Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 23 Kúbverski hagfræðingurinn Carlos Tablada Perez: Umrótið í A-Evrópu hefur engin áhrif á stefnu okkar „UMBÓTASTEFNAN hefur nú ráðið ríkjum í fimm ár í Sovétríkj- unum, hún átti að bæta efnahag'smálin en afleiðingin er að fram- leiðslan hefur minnkað," segir Carlos Tablada Perez, sem er kúbverskur hagfræðingur og félagsfræðingur er starfar að rit- störfum og flutt hefur fyrirlestra víða um lönd. Tablada sagði í samtali við Morgunblaðið að umbyltingin í A-Evrópuríkjunum hefði engin áhrif á stefnu Kúbu, aðstæður væru þar gjörólíkar, en efnahagsvandi Sovétmanna hefði valdið Kúbveijum verulegum erfiðleikum. Meðal annars hefðu þeir fengið tveim milljónum tonna minna af olíu á síðasta ári en árið áður. Kúbveijar hafa hagnast á því að kaupa sovéska olíu undir heimsmarkaðsverði og selja hana til útlanda. Tablada taldi Kúbveija ávallt hafa endur- greitt alla efnahagsaðstoð frá Sovétmönnum frá því Fidel Kastró tók völdin árið 1959 að því undanskildu að Sovétríkin hefðu látið þeim vopn í hendur endurgjaldslaust. Tablada var spurður hvort hann gæti nefnt eitthvert atriði í fræð- um Marx og Leníns sem honum fyndist að hefði brugðist, einkum þegar litið væri á atburði síðustu ára í kommúnistaríkjunum. Hann svaraði því til eð það væri ekki til aðeins ein tegund marx-lenín- isma, ekki einvörðungu ein fyrir; mynd, módel, að sósíalisma. „í A-Evrópu varð kreddufestan of mikil, lika í menningarmálum. Þeir vanræktu að leggja áherslu á huglæga þáttinn, hið mannlega, það tókst ekki að virkja fjöldann. Sósíalisminn er ekki bara aukin vöruframleiðsla heldur á hann áð þróa samstöðuna og bijóta niður eigingirnina. Ég er enginn dóm- ari, enginn guð og get því ekki dæmt um marx-lenínismann, get aðeins bent á að til eru ólíkar leið- ir. í Sovétríkjunum glötuðu menn hæfileikanum til að gagnrýna, þjóðfélagið staðnaði og nauðsyn- leg endurnýjun varð ekki.“ Bandarískt arðrán Carlos Tablada sagði Banda- ríkjamenn hafa arðrænt lönd Rómönsku Ameríku um langa hríð og keyrt hefði um þverbak síðasta áratuginn. Spurt var hvort Kúbveijar stæðu ekki vel að vígi þar sem þeir hefðu verið lausir við arðrán undanfarna þijá ára- tugi. „Kúba er þróunarland en svo sannarlega stöndum við betur en önnur ríki í álfunni. Þjóðarfram- leiðsla okkar hefur aukist um 33,5% síðustu tíu árin en minnkað um 8,3% að jafnaði í öðrum lönd- um Rómönsku Ameríku, sam- kvæmt tölum sem ég hef frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Skóla- kerfi og heilsugæsla er hvort- tveggja betra hjá okkur, sérhver nemandi á Kúbu fær einn mjólk- urlítra á dag. Þetta eru staðreynd- ir sem Bandaríkjamenn viður- kenna, ég hef heimsótt marga háskóla þeirra." Tablada vildi ekki gangast við því að hagtölur á Kúbu væru falsaðar eins og reyndin var í A-Evrópu meðan kommúnistar voru þar við völd. Hann staðhæfði að meira að segja bandaríska leyniþjónustan, CIA, tæki fullt mark á upplýsingum Kúbveija um velferðina í landinu. Tablada sagði að mannrétt- indamál væru í betra horfi á Kúbu en á Vesturlöndum, Kúbveijar gætu kennt Vesturlandabúum sitthvað varðandi lýðræðið. Fullt tjáningarfrelsi ríkti og allir gætu boðið sig fram til þings. Nýlega Morgunblaðið/Júlíus Carlos Tablada Perez, kúb- verskur hagfræðidoktor og fé- Iagsfræðingur, er ritað hefur tvær bækur auk fjölda greina um sósíalisma. var skýrt frá því í Reulers-íréttum að Fidel Kastró hefði lýst yfir