Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 31 Kaupfélag Eyfirðinga: Samið við SÍS um flutninga Undirritaður hetur verið samn- ingur milli Kaupfélags Eyfirðinga og Skipadeildar Sambandsins, sem var lægstbjóðandi í flutninga á vegum KEA. Skipadeildin bauð bæði í sjó- og landflutninga, en árleg flutningaþörf KEA og Sam- starfsfyrirtækja er um 10 þúsund tonn, og talið er að þriðjung þess magns megi hæglega flytja með skipum. Skv. samningnum tekur Skipa- deildin við flutningnum frá og með 1. nóvember nk. Til að byija með verður vörumóttaka á Akureyri í þvi húsnæði á Oddeyri, sem Bifreiðaaf- greiðsla KEA hefur haft til umráða, en í Reykjavík hjá Landflutningum. Samkomulag varð um að skipa- deildin reki umrædda bifreiðastarf- semi að miklu leyti frá Akureyri og fyrst um sinn a.m.k. nota hluta af þeim bifreiðum sem eru í eigu KEA. Markaðsfulltrúi Skipadeildar Sambandsins á Norðurlandi er Jón Amþórsson. Fyrsta bindi Sögu AJkureyr- ar að koma út Sú nýbreytni var tekin upp í haust að aka börnum úr Innbænum í Barnaskóla Akureyrar. Mikil ánægja mun vera með það hjá foreldrum, og sama virðist mega segja um krakkana á myndinni, sem voru að bíða eftir skólabílnum í Aðalstræti þegar ljósmyndarann bar að garði. Annað hvort finnst þeim svona gaman í bíl eða þau em fegin að losna við að ganga upp Spítalaveginn ... Beðið eftir skókibílnum Á NÆSTU dögum lítur dagsins Ijós fyrsta bindi af Sögu Akur- eyrar. Söguritari er Jón Hjalta- son, sagnfræðingur, sem ráðinn var til verksins á haustdögum 1987. Bæjarsljórn ákvað að ráðast í þetta verk í tilefni af 125 ára afmæli bæjarins það ár. Sögu Akureyrar er skipt í þijá meginhluta og greinist hver þeirra í sérstaka kafla. „Bókin er merk heim- ild í máli og myndum og spannar í heild tímabilið frá landnámsöld til ársins 1862 en það ár fékk Akureyri kaupstaðarréttindi öðru sinni,“ segir í fréttatilkynningu frá útgáfunefnd. Ennfremur: „Þessi saga, sem er náma fróðleiks og skemmtunar, á erindi til allra Akureyringa heima og heiman og annarra sem áhuga hafa á þjóðlegum fróðleik." Gert er ráð fyrir að verkið verði 3-4 bindi. Kynningarbæklingur, sem hefur að geyma áskriftarseðil og upplýsingar um Sögu Akureyrar verður borinn í öll hús í bænum nú um helgina og sendur víða um land. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 27245 á Akureyri. Vinnuhópur um gervigrasvöll á Akureyri: „MoldarvöIluriiiti“ við Glerár- götu verði lagður gervigrasi VINNUHÓPUR um gervigrasvöll á Akureyri er að leggja síðustu hönd á skýrslu um málið, fyrir æskulýðs- og íþróttaráð. Hópurinn leggar til að ráðist verði í að leggja gervigras á „moldarvöllinn" svokallaða, austan aðalknattspyrnuvallar bæjarins við Glerárgötuna. Kostnaðaráætlun hópsins hljóðar upp á innan við þriðjung þess sem gert var ráð fyrir í áfangaskýrslu, sem unnin var fyrr á þessu ári, enda þar gert ráð fyrir velli í fullri stærð. Vilji nefndarinnar er að helst verði hægt að taka gervigrasvöll á þessum stað í notkun næsta haust. Annað svæði sem skoðað var með gervigrasvöll í huga var svo- kallað Sólborgarsvæði, þar sem hugmyndir hafa verið uppi um framtíðar íþróttasvæði bæjarins, en ljóst þótti að yrði fyrirhuguðum. velli kosinn staður þar tækju fram- kvæmdir mun lengri tíma. í skýrslu vinnuhópsins er gert ráð fyrir að gervigrasið á „moldarvellin- um“ verði um 45 sinnum 70 metrar að stærð, eða sem samsvarar rúm- lega hálfum knattspyrnuvelli. „Við teljum það fullkomnlega boðlegt til vetraræfinga, og þeir sem við höf- um kvatt til eru á sama máli,“ sagði Benedikt Guðmundsson, einn fjór- menninganna í vinnuhópnum, í samtali við Morgunblaðið. Auk hans eru Þórarinn E. Sveinsson, Páll Stefánsson og Magnús Magnússon í hópnum. Þá starfaði Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og æskulýðs- fulltrúi, með hópnum. Almennur borgarafundur um atvinnumál: Yerðum að berjast fyrir flutn- ingi opinberrar þiónustu hingað - segir Sigurður P. Sigurðsson framkvæmdastjóri IFE ÞRATT FYRIR að yfirskrift borgarafundar sem JC-Akureyri hélt í Alþýðuhúsinu síðastliðinn fimnitudag hafi verið framtíðarþróun í atvinnumálum landsbyggðarinnar var umræðan um álverið sem ekki verður reist í Eyjafirði afar áberandi. Á fundinn