Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 51 I I I i I I I Skúli Unnar Sveinsson skriiar Vendipunkturinn í leiknum var í síðari hluta hans. Hrafn varði vítakast frá Valdimari og skömmu síðar varð Einar Þorvarðarson að fara útaf í tvær mínútur vegna mót- mæla. Strangur dómur að því er virt- ist. Valsmenn minnkuðu muninn í 16:14 en síðan skoruðu Víkingar tvö mörk í röð og þar með töldu flestir að eftirleik- urinn væri auðveldur hjá Víkingum. Annað kom á daginn því Vals- menn voru ekki á því að gefast upp. Með gríðarlega sterkri vörn og þremur ágætum mörkum minnk- uðu þeir muninn í 18:17 þegar 3 mínútur og 45 sekúndur voru eftir. Á þessum kafla breyttu Valsmenn um vöm. I stað 6-0 vamar fór Valdimar framar á móti Alexej Trúfan og Ingi R. Jónsson gætti Guðmundar í vinstra hominu. Þetta gaf góða raun. Guðmundur hafði skorað fjögur nákvæmlega eins mörk úr horninu í síðari hálfleik og Trúfan verið mjög ógnandi. Valsmenn unnu boltann þegar 2 mínútur voru eftir en Valdimar átti ótímabært skot fyrir utan og Víkingar fengu knöttinn. Dæmd voru skref á Karl og Valsmenn fengu annað tækifæri til að jafna. Það gekk ekkert hjá þeim að skapa sér færi gegn vígalegri vörn Víkinga og á lokasekúndunni reyndi Jón skot úr lélegu færi sem Hrafn varði. Vamir beggja liða voru góðar í gær. Víkingar léku lengst af 5-1 vöm en Valsmenn 6-0 og gafst hvort tveggja vel.Vörn Víkings var svo sterk í upphafi að Valsmenn skomðu ekki mark fyrr en eftir tæplega ellefu mínútur! Markverð- imir, Einar og Hrafn, vörðu ágæt- lega og þá sérstaklega Hrafn. Hann varði oft vel einn á móti einum. Það munaði talsverðu fyrir Vals- menn að meiðsli sem hafa hrjáð Biynjar Harðarson, tóku sig upp í upphafi síðari hálfleiks og varð hann því fylgjast með í síðari hálf- leik. Hann var kominn í mikið stuð undir lok fyrri hálfleiks og skoraði þá ijögur mörk í röð fyrir Val. Athygli vakti að hvort lið skoraði aðeíns eitt mark úr hraðaupphlaup- Morgunblaðið/JOIÍus Karl Þráinsson og félagar í Víkingi unnu Valsmenn í uppgjöri efstu liða í gærkvöldi. Hér reynir Karl að komast í gegnum vörn Vals en þeir Jón Kristjánsson og Finnur Jóhannesson eru til vamar. um, nokkuð sem ekki er algengt á þessum bæjum. Víkingar skoruðu 4 mörk með langskotum, 3 úr vítum, 3 með gegnumbrotum, 7 úr homunum og eitt úr hraðaupp- hlaupi. Valsmenn skoruðu 8 mörk með langskotum, 3 með gegnum- Strákamir urðu að sanna sig -sagði Árni Indriðason, aðstoðarþjálfari Víkings Þetta var hörkuleikur, en það var farið að fara aðeins um mig undir lokin. Við vorum með góða forystu og lítið eftir. Þá komu nokkrar stuttar sóknir hjá okkur og það má alls ekki. Sóknirnar verða að vera langar þegar svona stendur á,“ sagði Árni Indriðason aðstoðarþjálfari Víkings. „Víkingur átti undir högg að sækja í fyrravetur og strákamir urðu að sanna sig. Eg held að þeir hafi gert það í kvöld,“ sagði Arni sem sagðist ánægður með vamar- leikinn en sóknin hefði mátt vera betri. „Við gerðum of mörg mistök og skoruðum ekki fyrr en eftir ellefu mínútur," sagði Þorbjörn Jenson, þjálfari Vals. „Verðum við ekki að segja