Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 Suðurnes: Leiðarmerki endurhlaðið VIÐGERÐ á leiðarmerkinu í Suðurnesi á Seltjarnarnesi er lokið. Nesskip hf. og Björgunar- sveitin Albert gerðu með sér samkomulag um viðgerð á vörð- unni sem var að hruni komin. Leiðarmerkið í Suðurnesi er merkt inn á sjókort sem gerð voru á seinni hluta 18. aldar. Danskur sjómælingamaður, kapteinn H. Mi- nor, notaði leiðarmerkið í Suður- nesi sem mælingapunkt þegar hann var við sjómælingar á innanverðum Faxaflóa sumarið 1776. 1930 fór fram umtalsverð viðgerð á innsigl- ingarvörðunni, en verkinu stjómaði Albert vitavörður í Gróttu. Björg- unarsveitin Albert á Seltjamarnesi, sem ber nafn vitavarðarins í Gróttu, stóð hins vegar að viðgerð vörðunnar nú, 60 áram síðar. Selt- jamameskaupstaður hefur ákveðið að laga umhverfí vörðunnar og tryggja að ágangur sjávar bijóti hana ekki niður aftur. Morgunblaðið/Hreinn Siguijónsson Innsiglingarvarðan á Suðumesi og liðsmenn úr Björgunarsveit- inni Alberti, sem unnu að viðgerð vörðunnar. VEÐUR _ I/EÐURHORFUR í DAG, 26. OKTÓBER YFIRLIT í GÆR: Um 350 km suður af Vestmannaeyjum er 975 mb lægð, sem þokast norðnorðvestur, önnur lægð er við vestur- strönd frlands og mun hún þokast austur. SPÁ: Suðaustanátt, viðast kaldi. Skurir sunnanlands og vestan, súld við austurströndina en þurrt að mestu á Norðuriandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustan- og austanátt á landinu. Súld og þoka við austurströndina og skúrir sunnanlands en úrkomu- litið á Norður- og Vesturiandi. Hiti 4—9 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- eða norðaustanátt á landinu, viða strekkingur, einkum norðantil. Rigning og súld viða um land. Áfram fremur hlýtt. TÁKN: Heiðskírt á £ í * Léttskýjaö Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r' r r r r r r Rigning r r r * r * / * / * Slydda / * / * * # * * * * Snjókoma # # * ■JO Hitastig: 10 gráður á Celsius V y Skúrir Él = Þoka = Þokumóða ’, 5 Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður w VEÐUR VÍBA UM HEIM kl. 12:001 gær ai Isl. tíms hltl veéur Akureyri 4 alskýjsð Reykjwflt 10 akýjBÖ Bergen 9 léttskýjað Helsinki 3 súld Kaupmannahof (i 12 þokumóða Narssarssuaq vantar Nuuk +2 skýjað Osló 1 léttskýjað Stokkhólmur 2 þokumóða Þórehöfn 10 rigningás.klst. Algarve 23 léttskýjað Amsterdðm 14 þokumóða Barcelona 20 léttskýjað Berltn 10 lóttskýjað Chleago 2 léttskýjað Feneyjar 12 þokumóða Frankfurt 13 mistur Qlasgow 12 léttskýjað Hamborg 9 mistur LasPalmas 28 léttskýjað London 15 hálfskýjað LosAngeles 17 helðskírt Lúxemborg 10 rignlng Madríd 12 skjöað Malaga 21 hálfskýjað Mallorca 21 léttskýjað Montreaf 3 þokumóða NewYork 10 skýjað Orlando 19 skýjað Parfs 14 skýjað Róm 20 aiskýjað Vín 8 mistur Washington 10 skýjað Winnipeg 0 léttskýjað Vinna við Blöndulínu að stöðvast: Landeigendur, neita að semja1 VINNA við Blöndulínu, frá Blönduvirkjun að byggðalínu, er nú að stöðv- I ast þar sem ekki fæst leyfi sveitarstjórnar Svínavatnshrepps til að vinna við hana í landi Höllustaða og Löngumýrarbæjanna á meðan ósamið er við landeigendur um bætur. Löngumýrarmenn neituðu að semja og Landsvirkjun hefur óskað eftir eignarnámi. Ólafur Jensson yfirstaðar- verkfræðingur við Blönduvirkjun segir þetta valda nokkurra mánaða töfum, en í haust átti að leggja veg með línustæðinu og ljúka við undir- stöður mastranna. Ólafur segir sveitarstjóm Svína- vatnshrepps hafa komist að þeirri niðurstöðu að línulögnina þyrfti að leggja fyrir sem skipulagsmál. Það segir hann hafa komið á óvart þar sem slíkt hafi ekki tíðkast annars staðar, en muni hins vegar vera rétt samkvæmt lögum og því hafi Lands- virkjun fallist á það og beiðni verið send til sveitarstjómar. „Þar er það byggingarnefndin sem fjallar um þetta og synjaði línulögninni. Aðal- forsendan er sú, að ekki sé búið að semja við landeigendur, sem út af fyrir sig er ekki skipulagsforsenda, þannig að nefndin dæmir ekki málið út frá réttum forsendum að okkar dómi,“ segir Ólafur. ,,Við eigum sjálfir Eiðsstaði,“ seg- ir Ólafur, „sem meginið af bygging- um virkjunarinnar er í, og hluti af línunni, og við eram búnir að semja við Guðlaugsstaði sem er næsta jörð fyrir utan, en það er óumsamið við Höllustaði og Löngumýrarbæina tvo. Páll á Höllustöðum hefur lýst því yfir að hann muni sætta sig