Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
vangadans.
TM Reg. U.S. Pat Otf —all rights rasarvad
® 1990 Los Angeles Times Syndicate
Anna Soffía Jónsdóttir — það
er konan mín ...
Afsakaðu forstjóri góður hve
seint ég kcm. Einkaritarinn
þinn sagði að þú kæmir ekk-
ert í dag.
SAGA UR SLATURTIÐ
Til Velvakanda.
Hvað er einn sláturkeppur milli
vina?
í Danmörku er sláturtíð allan árs-
ins hring, en enginn Dani tekur þó
slátur.
En fleiru en fé er slátrað í Dan-
mörku um þetta leyti árs. Skotglað-
ir veiðimenn skjóta ýmsa dýrabráð,
dádýr, hirti, héra, kanínur og fjöld-
ann allan af fuglum.
Ég kom við hjá fisksalanum kunn-
ingja mínum í Lyngby (N-Sjálandi)
hér einn daginn til að kaupa í mat-
inn. Þar sá ég fallegan nýskotinn
fugl.
Fuglakjöt er mikið lostlæti, og ég
bað um tvo af þessum með „bústnu
bringuna". Fisksalinn brosti. „Já,
þeir eru fallegir þessir æðarfuglar,
einkum hamflettir“, sagði hann.
„Ha, æðarfugl," sagði ég og kipptist
við, „og kosta aðeins 35 krónur
stykkið." „Já,“ sagði fisksalinn,
„þetta er svipað verð og á akurhæn-
um, fasönum, viiliöndum og öðrum
fuglum. Sjófuglar eru ekki eins vin-
sælir," bætti hann við. „Nei, nei, ég
er heldur ekki viss um að þú yrðir
neitt vinsæll ef þú værir með þessa
fugla á boðstólum í Reykjavík, og
þó einkum æðarfuglinn," bætti ég
við. „Ha, vinsæll, og hversvegna
ekki?“
Ja, hvað heldur þú að fuglinn sá
arna kostaði í Reykjavík," ég benti
á æðarfuglinn. „Ætli hann kostaði
ekki einar 50 þúsund krónur stykk-
ið,“ sagði ég, „að vísu íslenskar."
„Skárri er það andsk... verðbólgan
hjá ykkur,“ sagði hann. „Eru pening-
arnir ykkar einskis virði?“ „Jú,“
sagði ég, „það er ekki það, þeir eru
grjótharður gjaldmiðill í dag, en
æðarfuglinn er al-friðaður og það
eru viðurlögin við að drepa fuglinn
sem eru svona há,“ og svo hafa
menn óþökk landsmanna í þokka-
bót,“ bætti ég við.
Fisksalinn leit hikandi á mig, var
ég hættur við að kaupa?
„Nei, láttu mig bara hafa fugl-
ana,“ sagði ég. „Fálkar eru einnig
friðaðir á íslandi og viðurlög við að
skjóta þá eru margfalt hærri en að
drepa æðarfuglinn, enda stofninn í
bráðri hættu.
Fálkar drepa þó æðarfuglinn og
hann veldur oft miklum apjöllum i
varplandi, og þess vegna er hann
litinn illu auga af mörgum dúntekju-
bændum,"
Svo meðan hann pakkaði inn fugl-
unum sagði ég honum sögu sem ég
hafði heyrt norður á Akureyri fyrir
nokkrum árum.
„Feðgar nokkrir áttu land sem lá
vel við æðarvarpi. Sá var þó hængur
á að fálkar trufluðu mjög varpið og
urðu þeir því oft fyrir miklum búsifj-
. um.
Einn daginn tóku þeir sig því til
og lágu fyrir fálkanum vopnaðir
byssum og var gengið hart til verks.
Átta fullorðnir fáikar lágu í valnum
þegar líða tók á kvöldið.
Feðgarnir gerðu það þó ekki enda-
sleppt heldur spyrtu fálkana og löb-
buðu með þá heim á bæ, og báðu
húsfreyju matbúa.
Pottur var settur á hióðir og út-
búið var „fálkaragú“ sem allir
heimamenn átu af bestu lyst.
