Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 14

Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÖBER 1990 SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI Prófkjör sj álfstæðismanna í Reykjavík DAGANA 26. OG 27. OKTÓBER 1990 Prófkjörið hefst í dag, föstudag. Kjörstaður er í Valhöll, Háaleitisbraut 1. A morgun, laugardag, verður kosið á 5 kjörstöðum. Kjósið í því hverfi sem þér hafið búsetu í Ef þér hafið flutt til Reykjavíkur eftir 1. desember 1989 og ætlið að gerast flokksbundinn, þurfið, þér að framvísa vottorði frá Hagstofunni sem staðfestingu á lögheimili í Reykjavík. Kjörstaðir verða opnir sem hér segir: Föstudaginn 26. október frá kl. 13:00 -22:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1 - öll kjörhverfin saman. Laugardaginn 27. október frá kl. 09:00 - 22:00 á 5 kjörstöðum í 6 kjörhverfum. Atkvæðisrétt eiga: Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík þann 25. apríl 1991 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir lok kjörfundar. Hvernig á að kjósa ? Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur og flest 12. Skal það gert með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlegan framboðs- lista. Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem óskað er að skipi fyrsta sæti fraboðslistans, talan 2 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem óskað er að skipi annað sæti framboðslistans o.s.frv. 1. Kjörhverfi Nes- og Meiahverfi, Vestur- og Miðbæjarhverfi og Austurbæjar- og Norðurmýrarhverfi. Oll byggð vestan Snorrabrautar og einnig byggð vestan Rauðarárstígs að Miklubraut. Kjörstaður: Hótel Saga (Nýja áiman) 2. hæð, C-salur - Gengið inn um austurdyr. 2. Kjörhverfi Hlíða- og Holtahverfi, Laugarneshverfi og Langholtshverfi, öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar og norðan Suðurlandsbrautar. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. (Vestursalur 1. hæð). 3. Kjörhverfi Háaleitis- og Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur og Suðurlandsbraut í norður. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. (Austursalur 1. hæð). 4. Kjörhverfi Arbæjar-og Seláshverfi og Ártúnsholt. Kjörstaður: Hraunbær 102B (Suðurhlið). 5. Kjörhverfi Breiðhoitshverfin - öll byggð í Breiðholti. Kjörstaður: Menningarmiðstöðin við Gerðuberg. 6. Kjörhverfi Grafarvogur - öll byggð í Grafarvogi. Kjörstaður: Verslunarmiðstöðin að Hverafold 1 - 3. Kjósum Sólveigu Pétursdóttur í 3. sætið í prófkjörinu eftirBessí Jóhannsdóttur Nú fer að renna upp sú stund að ákveða þarf endanlega hverja skal merkja við í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Mikilvægt er að konur fái brautargengi í örugg sæti á listanum. Það er pólitísk nauðsyn sem bregðast þarf við. Sólveig Pétursdóttir er fyrsti varaþingmaður Reykvíkinga. Hún hefur haft tækifæri til að sitja á Alþingi nokkurn tíma og öðlast við það dýrmæta reynslu. Hún hefur ekki verið með sýndarmennsku í vinnubrögðum eins og mörgum hættir til. Sólveig hefur lagt breyt- ingar á lögum, sem allar horfa til aukinna mannréttinda til verndar einstaklingnum. Má þar nefna breytingar á skattalögum til að persónuafslátt megi færa að fullu milli hjóna og á lögum um málefni aldraðra til að minnka greiðslubyrði þeirra sem eru sjúkir og dveljast í þjónustuhúsnæði. Árið 1989 varð að lögum frumvarp sem Sólveig flutti um að forgangskröfur ríkisins í þrotabú og dánarbú yrðu felldar niður þannig að ríkið gæti ekki gert kröfur á undan öðrum kröfu- höfum. Sólveig hefur sýnt það í verki að hún- er dugleg, kjarkmikil og fylgin sér. Það er skemmtilegt að umgangast hana, hress og jákvæð afstaða til manna og málefna ræður þar mestu. Framundan eru ár mikilla breyt- inga. Aðlögun að breyttri heims- mynd og ekki síður breyttri þjóðfé- Bessí Jóhannsdóttir lagsmynd á íslandi. Til þess að tak- ast á við málefni framtíðarinnar þarf einstaklinga með framsýni, dugnað og skilning á mannlegum eiginleikum. Eg hvet þig, sjálfstæð- ismaður, til að kjósa Sólveigu Pét- ursdóttur í 3. sæti í prófkjörinu um helgina. Veitum 3 konum brautar- gengi í 9 efstu sæti listans. Höfundur er framkvæmdastjóri í Reykjavík. Olíuverðsbreytíngarnar eftir Helga Laxdal í Dagblaðinu 11. október er við- tal við Svein H. Hjartarson hag- fræðing LÍÚ. í viðtalinu er hann að svara sjómönnum sem halda því réttilega fram að fram til þess tíma hafi útgerðarmenn hagnast á olíu- verðsbreytingunum, og alveg sér- staklega á þeim skipum þar sem svartolíu er brennt. Um svartolíu- skipin segir Sveinn að þar komi á ...hjá okkur SIGGEIRSS0N Hesthálsi 2 • 4 91-672110 BORÐSTOFUSKÁPA n móti aukin útgerðarkostnaður og hærri laun til vélstjóranna. Samkvæmt mati Fiskifélags ís- lands er nettóhagnaður útgerðar á skip þar sem svartolíu er brennt frá 4-8 milljónum króna ári, en hvað skyldi nú hagnaðurinn af svartolíu- brennslunni aukast mikið ef sleppt væri sérlaunum til vélstjóranna. Á tveggja vélstjóra skipi sem gert er út í 10 mánuði eru sérlaun um 70.000 kr. á ári eða heilar 35.000 kr. pr. mann, séu 3 vélstjór- ar á skipinu nema sérlaunin um 87.000 'kr. eða um 29.000 kr. á mann sem eru~heilar 2.900 kr. á mánuði. Sé litið til kostnaðaraukans af sérlaunum m.v. hagnað útgerðar- innar nemur hann um 1-2%. Um- mæli Sveins Hjartar eru því algjör- lega óskiljanleg og tæpast hæfandi hagfræðingi og um leið kaldar kveðjur til vélstjóra skipanna, því áfallalaus svartolíubrennsla byggist fyrst og fremst á hæfni þeirra í starfi. I ljósi þessa eru sérlaunin í engu samræmi við mikilvægi starfs- ins og ávinning útgerðarinnar. Höfundur er formaður Vélstjórafélags íslands. » í LA UGARDAGSKAFFI Kvennalistans í Reykjavík í þess- ari viku, þ.e. 27. október, mun Guðrún Agnarsdóttir segja frá nýlegri ferð sinni um Bandaríkin þver og endilöng. í ferðinni sem Guðrún fór í boði heimamanna, hitti hún margt áhugavert fólk, ekki síst konur sem starfa að velferðarmál- um, stjórnmálum, listum, fjölmiðl- um o.fl. og skoðaði hugmyndir þeirra, viðfangsefni og vinnubrögð. Laugardagskaffi Kvennalistans er öllum opið sem áhuga hafa á mál- efninu hveiju sinni. Það stendur frá kl. 10.30-13 hvem laugardag á Laugavegi 17. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.