að þeir hafi verið betri? Þeir unnu að minnsta kosti. Það eru átta leikir búnir og hellingur eftir enn. Við gerum bara betur næst,“ sagði Þorbjörn og bætti því við að auðvitað væri hann hundsvekktur yfír því að tapa. brotum, 3 úr hornunum og síðan eitt úr víti, annað af línunni og enn eitt úr hraðaupphlaupi. Valsmenn voru mjög óhressir með dómara leiksins. Eins og áður sagði var það strangur dómur þeg- ar Einar fékk að hvíla sig og einn- ig fannst manni eins og Guðmundur fengi vítaköst þegar brotið var á honum í horninu en hinum megin fékk Valdimar ekki einu sinni auka- kast fyrir áþekk brot. Dómararnir dæmdu fyrri hálfleikinn einstaklega vel en þann síðari síður. KNATTSPYRNA Guðni leikur ekki með gegn Forest Guðni Bergsson leikur ekki með Tottenham gegn Nott- ingham Forest á morgun, en leiknum verður sjónvarpað beint stil íslands. Guðni tognaði aftan á læri vinstri fótar þegar Tottenham lék gegn Arsenal - ágóðaleik fyr- ir Graham Rix. Terry Venebles, framkvæmdastjóri Tottenham, breytti aftur í leikaðferðina 4-4-2 fyrir leik liðsins gegn Sheffíeld United um sl. helgi og átti Guðni þá að leika, en á æfingu fyrir leik- inn kom í \jós að hann var ekki orðinn góður. Guðni er nú að ná sér eftir meiðslin, en er ekki orðinn það góður að hann geti leikið. Eins og svo oft áður þá verður lítið úr „Islendingaleikjum'* í íslenska sjónvarpinu, en sýnt verður beint frá leik Forest og Tottenham í Nottingham. Þorvaldur Örlygsson er 5 herbúðum Forest, en hann hefur ekki fengið tækifæri til að spreyta sig á keppnistímabilinu. Fj. leikja U J T Mörk Stig VÍKINGUR 8 8 0 0 197:162 16 VALUR 8 7 0 1 196: 172 14 STJARNAN 8 6 0 2 189: 179 12 KR 8 3 4 1 186: 179 10 HAUKAR 7 5 0 2 163: 162 10 FH 8 4 1 3 183: 178 9 KA 8 3 1 4 188: 174 7 ÍBV 7 3 0 4 168: 163 6 ÍR 8 1 1 6 174: 193 3 GRÓTTA 8 1 1 6 160: 180 3 FRAM 8 0 2 6 161: 190 2 SELFOSS 8 0 2 6 154: 187 2 Vflcingsvömin sterkari Gríðarleg spenna og stemmningin eftir því er Víkingurvann Val VÍKINGUR vann Val í æsi- spennandi og jöfnum leik og eru Hæðagarðspiltarnir nú þeir einu sem ekki hafa tapað leik í deildinni. Spennan var gríðar- leg og stemmningin í Höllinni eftir því. Varnarleikurinn var í fyrirrúmi enda eru varnir þess- ara liða geysisterkar. Menn komu til að sjá góðan og skemmtilegan leik og urðu ekki fyrir vonbrigðum. Ef þetta var einvígi varnanna, eins og sumir segja, þá er Víkingsvörnin sterkari. ÚRSLIT Víkingur - Valur 18:17 Laugardalshöll, íslandsmótiö f handknatt- leik, 1. deild - VÍS-keppnin, fimmtudaginn * 25. okt. 1990. Gangur leiksins:2:0, 2:1, 4:2, 5:3, 6:4, 7:5, 7:7, 8:8, 8:10, 11:10, 12:12, 14:12, 16:18, 16:14, 18:14, 18:17. Mörk Víkings: Alexej Trúfan 6/8, Guð- mundur Guðmundsson 6, Bjarki Sigurðsson 3, Árni Friðleifsson 2, Karl Þráinsson 1, Birgir Sigurðsson 1. Varin skot: Ilrafn Margeirsson 14/1. Utan valiar: 8 mín. Mörk Vals: Bryryar Harðarson 4, Júlfus Gunnarsson 4, Jakob Sigurðsson 3, Jón Kristjánsson 2, Valdimar Grfmsson 2/1, Finnur Jóhannesson 1, Dagur Sigurðsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 10. Ámi Sigurðsson 1. Utan vallar: 10 mfn. Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefáfl-^ Amaldsson. Áhorfcndur: 994 greiddu aðgang. Spánn Úrslit f 1. deildarkeppninni á Spáni, sem fram fóm 1 fyrra kvöld: A-riðill: Mapamsa - Pontevedra.............28:25 Arrate - Valencia................24:25 Canarias - Granollers............18:30 Granollers fór rólega af stað gegn Canarias og hafði tvö mörk yfir í leikhléi, 10:8. 1 síðari hálfieik spmngu heimamenn og leik- menn Granollers nýttu sér það og unnu með 12 marka mun. Geir Sveinsson stóð sig vel f liði Granollers og gerði 5 mörk, Atli Hilmarsson gerði 3 en Franch var markahæstur með 6 mörk. Atli tognaði 'í ~ baki og verður líklega ekki með um helgina. Staðan: Valencia 12, Barcelona 8, Granoll- ers 8, Arrate 6, Pontevedra 4, Mapamsa 4, Naranco 2 og Canarias 2. B-riðill: Malaga - Alicante..............28:34 Michelin - Bidasoa.............19:27 Bogdan Wenta var markahæstur f liði Bid- asoa með 6 mörk, Alferð Gíslason kom næstur með 4. Atltico Madrid - Tres de Mayo..24:13 Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik og staðan 11:9 fyrir Atletico. Svíinn Svens- son kom ! markið ! sfðari hálfleik og lokaði þvf á köflum þannig að gestimir gerðu aðeins 4 mörk í sfðari hálfleik. Rubinio var markahæstur í iiði Atletico með 8 mörk. Sigurður Sveinsson gerði 3/1. Teka - Cíya Madrid...............27:20 Cabanas var markahæstur f liðið Teka með sex mörk. Kristján Arason lék ekki með vegna meiðsla i öxl. Reiknað er með að hann leiki fyrsta leik sinn með Teka um helgina. Staðan: Teka 11, Atletico Madrid 10, Caja Madrid 9, Bidasoa 8, Alicante 6, Malaga 4, Tres de Mayo 0, Michelin 0. Markahæstir: Stinga, Valencia 41, Fuzesi, Canarias 39, Dzogic, Pontevedra 38, Vujovic 37, Atli Hilmarsson 37. Alfreð Gíslason hefur gert 84 mörk. AH, Spáni BLAK Hagaskóli, Islandsmótið í blaki karla, mið- vikudaginn 24. okt. 1990. ÍS - Þróttur.......................2:8 (7:15, 13:15, 16:14, 12:15, 15:17) Leikur ÍS og Þróttar var með lengra móti og tók alls 106 mínútur, _ enda var hann jafn og spennandi og þurfti fímm hrinur til að ná fram úr- sliturn. Þróttarar Guðmundur höfðu betur í úrslita Helgi hrinunni og unnu Þorsteinsson 17-15 eftir tvísýna skrifar baráttu. Leifur Harð- arson var besti leikmaður Þróttar, en þjá ÍS voru Þorvarður Sigfússon og Amgrimur Þorgrímsson bestir. Míðnæturleikur Hagaskóli, Islandsmótið í blaki kvenna, miðvikudaginn 24. okt. 1990. tS-UBK............................1:3 (14:16, 6:15, 15:0, 16:17) Það var komi laust undir miðnætti þegar leikur IS og UBK kláraðist. Breiðablik vann fyrstu tvær hrinurnar nokkuð örugglega. Það óvænta gerðist að Stúdínur selltu Blika- stúlkum hressilega í þeirri næstu, 15:0! Ótrúlegt að jafn sterkt lið og UBK þurfi að þola annan eins skell. I fjórðu hrinunni tóku Blikastúlkumar sig til f andlitinu og unnu, 17:16, en sigurinn var tæpur þvi Stúdinur fengu tækifæri til að gera út um hrinuna í tvígang. Oddný Erlendsdóttir var besst þjá UBK, en hjá Stúdínum sýndi Katrin Pálsdóttir góð tilþrif ásarnt Úrsúlu Juneman. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.