Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
MatthíasJohannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Samninga - eða
ófyrirsjáanleg átök
Sjálfstæðisflokkurinn:
Próflgör í Reykjavík, Suðurlandi,
Austfjörðum og Vestfjörðum
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN verður með prófkjör til röðunar á fram-
boðslista flokksins við næstu alþingiskosningar í fjórum kjördæmum
fyrir og um helgina. í Reykjavík verður prófkjörið í dag og á morgun
og á Vestfjörðum, Austurlandi og Suðurlandi á morgun, laugardag.
Frambjóðendur eru alls 45. Búist er við að þátttakandur verði í allt
10-15 þúsund. í Reykjavík hafa flokksbundnir sjálfstæðismenn einir
rétt til þátttöku en í hinum kjördæmunum geta aðrir öðlast rétt til
þátttöku með því að undirrita stuðningsyfirlýsingu við væntanlegt
framboð. Ef þátttaka í prófkjöri nær 50% er kjörnefnd skylt að gera
tillögu til kjördæmisráðsfundar um að þeir frambjóðendur sem fá
helming atkvæða í ákveðið sæti skipi það. Kjördæmisráð ákveður
endanlega röðun á framboðslistann.
Nýlega var á þessum vett-
vangi rætt um samkomu-
lag LÍU og FFSÍ um kjör yfir-
manna á fiskiskipum. Nú er
málið í höndum aðila sjálfra sem
samþykkja þurfa samninginn.
Framkvæmdastjóri Far-
manna-_ og fiskimannasam-
bands íslands, Benedikt Vals-
son, hefur dregið í efa fullyrð-
ingar Einars Odds hér í blaðinu
um 13% kaupmáttaraukningu
til handa sjómönnum og segir
að Einar Oddur hafi augsýni-
lega dregið ályktanir af verð-
hækkun botnfisks, en það sé
ekki rétt viðmiðun því hlutfall
annarra fisktegunda í launum
sjómanna sé um ijórðungur.
Þannig hafi rækja lækkað í
verði nýlega og litlar líkur á því
að loðna eða síld hækki í verði
frá síðustu vertíð, jafnvel megi
búast við lækkun þessara teg-
unda. Þá er áætlaður 12% sam-
dráttur í þorskveiðum. Fram-
kvæmdastjórinn gerir þannig
ráð fyrir því að kaupmáttar-
aukning sjómannalauna mælist
með eins stafs tölu en neitar
því þó ekki að sjómenn hafi
fengið kaupmáttaraukningu
umfram aðra launþega. Á þetta
er minnst vegna þeirra um-
ræðna sem orðið hafa um kjör
sjómanna.
Það er fagnaðarefni að menn
skuli þannig vera sammála um
að kaupmáttur sjómannalauna
hafi aukizt á þjóðsáttartímabil-
inu því að þeir stunda þann at-
vinnuveg sem velmegun okkar
byggist á og ekkert nauðsyn-
legra en sjómennska sé ábata-
samt og eftirsóknarvert starf.
Og vafalaust væri ástæða til
að styrkja laun þeirra enn. Fram
hjá hinu verður þó ekki gengið
að verkfallsboðun nú er alvar-
legri en svo að menn hafí getað
hummað hana fram af sér þar
til í óefni var komið og því nauð-
synlegt að aðilar kæmu sér sam-
an um lausn málsins. Aðvörun
Einars Odds Kristjánssonar er
áminning sem ekki verður geng-
ið framhjá. „Komi til verkfalls
20. nóvember," segir hann, „er
alveg víst að enginn hreyfir sig
til að leysa það, það sem eftir
er þessa árs, og mjög lítill áhugi
verður á því í byijun næsta árs.
Auk þess væru það svik at-
vinnurekenda við aðra laun-
þega, hvað lítið sem þeir
hreyfðu sig gagnvart sjómönn-
um. Þeir mundu allir segja
sínum samningum lausum um
leið.“ En þá yrði gengið þvert
gegn þeirri launastefnu sem
varið hefur kaupmáttinn og
dregið stórlega úr verðbólgunni.
Morgunblaðið hefur á und-
anförnum árum margbent á að
krónutölusamningar án kaup-
máttaraukningar komi launþeg-
um engan veginn að haldi en
kyndi einungis nndir verð-
bólgubálinu og sé atlaga að
undirstöðuatvinnuvegum okkar,
sem þurfa að vera samkeppnis-
hæfír á erlendum markaði.
