Morgunblaðið - 26.10.1990, Page 20

Morgunblaðið - 26.10.1990, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 Opið hús hjá Samhjálp kvenna SAMHJÁLP kvenna sem er stuðn- ingshópur kvenna sem gengið hafa undir aðgerð vegna bijóst- krabbameins hefur opið hús í húsi Krabbameinsfélagsins í Skóg- arhlíð 8, þriðjudaginn 30. október kl. 20.30. Valgerður Sigurðardóttir krabba- meinslæknir flytur erindi um breyt- ingaskeið kvenna og bijóstkrabba- mein. Að loknu erindinu verða al- mennar umræður og kaffiveitingar. Samhjálp kvenna var stofnuð 1979 og er elsti samstarfshópurinn sem starfar í tengslum við Krabbameins- félagið. Allir sem vilja kynnast starf- semi samtakanna eru hvattir til að koma á þennan fund. (Fréttatilk. frá Krabbameinsfélaginu) Hallgrímssöfnuður heldur upp á 50 ára afmæli um helgina: Hallgrímskirkja. og fyrsti prestur Hallgrímssafnaðar prédikar en prestar Hallgríms- kirkju, þeir séra Ragnar Fjalar Lár- usson og séra Karl Sigurbjörnsson þjóna fyrir altari. Davíð Oddsson borgarstjóri flytur ávarp. Messufor- mið verður með sama sniði og allt- af hefur verið á Hallgrímsdegi í Hallgrímskirkju og líkist því sem séra Hallgrímur hefur sjálfur sung- ið. í tilefni afmælisins verður í messunni flutt kórverkið Festival Te Deum eftir breska tónskáldið Benjamin Britten. Mótettukór Hallgrímskirkju, Marta Halldórs- dóttir sópransöngkona og Pavel Smid orgelleikari flytja verkið und- iur stjóm organistans Harðar Áskelssonar. Eiríkur Örn Pálsson trompetleikari kemur einnig fram. Eftir messuna verða kaffiveitingar í safnaðarheimilinu, þasr sem einn- ig getur að líta ljósmyndasýningu úr sögu safnaðarins. Sunnudaginn 28. október verður guðsþjónustu klukkan 10 sem helg- ur verður fjölskyldunni. Börn úr Austurbæjarskólanum taka þátt í messunni og Bamakór Austurbæj- arskóla syngur undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar. Eyjólfur Konráð Jóns- son, alþingismaður, Brekkugerði 24. 62 ára. Maki: Guðbjörg Bene- diktsdóttir. Guðmundur Magnússon, starfsmaður Sjálfstæðis- flokksins, Grænuhlíð 3. 34 ára. Maki: Vaka H. Hjaltalín. Ólafur ísleifsson, hag- fræðingur hjá Seðla- banka íslands, Berg- staðarstræti 86. 35 ára. Maki: Dögg Pálsdóttir. Sólveig Guðrúu Péturs- dóttir, lögfræðingur, Bjarmalandi 18. 38 ára. Maki: Kristinn Björns- son. 7,5 milljónir hafa safn- ast í sjóð til orgelkaupa Kynnst ótrúlega miklu örlæti, segir framkvæmdastjóri söfnunarinnar HALLGRIMSSOFNUÐUR held- ur upp á 50 ára afmæli sitt í tengslum við norræna barokk- daga sem eru þessa dagana í kirkjunni og Norræna húsinu. Aðalhátíðisdagurinn verður á laugardag. Þá verður sungin hefðbundin Hallgrímsmessa. Á vegum Hallgrímssafnaðar stend- ur nú yfir söfnun fyrir stóru pípuorgeli í kirkjuna. Söfnunin gengur vel að sögn Sigurðar E. Haraldsson framkvæmdastjóra hennar. Safnast hafa 7,5 milljón- ir kr. en áætlað er að orgelið kosti 60-70 milljónir kr. og að það verði tilbúið árið 1992. Orgelsöfnunin hefur staðið í sex mánuði. Sigurður er við í kirkjunni hluta úr degi, alla virka daga, og tekur við framlögum. „Það hefur verið sérstök upplifun fyrir mig að vinna við þetta verkefni," sagði Sig- urður í samtali við Morgunblaðið. „Ég sit augliti til auglitis við fólk sem kemur til að gefa peninga til orgelkaupanna. Ég kynnist ótrú- lega miklu örlæti og hef séð nýja hlið á lífínu. Hver dagur kemur á óvart. Nú síðast skrifuðum við til allra sóknamefnda landsins og ósk- uðum eftir stuðningi. Fyrsta svarið