því í ræðu að jafnvel þótt honum yrði tjáð að 98% Kúbveija tryðu ekki lengur á byltinguna myndi hann beijast fyrir henni áfram. Tablada var spurður hvort ummæli af þessu tagi bentu ekki til þess að einhver bilbugur væri kominn á leiðtogana. „Reuter kemur stund- um með rangtúlkanir, ég hef sjálf- ur orðið fyrir slíku af hálfu frétta- manna þeirra. Undanfarna mán- uði hefur stjórnin í Havanna gert skoðanakannanir meðal fólksins. Meira en 97% vilja sósíalisma og styðja stjórn Fidels, hún er helst gagnrýnd fyrir of lítinn sósíal- isma. I fjölmennasta hóp stjórnar- andstæðinga eru aðeins um 100 manns.“ ■ KAÍRÓ - Yfirvöid í Egypta- landi hafa afhjúpað leynileg samtök öfgamanna úr röðum múslima, sem grunuð eru um helstu hryðjuverk sem framin hafa verið í landinu á undanförnum árum. Innanríkisráð- herra landsins, Abdel-Halim Mo- ussa, skýrði þingnefnd frá þessu í gær og sagði að samtökin væru grunuð um að hafa myrt Rifaat Mahgoub þingforseta 12. október, gert sprengjuárás á rútu ísraelskra ferðamanna í febrúar og reynt að myrða fyrrum innanríkisráðherra landsins, Zaki Badr, í desember í fyrra. Nokkrir menn hafa verið handteknir vegna málsins, auk þess sem hundruð öfgamanna hafa verið tekin til yfirheyrslu. ■ SEOUL - 40 forystumenn leynilegrar hreyfingar sósíalista í Suður-Kóreu voru handteknir í gær og sakaðir um að hafa ráðgert að steypa stjórn landsins. Öryggis- málayfirvöld sögðu að 150 félaga í hreyfingunni væri enn leitað. Þau segja að hreyfíngin hafi verið stofn- uð í fyrra og félagar hennar séu um 1.600, einkum verkamenn, námsmenn og bændur. ■ TÓKÍÓ - Nelson Mand- ela, varaforseti Afríska þjóðarráðs- ins, helstu samtaka blökkumanna í Suður-Afríku, sagði í gær að Japan- ir væru tregir til að beijast gegn kynþáttamisrétti og leggja sitt af mörkum til baráttunnar gegn að- skilnaðarstefnu suður-afrískra stjórnvalda. Mandela sagði að Bandaríkjamenn hefðu varið 51 milljón dala, 2,9 milljörðum ÍSK, Bretar 35 milljónum punda, 3,7 milljörðum ÍSK, til blökkumanna í Suður-Afríku, en Japanir aðeins 1,8 milljón dala, 99 milljónum ÍSK. Sex daga heimsókn Mandela til Japans lýkur á föstudag. ■ MOSKVU - Sovétmenn hafa miklar áhyggjur af framtíðinni og leita í auknum mæli til kirkjunn- ar. Tatjana Zaslavskaja, yfirmað- ur sovéskrar stofnunar sem annast skoðanakannanir, sagði í gær að minna en tveir af hundraði Sovét- manna væru bjartsýnir á framtíðina miðað við 62% í fyrra. Nær 40% Sovétmanna bæru fullt traust til kirkjunnar, en mest væri traustið í Rússlandi og Georgíu. I Moskvu og Leníngrad er hlutfallið 52% og eykst stöðugt, að sögn Zaslavskaja. I I cf tilkynnt er um innlausn með 60 daga íyrirvara. Kaupþing hefur enn á ný komið til móts við sparifjáreigendur sem velja örugga ávöxtun í Eininga- bréfum 1, 2 og 3. Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3 lækkar niður í 1,8% og af Einingabréfum 2 niður í 0,5% sé tilkynnt um innlausn með engum fyrirvara. Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3 lækkar niður í 0,9% ef tilkynnt er um innlausn með 30 daga fyrirvara. Innlausnargjald af Einingabréfum f, 2 og 3 er fcllt niður með öllu ef tilkynnl er um innlausn með 60 daga fyrirvara. KAUPÞING HF Kringlunni 5, sími 91-689080 Kaupþing hf er í eigu Búnadarbankans, níu sparisjóda og Lánastofnunar sparisjóðanna hf . KONÍAKSHRINGIR Ijúfir til hátíðabrigða eða á rólegum síðkvöldum. G01T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.