Launþegum sé fyrir beztu að
veija kaupmátt launanna, það
geti enginn lifað á gúmítékkum
til lengdar. Þjóðarsáttin svo-
nefnda ætti, þegar upp er stað-
ið, að treysta raungildi kaup-
gjalds. Að vísu árar að mörgu
leyti illa nú um stundir og alltof
margir beijast í bökkum. En
önnur leið betri í launamálum
er ekki í augsýn. Þjóðarsáttin
hefur hvað sem öðru líður treyst
kaupmáttinn og minnkað verð-
bólgu. Hún er nú orðin viðun-
andi, vextir hafa lækkað mörg-
um launþegum til hagsbóta og
varnarsigur hefur unnizt í bar-
áttunni fyrir traustari kaup-
mætti. Nú er þjóðinni lífsnauð-
syn að halda í horfínu. Átök á
vinnumarkaðnum og launa-
sprenging yrði engum til góðs.
Almenningsálitið í landinu ætl-
ast til þess að yfirmenn á fiski-
skipum sætti sig við þessar að-
stæður eins og aðrir. Þeir eiga
að gera út á hækkun fiskverðs
erlendis, þ.e. aukna eftirspurn
og framleiðslu á gæðavöru, en
ekki neina svikaglennu. Vegna
batnandi stöðu útgerðarinnar
er jafnframt til þess ætlazt að
hún standist olíuverðshækkun-
ina og raunar gerð sú krafa að
menn hrófli ekki við þeim ár-
angri sem launþegar hafa náð
með fóm; batinn í útgerðinni
sé látinn mæta áföllunum. Hið
sama gildir um yfírmenn á físki-
skipum, sem axla vonandi sinn
hlut verkfallslaust, jafnframt
því sem þeir, einir launþega,
geta fagnað kaupmáttaraukn-
ingu á árinu.
Verkfall yrði engum til góðs,
en það gæti kveikt nýtt verð-
bólgubál. Það er því ástæða til
að ætla að yfírmenn á fiskiskip-
um fylgi forystumönnum sínum
og samþykki samkomulagið.
Það er þeim sjálfum ekki sízt
fyrir beztu að ekki komi til ill-
deilna og átaka sem hefðu ófyr-
irsjáanlega erfiðleika í för með
sér. Suma hnúta er ekki hægt
að leysa, sársaukalaust. Þær
deilur eru líka farsællegast til
lykta leiddar sem ríkisvaldið
kemur hvergi nálægt.
Reykjavík
Þátttaka í prófkjörinu í Reykjavík
er heimil öllum fullgildum félögxim
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
sem þar eru búsettir og náð hafa
16. ára aldri á laugardag og enn-
fremur þeim stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu
kosningarétt í kjördæminu þann 25.
apríl 1991 og undirritað hafa inn-
tökubeiðni í sjálfstæðisfélag fyrir
lok kjörfundar. Um miðjan dag í
gær höfðu rúmlega 1.000 inntöku-
beiðnir borist og voru þá rúmlega
11 þúsund á kjörskrá. Við prófkjör
fyrir síðustu kosningar voru þátt-
takendur innan við sjö þúsund.
Eftirtaldir sautján frambjóðendur
eru í prófkjörinu: Hreinn Loftsson,
Ingi Bjöm Álbertsson, Kristján Guð-
mundsson, Lára Margrét Ragnars-
dóttir, Ólafur ísleifsson, Rannveig
Tryggvadóttir, Sólveig Pétursdóttir,
Þuríður Pálsdóttir, Birgir ísleifur
Gunnarsson, Bjöm Bjamason,
Davíð Oddsson, Eyjólfur Konráð
Jónsson, Friðrik Sophusson, Geir
H. Haarde, Guðmundur H. Garðars-
son, Guðmundur Hallvarðsson og
Guðmundur Magnússon. Þátttak-
endur í prófkjörinu eiga að raða
fæst 8 en flest 12 frambjóðendum.
