allra hagur að kjarsamningar væru virtir og aðrir launþegar hefðu ekki hag af því að sett væru lög á BHMR. Hjörleifur Guttormsson gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum en hann var og er andvígur bráða- birgðalögunum. Hann sagði m.a. að málið snerist ekki um réttlæti í hlutaskiptum í þjóðfélaginu heldur grundvallaratriði. Tilraunir ríkis- valdsins til að leysa málið hefðu verið brotakenndar og það ekki haft fyrir því að hafa samband við BHMR úr því að samningurinn væri orðinn svo ótækur og ógildur. Hjörleifur varaði einnig launafólk við því að taka undir gjörning af þessu tagi. Fordæmisgildið í þessu máli væri stórhættulegt. Hann lét þess getið að þinglið Alþýðubanda- lagsins hefði ekki gengið glatt til þess leiks þegar lögin voru sett. Hann talaði einnig um þann trúnar- brest sem væri millum BHMR og ríkisins og þótt menn teldu vera stundarhagnað af þessum lögum horfi það ekki til lengri tíma til farsældar. Frekt framkvæmdavald Þórhildur Þorleifsdóttir (SK/Rv) gagnrýndi lögin og málatilbúnað MMfMSI allan í nokkru máli, m.a. taldi hún framgöngu fjármálaráðherra hafá einkennst af hroka og yfirgangi. Hún sagði vakta hafa verið upp öldu andúðar eða nánast mennta- mannahaturs og það hvetti ekki unglinga til að afla sér menntunar. Hún spurði. ráðherra einnig um. hvort málskostnaður yrði greiddur úr ríkissjóði vegna málaferla sem nú væru háð vegna bráðabirgðalag- anna. Hún sagði um þau ummæli forsætisráðherra um að ekki þyrfti að kalla saman þing þar eð meiri- hiuti væri tryggður að stjómarand- staðan hlyti að hafa sinn rétt. Fram- kvæmdavaldið væri frekt til fjörs- ins, viðhorfið væri að óþarfi væri að kalla þing saman, þægilegra væri að setja sem flest bráðabirgða- lög. Að endingu minnti Þórhildur þingmenn á þá skyldu að fylgja eigin samvisku. Birgir ísleifur Gunnarsson (S/RV) sagði m.a. lögin lýsa sið- ferðisbresti og um væri að ræða grófa misnotkun á valdinu til setn- ingar bráðabirgðarlaga. Við samn- inga væri ekki staðið. Hann gagn- rýndi að hvorki ríkistjórn né fjár- málaráðherra hefðu gert ráðstafan- ir til að taka upp viðræður við BHMR. Birgir ísleifur vitnaði einnig í ummæli forsætisráðherra um að hann hefði viljað taka upp viðræður við BHMR fyrr á árinu en það hefði ekki fengið hljómgrunn innan ríkis- stjómarinnar og spurði hveijir hefðu ekki tekið undir álit fórsætis- ráðherrans. Birgir sagði ljóst að ætlun ríkisstjórnarinnar hefði ekki verið að standa við gerðan samn- ing. Birgir rakti nokkuð fyrri yfír- lýsingar stjórnarliða og taldi gæta ósamræmis. Um alþýðubandalags- menn sagði hann að ljóst væri að yfírleitt væri ekkert að marka hvað þeir segðu og orð þeirra stæðust yfirleitt ekki. Hnykkti við Ragnhildur Helgadóttir (S/Rv) sagði að tiltekin ummæli forsætis- ráðherra hefðu orðið sér tilefni til að stíga í ræðustól, vissulega segði hann margt svo manni hnykkti við en sýnu verst væri að hann sæi ekki mikinn mun á því, þegar fund- ið væri út að meirihluti þingmanna standi með bráðabirgðalögum og svo hinu að lög væru sett á Al- þingi. Ragnhildur sagði þessa yfir- lýsingu svo alvarlega í lýðræðis- og þingræðisþjóðfélagi að hún sæi sérstaka ástæðu til að vekja á þeim athygli. Þessi yfírlýsing lýsti meiru um hæstvirta ríkisstjórn heldur en því sem kæmi fram í þessu frum- varpi og væri það þó ærið. Þessi yfirlýsing fæli í sér afstöðu sem hefði reynst mjög hættuleg í mörg- um ríkjum og Ieitt til margra ára ofstjórnar. Ragnhildur sagði það vera tímaskekkju og alvarlegan sið- ferðisbrest að heyra slík ummæli. Þetta lýsti „fullkominni foragt" á Alþingi og hlutverki þess. Sá for- sætisráðherra sem 'léti sér.slíkt um munn fara ætti sem fyrst að biðj- ast lausnar. Ragnhildur taldi það furðu gegna að ríkisstjórn undir slíkri forystu nyti meirihlutastuðn- ings