Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
fclk í
fréttum
Nokkrir gesta fylgjast spenntir með.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Brúðhjónin Sebastian Coe og Nicola Mclrvin.
Morgunblaðið/Sverrir
Borgarstjóri heíðraður
í tilefni 60. íþróttaþings íþróttasambands íslands, heiðraði Sveinn Björns-
son forseti ÍSÍ, Davíð Oddsson borgarstjóra með æðstu orðu sambands-
ins. Orðan er veitt þeim er stuðlað hafa að framgangi hreyfíngarinnar
og störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í heild.
HNAPPHELDA
Seb Coe genginn út
Ollum á óvörum gekk breski
hlaupagikkurinn Sebastian
Coe í það heilaga fyrir skömmu. Eig-
inkonan heitir Nicola Mclrvin og er
fremsta íþróttakona Breta- í hrossa-
íþróttum. Er þegar farið að spá henni
gullmedalíu á Ólympíuleikunum í
Barcelona 1992.
Seb Coe segir að þau Nicola hafi
hist í matarboði sameiginlegs vinar
og þeim hafi strax orðið vel til vina.
Nicola átti í skilnaðarmáli um þær
mundir en þegar það var afstaðið
hafi þau tekið þráðinn upp og fundið
fljótt að hjónaband myndi henta þeim
prýðilega. Brúðkaupið kom vinum
og vandamönnum í opna skjöldu, það
var engum sagt neitt og engum boð-
ið utan foreldrum þeirra. Athöfnin
var látlaus og svo fóru þau út að
borða um kvöldið.
UPPATÆKI
Það er ekki öll dellan eins
Það er ekki öll vitleysan eins, það
sýndi sig þegar uppfinn inga-
maðurinn John Barnes í Bretlandi
ákvað að hanna og smíða „beljuna"
sem sjá má á myndinni. Stálkýr
þessi er vita gagnslaus, mjólkar
ekki, gefur ekki af sér kjöt eða
aðrar afurðir. Uppfinningamaður-
inn tjáði mönnum að.það hefði vak-
að fyrir sér að sjá upplitið á alvöru
kúm er þær sæju vél sína. Það fylg-
ir ekki sögunni hvort John varð
fyrir vonbrigðum, en kýrnar gláptu
bara á þetta í nokkrar mínútur, en
hengdu svo haus og héldu áfram
að bíta eins og ekkert hefði í skorist.
COSPER
— Ertu búinn að bíða lengi?
SKEMMTANIR
Gestirnir eru skemmtiatriðin!
Um helgina var hafin notkun á fyrsta „Karaoki“-kerf-
inu á íslenskum skemmtistað. Það voru eig endur
Ölvers í Glæsibæ sem innleiddu þetta fyrirbæri sem á
rætur að rekja til Japans, en hefur borist þaðan til Bret-
lands og fer þar um ölkrár eins og eldur í sinu.
Það sem um er að ræða er, að mörg vinsæl dægurlög
eru til taks á geisladiskum auk myndbanda af þeim,
þ.e.a.s. lögin að söngnum undanskildum. Það eru gestir
kránna sem stíga á sviðið og taka lagið. Allt er þetta
einkar létt í framkvæmd, því gestirnir horfa á myndband-
ið meðan þeir syngja, en textarnir eru sýndir á böndun- .,
um. Geta gestirnir sýnt öll þau tilþrif sem þeir kæra sig
um og það skyldi aldrei fara svo að einhverjir upplifi
ekki gamlan og dulinn draum um að verða poppstjörnur
þótt ekki sé nema hluta úr kvöldstund.
Allmargir gestir voru viðstaddir er „Karaoki“-kerfið
var gangsett í Ölveri á föstudagskvöldið og urðu ýmsir
kunnir landsmenn til að stíga fyrstu skrefin og spreyta
sig á þekktum dægurlögum. Má nefna Ragnar Bjarna-
son, Björgvin Halldórsson, Jón Óttar Ragnarsson, Rósu
Ingólfsdóttur og Sigríði Beinteinsdóttur.
Ragnar Bjarnason tekur lagið, en annar tveggja
skermanna er til hliðar við liann.