Prófkjörið fer fram í dag og á
morgun. í dag er eingöngu hægt
að kjósa í Valhöll, Háaleitisbraut
I, en á morgun er borginni skipt
upp í sex kjörhverfi og verða þátt-
takendur þá að kjósa á kjörstað í
sínu kjörhverfí. I dag verður kjör-
staður í Valhöll opinn frá 13 til 22
og á morgun verða kjörstaðimar í
hverfunum opnir frá 9 til 22. Kjör-
Á fundi kjördæmisráðs Alþýðu-
flokksins í Reykjanesi á miðviku-
dagskvöld var samþykkt tillaga frá
Herði Zophaníassyni formanni ráðs-
ins, að falla frá áður ákveðnu próf-
kjöri en stilla þess í stað Jóni Sig-
urðssyni ráðherra í 1. sæti, Karli
Steinari Guðnasyni alþingismanni í
2. sætið, Rannveigu Guðmundsdótt-
ur alþingismanni í 4. sætið og Guð-
mundi Ama Stefánssyni bæjarstjóra
í 4. sætið.
Á blaðamannafundinum var
Hörður spurður hvort ekki ætti sam-
kvæmt lögum flokksins að halda
prófkjör, og sagði hann orðalag loð-
ið í þeim efnum. „Það er alfarið vísað
til kjördæmisráðanna. Það er hvergi
rætt um hvemig prófkjör skuli fram-
kvæmt, og þegar lögin vom sett var
talað um að þetta væri frekar haft
til viðmiðunar. Við sjáum líka af
reynslunni að það hefur verið sitt á
hvað í flokknum," sagði Hörður.
I lögum Alþýðuflokksins segir
orðrétt: Kjördæmisráð ákveður
framboðslista Alþýðuflokksins við
kosningar til Alþingis og fulltrúaráð
eða flokksfélög til sveitarstjóma, að
viðhöfðu prófkjöri um val frambjóð-
enda í efstu sæti listans.
staðir og kjörhverfí em sem hér
segir:
Kjörstaður 1. kjörhverfis er á
Hótel Sögu. Það nær yfír Nes- og
Melahverfí, Vestur- og Miðbæjar-
hverfí og Austurbæjar- og Norður-
mýrarhverfí. (Öll byggð vestan
Snorrabrautar og einnig byggð vest-
an Rauðarárstígs að Miklubraut.).
í 2. kjörhverfi er kosið í Valhöll
(vestursal á 1. hæð). Það nær yfír
Hlíða- og Holtahverfi, Laugarnes-
hverfí og Langholtshverfi. (Öll
byggð vestan Kringlumýrarbrautar
og norðan Suðurlandsbrautar.).
Kjörstaður 3. kjörhverfís er í Val-
höll (austursal á 1. hæð). Það nær
yfir Háaleitis- og Smáíbúða, Bú-
staða- og Fossvogshverfi. (Hverfíð
afmarkast af Kringlumýrarbraut í
vestur og Suðurlandsbraut í norður.
Kjörstaður 4. kjörhverfis er í Hraun-
bæ 102b (suðurhlið). Hverfíð nær
yfir Árbæjar- og Seláshverfí og
Ártúnsholt. 5. kjörhverfi nær yfír
Breiðholtshverfin. Kjörstaður er í
Menningarmiðstöðinni við Gerðu-
berg. Kjörstaður í 6. hverfi, Grafar-
vog, er í Verslunarmiðstöðinni
Hverafold 1-3.
Talning hefst í Valhöll fljótlega.
eftir hádegið á laugardag og er
vonast til að fyrstu tölur liggi fyrir
ekki síðar en um miðnætti en endan-
leg úrslit liggja væntanlega ekki
fyrr en síðar aðfaranótt sunnudags.
Suðurland
Á Suðurlandi fer prófkjörið fram
á laugardag. Þátttaka er heimil öll-
um Sunnlendingum sem orðnir
verða 18. ára á laugardag. Auk
þess er 16 og 17 ára unglingum sem
Jón Sigurðsson sagði að tilgangur
laga Alþýðuflokksins um prófkjör
væri að tryggja endurnýjun og opna
umfjöllun um röðun á lista flokks-
ins. „Það hefur sannarlega gerst
hvorttveggja í sambandi við þennan
lista. Það er endurnýjun á honum á
þeim sætum sem eru líklegust þing-
sæti, það er opin umfjöllun um hann
eins og þessi blaðamannafundur
sýnir. Eg held að þarna sé í alla
staði gætt þess sem rétt og skyn-
samlegt er að gera, og það sem er
aðalmáiið hjá okkur er að það er
mjög góð samstaða um þennan
lista.“
Guðmundur Árni Stefánsson var
spurður hvort hann og aðrir Hafn-
firðingar sættu sig við að honum
væri skipað í 4. sætið, og sagðist
hann hafa verið meðflutningsmaður
að tillögu um skipan listans á fundi
kjördæmisráðsins á miðvikudag.
