Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 37 Þegar hugsjónir bresta FATASKÁPAR eftir Jóhann 1 Guðbjartsson Það er illa komið fyrir okkur kommúnistunum, þar sem á einum vetri hefur verið frá okkur tekin hugsjónin um jafnrétti og bræðralag kommúnismans og eftir stendur blá- kaldur sannleikurinn um hroðaverkin sem unnin hafa verið í nafni hugsjón- arinnar í Austur-Evrópu, með það fyrir augum að halda fólki á réttri braut kommúnismans og koma því í skilning um ágæti þeirrar stefnu sem heldur fram alræði öreiganna, öreig- anna sem í raun engu fengu ráðið en voru aftur á móti algjörlega und- ir járnhæl siðspilltra embættis- manna. Nú eru þessar hugsjónir frá okkur teknar og heyra fortíðinni til, líkt og æskan sem framhjá leið með sínar vonir og þrár, og eftir stöndum við kommúnistar og vitum ekki hvort heldur við eigum að líta til hægri eða vinstri og þorum raunar ekki að líta upp á nokkurn mann, því að nú höf- um við verið stimplaðir vondir menn og siðspilltir, sem kannski reyndar ekki er nein furða miðað við þau voðaverk sem unnin hafa verið í skjóli kommúnismans, sem var okkur öllum hugsjónum æðri og jafnvel sumum hveijum helgari en barnatrú- in sem aðeins var talin fjötur um fót í því að fullkomna hugsjónina enda átti kristin trú ekki upp á pallborðið í þessum fyrirheitnu löndum, reyndar aðeins talin til þess fallin að þjóna auðvaldinu, þessu auðvaldi sem var okkar aðal óvinur sem allt illt hlaust af. Svona geta hugsjónir hrunið á einum vetri líkt og spilaborg sem reist hefur verið én þolir ekki að andað sé á hana. Árið 1982 naut ég þeirra forrétt- inda að fara til Austur-Þýskalands í boði vináttufélagsins Ísland-DDR til að kynna mér vinnuverndarmál í al- þýðulýðveldinu og í leiðinni var okk- ur kynnt það fyrirmyndarlíf sem þar var lifað fyrir austan tjald. Meðal annars var okkur sýndur Berlínarm- úrinn sem reistur var til þess að veijast vondum kapítalistum en er nú átta árum síðar seldur um allan heim í smá brotum fyrir offjár vegna þess fáránleika sem hann stendur fyrir í mannkynssögunni. Þessi ferð var einstaklega skemmtileg enda var okkur tekið af einskærri gestrisni og ekkert til spar- að til að gera okkur hana eftirminni- lega í alla staði. En ekki var látið þar við sitja að sýna okkur þetta fullkomna þjóðfélag þar sem manneskjan og manngildið var ofar öllu öðru að okkur var sagt, öndvert við kapítalískt þjóðfélag þar sem fjármagnið stjórnar. öllu og gér- ir fólk að öpum eins og segir í máls- KONFEKTMOLAR J með mjukri i þiparmytiÍÍifyHingu. * ví SKÍNANDI J COTT * Jóhann Guðbjartsson „Nú eru þessar hug- sjónir frá okkur teknar og heyra fortíðinni til, líkt og æskan sem fram- hjá leið með sínar vonir og þrár.“ hættinum að margur verði af aurum api, heldur fékk ég um árabil sent heim til mín ýmis gögn um efnahags- mál þessa fyrirmyndar velferðarríkis sem nú er liðið undir lok því þegnarn- ir virðast ekki hafa kunnað að meta það sem fyrir þá var gert. Það var manni ljóst meðan á ferð- inni stóð að ekki voru Austur-Þjóð- veijar þjakaðir af ofneyslu, sóun og bruðli því verslanir þar voru ekki eins áberandi og ekki með eins glæst- um útstiliingum og maður átti að venjast fyrir vestan járntjald og vöru- úrval vægt frá sagt heldur fábreytt, breiðstræti Berlínar voru og hálf auð nema hvað stöku Trabantar og Wart- burgar höktu þar um þannig að stór- borgartraffíkin þar var aðeins svipur hjá sjón miðað við það sem hún er í Reykjavík. En nú er sem sagt von um betri tíð með blóm í haga, aukna neyslu og mengun og hamingjuríkara líf þar sem almenningur þarf ekki lengur að óttast útsenda njósnara stjórn- valda en getur nú loks um fijálst höfuð strokið og andað léttara laus undan ógnarstjórn kommúnista sem hneppti líf þess í fjötra í fjörutíu ár. Höfundur er smiður. SERTILBOÐSVERÐ Henta t.d. í Forstofur Barnaherbergi Gestaherbergi og víöar. Stærð. Breidd 100cm, Hæð210cm VERÐ 19.900 stgr. býður einhver betur ? H - GÆÐI Suðurlandsbraut16 108 Reykjavík Sími: 67 87 87 Marlon Brando Matthew Broderick ásamt Bruno Kirby, Penelope Ann Miller og Frank Whaley í einni vinsælustu kvik- mynd ársins, sem slegið hefur í rækilega í gegn vestan hafs og hiotið einróma lof og fádæma aðsókn. Nokkur biaðaummæli: „Besta grínmynd ársins. Brando er óborganlegur." John Corcoran, KCL-TV Sýnd kl. 5, 7, „Ég hló í margar vikur." Lisa Karlin, WBC „Hrikalega fyndin, einlæg, galin og geggjuð." Susan Granger, WICC „Brando slær eftirminnilega í gegn.“ Roger Ebert, Chicago Sun Times „Brando ertöframaður.“ Richard Schickel, Time „Mynd, sem trónir efst á vinsældarlista mínum.“ Neil Rosen, WNCN 9og 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.