Morgunblaðið - 26.10.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
19
Eggert Haukdal
í annað sætið
sem gripnir era upp af handahófi
í erlendum höfnum og enginn veit
hvert lið verður að, þegar mikið
ríður á samvöldum mannskap.
Til siglinga á Norðaustur-Atl-
antshafí þarf menn vana því óst-
illta hafi. Auk þess á skipshöfn á
íslenzku skipi að vera fulltrúi þjóð-
ar sinnar í erlendum höfnum. Það
gæti þurft löggjöf í þessu efni, því
þetta er meira en peningamál.
Reykvískir sjálfstæðismenn
eiga að muna, að það er sjómanna-
stéttin, sem lagði granninn að
þeirri Reykjavík sem nú er.
Guðmundur Hallvarðsson er
frambærilegur maður til þingsetu
og góður fulltrúi stéttar sinnar.
Að endingu: Munið einnig ungu
mennina sem í framboði eru. í
þeirra hópi era efnilegir piltar og
áróður margra gamlingja gegn
þeim ósanngjarn.
Höfundur er rithöfundur.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
“r,
eftirHarald
Blöndal
Það hefur ekki farið fram hjá
landsmönnum, að það er rekinn
óvenju rætinn og óvæginn áróður
gegn Eggerti Haukdal alþingis-
manni. Birtar hafa verið Gróusögur
um hann í blöðum og reynt að níða
hann á allan hátt. Hámarki nær
þessi rógburður í blaði stuðnings-
manna Arna Johnsen, en þar er
birt yfir hálfa baksíðu níðmynd af
Eggerti — en höfundur er einkavin-
ur Arna, teiknarinn Sigmund.
í sveitarstjórnarkosningunum í
vor fékk Eggert Haukdal 65% at-
kvæða. Árið 1979 bauð Eggert sig
fram á sérlista en með stuðningi
sjálfstæðisfélaganna í Rangárvalla-
sýslu. Eggert náði þá kosningu og
sýndi, að hann hefur traust kjós-
enda. Eggert sigraði í síðasta próf-
kjöri sjálfstæðismanna og náði öðra
sæti, en studdi formann flokksins
í fyrsta sætið.
Ég hef nokkuð þurft að hafa
samvinnu við Eggert Haukdal
vegna fyrirtækja á Suðurlandi, sem
áttu í íjárhagsvandræðum. Eggert
studdi mjög dyggilega að lausn
þeirra mála. Eggert hefur fylgt fast
eftir þeirri trú sinni, að traustur
einkarekstur sé undirstaða þess, að
fólk búi á Suðurlandi, og hann
veit, að það verður ekki gert með
opinberri forsjá.
Á Alþingi hefur Eggert látið
vaxtamál til sín taka. Eg veit, að
fjármálaforkólfar og vaxtakóngar
eru ekki sáttir.við hugmyndir Egg-
Ásgeir Jakobsson
Friðrik Sophusson
1. þingmaður Reykvíkinga
Ég hvet allt sjálfstæðisfólk í Reykjavík til að
taka þátt í prófkjörinu í dag og
á morgun. Látum prófkjörið verða upphaf
að öflugri sókn til sigurs í komandi
Alþingiskosningum.
erts. Ég veit líka, að fátækt fólk
tekur undir sjónarmið Eggerts.
Allir eru sammála um, að taka
þarf landbúnaðarstefnuna til endur-
skoðunar. Það er ekki til farsældar
um lausn þeirra mála að fella af
þingi fulltrúa bænda á Suðurlandi.
Þess vegna er það von mín, að
sunnlenskir sjálfstæðismenn tryggi
örugga kosningu Þorsteins Pálsson-
ar í fyrsta sætið og Eggerts Hauk-
dals í annað sætið.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Haraldur Blöndal