Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
Ákvæði í væntanlegum barnalögum:
Sameiginleg forsjá
Málmfríður Sigurðardóttir
Fjáraukalög 1990;
FRUMVARP til fjáraukalaga var
til umræðu í sameinuðu þingi í
gærdag. Menn voru helst sam-
mála um að það væri til bóta að
leita heimilda til útgjalda um
svipað leyti og til þeirra væri
stofnað fremur en að samþykkja
löngu síðar eftir að þau hefðu
verið innt af hendi.
Fjármálaráðherra, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, mælti fyrir frumvarp-
inu. í máli hans kom m.a. fram að
frumvarpið væri annað frumvarp
til fjáraukalaga á þessu ári. Hið
fyrra var afgreitt í maí og var vegna
ráðstafana í tengslum við kjara-
samninga fyrr á árinu. Hann sagði
þessi lög vera enn frekari staðfest-
ingu á nýskipan efnahagsmálanna.
Hann taldi það verklag horfa til
framfara að leita heimilda til auk-
inna útgjalda strax fremur en að
samþykkja útlát, mörgum mánuð-
um síðar. Hefði fyrrgreint skapað
mun meiri festu í útgjöldum ríkis-
sjóðs.
Fjármálaráðherra gerði í nokkru
máli grein fyrir efni frumvarpsins.
Upp'naflega var gert ráð fyrir 3,7
milljarða króna halla á rekstri ríkis-
sjóðs en kjarasamningar breyttu
forsendum til hækkunar og kom
útgjaldahliðin fyrr fram. Eftir end-
urskoðun var hallinn áætlaður um
4,5 milljarðar. Afkomuhorfur ríkis-
sjóðsins í lok ársins voru endur-
metnar væri halli nú reiknaður
4.960 milljónir. Að miklu leyti væri
orsakanna að leita í nokkrum liðum
s.s. Tryggingastofnun ríkisins,
lyijakostnaði o.fl. 1.260 milljónir.
Framlag til Endurbótasjóðs menn-
ingarstofnana í stað lánveitingar
nemur 300 milljónum og áhrif
vegna verkaskiptingar ríkis og
sveitarfélaga um 280 milljónum.
Fjármálaráðherra lét þess getið að
kostnaður vegna samningavið-
ræðna EFTA og EB væri um 70
milljónir og væru þær því með dýr-
ustu milliríkjaviðræðum í sögu ís-
lendinga.
Fram kom að innheimta virðis-
aukaskatts á fyrri hluta ársins varð
heldur meiri en áætlað var en á
móti vegur að niðurfellingu virðis-
aukaskattsins af bókum var flýtt
og einnig hefur verið afráðið að
veita áfram gjaldfresti i tolli.
Skattabreytingar í júlí og lækkun
tolla af bensíni skertu tekjur ríkis-
sjóðs um 200 milljónir.
Fjármálaráðherra sagði að ai-
mennt hefði tekist að halda rekstri
stofnana ríkisins í böndum og mætti
m.a. rekja það til bætts eftirlits og
bættrar, áætlunargerðar.
Dýr verkaskipti
Ólafur Ragnar endurtók að út-
gjaldaaukningin ætti rætur að rekja
til nokkurra afmarkaðra þátta og
vægju þar þyngst aukin útgjöld til
heilbrigðis- og tryggingarmála.
Ráðherrann lét þess getið að erfitt
gæti reynst í framtíðinni að mæta
auknum kröfum um bætta og aukna
þjónustu í framtíðinni innan ramma
fjárlaga. Kostnaður vegna verka-
Ólafur Ragnar Grímsson
skiptingarinnar hefði og reynst mun
meiri en áætlað hefði verið.
Áformað er að mæta lánsfjárþörf
ríkissjóðs að fullu innanlands, gera
upp yfirdráttarskuldir ríkissjóðs í
Seðlabanka og jafnvel greiða erlend
lán niður.
í ræðulok fór ijármálaráðherra
enn á ný orðum um nýskipan ríkis-
fjármála, ítrekaði þá skoðun sína
að Alþingi ætti að hefja fyrr störf
og einnig að íjárveitinganefnd ætti
að vera heilsársnefnd. Ráðherrann
þakkaði góða samvinnu við fjárveít-
inganefnd og lagði til að frumvarp-
inu yrði vísað til annarrar umræðu
og fjárveitinganefndar.