„Ég mat það þannig, að vel athug-
uðu máli, að það væri meira virði
að stilla upp öflugu og samhentu
liði frekar en eyða mánuðum í til-
gangslitla baráttu manna í millum
þar sem einasta spurningin væri sú
hvernig við röðuðumst innbyrðis. Ég
er mikill baráttumaður og víla ekki
eru flokksbundnir í Sjálfstæðis-
flokknum heimil þátttaka. Öllum er
skylt að undirrita þátttökubeiðni
áður en þeim er afhentur prófkjörs-
seðill.
Kjörstaðir eru á Selfossi, Eyrar-
bakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn,
Hveragerði, Ámesi, Félagsheimili
Hmnamanna, Aratungu, Hellu,
Hvolsvelli, Heimalandi, Vík, Kirkju-
bæjarklaustri og Vestmannaeyjum.
Kjörstaðir em ýmist opnir frá klukk-
an 10 eða 14 og eru opnir til 21.
Frambjóðendur em tíu: Brynleif-
ur H. Steingrímsson, Ámi Johnsen,
Amar Sigurmundsson, Arndís Jóns-
dóttir, Baldur Þórhallsson, Kjartan
Björnsson, Þorsteinn Pálsson, Drífa
Hjartardóttir, Jóhannes Kristjáns-
son og Eggert Haukdal. Þátttakend-
ur eiga að tölusetja minnst 5 en
mest 8 nöfn frambjóðenda.
Talning hefst í Sjálfstæðishúsinu
á Selfossi klukkan 10 á sunnudag.
Austurland
Kjördeildir í prófkjörinu á Aust-
urlandi, sem fram fer á morgun,
verða opnar frá kl. 10 til 20. Kjör-
staðir verða: Gmnnskólinn Egils-
stöðum, Grímsárvirkjun, Félags-
"" heimilið Fjarðarborg í Borgarfirði,
Geitagerði í Fljótsdal, Skjöldólfs-
stöðum á Jökuldal, Sleðbijót í Jök-
ulsárhlíð, Valhöll Eskifirði, Slysa-
varnahúsinu Reyðarfírði, Hólsgötu
4 á Neskaupstað, Félagsheimilinu
Skrúð á Fáskrúðsfirði, Félagsheim-
ilinu Miklagarði í Vopnafirði,
Skeggjastöðum, Barnaskólanum
Stöðvarfírði, Ásvegi 13 á Breið-
dalsvík, Féíagsmiðstöðinni Djúpa-
vogi, Sjálfstæðishúsinu Höfn, Fé-
lagsheimilinu Mánagarði í Nesja-
hreppi, Félagsheimilinu Herðubreið
á Seyðisfírði og hjá nokkmm öðrum
trúnaðarmönnum.
Þátttaka í prófkjörinu er heimil
öllum fullgildum félögum í sjálf-
stæðisfélögunum í lqördæminu, sem
þar em búsettir og náð hafa 16 ára
aldri á prófkjörsdag. Þátttaka er
einnig heimil þeim stuðningsmönn-
um Sjálfstæðisflokksins sem eiga
munu kosningarétt í kjördæminu
við næstu kosningar og undirrita
stuðningsyfirlýsingu við flokkinn
fyrir mer að taka hressilegar snerrur
en mig langar miklu frekar að slást
í kosningabaráttunni en í prófkjöri,
þar sem ég læt mig einu varða hvort
ég sest á Alþingi í 4. sæti eða því
l.,“ sagði Guðmundur Ámi.
Guðmundur beið með að tilkynna
um þátttöku í prófkjöri þar til eftir
flokksþing Alþýðuflokksins. Hann
neitaði því á fundinum, að það hefði
tengst niðurstöðu um varaformann
flokksins, og hann neitaði því einnig
að hann hefði íhugað að bjóða sig
samhliða þátttöku í prófkjörinu.
