Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
35
Lausaganga búfjar
Athugasemd frá Búnaðarfélagi íslands við skrif Huldu
Valtýsdóttur um lausagöngu búfjár í Morgunblaðinu í
september 1990 og nokkrar ábendingar um þau mál
eftir Ólaf R.
Dýrmundsson og
Jónas Jónsson
í grein sinni gerir Hulda Valtýs-
dóttir lítið úr íslenskri sauðfjárrækt
og telur hana ekki vera í nútíma-
legu horfi. Hún er jafnvel að dylgja
um það að hér sé framleitt kjöt til
þess að hluti þess fari á rusla-
hauga. Er þar væntanlega átt við
það einsdæmi er nokkuð af hrúta-
kjöti lenti á haugum fyrir ijórum
árum.
Rökin fyrir því að íslensk sauð-
íjárrækt sé frumstæð eru að hennar
dómi þau:
Að Island sé eina vestræna
landið, sem hefur tæknivæddan
búskap, en beiti samt fénaði fijáls-
um á heiðalönd. Að sjálfsögðu er
það enginn dómur um það hvort
búskapur svari kröfum tímans eða
ekki þó að fénaður sé látinn ganga
sjálfala á beitilandi, afréttum eða í
byggð tíma úr árinu þar sem það
þykir henta. Samanburður við önn-
ur lönd skiptir hér í sjálfu sér engu
máli.
Verra er þó hitt að Hulda telur
hér upp rangfærslur sem margir
hafa að vísu viðhaft á undan
henni, en hún er sú að ísland sé
eina landið „í hinum vestræna
heimi“ sem leyfi lausaíjárgöngu
búijár. Þetta er einfaldlega alrangt.
Hér nægir að nefna að í Noregi
gengur fénaður frjáls í sumarhög-
um og þar eins og hér er það vanda-
mál að aðeins hluti af þjóðvegakerf-
inu er afgirtur. Hver sem ekið hef-
ur um íjalllendi Noregs hefur vænt-
anlega ekið fram á sauðfé, ær með
lömbum, á þjóðvegum sVo ekki sé
talað um fáfarnari vegi, og hafa
þeir sem ferðast hafa um Noreg
og Svíþjóð einnig tekið eftir viðvö-
runarskiltum við veginn sem gefa
til kynna að hætta sé á að menn
mæti kúm. Allt það sama má segja
um bresku eyjarnar og Skotland
og víðar, einkum á heiðum og í fjall-
lendi líkt og hér.
Það skal endurtekið að það skipt-
ir ekki máli í þessu efni hvernig
þessum málum er háttað í öðrum
löndum, við verðum að búa í landi
okkar og við þær aðstæður sem hér
eru. Landið er stórt og strjálbýlt
með löngu og vanþróuðu vegakerfi.
En á meðan þeir sem berjast fyrir
einhveiju allsherjar banni við
„lausagöngu búfjár" nota þetta sem
rök verður að benda þeim á hið
rétta.
Hvað er lausaganga?
í umræðum um mál eins og
þetta verður fólk að þekkja merk-
ingu þeirra hugtaka sem það notar.
Lausaganga búfjár hefur verið
skilgreind sem það að búfé geti
gengið í óleyfi á annars manns
landi.
Dæmi: 1. Bóndi, sem hefur jörð
sína afgirta stundar því ekki lausa-
göngu.
2. Tveir bændur eða fleiri, sem
kæmu sér saman um að girða jarð-
ir sínar sameiginlega og hafa sam-
not af beitilöndum þeirra mundu
ekki stunda lausagöngu.
3. Fé þeirra sem eiga rétt til
afréttarnota í sameiginlegum af-
rétti sveitarfélags eða sveitarfélaga
stunda ekki lausagöngu hagi svo
til eða komið hafi verið í veg fyrir
það með girðingum að fénaður
komist út af afréttinum.
