Morgunblaðið - 31.10.1990, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
HRAUNHAMARhf
áá
m
FASTEIGNA-OG
SKIPASALA
Reykjavíkurvegi 72.
Hafnarfirði. S- 54511
I smíðum
Álfholt - raðhús. Til afh. strax
fokhelt, 200 fm raðhús á 2 hæðum m.
innb. bílsk. Skilast fullb. utan. Mögul.
að taka íb. uppí kaupverð. V. 7,6.
Háholt. 2ja, 3ja og 4ra herb. íb. sem
skilast tilb. u. tréverk m.a. íb. m. sér-
inng. Verð frá 4,8 millj.
Alfholt. 3ja og 4ra herb. íbúðir í
klasahúsum sem skilast tilb. u. trév.
Teikn. á skrifst. Verð frá 6,3 millj.
Suðurgata - Hf. - fjórb. 4ra
herb. íbúðir ásamt innb. bílsk. alls
147-150 fm. Fokh. nú þegar en skilast
tilb. u. trév. 15. des nk. Verð frá 8,3 millj.
Einbýli - raðhús
Hrauntunga — Hafnarf. Mjög
fallegt 180 fm einbhús auk 30 fm bilsk.
Glæsil. eign. Hagst. lán áhv. V. 16,8 m.
Suðurhvammur — Hf. — nýtt
lán. Höfum fengið i einkasölu nýtt
mjög skemmtil. 184,4 fm raðhús á 2
hæðum m. bílsk. íb.hæft en ekki fullb.
Áhv. nýtt húsn.lán 3 m. V. 11,5 m.
Vallarbarð. 190fmraðh.áeinnihæð
ásamt bílsk. Að mestu fullb. Skipti mögul.
Áhv. m.a. nýtt hússtjlán Verð 12 millj.
Austurtún - Álftanesi. Mjög
fallegt 160,3 fm nettó raðhús á tveimur
hæðum. 29 fm bílsk. Verð 11,2 millj.
Öldutún. Mjög fallegt 160 fm enda-
raðh. auk bílsk. Nýjar innr. V. 10,9 m.
Skógarlundur - Gbæ. Giæsii.
raðhús á einni hæð auk bílsk. Samtals
170 fm. Verð 10,8 millj.
Háihvammur. ca. 380 fm einbhús
á tveimur hæöum. Á jarðh. er ein 3ja
herb. og ein 2ja herb. íb. Mögul. að
taka íbúðir uppí kaupverð.
Lækjarkinn. 181 fm einbhús, hæð
og ris í góðu standi. 2 stofur og bað-
stofuloft. Bílskréttur. Eign sem hefur
verið mjög vel við haldið. Verð 12,2 millj.
5-7 herb.
Reykjavíkurvegur. Mjög faiieg
og rúmg. 138 fm efri sérhæð í nýlegu
húsi, 4 svefnherb., stórar stofur. Verð
8,8 millj.
4ra herb.
Hjallabraut Mjög falleg 103 fm
nettó 4ra-5 herb endaíb. á 2. hæð. Stór-
ar suðursv. sem hafa nýl. verið yfirb.
Ákv.s sala verð 7,6 millj.
Álfaskeið - m. bflsk. - laus
Strax. Mjög falleg 104 fm 4ra herb.
endaíb. á 3. hæð. Nýtt vandað eldhús.
Lítið áhv. Góður bílsk. Verð 7,2 millj.
Hjallabraut. Mjög falleg 108 fm
nettó íb. á 2. hæð. Mikið endurn. íb.
m.a. parket á gólfum. V. 7,5 m.
3ja herb.
Hjallabraut. Mjög falleg 96 fm 3ja-
4ra herb. íb. á 1. hæö. Stórar suöursval-
ir. Skipti hugsanl. á stærri eign. Verð
6,4 millj.
Furugrund - Kóp. Miög faiieg
87 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð. Mjög
góðar innr. m.a. parket á gólfum. Ákv.
sala. Verö 6,2 millj.
Miðvangur. Mjög falleg 3ja herb.
endaíb. á 7. hæð í lyftublokk. Parket.
Verð 5,8 millj.
Hraunstígur. 62 fm 3ja herb. risíb.
í góðu standi. Laus í feb. Verð 4,8 millj.
Hörgatún. Ca 92 fm 3ja herb. efri
hæð. Bílskréttur. Góður staður. Áhv.
nýtt húsnæðisstj.lán. Verð 5,9 millj.
2ja herb.
Selvogsgata. 58 fm 2ja herb. efri
hæð í steinhúsi i góðu standi. Ákv.
sala. Verð 3,9 millj.
