Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 47
47 MQRGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA „Betri en síðast“ - sagði Cruyff um leikmenn Fram Grátleg úrslit Frábær leikur Fram gegn Barcelona en tap á rangstöðumarki MENN hafa velt vöngum yfir því hvort Barcelona sé besta félagslið í heimi eða það sterk- asta sem komið hefur til ís- lands. í leik liðsins við Fram í gær fékkst ekki úr því skorið, en áhorfendur fengu hinsvegar staðfestingu á því að Fram er með besta lið íslands. Tveir umdeildir dómar í lokin færðu Barcelona sigur, 2:1 en með réttu hefðu Framarar, sem voru án tveggja lykilmanna, átt að hrósa sigri gegn stórveld- inu. Byrjunin var góð. Áhorfendur biðu eftir snilldartöktum frá Barcelona en ef eitthvað var komu þeir úr hinni áttinni. Vörnin var ör- ugg og afslöppuð, Logi miðjan full af sjálfs- Bergmann trausti og sóknin Eiðsson beitt. Þegar sjö skrríar mínútur voru liðnar höfðu Framarar átt tvö góð færi sem bæði enduðu með skotum í hliðarnet- ið. Fyrst Steinar Guðgeirsson og svo Jón Erling Ragnarsson. Báðir hefðu getað gert betur, einkum Jón Erling sem virtist ekki átta sig á færinu. Börsungar voru meira með bolt- ann og Ronald Koeman átti tvö ágæt skot framhjá markinu og á 32. mínútu kom óvænt mark. Daninn Michael Laudrup átti glæsilega sendingu inní teiginn á Julio Salinas sem skoraði með góðum skalla. Markið var reiðarslag. Framarar voru ákveðnari í fyrri hálfleik og leikur þeirra markvissari. Börsungar héldu boltanum án þess að sækja verulega og náðu sjaidan að skapa hættu. En á 53. mínútu breyttist leikur- inn verulega. Fernando Munoz fékk rautt spjald fyrir að halda Baldri Bjamasyni, enda hafði hann fengið gult áður. Kristinn R. Jónsson tók aukaspyrnuna vel og Ríkharður Daðason kom á fullri ferð og skor- aði í autt markið. Spánski landsliðs- markvörðuinn Zubizarreta var í berjamó útí teignum og átti aldrei möguleika að verja. Framarar fengu sjálfstraustið að nýju við markið og einum fleiri réðu þeir gangi leiksins. Ríkharður Daða- son fékk ágætt færi en missti bolt- ann í teignum, en of oft voru sóknar- menn Fram rangstæðir. Jón Erling komst í gegn á 87. mínútu og var kominn af stað er hann var dæmdur rangstæður, þrátt fyrir að Spánveiji hafi greinilega verið fyrir innan. Markið virtist þó vera á leiðinni en það kom hinumeginn og rangstöðu- lyktina lagði langa leið. Koeman átti skot að marki; Stoikhov tók við boltanum aleinn við markteig og skoraði af öryggi. Ljómandi af sjálfstrausti Framarar léku eins og þeir best geta og greinilegt að liðið vex með andstæðingnum. Leikmenn blátt áfram ljómuðu af sjálfstrausti og leikgleði og voru hvergi bangnir í baráttunni við spænsku snillingana. Kristinn R. Jónsson og Ríkharður Daðason áttu frábæran leik og Jón Sveinsson og Kristján Jónsson mjög öruggir í vörninni. Steinar og Jón Erling héldu boltanum vel og Pétur Arnþórsson vann vel. Liðið var ein sterk heild og allir skiluðu sínu. í liðið vantaði tvo af bestu mönnum þess; Pétur Ormslev og Viðar Þor- kelsson, en það var ekki að sjá. Það eina slæma við leikinn voru úrslitin sem hefðu átt að vera á hinn veginn. Hneyksli Engin fljóðljós eru á Laugardals- vellinum og því varð leikurinn að fara fram um miðjan dag. Framarar misstu þannig af töluverðum tekjum vegna auglýsinga og stór hluti þess sem þeir höfðu uppúr leiknum vegna sjónvarpssendingar fer líklega í sekt til UEFA vegna nakins manns sem hljóp inná völlinn. Á íslenskum knattspyrnuvöllum þurfa menn ekki að hafa áhyggjur af bijáluðum múg, flugeldum eða Joahn Cruyff, þjálfari Barcelona, sagðist ekki hafa átt von á svo sterku liði Fram. „Þeir voru betri en síðast og spiluðu mjög vel. Við náðum ekki þeim hraða sem við erum vanir, enda erfitt að spila hratt á svona velli. En það hefur líklega verið jafn erfitt fyrir Fram,“ sagði Cruyff. „Ég get ekki dæmt um það hvort Stoichkov var rangstæður í síðara markinu en ég var ekki sáttur við rauða spjaldið. Það hefði verið skilj- anlegt hefði sóknannaðurinn verið kominn í gegn en svo var ekki og því var rautt spjald ekki viðeig- andi..