Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 49

Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 49 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS UíMUUátSkm LVID BORGUM BRÚSANÍsÍ ABRYSTIR Til Velvakanda. Eftir að hafa horft á sjónvarps- Ifréttir frá Rússlandi um lausn [ Rússa á vín- og vímuvandamálum I fór ég að íhuga aðferð þein-a, rétt- [lætingu hennar og gildi. í fj’rstu Ifannst mér hranalega, næstum Jómanneskjulega að verki staðið. Ég ffékk samúð með ógæfumönnunum, ksem smalað var saman næstum eins |)g sláturfé á haustdegi. Aðbúnaður lllur virtist í lágmarki, vinnuað- istaða og fæði sjálfsagt á svipuðum mótum. Aðal nðferðin var að láta ast í þeim fræðum, því mikið fram- boð er á alls konar vímuefnum og drykkja er mikil og almenn I Rúss- landi. Síðan fór ég að bera saman að- ferðir íslendinga og RÚssa í þessum efnum. Varðandi mannúðleg qjón- armið stöndum við langt framar, sennilega fremstir allra þjóða. Hér er drykkjumönnum veittur góður aðbúnaður meðan þeir búa sig und- ir næstu drykkjuhrotu og þannig koll af kolli þar til þeir qjá að sér eða farast. Ég og þú borgum brú ann á oði foreldra, „slá“ vini og vandamennl jafnvel betla fyrir bjór og brauði.l Svo maður tali nú ekki um þá serrif eru svo langt leiddir að lemja ofl rifa veski af gömlum farlama vegl farendum. Að þessu athuguðu ol þegar hugsað er til þeirra gífurlegi fjárupphæða sem slíkir óreiðumenl kosta þjóðfélagið, beint og óbeinll tel ég að skoða beri nánar vinnul skyldureglu RÚssa, þó að mannúð-^ arhefð þeirra mætti vissulega end-j^ urskoða. vni -Urí fi&rmélwróðbl Ríkissljórnin getur gefið gott fordæmi Til Velvakanda. Ég sé að áfengismál ýta við les- endum. JT ræðir um meðhöndlun Rússa á drykkjumönnum og dekur við slíka hér á landi og finnst margt í milli bera. Hann vill að stjórnend- ur landsins láti meta hvað drykkju- skapurinn kosti þjóðina. SJS var með þungar áhyggjur af drykkjunni. Hann taldi nauðsyn- legt að ríkisstjómin færi að gera eitthvað til að létta þessu böli af þjóinni. Frómar óskir em vel meintar en mér er ekki ljóst hvað bréfritari ætlast til að stjórnin geri. Hvað getur hún gert? Við skulum gera okkur grein fyrir því að þessi þjóð vill vera fijáls að því að kaupa og drekka áfengi. Þess vegna er ríkisstjómin tilneydd að heimila verslun með áfengi. Ríkið rekur þá verslun og selur dýrt. Til þess era þau rök að hátt verð hamli gegn neyslu og í öðru lagi þykir rétt að þeir sem kaupi taki á sig einhvern hluta þess mikla kostnaðar sem ríkissjóður verður að bera vegna þess að áfengis er neytt í landinu. Enn eru það rök fyrir ríkiseinka- sölu að salan sé best komin í hönd- um þess sem sækist ekki eftir mik- illi sölu. Við vitum að neyslan kost- ar ríkissjóð meira en hann hagnast á sölunni. Hann þarf að borga með hverri flösku sem hann selur þegar öll kurl era komin til grafar. Hins vegar hirða vínveitingastaðir sína álagningu og borga ekkert vegna eftirmálanna. Ríkisstjórnin gefur gott fordæmi. Hún getur beitt ríkisvaldinu gegn þeirri tísku sem telur áfengi sjálf- sagt við allan mannfögnuð. Hún getur stutt bindindisfræðslu og bindindisstarf betur en gert er. Ekki skulum við vanmeta þau tæki- færi sem hún hefur. En því öllu era settar skorður meðan ekki tekst að efla bindindisvilja og bindindissemi í landinu. Þá fyrst getur ríkisstjórn- in unnið frægan sigur að henni lán- ist að hafa þjóðina í verki með sér. SJS segist ekki vera bindindis- maður. Samt er rétt að hann viti að öll leiðindi, misferli og allt það sem kallað hefur verið áfengisböl hefur hvarvetna hjaðnað í hlutfalli við vaxandi styrk bindindis en blás- ið út og magnast eftir því sem bind- indi hrakar. Við skulum einhuga gera kröfur til ríkisstjórnarinnar og þar á meðal að birta tölur um það hvað áfengis- neyslan kostar þjóðfélagið. Þó vit- um við fyrirfram, að það er óút- reiknanlegt. Það er auðvelt að telja saman daggjöld vegna drykkju- sjúklinga en hver metur örugglega hlut áfengisneyslu í margskonar heilsuleysi öðra? Hvað er hlutur