Já,“ sagði ég um leið og ég greip
æðarfuglinn, „hvað heldur þú að sú
máltíð hefði kostað?“
Við hlógum báðir.
Richardt Ryel
RJÚPN A VEIÐIMENN
Treystið öryggi ykkar sem mest í hverri veiðiferð. Gætið þess
ávallt að skotvopn ykkar séu í fullkomnu lagi og vei hirt. Hafið
meðferðis áttavita og kort og búnað til ljós- og hljóðmerkjagjafa.
Hefjið veiðiferðina árla dags og ljúkið henni áður en náttmyrkur
skellur yfir. Verið ávallt stundvísir á áfangastað.
HÖGNI HREKKVfSI
„ÉETTA ER þeifZ&K BESTA SKE/VtA1TUN.
Víkverji skrifar
Aborði Víkvetja hefur í mánuð
legið úrklippa úr erlendu
blaði, þar sem skýrt er frá því, að
vegna skorts á sígarettum í Sov-
étríkjunum hafi tveir stærstu tó-
baksframleiðendur í Bandaríkjun-
um ákveðið að selja 34 milljarði
sígarettna þangað. Er sagt, að það
sé rúmlega mánaðarskammtur fyrir
280 milljónirnar sem búa í Sov-
étríkjunum. Vegna skortsins á tó-
bakinu hefur legið við uppreisn
víðsvegar um landið.
í fréttinni segir, að verð á síga-
rettum sé ákafíega misjafnt eftir
löndum vegna þess hvernig skatt-
lagningu á þær sé háttað. Sé út-
flutningsmagn bandarísku fyrir-
tækjanna hins vegar metið eftir
smásöluverði í Bandaríkjunum á
árinu 1989, sé verðmæti þess um
1,9 milljarðir dollara eða rúmþega
100 milijarðir ÍSK þ.e. um 54 ÍSK
pakkinn. Samþykktu Sovétmenn að
greiða fyrir tóbakið í gjaldeyri og
með varningi sem væri auðseljan-
legur á alþjóðlegum mörkuðum,
líklega olíu.
xxx
essi lýsing á tóbaksvandræðum
Sovétmanna og framtaki
Kremlveija til að leysa þau af ótta
við reiði og jafnvel uppreisn al-
mennings er umhugsunarverð fyrir
okkur Islendinga núna þegar ljóst
er, að ekki er til gjaldeyrir í Sov-
étríkjunum til að kaupa af okkur
síld eða annað fiskmeti. Er mat-
vælaskorturinn í landinu þó engu
minni en tóbaksskorturinn.
í hinu miðstýrða skrifræði verða
valdhafarnir að setja úrlausnarefnin
í forgangsröð. Gorabtsjov hóf feril
sinn með baráttu gegn áfengis-
neyslu og öðru óhófi. Hann er löngu
hættur að ræða þau mál, áfengis-
neysla hefur færst í fyrra horf og
nú er dýrmætum gjaideyri varið til
að kaupa tóbak frá útlöndum.
FFréttir frá Þýskalandi herma
að þar í landi sé ekki gengið
eins harkalega gegn þeim sem
reykja og annars staðar á Vesturl-
öndum. Þyskir dómstólar hafa
bannað veitingastöðum að afmarka
svæði fyrir þá, sem ekki reykja, á
þeirri forsendu að með því sé geng-
ið á rétt reykingamanna til að sitja
þar sem þeir kjósa sjálfir.
Nýlega ákvað þýska flugfélagið
Lufthansa að hætta við auglýst
áform sín um að banna alfarið
reykingar í innanlandsflugi frá 28.
október sl. Talsmaður félagsins
sagði, að þrýstingur frá reykingar-
mönnum hefði verið svo mikill að
menn hefðu óttast átök um borð í
flugvélunum, þó taka flugferðir inn-
an Þýskalands aldrei lengri tíma
en um eina klukkustund.
Hvað líður ákvörðun Flugleiða
um bann við reykingum í flugi til
Evrópu og Bandaríkjanna?