Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
C 17
í gufumekki i hlíðum Brennisteinsöldu.
Ófáir snjóskaflar voru lagðir að baki á hjólunum í þessari ferð.
a fjallahjolim um
■Jaugangimr
jallahjól er sú tegund reiðhjóla sem nýtur
sívaxandi vinsældh um þessar mundir. Þessi
hjól eru um margt nokkuð sérstök: Sterk-
byggð grind, allt að 21 gír og sver, gróf-
mynstruð dekk gera það mögulegt að ferð-
ast um vegleysur og slóða sem hingað til hafa ekki
verið færir nema fótgangandi fólki. Með tilkomu þess-
ara hjóla opnast nýjar víddir fyrir ferðalanga og hafa
ferðalög með þessum hætti þegar vakið áhuga margra
erlendra ferðamanna þrátt fyrir að við íslendingar
séum enn ekki búnir að tileinka okkur þennan ferða-
máta að fullu.
Dagana 16. til 19. ágúst sl. lögðu 7 skátar upp í
ferð um óbyggðir landsins. Leiðin sem varð fyrir val-
inu er fyrir löngu vel þekkt og vinsæl gönguleið, frá
Landmannalaugum í Þórsmörk eða „Laugavegurinh"
eins og þessi leið er stundum kölluð. Hópurinn lagði
af stað úr höfuðborginni á fimmtudagskvöld sem leið
lá í Landmannalaugar. Með aðstoð hjálparsveitar var
mannskapurinn, hjólin og farangurinn flutt þessa leið,
sem í sjálfu sér er öllu ákjósanlegri hjólreiðaleið held-
ur en sú sem fyrirhugað var að fara.
Við sólarupprás
á föstudagsmorgun
var lagt af stað frá
Landmannalaug-
um áleiðis að
Hrafntinnuskeri en
þar var áð um há-
degisbilið. Að lok-
inni hressingu var
haldið áfram sem
leið lá, yfir stokka
og steina, snjó-
breiður, sanda og
úfið hraun. Um
kvöldmatarleytið
kom hópurinn að
gangnamannakofa
í Hvannagili þar
sem gist var um
nóttina.
Rúmlega níu
morguninn eftir
var hópurinn svo Á lokaspelinum gafst gott
iagður af stað a ny. tækifæri tii að njóta fegurð-
Nu la leiðm um ar Eyjaljallajökuls sem hér
maiarveg fyrst um £ gjJ ^ himins
sinn og siðan toku 6
við lítt grónir sandar og auðnir. Um hádegisbilið var
áð að Emstrum og að lokinni hvíld var lagt í lo-
kakafla ferðarinnar, niður í Þórsmörk. Þar lauk svo
ferðinni, laust eftir kaffileytið.
Að morgni sunnudags var mannskapurinn svo vel
á sig kominn að ákveðið var að halda áfram hjóla-
mennskunni. Haldið var upp úr Húsadal, þar sem
hópurinn hafði gist, og sem leið liggur inn í Langa-
dal. Þar var farið yfír Krossá á göngubrú en síðan
hjólað sem leið lá niður á þjóðveg. Á þeirri leið gilti
hið fornkveðna: „Enginn er verri þótt hann vökni“
því næg voru vatnsföllin sem þurfti að fara yfir. Allt
gekk þó eins og í sögu enda hópurinn orðinn ýmsu
Víða var um brattar brekkur að fara og þurftu
menn þá að taka á honum stóra sínum. I baksýn
sjást Brennisteinsalda (t.v.) og Suðurnámur.
Leiðangursmenn á ferð úr Hrafntinnuskeri, áleiðis að Álftavatni. Hér er hjólað yfir gömul snjólög sem þakin eru finum sandi.
Mikilvægt er að nærast vel þegar færi gefst. Hér kýla Helgi og
Guðmundur vömbina í gangnamannaskálanum í Hvanngili.
Eins og gefur að skilja er mikið
álag á hjólin í ferð sem þessari.
Þó var það aðeins einu sinni sem
þurfti að gera við sprungið dekk.
Hér sést Haukur, viðgerðarmað-
ur hópsins, lagfæra þetta eina
dekk sem sprakk.
„Lauga-
vegurinn“
o
Landmannalaugar a
Hrafntinnusker
Aiftavatn
/
Bmstruri'
y
Þórsmörk ^
jökull j
' V MMJKG
Víða lá leiðin í gegnum jarðhitasvæði. Hér er eitt þeirra — við
Hrafntinnusker.
Víða voru ár á leiðinni sem margar voru djúpar og straumþungar. Léttir á brún i Þórsmörk enda komnir á áfangastað.
Hér sést Kristinn fara yfir Þröngá með trukki og dýfu.
Leiðin er fyrir löngu vel þekkt og vinsæl gönguleið, frá
Landmannalaugum í Þórsmörk eða „Laugavegurinn"