Hverfisgata - Hf. 50 fm nettó
2ja-3ja herb. risíb. Húsnlán 1,2 millj.
Lækkað verð 2950 þús.
Öldugata - Hf. - laus. 2ja herb.
ósamþ. íb. á jaröhæö í góðu standi.
Verð 2,9 millj.
Heiðarhvammur - Kefl. 61 fm
2ja herb. íb. í nýl. húsi. Hagst. lán áhv.
Verð 3,5 millj.
Magnús Emilsson,
lögg. fasteignasali,
kvöldsími 53274.
Lánastarfsemi Háskólabóka-
safns og þjónusta við notendur
eftir Áslaugu
Agnarsdóttur
Þjónusta Háskólabókasafns við
notendur er margþætt. Hún felst
m.a. í útlánastarfsemi, lánum milli
safna, tölvuleit í erlendum gagna-
söfnum, skipulegri kynningu á safn-
inu og fræðsju um öflun upplýsinga
og heimilda. í þessari grein er ætlun-
in að kynna útlánastarfsemi safnsins
og upplýsingaþjónustu í tengslum
við hana.
Hverjir nota Háskólabókasafn?
Háskólabókasafn er næststærsta
bókasafn landsins og stærsta al-
menna vísindabókasafnið. Það kaup-
ir flestar bækur og flest tímarit allra
hérlendra bókasafna. Það nýtur, eitt
þriggja bókasafna, skylduskila (hin
eru Landsbókasafn og Amtsbókasaf-
nið á Akureyri), þ.e. fær eitt eintak
af öllu því sem prentsmiðjum og
bókaútgefendum ber að afhenda lög-
um samkvæmt. Safnið sinnir þörfum
kennara og nemenda háskólans eftir
bestu getu, bæði hvað varðar
kennslu og rannsóknastarfsemi. En
þótt hlutverk safnsins sé öðru frem-
ur að þjóna háskólasamfélaginu,
sinnir það einnig að hluta til þörfum
atvinnulífs, stjórnsýslu og rann-
sóknastarfsemi utan háskólans. Al-
menningur hefur hingað til lítið not-
að safnið, en leggja ber áherslu á,
að Háskólabókasafn er öllum opið.
Þar er mikinn fróðleik að finna og
margvíslega þjónustu að fá.
Staðsetning og umfang
Þegar gengið er inn í aðalbygg-
ingu Háskóla íslands að framan-
verðu, blasa við dyrnar að aðalsafn-
inu. Safnið hefur alla bakálmuna til
HÁSKÓLA
BÓKASAFN
1940-1990
umráða. Það fékk hátíðasal háskól-
ans til afnota árið 1986 og eru nú
afgreiðslustaðir þess tveir. A 1. hæð
er mestur hluti ritakostsins og þar
fer útlánastarfsemin aðallega fram,
en í hátíðasal á 2. hæð er handbóka-
rými og lestraraðstaða fyrir um 50
manns. Auk þess eru á vegum safns-
ins 17 útibú svo og geymslur fyrir
eldri rit utan safns. Lesstofur eru í
15 byggingum víðs vegar um borg-
ina. Það liggur því í augum uppi að
safnkosturinn dreifist allnokkuð, en
skrá yfir hann allan er í aðalsafni.
Alls eru um 285 þús. bindi í safn-
inu, en þar af eru aðeins um 110
þús. í aðalsafni. Rúmlega 90 þús.
bindi eru í geymslum og 80 þús. í
útibúum.
Afgreiðsla
Fremst í safninu á 1. hæð er af-
greiðslusalur safnsins. Hér fara útl-
án fram og hér eru einnig spjald-
skrár yfir ritakost safnsins (bæði
Áslaug Agnarsdóttir
þann hluta sem er í aðalsafninu, og
einnig það sem er í útibúum).
Bókakostinum er raðað í hillur
samkvæmt alþjóðlegu flokkunar-
kerfi, sem kennt er við Bandaríkja-
manninn Melvil Dewey. Hann er á
sjálfbeina, þ.e. notendum er heimilt
að ganga um safnrýmið og sækja
sjálfir rit sem þeir kynnu að hafa
áhuga á.
Starfsliðið er fámennt, við af-
greiðslu er að jafnaði aðeins einn
maður, og eru því safnið og útlána-
starfsemin skipulögð þannig að not-
andinn geti að nokkru leyti afgreitt
sig sjálfur. Flestir nemendur við
háskólann fá safnkynningu fyrsta
árið, sem þeir eru í námi, og venjast
því fljótt að nota safnið upp á eigin
spýtur. Að auki koma stundum hóp-
ar úr öðrum skólum og skoða safnið
í fylgd bókavarðar. Að sjálfsögðu fá
allir sem þurfa þess og æskja aðstoð
við að finna þau rit sem þá vanhag-
ar um. Ef safnið á ekki rit sem not-
andann vantar þá er hægt að panta
það, eða ljósrit úr því, að utan (milli-
safnalán).