alþingis. Ragnhildi þótti lítil geð guma. Ragnhildur sagði og gagnrýndi mjög að samið hefði verið með þeirri vitund að standa ekki við samninga. Hún gagnrýndi foragt á dómstólum og sagði það vera brot- alöm á rökhugsun að tala um að forsendum dóms hafi verið breytt en ekki dómnum. Að endingu minntist Ragnhildur fyrirvara um „brýna nauðsyn“ þeg- ar bragðabirgðalög eru sett og sýndist ríkisstjórnin telja það brýnni nauðsyn að halda saman en virða AlþingÍDg dómstóla. Ragnhildi virt- ist sú nauðsyn brýnust að ríkis- stjórnin bæðist lausnar. Samflokksmaður Ragnhildar, Hreggviður Jónsson (S/Rn), sagði einnig að forsætisráðherra ætti að segja af sér. Hann taldi þessi lög vera stjórnarskrárbrot. Brýna nauðsyn bar til Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra steig öðru sinni í ræðustól til að svara nokkru því sem fram hafði komið undanfarna klukkutíma. M.a. sagði hann ekki hafa verið rætt um gjafsókn í próf- málum og vísaði til dómsmálaráð- herrans. Ennfremur sagði hann það hafa verið flestra mat að fyrirvarar um að samningar röskuðu ekki launahlutföllum stæðust og um- saminn launasamanburður háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna og þeirra á fijálsum vinnumarkaði hefði reynst tafsamari og erfíðari en upphaflega hefði verið haldið. Steingrímur vísaði því á bug að ekki hefði verið áformað að standa við gerða samninga. Það hefði ver- ið ljóst að óbreyttir samningar hefðu leitt til röskunar sem laun- þegar á almennum kjaramarkaði hefðu ekki sætt sig við. Hann lét þess getið að þjóðarsáttin rynni sitt skeið á enda í september 1991 og þá vonaðist hann til að þá yrði hægt að semja á grundvelli saman- burðar sem þá lægi væntanlega fyrir. Um þá gagnrýni sem fram hafði komið m.a. á ummæli sín að fylgi við lögin hefði verið tryggt, sagði forsætisráðherra að stjórnarskráin heimilaði bráðabirgðalög ef brýna nauðsyn bæri til og ef þessa væri gætt væri engin munur á lögunum. Hann vonaðist til að á þessu máli yrði tekið málefnalega. Fjármálaráðherra sagði forsætis- ráðherra hafa svarað flestu. Kvaðst hafa skrifað aðildarfélögum BHMR bréf þar sem óskað væri eftir við- ræðum og hefðu nú þegar verið haldnir gagnlegir fundir til að bæta samskipti háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna við vinnuveitanda sinn. Friðrik Sophusson (S/Rv) innti nánar eftir því hveijir hefðu verið lögfræðilegir ráðgjafar forsætisráð- herra, taldi nauðsynlegt að hreinsa nafn ríkislögmanns sem hefði verið nefndur í þessu sambandi. Einnig, hveijir hefðu lagst gegn því í ríkis- stjórn að leita viðræðna við BHMR og hvort það hefði verið fjármála- ráðherra. Á eftir Friðriki tóku Stef- án Valgeirsson (SFJ/Ne) og Þór- hildur Þorleifsdóttir einnig til máls. Stefán upplýsti að hann hefði á sínum tíma verið spurður um fylgi sitt við þessi lög og sér hefði litist illa á. Steingrímur Hermannsson sagð- ist aðallega hafa ráðgast við Jón Sveinsson lögfræðing og hann reyndar leitað til fleiri. Hann sagði ekki hafa verið leitað til ríkislög- manns. Forsætisráðherra sagði að þeir sem stóðu að kjarasamanburði með BHMR hefðu talið óþarft að taka upp viðræður um endurskoðun eftir að þjóðarsátt var gerð og fjár- málaráðherra hefði tekið undir það. í máli ráðherra kom einnig fram að hann hefði eftir að Félagsdómur felldi sinn dóm átt í viðræðum við BHMR um frestun hækkana en ekki hefði tekist að ná samkomu- lagi. Birgir Isleifur Gunnarsson (S/Rv) þakkaði forsætisráðherra það að hafa upplýst að það hefði verið fjármálaráðherra sem innan ríkisstjórnarinnar hefði komið í veg fyrir að viðræðna hefði verið leitað við BHMR strax eftir þjóðarsátt. Kvöldmatartími var farinn að nálgast þegar umræðu lauk. At- kvæðagreiðslu var frestað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.