Frambjóðendur em tíu: Hrafnkell
A. Jónsson, Arnbjörg Sveinsdóttir,
Stella Steinþórsdóttir, Dóra Margrét
Gunnarsdóttir, Egill Jónsson, Krist-
inn Pétursson, Rúnar Pálsson, Einar
Rafn Haraldsson, Guðni Nikulásson
og Guðjón H. Þorbjömsson. Kjósa
skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri
né færri, með því að tölusetja nöfn
þeirra.
Kjömefnd hefur verið boðuð til
fundar klukkan 14 á sunnudag til
að telja atkvæðin og í framhaldi af
því að gera tillögu um uppröðin
framboðslistans. Tillaga kjömefnd-
ar verður síðan lögð fyrir fund kjör-
dæmisráðs á fundi klukkan 17 á
sunnudag.
Vestfirðir
í prófkjörinu á Vestfjörðum á
laugardag em átta frambjóðendur:
Guðjón A. Kristjánsson, Jörgína
Jónsdóttir, Matthías Bjamason,
Steinþór B. Kristjánsson, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, Einar Kristinn
Guðfínnsson, Elín Sigríður Ragn-
arsdóttir og Gísli Ólafsson. Kjósa
skal 4, hvorki færrri né fleiri, með
því að númera nöfn þeirra.
Rétt til þátttöku hafa flokks-
bundnir sjálfstæðismenn 16 ára og
eldri sem búsetir em í kjördæminu
á prófkjörsdag, svo og þeir sem
kosningarétt eiga í kjördæminu við
næstu kosningar og undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu við væntanlegt
framboð flokksins.
Kjörstaðir eru á Hólmavík, Reyk-
hólum, Patreksfírði, Tálknafirði,
Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suður-
eyri, ísafírði, Bolungarvík, Súðavík
og Reykjanesi. Kjörstaðir eru yfir-
leitt opnir frá 10 til 20. í dag er
kosið í nokkrum dreifbýlishreppum.
Talið verður í Sjálfstæðishúsinu
á ísafirði á sunnudag og hefst taln-
ing klukkan 14.
Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla í
prófkjörunum á Suðurlandi, Vest-
fjörðUm og Austurlandi er í Valhöll
til klukkan 22 í kvöld. Vestfirðingar
og Austfirðingar sem staddir eru á
Akureyri eða nágrenni geta einnig
greitt atkvæði í dag á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
fram í embætti varaformanns
flokksins.
Þegar Hörður Zophaníasson var
spurður hvort formaður og vara-
formaður flokksins hefðu þrýst á að
hætt skyldi við prófkjörið, sagði
hann að sér hefði verið kunnugt um
að þau fylgdust með þessum hlutum.
„En ákvörðunin var okkar og engir
fundir voru mér vitanlega þar sem
þessir aðilar voru með einhvern
málflutning í þessu efni,“ sagði
Hörður------------------------—...
Alþýðuflokkurinn hættir við að halda prófkjör í Reykjanesi:
Flokkslög óskýr um prófkjör
- segir formaður kjördæmisráðsins
FORMAÐUR lqördæmisráðs Alþýðuflokksins á Reykjanesi segir að
orðalag um prófkjör í lögum flokksins sé loðið; og í raun sé það alfarið
i höndum kjördæmisráðanna hvemig raðað sé á framboðslista.
Morgunblaðið/Björn Blöndal.
Frambjóðendur í fjórum efstu sætum Alþýðuflokksins á Reykjanesi:
Jón Sigurðsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Karl Steinar Guðnason
og Guðmundur Árni Stefánsson.
Trillan steytti á skeri
norðan við Papey
skömmu eftir hádegi i
gær, og sökk. Maður-
inn komst aö landi í
Papey skömmu síðar.
Papey. Valgeir náði landi í vogunum sem em fjær á myndinni.