Utlánstími flestra rita er einn
mánuður. Sum rit eru tekin fjá að
beiðni kennara og höfð á svokölluðu
„skammtímaláni" uppi á lestrarsal,
þ.e. þau eru lánuð út í þijá daga eða
eina viku, eða þau eru eingöngu til
notkunar á salnum. Þetta á einkum
við ef margir þurfa að lesa ritin 'á
stuttam tíma. Tímarit eru yfirleitt
ekki lánuð út lengur en þijá daga.
Handbækur á lestrarsal, tilvísanarit
og bókfræðirit í afgreiðslu- og
spjaldskrársal eru aldrei lánuð út.
Utlánstími ritanna er því sveigjan-
legur og breytingum háður.
Árið 1980 voru útlán rúmlega 23
þús., þar af um 16 þús., úr aðal-
safni'. Þau hafa aukist lítillega ár frá
ári, og útlán fyrir árið 1989 voru
um 32 þús., þar af rúmlega 22 þús.
úr aðalsafni. Þegar tölur um útlán
eru skoðaðar, ber þó að hafa í huga,
að mikið af bókum og tímaritum er
notað á staðnum, án þess að um
skráð lán sé að ræða.
Hvaða rit á Háskólabókasafn?
Bókakostur safnsins miðast eðli-
lega við stærsta notendahóp þess,
sem er háskólasamfélagið, kennarar
og nemendur, Enda þótt safnið eign-
ist eintak af öllum íslenskum ritum
svo sem áður er getið, hefur verið
áætlað, að um átta bækur af hveij-
um tíu í safninu séu erlendar.
Safnið fær til varðveislu eintak
af lokaritgei'ðum nemenda allra
deilda. Þessar ritgerðir eru geymdar
uppi á lestrarsalnum, þar sem heim-
ilt er að lesa þær, en ekki má lána
þær út, og hvorki ljósrita úr þeim
8. einvígisskákin um heimsmeistaratitilinn:
Kasparov glutraði frum-
kvæðinu í tímaliraki Karpovs
___________Skák_______________
Karl Þorstein
SPENNAN var rafmögnuð þegar
leið að lokum 8. einvígisskákar
Kasparovs í Hudson-leikhúsinu í
New York. Ekki einungis þurfti
Karpov að glíma við stórsókn
heimsmeistarans heldur og var
umhugsunartími hans á þrotum.
Karpov þurfti að leika þrettán
leiki á aðeins fimm mínútum í
mjög erfiðri stöðu. En hann varð-
ist snilldarlega, og það var eins
og heimsmeistarinn færi á taugum
í tímahraki andstæðingsins. Á
óskiljanlegan hátt lék hann af sér
peði og í biðskákinni á Karpov
peðinu framyfir og einhveija
vinningsmöguleika.
Kasparov byijaði skákina með
kóngspeðsleik rétt eins og "í þeim
skákum þar sem hann hefur stýrt
hvítu mönnunum. Byrjunarleikirnir
féllu í svipaðan farveg og í 6. einvíg-
isskákinni. Kasparov breytti út af í
12. leik en sú bragarbót vann
skammt á undirbúningi áskorandans.
Karpov tefldi áframhaldið hratt og
af miklum sannfæringarkrafti. Með
framrás drottningarpeðsins í fjórt-
ánda leik þótti kveða við nýjan tón
í byrjuninni og leikurinn var auðsýni-
lega undirbúinn í herbúðum áskoran-
dans. Kasparov á hinn bóginn þurfti
45 mínútna umhugsun til þess að
ákveða áframhaldið. Á meðan veltu
skáksérfræðingar fyrir sér möguleik-
unum. Bandaríski stórmeistarinn
Byrne var ekki sannfærður um ágæti
leiksins. „Við erum bara að skoða,
svipað og þegar litið er í búðar-
glugga. Við vitum ekki hvort við
kaupum leikinn" var andsvar hans
um ágætið.
Kasparov fann sterkt mótsvar.
Með peðaframrás á miðborðinu skap-
aði hann sér hættuleg sóknarfæri á
kóngsvæng. Taflmennska Karpovs
var ráðleysisleg á meðan heimsmeist-
arinn stillti liðsmönnum mínum
gráum fyrir járnum og þegar tíma-
leysið fór að auki að heija á Karpov
voru spádómar skáksérfræðinga
flestir á eina leið. En Karpov er öðr-
um slyngari í vamartaflmennsku.