Vegirnir eru mesta
vandamálið
Staðreynd er að vegakerfi lands-.
ins sker eignarlönd bænda og af-
réttarlönd hvarvetna, stundum
bæði langs og þvers. Landið undir
vegina og næst því hefur Vegagerð
ríkisins tekið eignarnámi bótalítið. >.s
Vals búfjár á vegum er öllum tii gL
„Nú hafa öll sveitarfé-
lög lagaheimild til að
takmarka lausagöngu
búfjár telji þau þess
þörf og fært að koma á
slíkri skipan sem er
væntanlega breytilegt
eftir aðstæðum.“
mikils ama, búijáreigendum sem
vegfarendum, og það sem verra er,
það skapar vegfarendum hættu
einkum þeim sem aka hratt. Það
er því mikið áhugamál bændasam-
takanna að komið verði í veg fyrir
það að búfé komist inn á fjölfarna
vegi. Er í því sambandi bent á
skýrslu til landbúnaðarráðherra frá
1989, „Búfé á vegsvæðum", og
ályktun Búnaðarþings frá 1988
(mál nr. 5). Ljóst er að aldrei geta
gilt sömu reglur um alla vegi lands-
ins.
Frekar um lausagöngu
Búnaðarfélag Islands og Búnað-
arþing 1989 beittu sér fyrir því að
sett voru ný ákvæði í búfjárræktar-
lög (samþ. á Alþingi 9. maí það
ár). Nú hafa öll sveitarfélög laga-
heimild til að takmarka lausagöngu
búijár telji þau þess þörf og fært
að koma á slíkri skipan sem er
væntanlega breytilegt eftir aðstæð-
um. Aður voru í lögum heimildir
um takmörkun á búfjárhaldi í þétt-
býli og almennar heimildir til handa
sveitarstjórnum að takmarka lausa-
göngu hrossa og graðpenings.
Ástæða þess að Búnaðarþing
vildi leggja þetta vald í hendur
sveitarstjóma, en var andvígt alls-
heijar banni yfir landið eða hluta
þess, er augljós öllum þeim sem
hugsa aðeins lengra en nef þeirra
nær. Sú að aðstæðurnar eru svo
gjörólíkar í byggðarlögum landsins.
í sumum sveitarfélögum, einkum
í og nálægt þéttbýli, eru hagsmunir
þeirra sem vilja rækta garða sína
eða skóg augljóslega meiri en bú-
ijáreigenda og þá einnig hagkvæm-
ara að girða búféð af en garðana
eða ræktunarlöndin. Það hefur líka
verið gert víða, m.a. á höfuðborgar-
svæðinu og á Suðurnesjum.
í öðrum tilvikum er víðlendið svo
mikið að ógerningur er og væri
reyndar mesta óráð frá landnýting-
arsjónarmiði að girða af allt búfé
og því miður ráðum við ekki við
að girða alla vegi í fyrirsjáanlegri
framtíð. Svo mikið er langræðið í
mörgum stijálbýlum héruðum.
Vitanlega eiga ræktendur garða
og skóga sinn rétt og það verður
að sjá til þess að lönd þeirra verði
friðuð með sem hagkvæmustum
hætti.
Sé um heilar jarðir, eða jarðar-
hluta að ræða sem tekið er til skóg-
ræktar eða annars, gildir hið al-
menna ákvæði um samgirðingu í
5. gr. girðingarlaga um að landeig-
andi er skyldur að taka þátt í girð-
ingarkostnaði á móti þeim sem
óskar samgirðingar enda hafi báðir
hag af girðingunni.
HflPPflÞRENNfl
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS
sýnmg
►
►
►
STEIKAR- 1
HLBOÐ
föstudag, laugardag, sunnudag
NAUTAGRILLSTEIK
BÖKUÐ KARTAFLA, KÓK.
kr. 695.-
SVlNAGRILLSTEIK
BÖKUÐ KARTAFLA, KÓK.
kr. 595.-
UM HELGINA
Á VÖNDUÐUM
EN ÓDYRUM
ELDHÚS- OG BAÐ
INNRÉTTINGUM
FRA KVIK
PAKKALAUSN:
Láttu okkur sjá um að fjarlægja
gömlu innréttinguna, setja þá nýju
upp og ganga frá öllum tækjum og
lögnum í hólf og gólf. Allt þetta í
hagstæðri heildarlausn á góðum
greiðslukjörum í allt að 12 mánuði.
Verið velkomin um í verslunina
okkar að Bæjarhrauni 8, og kynnið
ykkur fjölbreytilegt úrval inn-
réttinga í eldhús og bað.
Opið laugardag kl. 10-16,
sunnudag kl. 13-17
iæ
BÆJARHRAUNI 8 • HAFNARFIRÐI • SIMI 651499