Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 81 Baunaspírur Baunaspírur eru spíraðar baunir, sem við spírun auka magn sitt verulega á kolvetnum, proteini, A- og C-vítamíni auk fleiri efna. Ýmsar baunir er hægt að láta spíra, en þær , baunaspírur sem fást í verslunum eru spíraðar grænar mungbaunir. (Því miður er ekki til íslenskt nafn yfir þær.) Ýmsar aðrar baunir er þó hægt að láta spíra, og er auðvelt að gera það sjálfur. Við þurfum bara hreina krukku og grisju. Leggja þarf baunirnar í bleyti í nokkra klukkutíma, binda grisju yfir og festa með teygju og geyma á dimmum stað í nokkra daga. Hella þarf köldu vatni gegnum grisjuna tvisvar á dag og hella því aftur og láta krukkuna hallast á hvolfi. En óneitanlega er þægilegt að kaupa baunaspírurnar tilbúnar, a.m.k. þegar við gleymum að búa þær til sjálf. Hér hafa baunaspírur fengist í verslunum í 100 g pakkningum. Þær koma frá Áslandi á Flúðum. Baunirnar hafa takmarkað geymsluþol, ekki meira en 5 daga og þær þarf að geyma í kæli. Við þurfum að setja baunaspírurnar á sigti og skola undir kalda kranan- um. Ef við ætlum að borða þær ferskar, er mjög gott að láta þær standa í skál með ísköldu vatni í u.þ.b. 'A klst. Gott er að setja klaka út í vatnið. Hvorki má fjar- lægja laus baunahylki né rætur, en þar er mest af vítamínum og bragðið sterkast. Spírurnar hafa hnetukeim, en það bragð er mis- munandi eftir því hvaða baunir er um að ræða. Ef við sjóðum baunaspírur, eru þær settar í sjóð- andi saltvatn og soðnar í 2-3 mínútur. Alls ekki lengur. Þær þarf að borða strax að suðu lok- inni. Algengt er að steikja eða sjóða baunirnar í olíu, en ég er á móti mikilli fitu í matargerð og mér finnst miklu betra að nota aðra aðferð við matreiðsluna. Baunaspírulummur 100 g baunaspírur 1 meðalstór laukur ’/z lítri sjóðandi saltvatn 3 egg 'A tsk. salt nýmalaður pipar 100 g rækjur 2 tsk matarolía soyasósa. 1. Setjið baunaspírurnar á sigti og skolið undir kalda krananum. 2. Afhýðið laukinn og skerið í sneiðar. 3. Látið saltvatnið sjóða. Setjið baunaspírur og lauk í það og sjóð- ið í 2-3 mínútur, alls ekki lengur. Hellið strax á sigti og látið vatnið renna vel af. Látið kólna örlítið. 4. Setjið egg í skál, setjið salt og pipar saman við. 5. Saxið rækjurnar gróft. Setjið síðan út í eggjahræruna ásamt baunaspírum og lauk. 6. Hitið pönnukökupönnu, setjið matarolíuna á hana. Smyijið henni um pönnuna með eldhús- pappír. Hafið meðalhita. 7. Búið til lummur úr deiginu. Snúið við, þegar lummurnar eru farnar að þorna örlítið. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON 8. Setjið örlítið af soyasósu yfír lummurnar, þegar þið berið þær fram. Salat með baunaspírum 2 dl súrmjólk eða sýrður rjómi 3 tsk. sweet relish (gi-ænmet- ismauk í krukkum, fæst víða) 1 lítill salatlaukur (hvítur, mildur laukur, fæst víða) 1 dós túnfiskur í olíu (100 g) 'A bakki baunaspírur (50 g) nýmalaður pipar 1. Setjið baunaspírurnar í kalt vatn í '/2-I klst. Hellið á sigti og látið renna vel af þeim. Skerið eða klippið örlítið í sundur. 2. Blandið saman, súrmjólk (sýrð- um rjóma), sweet relish, söxuðum lauk, túnfiski og baunaspírum. Mali pipar yfir. 3. Setjið í skál og borðið með brauði. Kjúklingur með baunaspirum 1 kjúklingabijóst '/2 dl soyasósa ‘/2 dl matarolía '/2 tsk. karrý 1-3 hvítlauksgeirar fersk steinselja 1 meðalstór tómatur 1 bakki baunaspírur, 100 g '/2 tsk. salt. 1. Skerið bringumar frá beinum og skerið í mjóar ræmur. Setjið í skál og hellið soyasósu yfir. Látið standa í henni í 1-2 klst. í kæli- skáp. Hreyfíð öðru hverju svo að soyasósan snerti alla fleti. 2. Setjið matarolíu í pott, setjið karrý útí. Minnkið hitann í minnsta straum. Afhýðið hvítlauksgeirana og skerið í sneið- ar. Setjið saman við olíuna. Klipp- ið steinseljuna og setjið einnig saman við. 3. Hellið sjóðandi vatni á tómat- inn, látið standa í vatninu i 'A mínútu. Stingið þá gaffli í hann og fjarlægið hýðið. Skerið í bita og setjið út í olíuna. Látið sjóða við hægan hita í 10 mínútur. 4. Aukið hitann, setjið kjúklinga- bitana í olíu/grænmetismaukið. Setjið lok á pottinn og sjóðið í 5 mínútur. Stráið salti yfir. 6. Saxið eða klippið baunaspírum- ar örlítið, setjið í pottinn og látið hitna vel í gegn. Meðlæti: Soðin hrísgijón. O FELAGSSTARF Auglýsing um prófkjör innan kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi vegna næstu alþingiskosninga Prófkjörið fer fram í Hótel Borgarnesi, Borgarnesi, laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 13.00. Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa allir aðal- og varamenn í kjördæmisráðinu. Hér með auglýsir stjórn og kjör- nefnd Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi eftir framboðum í prófkjör- inu og er flokksbundnum sjálfstæðismönnum heimilt að gera tillögu til stjórnar og kjörnefndar, enda skal slík tillaga borin fram af minnst tuttugu flokksmönnum í kjördæminu. Engin flokksmaður getur mælt með fleirum en fjórum slíkum framboðstillögum. Stjórn og kjör- neind er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar ef ástæða þykir til. Framboðstillögur skulu berast til formanns kjör- dæmisráðs, Vifils Búasonar, Ferstiklu, Hvalfjarðarströnd, eða for- manns kjörnefndar Ellerts Kristinssonar, Sundabakka 13, Stykkis- hólmi, eigi síðar en laugardaginn 10. nóvember nk. kl. 13.00. Stjórn og kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Vesturlandskjördæmi. Sjálfstæðismenn í Norðurlandskjördæmi vestra - takið eftir: Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins verður haldið á Blönduósi dag- ana 10. og 11. nóvember. Dagskrá laugardaginn 10. nóvember: 13.00 Stjórnmálaástandið: Þorsteinn Pálsson. 14.30 Skýrsla stjórnar: Þorgrímur Daníelsson. Umræður. 15.30 Kaffihlé. 16.00 Nefndarstörf. 20.00 Haustblót sjálfstæðismanna (allir velkomnir, takið maka með!) Dagskrá sunnudaginn 11. nóvember: 10.00 Nefndir skila áliti. Umræ’ður. ~ ' 12.00 Matarhlé. 13.00 Álit kjörnefndar. Umræður. 14.30 Kaffihlé. 15.00 Kosningar. 16.00 Þingslit. Þátttökutilkynningar vegna haustblóts og gistirýmis þurfa að berast sem fyrst til Óskars Húnfjörð í síma 95-24500 eða 95-24401 á kvöldin. Stjórn kjördæmisráðs. Á Akureyri í Kaupangi við Mýrarveg 31. okt. kl. 21.00 Dagskrá: 1. Kynning á stefnu Sjálfstæðisflokksins um samgöngu-, ferða- og fjarskiptamál. Ræðumenn: Thomas Möller, forrhaður samgöngu- og ferðamála- nefndar Sjálfstæðisflokksins, og Erna Hauksdóttir, viðskiptafræð- ingur. 2. Ræða Halldórs Blöndal, alþingismanns, um þessi mál. 3. Almennar umræður. Markmið þessa fundar er að fá viðbrögð flokksmanna við þeirri stefnumörkun, sem unnin hefur verið í samgöngu- og ferðamála- nefnd Sjálfstæðisflokksins. Fjallað verður um áherslur þær, sem flokksmenn telja að eigi að vera í þessum málum á næstu árum. Samgöngu- og ferðamálanefnd Sjálfstæðisflokksins. ' - sm mém H I.O.O.F. 9 = 17210318V2 = □ GLITNIR 599010317 = 1 I.O.O.F. 7 = 17210318V2 = □ HELGAFELL IV/V 2 599010317 Stúkan Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 20.30 i Templ- arahöllinni. Gestur fundarins Árni Sigfússon, borgarfulltrúi. Mætið vel. Æðsti templar. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. —77 KFUM V Haustátak 1990 Fyrsta samkoma Haustátaks 1990 er í kvöld á Háaleitisbraut 58 kl. 20.30. Upphafsorð: Hilmar Þór- hallsson. Ræðumaöur: Margrét Hróbjartsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. SlK, KSH, KFUM, KFUK. Hjálpræðisherinn I kvöld kl. 20.00 biblíulestur og bæn. Fimmtud. kl. 20.30 almenn sam- koma. FERÐAFELAG ISLANDS ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533 Helgarferð 2.-4. nóv. Vetri heilsað í Tindfjöllum Helgarferð á fullu tungli. Góð gisting í Tindfjallaskála. Hægt að velja á milli spennandi fjalla- leiða t.d. á Ými, Saxa eða Horn- klofa. Nánari upplýsingar og far- miðar á skrifstofu, Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798. Munið aðventuferðina í Þórs- mörk 30. nóv.-2. des. Verið með og gerist jafnframt félagar í Ferðafélaginu. Ferðafélag (slands. Seltjarnarneskirkja Samkoma i kvöld kl. 20.30. Sönghópurinn Án skilyrða, Þor- valdur Halldórsson stjórnar. Prédikun og fyrirbænir. 'HftFndi fdtrf H ÚTIVIST GtÓFIMN11 • REYKJÁVÍK • StMIAÍMSVÁRI MtOt Hveravellir Haustblót 2.-4. nóv., m.a. fariö í Kerlingafjöll og gengið í Hveradali. Sameiginleg máltíð á laugardagskvöld. Fararstjóri Ásta Þorleifsdóttir. Myndakvöld Fimmtud. 1. nóv. í Fóstbræðra- heimilinu, Langholtsvegi 109, hefst kl. 20.30. Þema: Islensk villiblóm. Einnig sýndar myndir úr starfi sumarsins í Básum, Goðalandi, kaffi og kræsingar i hléi. Sjáumst. Útivist. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Daníel Jacobssen frá Færeyjum. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.