Hallarekstur
Pálmi Jónsson (S/Nv) sagði m.a.
felast í frumvarpinu að hallinn ykist
um 420 milljónir, yrði um 5 milljarð-
ar. Pálma var það áhyggjuefni að
hallarekstur væri vaxandi. Síðustu
fjárlög hefðu reynst haldlaus og
niðurskurðurinn í kjölfar kjara-
samninga gagnslaus. Ræðumaður
rakti m.a. fyrri gagnrýni á fjár-
málastjórn íjármálaráðherra og
sagði spádóma sína nú vera að
koma fram og væri þó á meiru
von, þegar öll kurl kæmu til graf-
ar. Hann viðhafði þau ummæli að
umtalaður sparnaður í ríkisrekstrin-
um væri heldur ótrúverðugur þegar
sömu sparnaðartillögumar sæjust
ár eftir ár. Pálmi gagnrýndi ýmsa
liði sem hann taldi vanáætlaða, t.d.
varðandi lyfjakostnað og tölur sum-
ar í bjartsýnna lagi.
Pálmi lét þess getið að borist
hefði erindi frá Ríkisspítölunum, í
gegnum heilbrigðisráðuneytið, þar
'væri sýnt fram á að á þeim bæjum
vantaði býsna stórar fjárhæðir og
hefðu þó landsmenn orðið varir við
að þar væri gengið hart fram í
spamaði, deildum lokað og dauð-
veikt fólk borið út á götu. Þrátt
fyrir þessar aðgerðir lægi fyrir í
erindum hjá fjárveitinganefnd að
óleystur vandi næmi yfir 200 millj-
ónum.
Ræðumaður fór einnig orðum um
verðjöfnunarsjóð og „tilfærslur“
fjármálaráðherra sem hann gagn-
rýndi en lauk þó lofsorði á kunn-
áttu ráðherrans á þessu sviði. Hann
gerði aukin útgjöld að umtalsefni,
sagði m.a. að hann hefði óskað eft-
ir greinargerð frá sveitarfélögunum
um kostnaðinn vegna nýrrar verka-
skiptingar milli þeirra og ríkisins.
Hann taldi einnig útgjöld sjálfs fjár-
málaráðuneytisins í hærra lagi.
Pálmi taldi það í sjálfu sér til
bóta að afgreiða fjáraukalögin fyrr.
Sagði það eðlilegt að hugleiða hvort
Alþingi ætti að koma fyrr saman
þótt hann væri því andvígur. En tók
undir þá skoðun að rétt væri að
gera fjárveitinganefnd að heilsárs-
nefnd.
Málmfríður Sigurðardóttir
(SK/Ne) gagnýndi frumvarpið á
sömu lund og fyrri ræðumaður.
Margt hefði verið vanáætlað fyrr á
árinu og niðurskurður ekki náð
fram að ganga.
Pálmi Jónsson
Stefán Valgeirsson (SJF/Ne)
fagnaði þeim nýja sið að koma
íjáraukalögunum í gegnum þingið
á skikkanlegum tíma. Stefán vildi
einnig vekja athygli þingheims á
vanda Leikfélags Akureyrar sem
ekki hefði fengið fullnægjandi úr-
lausn.
Sighvatur Björgvinsson (A/Vf)
lét í ljós ánægju með að ijáraukalög
væru afgreidd fyrir yfirstandandi
ár. Hann benti á að störf ijárveit-
inganefndar væru nú orðin það
umfangsmikil að þörf væri á því
að endurskoða vinnufyrirkomulag.
Kristinn Pétursson (S/Al) fagn-
aði eins og aðrir hinu nýja verklagi
við afgreiðslu fjáraukalaga en þótti
frumvarpið að þessu sinni ógreini-
legt plagg. Kristinn taldi einnig að
rekstraráætlun fyrir ríkissjóð fram
til áramóta væri nauðsynlegt fylgi-
skjal.
Margs að gæta
Fjármálaráðherra, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, tók að lokum aftur
til máls. Sagði m.a. að mikilvægt
væri að sem breiðust samstaða
væri um nýja verkhætti. Hann svar-
aði nokkru þeirri gagnrýni sem
STÖÐUGT bætist í málafjöldann
sem Alþingi hefur til umfjöllun-
ar.
Kristín Einarsdóttir (SK/Rv)
spyr dómsmálaráðherrann um
öryggi í óbyggðaferðum. Guðmund-
ur H. Garðarson (S/Rv) gerir fyrir-
spurn til samgönguráðherra um
varaflugvöll vegna alþjóðaflugs.
Guðrún J. Halldórsdóttir (SK/Rv)
innir iðnaðarráðherra eftir hagnaði
af orkusölu til álversins í
Straumsvík. Pálmi Jónsson (S/Nv)
spyr forsætisráðherra um GATT-
viðræður. Guðni Ágústsson (F/Sl)
spyr samgönguráðherra um inn-
fiutning matvæla með ferðafólki.
Birgjr Isleifur Gunnarsson gerir
fyrirspurn til landbúnaðarráðherra
um sérstakt skógrækarátak.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(SK/Vl) og Málmfríður' Sigurðar-
dóttir (SK/Ne) spyija félagsmála-
ráðherra um greiðslur til stuðnings-
ijölskyldna fatlaðra barna.