við þær bætur sem þeir á Longumýrarbæjun- um fá. Þannig að deilan stendur ekki beinlínis við Pál, heldur þá Löngumýramenn, og það náðust eng- ir samningar við þá varðandi bætur. Þeir vildu heldur ekki standa að neinu málsskoti til gerðardóms eða mats- hefndar eða slíks, þannig að Lands- virkjun átti þá ekki neinn kost annan en að biðja um eignamám. Það mál er komið áleiðis, en því er ekki lokið og er að mér skilst ekki ennþá kom- ið til matsnefndar eignarnámsbóta." „Ég fæ nú ekki séð hvemig hægt er að framkvæma eignamám því það er ekki hægt að gera eignamám hjá mönnum nema það sé ekki önnur leið fær. Og nú geta þeir farið aðra leið með því að lengja örlítið línuna sem liggur út hálsinn. Þeir þurfa aðeins að bæta við einu mastri við- bót í þá lengingu,“ sagði Björn Páls- son á Ytri-Löngumýri. Björn sagði að þetta væri bara stífni og frekja í Landsvirkjun. Hann vildi aðeins að línan færi ekki yfir ræktanlegt land því ætlunin væri að leggja veg með- fram línunni. „Það er óskaplega au- velt að semja um þetta allt ef þeir bara vilja það,“ sagði Björn. Hann sagðist vita að óánægja væri með bætumar sem bændum væm boðnar fyrir jarðraskið. Þeir fá 30 þúsund kr. fyrir hveija uppistöðu sem reist er á hálsinum en 50 þúsund kr. fyr- ir hverja uppistöðu á ræktanlegu landi. Um helmingur allra uppistaðna í línunni mun eiga að liggja um land Björns, eða um 10 talsins. Ólafur sagði þetta valda töfum á línulögninni. Tveir verktakar hafi verið komnir til starfa, annar að leggja veg með línunni. Hann hafi lokið sínu verki að Höllustöðum og sé horfínn frá. Annar verktaki vinnur við undirstöður stálmastranna og er enn í Guðlaugsstaðalandi. Ætlunin var að ijúka undirstöðunum og veg- arlagningunni í haust. Línan á að tengja Blönduvirkjun i við byggðalínuna í landi Ytri-Löngu- mýrar. Heildarlengd línunnar er . rúmlega tíu kílómetrar. Um helming- ! ur línunnar liggur um umdeilda svæðið. Ólafur segir að hvernig sem mál þróist úr þessu, sé ljóst að vinna við línuna tefjist um nokkra mánuði að minnsta kosti. Tónlistar- dagur haldinn í fjórða sinn íslenskur tónlistardagur verður haldinn i fjórða sinn, á morgun, laugardag. í tilefni dagsins leika útvarpsstöðvar nær eingöngu íslenska tónlist. Tónlistarbandalag íslands stendur fyrir dcginum. Rarik-kórinn syngur í Kringl- unni kl. 12.30, opið hús verður í Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar á milli kl. 13 og 15 að Hraunbergi 2 fyrir forskólanem- endur og foreldra þeirra, Tónlist- arskóli Miðneshrepps verður með sameiginlegan tónfund kl. 14 og í forsal Borgarleikhússins verða blústónleikar á milli kl. 15 og 17. Þá verður opið hús í Tónlistarskóla FÍH að Rauða- gerði 27 á milli kl. 14 og 18. Valgeir Guðjónsson heldur tónleika á Púlsinum frá 16 til ' 18, en um kvöldið kemur þar fram hljómsveitin Bláir englar auk Kristjáns Kristjánssonar og Þorleifs Guðjónssonar. íslenskar hljómplötur verða seldar með afslætti á tónlistardeginum. Óperahátíð verður á Hótel íslandi á sunnudag kl. 18.30, en opin æfing fyrir hátíðina verður í sal Söngskólans við Hverfís- götu á laugardag frá 13 til 14. Sjálfstæðisflokkuriym á Vesturlandi: Guðjón Guðmunds- son býður sig fram GUÐJÓN Guðmundsson, skrifstofustjóri og fyrrverandi forseti bæjarsljómar á Akranesi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í próf- lqöri Sjálfstæðisflokksins í Vesturlandskjördæmi. Prófkjörið fer fram meðal aðal- og varamanna í kjördæmisráði flokksins þann 24. nóvember. Guðjón sagði um ákvörðun sína að hann hefði fengið mikla hvatn- ingu til framboðs, bæði af Akra- nesi og annars staðar úr kjördæm- inu. Hann hefði ákveðið að slá til að lokinni vandlegri íhugun og eftir að Valdimar Indriðason vara- þingmaður hefði lýst því yfir að hann gæfí ekki kost á sér. „Það má segja að þetta komi í fram- haldi af 20 ára starfi mínu að bæjarmálum á Akranesi. Mig langar til að takast á við þetta verkefni," sagði Guðjón. Prófkjörið fer fram á fundi } Borgarnesi þann 24. nóvember. Á . hann eru boðaðir aðal- og vara- I menn í kjördæmisráðinu. Fram- boðsfrestur rennur út 10. nóvem- . ber. Auk Guðjón hefur Sturla Böð- varsson bæjarstjóri í Stykkishólmi boðið sig fram. Friðjón Þórðarson alþingismaður hefur ekki gefíð yfirlýsingu um hvort hann fer fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.