Þetta voru bara mistök og
maður vandar sig betur næst
Frásögn Valgeirs Sveinssonar af sögulegum róðri frá Djúpavogi
VALGEIR Sveinsson fór í róður á miðvikudagsmorgun frá Djúpa-
vogi á trillu sinni, Auðbjörgu VE, sem hann hafði róið á færi frá
Djúpavogi undanfarna tvo mánuði og aflað vel þegar gaf. Hann
hafði hugsað sér að koma að landi fyrir kvöld með að minnsta
kosti hálft tonn af fiski og vinna veðmál við hótelstjórann sem
hafði veðjað um að það tækist ekki. Veðmálið er óuppgert, en róður-
inn varð sögulegri en nokkurn grunaði og mátti litlu muna að illa
færi. Morgunblaðið ræddi við Valgeir á Djúpavogi í gær og fer hér
á eftir frásögn hans af þessum róðri.
Þegar ég er kominn rúmlega
hálfa leiðina út í Papey og ætlaði
að fara framhjá henni og suðaustur
af henni, þá byija gangtmflanir í
vélinni. Mér heyrðist þetta vera
hráolíustífla. Þá var nú svona
sæmilega bjart og ég hugsa með
mér að það væri bara best að fara
inn í Papey, þar em legufæri og
ég fór þangað og setti fast þar.
Ég er þar í rúma tvo klúkkutíma
að gera við þetta.
Klukkan rúmlega tólf talaði ég
við loftskeytastöðina og sagði hvar
ég væri, reyndar ekk'i að ég væri
inni í Papey, heldur í þessu hólfí.
Svo keyri ég af stað, en ég var
ekki ánægður með ganginn. Það
var orðið áliðið dags og ég hugsa
mér að það væri bara best að
skreppa norðaustur af eynni og
fara svo heim. Eða jafnvel bara
beint heim.
Blæs hann sig út?
Meðan ég er að velta þessu fyr-
ir mér, kemur höggið. Ég bara
keyrði upp í skerin og það var eitt
búmms í smástund og svo skorðað-
ist báturinn augnablik. Hann
brotnaði greinilega að framan, því
að þar fossaði sjórinn inn í hann,
svo ég sá að það voru hreinar línur
að ég yrði bara að komast í gúmmí-
bátinn, og þá skaut upþ hugsun-
inni: Blæs hann sig út?
Ég fer þarna upp á að framan,
losa bátinn og velti honum út fyr-
ir. Ég sá ekki hvernig hann lenti,
því að ég var að brölta aftur fyrir
og það var veltingur og hreyfing á
bátnum þarna á skerinu. Þá heyrði
eg eins og snöggt fúmp! og þegar
ég leit á þá var gúmmíbáturinn
kominn. Hann var hins vegar á
hvolfi, svo að ég sá að ekki var
hægt að fara inn í hann svona.
Langaði ekkert í sjóinn
Mig langaði ekkert í sjóinn, vissi
að hann var mjög kaldur, svo ég
ákvað að taka björgunarbátinn
bara inn. Það gekk bara flott að
velta honum við, en þá var helling-
ur af sjó inni í honum.
Þegar þama var komið mundi
ég eftir vinnuflotgallanum, sem ég
fékk um borð áður en ég fór í þetta
Djúpavogsævintýri. Ég fékk hann
með þeim orðum að það væri aldr-
ei að vita nema ég þyrfti einhvem
tíma að nota hann. Hann var í
skáp á stýrishúsinu og þangað sótti
ég hann, tók í leiðinni plastpoka
með nesti frá kokknum hérna, henti
þessu bara öllu inn í gúmmíbátinn
og fór svo sjálfur á eftir. Það pass-
aði, að þá var báturinn byijaður
að renna niður og hann bara rann
afturábak og hvarf niður í djúpið.
Ég efast um að neinar mínútur
hafi liðið frá því að báturinn keyrði
á skerin þangað til hann var sokk-
inn, þetta gerðist allt á nokkmm
augnablikum.
Eg taldi mig pottþéttan á að
stefna austan við skerið og gáði
ekki að mér. Þetta vom bara mis-
tök og maður vandar sig betur
næst.
Var alltaf að róa að eynni
Ég fer nú að hugsa hvert bátur-
inn fari, hvort hann reki að Pap-
eynni eða- eitthvað út í buskann.
Það var kassi ofan á vélarhúsinu,
sem ég hafði látið útbúa, þar sem
ég gat hent fiskinum um leið og
ég tæki hann af krókunum og kútt-
að hann svo þar. Ég sá hvar kass-
ann rak langt fyrir utan og í allt
aðra átt en að eynni. Ég var alltaf
að róa í áttina að eynni og komst
þangað, en náði ekki landi. Ég var
margsinnis búinn að reyna en kvik-
an henti mér alltaf frá, þangað til
ég náði taki á þara og gat svoleið-
is togað mig upp í fjöru. Þá stökk
ég í land með spotta og dró svo
bátinn upp.