“ Cruyff sagðist eiga von á betri leik í Barcelona. „Við erum betri á heimavelli og reynum að sækja meira og leika hraðar. Ég geri ráð fyrir að yið sigrum en það er ekk- ert ömggt. Fram kom mér á óvart með góðum ungum leikmönnum og heilsteyptu liði og það er best að lofa engu,“ sagði Cruyff. „Svekkjandi að tapa“ - sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari f ram „ÞAÐ var svekkjandi að tapa leiknum. Stákarnir léku vel, sérstaklega miðað við að liðið hefur ekki leikið alvöruleik í heilan mánuð," sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, eftir leikinn. Asgeir sagðist vera mjög sáttur við leik sinna manna og að Barcelona hefði ekki fengið nema þessi tvö marktækifæri sem þeir skoruðu úr. „En þeir nýta færin og það er meira en við getum sagt. Við spiluðum full aftarlega í fyrri hálfleik, en það breyttist í þeim seinni enda þeir orðnir einum færri. Þeir léku ágætlega og það er alltaf erfitt fyrir lið að skapa sér færi þegar sjö til átta leikmenn eru í vörn.“ Um síðari leikinn í Barcelona sagði Ásgeir; „Það verða meiri læti í leiknum í Barcelona. Aðstæður þar eru allt aðrar, stærri völlur og fleiri áhorfendur. Ég held þó að það komi okkur alveg eins til góða að leika á stærri velli. Það gefur okkur meiri tíma og því betra að halda knettinum," sagði Ásgeir. „Gaman að sjá boltann í netinu" „Við, fengum nokkur færi, og, með smá heppni hefðum við átt að skorá tvö til þijú mörk. Ég er svekktur yfír að tapa miðað við hvemig leik- urinn þróaðist. Ég er viss um að Stoichkov var rangstæður er hann gerði síðara markið,“ sagði Ríkharður Daðason, sem gerði mark Fram. Um markið sagði Ríkharður; „Ég beið á fjær stönginni eftir auka- spyrnunni og hljóp síðan inní og sá Zubizarreta koma út úr markinu og því ekkert annað að gera en skalla í markið. Ég hitti knöttinn vel og það var gaman að sjá bolt- ann í netinu." Ríkharður sagði að Fram ætti ekki möguleika í síðari leiknum. „Við reynum að leika skynsamlega og ná hagstæðum úrslitum í síðari leiknum. Við berum enga virðingu fyrir þeim.“ „Örugglega rangstæður“ „Það var slæmt að fá á okkur ann- að markið. Stoichkov var örugglega rangstæður er hann skoraði. Ann- ars er ég mjög ánægður með leikinn og hann var ekki eins erfiður og ég bjóst við,“ sagði Pétur Arnþórs- son. „Við fengum tvö góð upphlaup á fyrstu mínútunum og það má segja að þeir hafi ekki fengið færi um- fram þau tvö sem mörkin komu úr. Með réttu hugarfari getum við náð góðum úrslitum í síðari leiknum." „Ósanngjarnt“ „Ég er ekki sáttur við úrslitin og það var ósanngjarnt að ná ekki jafntefli. Það var ekkert að gerast — hjá þeim og þeir fengu ódýr mörk. Við fengum ágæt færi í upphafi leiks og það hefði ekki verð heppni þó við hefðum gert tvö mörk í fyrri hálfleik. Það er langt síðan ég hef spilað eins rólegan leik. Við náðum að halda boltanum og spiluðum vel,“ sagði Kristján Jónsson. „Eins og ég bjóst við“ „Leikurinn var ekki góður að okkar hálfu, enda aðstæður allt aðrar en við eigum að venjast. Framarar léku eins og ég bjóst við enda hafði ég>- skoðað myndband af leik liðsins gegn Val í síðustu umferð íslands- mótsins og Evrópuleikina gegn Djurgárden,“ sagði Bruns Slot, að- stoðarþjálfari Barcelona. Slot sagðist búast við auðveldari leik í Barcelona. „Það verður allt annað hugarfar hjá leikmönnum Barcelona í síðari leiknum. Við' ættum að komast auðveldlega í næstu umferð keppninnar.“ Morgunblaðiö/RAX Ríkharður Daðason horfir á eftir boltanum S netið eftir að hafa skallað framhjá Subizarreta, markverði, sem er greinilega á leið í öfuga átt. Til hliðar fagnar Ríkharður fyrsta marki sínu í Evrópukeppni. reyksprengjum. Það eina sem þarf að varast er einn nakinn maður. Það er því ótrúlegt að leik eftir leik skuli þessum eina manni takast að snúa á heilan hóp af lögregluþjónum sem standa eins og statistar á meðan maðurinn sýnir hálfri spænsku þjóð- inni hvernig hann er vaxinn niður. Það er hneyksli. Fram-Barcelona 1:2 Laugardalsvöllur, Evrópukeppni bikarliafa, 2. umferð — fyrri leikur, þriðjudaginn 23. október 1990. Mark Fram: Ríkharður Daðason (54.). Mörk Barceiona: Julio Salinas (32.) og Hristo Stoichkov (88.). Gul spjöld: Pétur Arnþórsson (18.), Femando Munoz (28.), Andoni Zubizarreta (37.), José Alexanco (71.). Rautt spjald: Fernando Munoz (53.). Dómari: Roger Gifford. Dæmdi vel en línuverðir hans voru slakir. Áhorfendur: Um 3.000. Lið Fram: Birkir Kristinsson; Jón Sveinsson, Kristján Jónsson, Þor- steinn Þorsteinsson, Ríkharður Daðason; Pétur Arnþórsson, Krist- inn R. Jónsson, Anton Bjöm Markússon (Guðmundur P. Gísiason 81.), Steinar Guðgeirsson (Haukur Pálmason 77.), Baldur Bjarnason; Jón Erling Ragnarsson. Lið Barcelona: Andoni Zubizarreta, fernando Munoz, José Alexanco, Ronald Koeman, Luis Maria Lopez, Sacristan Eusebio, Julio Salinas, Hristo Stoichkov, Michael Laudrup (Miquel Soler 60.), Guillermo Amor, Aitor Beguiristain (Ortega Urbano 45.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.