fengum við frá einum fámennasta söfnuði landsins, Hofssöfnuði í Ör- æfum, sem ætlar leggja fé í orgel- sjóðinn til minningar um látna presta Hofskirkju. Minnsta kirkja landsins gefurþeirri stærstu,“ sagði Sigurður. Sérstök nefnd innan Hallgríms- safnaðar annast orgelsöfnunina. Formaður hennar er Hörður Áskels- son organisti kirkjunnar. Sigurður sagði að kaupin á þessu stóra org- eli væri risavaxið verkefni og í það væri ráðist af miklum stórhug og bjartsýni, sami andi væri ríkjandi og við byggingu kirkjunnar sjálfrar. Pípuorgelið verður smíðað í Þýskalandi. Þar er hönnun þess að ljúka. Orgelið verður 25 tonn að þyngd og verður því komið fyrir yfir anddyri kirkjunnar. Áætlað er að smíði þess ljúki um mitt ár 1992. Kostnaður við smíði þess og upp- setningu er áætlaður 60-70 milljón- ir kr. og er markmiðið að safna þeirri fjárhæð. Á þeim sex mánuð- um sem söfnunin hefur staðið hafa safnast' 7,5 milljónir kr. Söfnunin er þannig skipulögð að fólki gefst kostur á að kaupa orgelpípur á 2.000 til 100.000 kr. Pípurnar eru alls 5.200. Sigurður sagði að best hefði gengið að selja dýrustu pípurnar og væru þær að verða uppseldar. Sigurður sagði að þegar hann fór að vinna í Hallgrímskirkju við söfn- unina hefði það komið sér á óvart hvað margir leggja leið sína í kirkj- una. í júlímánuði einum hefðu 10 þúsund manns farið upp í tuminn. Sagði hann að Skólavörðuholtið væri líklegast fjölsóttasti ferða- mannastaður borgarinnar. Sagði Sigurður að frágangur á holtinu væri ekki boðlegur þessum stað. Það væri brýnt verkefni fyrir borg- aryfirvöld að bæta úr. Fyrsti safnaðarfundur Hallgr- ímskirkju var haldinn 20. október 1940. Um helgina verður þessara tímamóta minnst í tengslum við baraokkdaga á Norðurlöndum sem Hallgrímskirkja og Norræna húsið halda. Aðalhátíðisdagurinn verður á morgun. Þá verður sungin hefð- bundin Hallgrímsmessa klukkan 14. Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík PRÓFKJÖR vegna framboðs Sjálfstæðisflokksins i Reykjavíkurkjör- dæmi við komandi kosningar til Alþingis fara fram í dag og á morg- un. Frambjóðendur í prófkjörinu eru sautján. Friðrik Sophusson, al- þingismaður, Bjarkar- götu 10. 47 ára. Maki: Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir. Hreinn Loftsson, lög- maður, Flókagötu 69. 34 ára. Maki: Ingibjörg Kjartansdóttir. Rannveig Tryggvadótt- ir, húsmóðir og þýðandi, Hávallagötu 7. 63 ára. Maki: Örnólfur Thorlac- ius. Þuríður Pálsdóttir, yfir- kennari Söngskóla Reykjavíkur, Vatnsholti 10. 63 ára. Björn Bjarnason, að- stoðarritstjóri Morgun- blaðsins, Háuhlíð 14. 45 ára. Maki: Rut Ingólfs- dóttir. Guðmundur H. Garðars- son, alþingismaður, Stigahlíð 87. 62 ára. Maki: Ragnheiður Guð- rún Ásgeirsdóttir. Davíð Oddsson, borgar- stjóri, Lynghaga 5. 42 ára. Maki: Ástríður Thorarensen. Guðmundur Hallvarðs- son, formaður Sjómann- afélags Reykjavíkur, Stuðlaseli 34. 47 ára. Maki: Hólmfríður María Óladóttir. Ingi Björn Albertsson, alþingismaður, Brekkubæ 14 a. 37 ára. Maki: Magdalena Krist- insdóttir. Birgir ísleifur Gunnars- son, alþingismaður, Fjölnisvegi 15. 54 ára. Maki: Sonja Backman. Geir H. Haarde, alþing- ismaður, Hraunbæ 78. 39 ára. Maki: Inga Jóna Þórðardóttir Krislján Guðmundsson, verksljóri hjá Granda hf., Holtsgötu 31.45 ára. Maki: Elsa Baldursdótt- ir. Lára Margrét Ragnars- dóttir, forstöðumaður Þróunardeildar ríkissp- ítala, Bakkaseli 27. 43 ára. Maki: Ólafur Grétar Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.