áfengis í annarri fíkniefnaneyslu. Hver reiknar hlut áfengis nákvæm- lega í afbrotum og óhæfuverkum? Hver rekur að rótum og reiknar út manntjón og mannskemmdir sundr- aðra heimila vegna áfengisneyslu? En gleymum því aldrei að fyrst og fremst og öðra fremur hljóta félagshyggjumenn að gera kröfur til sjálfra sín. Svo einfalt er þetta. H.Kr. Stj’ðjum Ól- af Isleifsson Til Velvakánda. Ég get ekki látið hjá líða að þakka fyrir og láta í ljós ánægju mína með grein sem nýlega birtist í blaðinu eftir Ólaf ísleifsson, þar sem hann tekur upp hanskann fyrir þann flokk íslendinga sem þegar hefur lokið lífsstarfinu — svo og þá sem nú horfa fram á þá tíð nálgast. Við viljum sem sagt meina að við hljótum að vera nokkuð góðra gjalda verð eftir áratugina, sem við höfum skilað þjóðinni verðmæti með störf- um_ okkar. Ólafur ísleifsson tekur nú þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hér í Reykjavík. Hann er traustur maður, að áliti þeirra sem hann þekkja, starfsmaður ágætur og vel menntað- ur. Þá er hann svo góður penni, að það hlýtur að vera tilhlökkunarefni að mega e.t.v. heyra hann bráðlega flytja mál sitt á hinu háa Ajþingi. Vonandi sést meira frá Ólafl og öðram um mál þau sem brenna á hinum öldraðu í þessu þjóðfélagi. Guðrún Sigurðardóttir ENGIN AÐSTOÐ Til Velvakanda. Ég er í námi sem lýkur með stúd- entsprófi. Og ég er með eitt barn. Sem sagt einstæð móðir. En það skrítnasta við þetta er að ég fæ hvergi aðstoð eða námslán. Lána- sjóður íslenskra námsmanna lánar ekki í nám til stúdentsprófs og þeir taka ekkert tillit til félagslegrar stöðu. Félagsmálastofnun lánar ekki námsmönnum, bara illa launuðu fólki, fólki sem á við áfengisvanda- mál að stríða og þaðan af verra. En þeir geta ekki aðstoðað einstæða móður sem er að reyna að tryggja lífskjör barna sinna sem best. Hvað er eiginlega að í þessu þjóð- félagi? Á maður bara að vera ein- hver verkakona þegar maður hefur eignast sitt barn en hefur ekki stúd- entspróf? Þetta er alveg fáránlegt og til háborinnar skammar. Því það Vegna athugasemdar er nýlega birtist í Velvakanda varðandi upp- skrift að ábrystum í 3. tbl. Gestgjaf- ans, vil ég koma því á framfæri að matreiðslumaðurinn Gréta Svavars- dóttir á engan hlut að þeirri leiðu villu sem í uppskriftinni er. Hér er um að ræða mistök í prófarkalestri er skrifast alfarið á okkar reikning og við biðjumst velvirðingar á. Okkur þykir einnig leitt að mynda- textarnir skyldu hafa raglast og von- um bara að flestir geti greint í sund- ur fískrétt og eftirrétt. F.h. Gestgjafans, íris Erlingsdóttir, ritstjóri. er mikið af einstæðum foreldram sem ég hef heyrt um sem vilja læra en treysta sér ekki til þess. Því það sér hver heilvita maður að ekki getur einn einstaklingur unnið fullan vinnudag fyrir húsaleigu, barna- gæslu, reikningum og mat. Og verið líka í skóla, lært heima, hugsað um barnið og heimilið. Utkoman úr þessu væri aigert fall í skóla og taugaveikluð manneskja. Kæra stjórnmálamenn, nú ertæki- færið að bæta úr þessu til að tryggja velferð framtíðarinnar. Því máttækið segir: Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Hvernig væri að leggja áherslu á að lána þeim sem ætla í hjúkrunar- nám eða sjúkraliðanám? Því það vita allir að í þessum greinum er skortur á fagfólki. Tilvonandi hjúkrunarfræðingur KARLMANNAFÖT \ verð 9.900,- - 12.900,- Terelynbm, mittismál 80-138 cm, verð 1.000,- - 4.400,- Gallabiixur, allar stærúir, irerð 1.650,- - 1.790,- Flauelsbuxur, verð 1.580,- Peysur, skyrtur, uæríút, gutl verú. AIMDRÉS, Skólavörðustíg 22, sími 18250 ANDRÉS, FATAVAL, Höfðabakka 9c, sími 673740. Víð fækkum sófasettagerðum úr 100 í 90 Málið er svo einfalt að við höfum ekki pláss fyrír allar þær mörgu gerðir sófasetta (yfir 100 teg- undír) sem í verslunínni eru - og fækkum þeim næstu daga með tilboðum til að rýma fyrir nýjum sendingum af bor ðstofusettum. Víð lækkum 12 tegundír um 20% veldu Ieðursett - veldu áklæðasett MOBLER Húsgagna4iöllín REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.