komu þingmenn kjördæmisins og fengu þeir fyrirspurnir sem allmargar snerust um álversmálið og voru þeir m.a. knúnir af fundarmönnum til að gera grein fyrir á hvaða hátt þeir muni greiða atkvæði á Alþingi um álver á Keilisnesi. Hvað varðar uppbyggingu atvinnulífs í framtíðinni bentu menn á nauðsyn þess að fá opinbera þjónustu út á landsbyggðina, aukna hcilbrigðisþjónustu og efla ferðaþjónustu. „Ég held að allar þær umræður að það að ríkisstjórnin hefði ekki sem urðu um álverið endurspegli vonbrigði fólks með niðurstöðuna, annars hefði ekki allur þessi tími farið f álversmálið. Það er greinilega mikill urgur í mönnum, í hugum margra er stórt tækifæri glatað,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarfé- lags Eyjafjarðar eftir borgarafund- inn. Hann gerði álversmálið einnig að umræðuefni í upphafi erindis sem hann flutti á fundinum og sagði borið gæfu til að staðsetja ekki £1- verið úti á landi færði okkur sann- inn um, að varlega bæri að treysta loforðum og viljayfirlýsingum stjórnvalda á landsbyggðinni. Illa væri komið þegar jafn einstakt tækifæri og þarna bauðst til að snúa við óheillavænlegri byggða- þróun væri ekki nýtt. „Sá dómur sem féll í þessu máli var þungur. Hann er einfaldlega sá að staðsetn- ing stærri fyrirtækja sé óhagkvæm á landsbyggðinni. Það gefur auga- leið að ef hagkvæmni útlendinga verður sá þáttur, sem mestu á að ráða um staðsetningu stóriðju á íslandi í framtíðinni, mun höfuð- borgarsvæðið ávallt hafa forskot. Það er eðlismunur á milli höfuð- borgarsvæðisins og landsbyggðar- innar s.s. varðandi þjónustu og vinnuafl, sem ekki er hægt að horfa framhjá. Við verðum að gera þær kröfur til stjórnvalda að þjóðarhag- kvæmni verði látin ráða staðsetn- ingu stóriðju. Ég trúi því ekki að það geti verið hagkvæmt fyrir þjóð- ina að ýta enn frekar undir þá bú- seturöskun sem orðið hefur.“ Hvað varðar uppbyggingu at- vinnulífs á svæðinu nefndu margir fundarmanna að efla þyrfti starf- semi Háskólans á Akureyri, miklir möguleikar væru í ferðaþjónustu og einnig væri mikilvægt að auka mjög starfsemi á heilbrigðissviðinu. Fjölgun starfa á næstu árum yrði langmest í þjónustugeiranum, eink- um í opinberri þjónustu og því skipti máli hvar opinberum stofnunum yrði valinn staður í framtíðinni. „Við verðum að taka þátt í þeim slag og beijast fyrir því af fullri hörku að opinber þjónusta verði í auknum mæli flutt til Akureyrar," sagði Sigurður P. Sigmundsson í erindi sínu. Mikilvægt atriði í staðarvalinu var að vallarhús er fyrir hendi, og er það ekkert notað að vetrinum. Þarna yrði einnig um mun minni jarðvegsskipti að ræða en t.d. á Sólborgarsvæðinu. Skv. framtíðar- skipulagi er gert ráð fyrir bílastæð- um þar sem „moldarvöllurinn“ er nú staðsettur. Vinnuhópurinn fer fram á að því verki verði flýtt - þ.e. að undirbúningsvinna fyrir bíla- stæði fari fram nú, og gervigras- mottan síðan lögð þar ofan á. „Þetta er spurning um forgangsröð. Að verk sem á að vinna í framtíðinni verði unnið strax; að bærinn leggi í kostnað sem verður hvort eð er að leggja í síðar," sagði Benedikt. Búist er við að íþrótta- og tóm- stundaráð geti tekið skýrslu vinnu- hópsins fyrir á fundi 5. nóvember nk. Ráðið ályktar um skýrsluna og málið fer í framhaldi af því fyrir bæjarráð og bæjarstjórn. Vonast vinnuhópurinn til að gert verði ráð fyrir kostnaði við gervigrasið við fjárlagagerð næsta árs. Áfangaskýrsla um gervigras var unnin fyrr á árinu - úttekt var gerð á nokkrum stöðum, og hljóð- aði kostnaðaráætlun við vallargerð þá upp á 100-120 milljónir króna. Var þá gert ráð fyrir velli í fullri stærð. Kostnaðaráætlun vinnuhóps- ins nú er innan við þriðjung af þeirri upphæð. Innifalið í áætluninni er hitalögn undir völlinn og lýsing, en ekki undirbúningsvinnan á svæð- Lambadameistarar 1 Sjallanum dansa í kvöld Danspör frá Danmörku skemmta í Sjallanum í kvöld. Pörin eru Danmerkurmeistarar í Lambada, hvort í sínum flokki; unglinga- og fullorðinsflokki. Danirnir koma við hér á landi á leið sinni á heimsmeistaramótið í Lambada sem fram fer í New York innan skamms. Pörin verða hér á landi einungis um þessa helgi og koma einnig fram á einni skemmtun í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.