Morgunblaðið - 31.10.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
39
Stefan Karl Þor-
laksson -
Fæddur 22. maí 1901
Dáinn 13. október 1990
Stefán Karl Þorláksson var fædd-
ur á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal
22. maí 1901. Hann var sonur Þor-
láks Jónssonat' og Kristbjargar
Magnúsdóttur. Tveggja ára varð
hann föðurlaus og hann var fimm
ára þegar Guðríður systir hans lést
eftir erfið veikindi. Það er ekki of-
sagt, að það hafi orðið ekkju með
ungan son til bjargar að þau voru
tekin inn á heimili hjónanna Sigurð-
ar Pálssonar og helgu Símonardótt-
ur á Sólheimum í Seyðisfirði. Þar
ólst Stefán upp ásamt börnum
þeirra og fóstursyni. Margt hef ég
heyrt um Helgu á Sólheimum, þar
fór stórbrotin persóna.
Að afa látnum kemur mér í hug
að væri lífið mælt í ættliðum, þá
er líf þess afa langt, en litið hefur
barnabarn barnabarns síns og að
sáttur hlýtur sá að skilja við, sem
séð hefur stóran hóp afkomenda
komast til manns. Best mán ég afa
fyrir glettnisglampa í augum og
fyrir stóran lífsneista. Þegar hann
spurði spurði hann af áhuga. Það
sem hann gerði gerði hann af
áhuga. Þegar hann hló, þá hlógu
augun. Hann var hugaður. Hann
var gerandi. Það var ekki einungis
að hann vild hafa nóg að gera sjálf-
ur, honum var og í mun að aðrir
hefðu nóg að gera. Ég man ekki
Minmng
eftir að hafa komið til hans og
Lydiu, seinni konu hans, án þess
að vera spurður hvort ég hefði nóg
að gera og svo, hvað ég væri að
gera.
Sjálfsagt hefur það verið hans
mikla þörf fyrir að hafa nóg að
gera sem var hvatinn að tíðum
búferlaflutningum. Hann var sífellt
að betrumbæta ný hýbýli. Fyrir
fimm árum varð systur minni á
orði að erfitt væri að rata til hans,
því hann flytti svo oft. Hann sagði
að bragði. „Þetta eru einu ferðalög-
in sem ég fer í.“ Hann fór í tvö
ferðalög síðan. Ekki vissi ég fyrr
en mörgum árum seinna, löngu eft-
ir að ég fór að gera mér aðrar
hugmyndir um jólasveininn en þær
upprunalegu, að það var afi sem
sendi jólasveininn heim til okkar.
Eftirfarandi var mér sagt af öðr-
um. Stefáni litla Þorlákssyni hafði
verið vikið úr tíma í barnaskóla.
Ekki hafði umræddur nemandi
dvalið lengi frammi á gangi er dyrn-
ar að skólastofunni opnast og hann
gengur inn ákveðnum skrefum
spýtir í spýtubakkann og gengur
síðan út án þess að mæla orð. Ekki
treysti ég mér til að telja allt upp
sem afi gerði um dagana, en ef til
vill er svar móður minnar, en hún
var í æsku .spurð hvað faðir hennar
gerði, eins og nær og hægt er að
komast, „Hann pabbi gerir allt.“
Hann var lærður bakari og vann
fyrstur slíkra á Borgarnesi. Hann
rak verslun, vann sem vélagæslu-
maður við rafstöðina á Seyðisfirði,
en sú mun vera meðal elstu raf-
stöðva landsins, var innheimtumað-
ur, málari, múrari, smiður og fleira
og fleira. Hann var flinkur munn-
hörpuleikari á yngri árum, en þó
ég hafi aldrei heyrt hann leika á
það hljóðfæri sé ég hann samt fyr-
ir mér, leikandi fallegt lag, með
bros í augum.
Það var ekki síður hlýlegt viðmót
Lydíu, svo og hennar bragðljúfu
veitingar sem gerðu heimilið aðlað-
andi. Blessuð sé minning afa.
Stefán Sigurðsson
Sveinbjörnsdóttir og Valdís Haraldsdóttir slarfsmenn verslunarinn-
ar.
■ SNYRTIVÖRUVERSL UNIN
Sandra, Reykjavíkurvegi 50,
Hafnarfirði, hefur opnað undir-
fatadeild. Á boðstólum er mikið
úrval af undirfötum og slæðum.
Einnig eru náttsloppar fyrir dömur
og herra.
■ STOFNAÐUR hefur verið hóp-
ur foreldra barna með fæðuofnæmi
sem starfar innan samtaka gegn
astma og ofnæmi (SAO). Markmið
hópsins er að standa vörð um hags-
muni þessara barna. í dag þann
31. október verður haldinn fræðslu-
fundur á vegum hópsins þar sem
Björn Árdal læknir og sérfræðing-
ur í ofnæmissjúkdómum barna flyt-
ur fræðsluerindi um fæðuofnæmi.
Fundurinn_ verður haldinn í
Múlabæ, Ármúla 34, 3. hæð, kl.