Ellert Eiríksson (S/Rn), Ólafur
G. Einarsson (S/Rn), Salóme Þor-
kelsdóttir (S/Rn) og Hreggviður
Jónsson gera tillögu til þingsálykt-
unar um flutning varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins. Guðni
Ágústsson (F/Sl), Alexander Stef-
ánsson (F/Vl) og Stefán Guð-
mundsson (F/Ne) flytja þingsálykt-
unartillögu um eigin eftirlaunasjóði
einstaklinga. Hreggviður Jónsson
(S/Rn), Ingi Björn Albertsson
(S/Rv) og Ellert Eiríksson (S/Rn)
gera tillögu til þingsályktunar um
tvöföldun Reykjanesbrautar. Egg-
ert Haukdal (S/Sl) og Hreggviður
Jónsson (S/Rn) leggja til að þingið
álykti um könnun á Ijárveitingum
FRUMVARP til barnalaga er
væntanlegt í næsta mánuði. I
frumvarpinu verður ákvæði um
sameiginlega forsjá. Þetta kom
fram í máli dóms- og kirkjumála-
ráðherra á 8. fundi sameinaðs
þings síðastliðinn fimmtudag
þegar ráðherrann svaraði spurn-
ingum Danfríðar Skarphéðins-
dóttur (S/Vl) og Málmfríðar Ein-
arsdóttur (SK/Ne) um endur-
skoðun barnalaga.
Danfríður Skarphéðinsdóttir fór
í upphafi fundar nokkrum orðum
um fyrirspurnina og sagði m.a. að
þótt börnin væru framtíð þjóðarinn-
ar væri þjóðfélagið um margt
fram hafði komið í umræðunni.
Hann fór viðurkenningarorðum um
samráðherra sinn í heilbrigðisráðu-
neytinu sem hefði beitt sér í því
erfiða verkefni að halda lyfjakostn-
aði niðri. Hann fór einnig nokkrum
orðum um útgjöld fjármálaráðu-
neytisins, sagði þar vera ýmsan
kostnað sem væri tæpast sök ráðu-
neytisins þótt á reikningi væri, t.d.
uppbætur á lífeyri ráðherra og al-
þingismanna. Hann minntist einnig
nokkurra þjóðþrifaverka í útgáfu
sem ekki mættu niður falla þótt
útgáfa reyndist umfangsmeiri og
frekari á fé og tíma, heldur en í
upphafi var ætlað.
Fjármálaráðherra vísaði því á
bug að hann reyndi að leyna út-
gjöldum með bókhaldstilfæringum.
Þótt tækniatriði og kenningar í
þeim fræðum væru hinar merkustu
kysi hann að halda sig við heimilis-
bókhaldið og talaði um útgjöld og
tekjur á því ári sem þau ættu sér
stað. í ræðulok þakkaði ráðherrann
þær almennu og góðu viðtökur sem
frumvarpið hefði fengið varðandi
form og þá nýju venju að leggja
það fyrr fram og vænti þess að fjár-
veitinganefnd afgreiddi það fljótt
og vel.
úr Mannvirkjasjóði Atlantshafs-
bandalagsins. Sverrir Sveinsson
(F/Nv), Halldór Blöndal (S/Ne), Jón
Sæmundur Siguijónsson (A/Nv),
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(F/Ne), Ragnar Arnalds (Ab/Nv),
Arni Gunnarsson (A/Ne) og Pálmi
Jónsson (S/Nv) flytja þingsályktun-
artillögu um könnun á gerð jarð-
ganga og vegarlagningu milli Ólafs-
flarðar og Siglufjarðar í framhaldi
af opnun jarðganga um Ólafsfjarð-
armúla. Eggert Haukdal (S/Sl) ger-
ir tillögu til þingsályktunar um brú-
arframkvæmdir á Suðurlandi. Skúli
Alexandersson, (Ab/Vl) Margrét
Frímannsdóttir (Ab/Sl), Stefán
Guðmundsson (F/Nv), Karvel
Pálmason (A/Vf), Kristín Einars-
dóttir (SK/Rv), Salóme Þorkels-
dóttir (S/Rn) og Hulda Jensdóttir
(B/Rv) gera tillögu til þingsálykt-
unar um kynningu á vörum frá
vernduðum vinnustöðum. Margrét
Frímannsdóttir (Ab/Sl) flytur
þingsályktunartillögu um aulrinn
þátt bænda í landgræðslu- og skóg-
ræktarstarfi. Tvær þingsályktun-
artillögur eru framlagðar um aukna
þjónustu Ríkisútvarpsins, fyrir Suð-
urland eru flutningsmenn, Margrét
F'rímannsdóttir (Ab/Sl), Guðni
Ágústsson (F/Sl), Jón Helgason
(F/Sl) og Eggert Haukdal (S/Sl).