Þá byijaði ævintýrið að leita að
þessum sveitabæ, ég vissi ekkert
hvar á eynni hann var. Á það bætt-
ist að það var komin niðaþoka. Ég
labba og labba, ég veit ekki hvað
lengi og er alltaf að sjá hús, en
það var þá bara klettur. Þá sný ég
við og fer aftur niður í voginn, þar
sem ég hafði verið að gera við. Það
hljóta að liggja einhveijir slóðar
þaðan, hugsaði ég. Ég geng þama
í stóran hring og sé þá greinileg
för eftir hjól. Ég elti þau og beint
á bæinn.
Allt læst
Þar er þá allt læst með stómm
lás. Ég prófaði að banka nokkmm
sínum í lásinn með áratolla sem
ég fann þama. Þá var farið að
skyggja og vasaljósið bilað, og ég
leita að einhveiju, þá fínn ég rör-
bút sem passaði flott undir hespuna
og hún út, svo má bara reka hana
inn aftur. Inn komst ég og þá fer
ég að hugsa um að hann Tryggvi
á Öðlingi væri hérna, þangað sem
ég ætlaði. Það gæti alveg eins ver-
ið að hann væri að koma siglandi,
það væri best að skjóta annarri
rakettunni upp. En hún fór sko
ekkert út fyrir dyr. Ég skal ekkert
fullyrða um hvort hún hafi verið
gölluð eða hvað. Mér fínnst mjög
Valgeir Sveinsson sýnir Morgunblaðsmönnum hvar bátur hans
sökk.
Sigurður Gunnlaugsson og Reynir Arnórsson stjórnuðu björgun-
ar- og leitaraðgerðum. Hér eru þeir við gúmmíbjörgunarbátinn,
sem skilaði Valgeiri heilum á land í Papey.
ólíklegt að ég hafi togað í spottann
sem á að setja hana af stað. Svo
mikið er víst að hún bara sprakk.
Þvílíkur darraðardans! Ég fínn
strax að það er kviknað í mér, mig
byijar að logsvíða í lærið. Litla eld-
húsið fylltist af reyk og út komst
ég við illan leik, gat ekki stigið í
löppina. Ég varð að fara úr gallan-
um til að drepa í þessu, en það
hafðist.
í morgun fór ég upp í vitann og
hann var meira að segja harðlæstur
með stómm og þykkum lás, þangað
gæti enginn leitað sér skjóls. Þetta
fínnst mér ekkert sniðiígt, að læsa
svona húsum.
Það var útvarp þarna og ég heyri
í fréttunum í dag að þeir væra
búnir að leita í Papey. Ég hugsa,
hver andskotinn, þarf ég að dúsa
hér í einn, tvo sólarhringa enn. Það
er þá eins gott að fara að leita sér
að einhverju að éta. Ég vissi að
það væri sumarbústaður í víkinni
að sunnanverðu og ég hafði séð að
í þá átt lágu hjólför. Þangað fer
ég og finn bústaðinn og þá var
neglt fyrir hurðina. Ég reif spjöldin
frá og fer inn, án þess að skemma
neitt, svo var ég að hita mér kaffi,
þá komu þeir. Eg fann þarna vatn
í fötu og, númer eitt, ég fahn þarna
sígarettupakka líka og þá slappaði
ég af eins og skot. Ég hafði skilið
eftir á bænum olíuvél í gangi, þann-
ig að ef þeir kæmu þangað, þá
sæju þeir að ég hefði ekki farið
langt, svo var ég líka alltaf að
flauta í flautuna sem fylgdi flot-
gallanum. En, sem sagt, þegar ég
er að hella á könnuna, þá heyri ég
að það er kallað Valgeir! og ég
flauta, sé ekki neitt fyrr en allt í
e:nu að maðurinn stendur hjá mér,
maður sér ekkert í þokunni. Ég
v;ldi fá að drekka kaffíð, en þeim
lá svo mikið á að það var ekki
hægt og ég var drifinn í land.