17.00.
■ ÁHUGAHÓPUR um kvenna-
rannsóknir heldur fund miðvikdag-
jnn 31. október og hefst hann kl.
*20.30 í Skólabæ, Suðurgötu 26. Á
fundinum munu þær Helga Ög-
mundsdóttir læknir og Jórunn
Eyfjörð erfðafræðingur fjalla um
rannsóknir sínar á bijótstkrabba-
meini.
Jakob Helgason
Minningarorð
Fæddur 28. nóvember 1899
Dáinn 22. október 1990
Hann Kobbi hefur kvatt. Örfá
kveðju- og þakkarorð. Ég sting nið-
ur penna til að þakka þeim frábæru
konum, sem unnið hafa við heimilis-
hjálpina og heimahjúkrunina í þágu
Jakobs og hlúð að honum ásamt
starfsliði Skjólbrekku, sambýli aldr-
aðra, fyrir einstök mannúðar- og
manngæskustörf. Fyrir þessu
líknarliði fór frá fyrstu tíð Ágústa
Einarsdóttir, forstöðumaður heimil-
ishjálpar.
Jakob átti fáa að. Hann bjó lengst
af einn í hrörlegum kofa. Ég kynnt-
ist honum fyrir tæpum 20 árum,
en þá var hann hættur daglauna-
vinnu.
Hann var ekki allra, bjó í einsemd
og hafði lítil afskipti af grönnum
sínum. Síðar kom ljós í bæinn hans.
Konurnar fyrrnefndu færðu hann
nær lífinu og nútímakröfum, vatni,
hita og rafmagni.
Síðustu æviár Jakobs voru falleg
og mér til mikillar undrunar og jafn-
framt ánægju virtist hann una nýj-
um háttum vel og njóta ríkulega
vistar á fjölmennu myndarheimili
undir farsælli stjórn Elínar Kröyer.
Hann gat verið spaugsamur, hafði
ríka trúhneigð og bjó yfir ótrúlegri
vitneskju um ýmsa hluti.
Jakob er mér eftirminnilegur og
kenndi mér margt. Fyrir þau kynni
og þann lærdóm vil ég nú á kveðju-
stund þakka.
Starfsmenn Hvítra flibba, f.v. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Ilalldóra
Þormóðsdóttir og Þorgerður Þormóðsdóttir.
Veri hann Guði falinn.
Blessuð sé minning Jakobs
Helgasonar.
Kristján Guðmundsson
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-21.
Sími 689070.
Ný umferðarljós í Kópavogi
KVEIKT verður á nýjum umferð-
arljósum á gatnamótum Nýbýla-
vegar og Birkigrundar (Hjalla-
brekku) fimmtudaginn 1. nóv-
ember nk.
Ljós þessi eru tímastýrð og sam-
stillt við umferðarljós á gatnamót-
um Nýbýlavegar/Túnbrekku og
Nýbýlavegar/Dalbrekku.
Ljósin verða umferðarstýrð frá
Laufbrekku og Birkigrund, hnappar
eru fyrir gangandi vegfarendur sem
leið eiga yfir Nýbýlaveg. Frá kl.
01.00 til 07.00 verða ljósin látin
blikka gulu og gildir þá biðskylda
á Birkigrund og Hjallabrekku.
ERFISDRYKKPR
Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Ásbyrgi.
Upplýsingarí síma 91-687111-
HOTEL Ij'tAND
t
Við þökkum af alhug auðsýndan vinarhug við fráfall
JÓNS MARTEINS STEFÁNSSONAR,
Miðbraut 21,
Seltjarnarnesi.
Margrét Lund Hansen,
Stefán Bersi og Erla María.
Anna Stefánsdóttir,
Elín Stefánsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður,
HÓLMFRÍÐAR RÖGNVALDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til sóknarnefndar Siglufjarðarkirkju.
Guðrún Pálsdóttir, Finnur Kolbeinsson,
Erlendur Pálsson, Hamely Bjarnason,
Guðbjörg Pálsdóttir, Anna Pála Guðmundsdóttir.
Ný efnalaug
EFNALAUGIN Hvítir flibbar var
nýverið opnuð í Grafarvogi og
er hún til húsa í nýbyggðri versl-
unarmiðstöð að Hverafold 1-3.
Eigendur Hvítra flibba eru hjónin
Halldóra Þormóðsdóttir og Guð-
í Grafarvogi
bjartur Halldórsson, en þau ráku
áður eina elstu efnalaug landsins,
Efnalaug hafnfirðinga. Efnalaugin
Hvítir flibbar er opin alla daga frá
kl. 08.00 til kl. 18.30 og á laugar-
dögum frá kl. 10.00 til 14.00.
MÝTT SIMANÚMER
auglýsngadeildar^
ann
Lokað
verður eftir hádegi fimmtudaginn 1. nóvember
vegna jarðarfarar
GUÐRUNAR BJARNADÓTTUR.
Glerborg hf.,
Dalshrauni 5, Hafnarfirði.
J