Hann sá við sérhverri hótun and-
stæðingsins og þar kom að því að
óþolinmæði Kasparovs gerði vart við
sig. Umhugsunarlaust lét hann peð
af hendi í von um mátsókn. Karpov
þáði peðið og varðist í leiðinni hótun-
um Kasparovs. Kasparov átti þá
þann einn kost vænstan að skipta í
endatafl og í biðstöðunni hefur hann
eins og áður sagði peði færra en
jafnteflismöguleika sökum tætings-
legrar peðastöðu svarts.
Það er ljóst að hernaðartaktík
Kasparovs hefur beðið skipbrot í
síðustu viðureignum. Vafalaust hefur
hann ætlað að gera út um einvígið
strax í byijun. Kraftaurinn i tafl-
mennsku hans þá var slíkur að
Karpov virtist ekki eiga sér viðreisn-
ar von. En áskorandinn hefur staðist
harðvítugnstu sóknina. Staðan í
heimsmeistaraeinvíginu er nú jöfn,
hvor keppandi hefur unnið eina skák
og jafnteflin eru fimm. Einvígið er
24 skákir og síðari hluti einvígisins
verður haldinn í borginni í Lyon í
Frakklandi. Kasparov nægir sem
heimsmeistara að halda titlinum á
jöfnu og haldi hann jafntefli i bið-
skákinni stendur hann ennþá fræði-
lega betur að vígi þrátt fyrir óhag-
stætt gengi á undanförnum skákum.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spánskur leikur
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 -
a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6.
Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3 - 0-0
9. h3 - Rd7 10. d4 - Bf6 11. a4
- Bb7 12. Be3
Hér víkur Kasparov frá 6. skák-
inni. Þá lék hann 12. axb5 — axb5
13. Hxa8 — Dxa8 14. d5 en varð
ekkert ágengt í áframhaldinu. End-
urbótin kom Karpov auðsjáanlega
ekki á óvart. Leikurinn er þekktur í
bókarfræðum og áframhaldið tefldi
hann hratt.
12. - Ra5 13. Be2 - Rc 4 14. Bcl
- d5?!
Ný hugmynd í þessari stöðu. Það
verður að segjast að það er þvert
ofan í hefðbundinn skákstíl Karpovs
að leika jafn hvassan leik. Leiknum
er liklega ætlað að koma andstæð-
ingnum á óvart og miðað við áfram-
haldið er ólíklegt að Karpov beiti
honum á nýjan leik.
15. dxe5 — Rdxe5 16. Rxe5 —
Rxe5 17. axb5 — axb5 18. Hxa8 —
Dxa8 19. f4! - Rg6 20. e5
Peðameirihluti hvíts á kóngsvæng
veitir honum ótvírætt frumkvæði.
Hörfi biskupinn til e7 kemur sama-
stundis 21. f5!
- Bh4 21. Hfl - Be7
21. d4? væri einfaldlega svarað
með 22. Dg4! með hótuninni 23. f5
eða 23. Bxg6.
22. Rd2! - Bc5 23. Kh2 - d4!?
Karpov er ekki öfundsverður af
stöðunni. Honum er nauðsyn að
koma hvítreita biskupnum í spilið en
leikurinn hefur jafnframt þann ókost
að veita hvíta riddaranum óhindrað-
an aðgang að e4-reitnum.
24. De2 — dxc3 25. bxc3 — Hd8
26. Re4 - Ba3 27. Bxa3 - Bxe4!
Djúphugsaður leikur sem sýnir vel
stöðuskilning Karpovs. Þrátt fyrir
mikið tímahrak skynjar Karpov að
riddarinn þarf nauðsynlega að fjar-
lægja til þess að létta af sóknarþung-
ann. Eftir 27. — Dxa3 28. Rg5! vof-
ir hótunin 29. e6! og 29. Dh5 yfir.
Við leiknum 28. — Dxc3 væri svarið
29. e6! með óveijandi hótunum.
28. Dxe4 - Dxa3 29. f5 - Re7 30.
Dh4 - f6!
Það er góð regla að stilla peðum
sínum á reiti ósamlitum biskup and-
stæðingsins. Með leiknum fyrirbygg-
ir svartur frekari framrás f-peðsins.
Raunar virðist hvítur lítið hafa uppúr
krafsinu að leika 30. f6 — Rg6, t.d.
31. Dc6 - Rxe5! 32. Dxc7 - Dd6.
Nú er 31. exf6 auðvitað svarað með
31. — Dd6+ og síðan 32. — gxf6.
31. Dg3 - Kf8 32. Khl?!