Fyrir Vesturland, Skúli Alexanders-
son (Ab/Vl), Danfríður Skarphéð-
insdóttir (SK/Vl), Valdimar Ind-
riðason (S/Vl), Eiður Guðnason
(A/Vl) og Ingi Björn Albertsson
(S/Vl).
Salóme Þorkelsdóttir (S/Rn) og
Guðmundur H. Garðarson (S/Rv)
flytja frumvarp til laga um lífeyris-
barnaljandsamlegt. Réttarstaða
barna væri óljós og þau yrðu oft
bitbein foreldra í forsjármálum.
Hún minntist eldri frumvarpa til
barnalaga sem ekki hefðu fengist
afgreidd. Og sagði ákvæði um sam-
eiginlega forsjá foreldra hafa reynst
mjög umdeilt, hvað sem öðru liði
yrði að setja skýrari reglur um rétt
barna.
Óli Þ. Guðbjartsson dóms- og
kirkjumálaráðherra sagði sifjalaga-
nefnd vinna að endurskoðun eldri
frumvarpa og væri stefnt að því
að leggja fram frumvarp í næsta
mánuði. Þær breytingar yrðu helst-
ar, að hluta byggðar á þeim frum-
vörpum. Auk þess yrðu heimildir
rýmkaðar til að leita til dómstóla í
ágreiningsmálum um forsjá barna.
I frumvarpinu verður ákvæði um
sameiginlega forsjá barna og um
það að dómstólar skeri úr ágrein-
ingi. Jafnframt er gert ráð fyrir því
að sýslumenn skeri úr ágreiningi í
umgengnisréttarmálum.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
fagnaði því að unnið væri að mál-
inu. Hún vildi minna á að hugsjón-
in um sameiginlega forsjá væri
mjög göfug en spurningin væri Iíka
um tilfinningalega þáttinn þegar
út í skilnað væri komið, og það
væru uppi efasemdir um slík ákvæði
meðal þeirra sem í daglegu starfi
sínu fjölluðu um þessi mál. Hún
fagnaði væntanlegu frumvarpi og
kvaðst vona að til þess verks yrði
vandað. Réttur barnsins yrði fyrst
og fremst hafður að leiðarljósi.
réttindi hjóna. Guðmundur H. Garð-
arson (S/Rv) hefur flutt lagafrum-
varp um ársreikning og endurskoð-
un lífeyrissjóða. Eiður Guðnason
(A/Vl) hefur flutt frumvarp um
breytingu á áfengislögum. Ingi
Björn Albertsson (S/Rv) og Hregg-
viður Jónsson (S/Rn) mæla fyrir
lagafrumvarpi um afreksmannasjóð
íslenskra íþróttamanna. Stefán Val-
geirsson (SFJ/Ne) flytur frumvarp
til stjórnskipunarlaga um breytingu
á stjórnarskránni. Margrét
Frímannsdóttir (Ab/Sl) gerir tillögu
um breytingar á lögum um al-
mannatryggingar. Gerð er tillaga
um breytingu á umferðarlögum
varðandi lækkaða áfengisprósentu
í blóði, flutningsmenn eru Árni
Gunnarsson (A/Ne), Ragnhildur
Helgadóttir (S/Rv), Geir Gunnars-
son (Ab/Rn), Kristín Einarsdóttir
(SK/Rv), Jón Kristjánsson (F/Al).
Halldór Blöndal (S/Ne) endurflytur
lagafrumvarp um endurgreiðslu á
gjaldi af erlendum lánum vegna
skipasmíða hér á landi. Hulda Jens-
dóttir flytur lagafrumvarp um
breytingu á lögum um ráðgjöf og
fræðslu varðandi kynlíf og barn-
eignir og um fóstureyðingar og
ófijósemisaðgerðir. Dómsmálaráð-
herra hefur mælt fyrir frumvarpi
um breytingu á sektarmörkum
nokkurra laga. Lögð hefur verið
fram frumvörp um opinbera réttar-
aðstoð, frumvarp um breytingu á
almennum hegningarlögum og
frumvarp um jafna stöðu og rétt
kvenna og karla. Frumvarp til
fjáraukalaga er komið fram, einnig
frumvarp til laga um brottfalla laga
og lagaákvæða. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um Kennara-
háskóla íslands. Frumvarp um
breyting á lögum um fangelsi og
fangavist. Frumvarp um veitingu
ríkisborgararéttar.
Meiri festa í útgjöldum ríkisins
A
- segir Olafur Ragnar Grímsson
Mal lögð fram