Morgunblaðið - 31.10.1990, Qupperneq 48
UNIX
FRAMTÍÐARINNAR
HEITIR:
IBM AIX
Itargtnittbifeife
Atvin n n rekstra rtrygging
/ÁG . Tryggbu öruggan
\ atvinnurekstur
\%D# SlfltóOmiMEHMAB
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Danmörk:
Islenskir ost-
ar verðlaun-
aðir á sýningu
ÍSLENSKIR ostar hlutu 12 gull-
verðlaun og 11 silfurverðlaun á
ostasýningu, sem nýlega fór
fram í Herning í Danmörku. Á
sýningunni voru 64 ostasýni frá
Islandi, en alls voru 900 sýni lögð
fyrir 40 dómara á sýningunni,
og hlutu aðeins 10 sýni hærri
einkunn en þau íslensku sýnanna
sem best þóttu.
Smurostagerð Osta- og smjörsöl-
unnar hlaut alls 12 verðlaun á sýn-
ingunni, og þar af voru 7 gullverð-
laun. Mjólkursamlag KEA á Akur-
eyri hlaut tvenn gullverðlaun og
tvenn silfurverðlaun.
Hæstu einkunn af íslensku ostun-
um hlutu sveppaostur, blaðlauks-
ostur, fondueostur með kúmeni og
napolímyrja frá smurostagerð Osta-
og smjörsölunnar, skólaostur frá
Mjólkursamlagi KEA og rjómaostur
með kryddi frá Mjólkurbúi Flóa-
manna.
Sauðárkrókur:
Vatnssala í
undirbúningi
STJÓRN Byggðastofnunar sam-
þykkti í gær að taka þátt í undir-
búningsfélagi um framleiðslu og
útflutning á vatni frá Sauðár-
króki. Mun stofnunin eiga allt að
20% í þessu félagi.
Guðmundur Malmquist forstjóri
Byggðastofnunar sagði að unnin
hefði verið einskonar söluskýrsla
fyrir vatnsframleiðsluna á Sauðár-
króki á vegum iðnaðarráðuneytis,
Iðnlánasjóðs, Hreins Sigurðssonar á
Sauðárkróki og Byggðastofnunar.
Var Sauðárkróksbæ afhent þessi
skýrsla, en á grundvelli hennar er
fyrirhugað að finna erlenda aðila tii
samstarfs um málið.
Bæjaryfírvöld á Sauðárkróki leit-
uðu síðan til Byggðastofnunar um
þátttöku í undirbúningsfélagi og
samþykkti stjórn stofnunarinnar það
erindi í gær.
.. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sverrir Orn Olsen bifreiðastjóri sýnir hvar mennirnir stóðu á tengivagninum rétt áður en vírinn slitnaði. Vagninn er gjörónýtur.
Sluppu naumlega undan 12-13 tonna hlassi:
Skil það ekki enn hvemig
þeim tókst að komast undan
- sagði Sverrir Öm Olsen bifreiðastjóri
Keflavík.
TVEIR menn, Jón Eysteinsson Hólagötu 16 Sandgerði og Sigurð-
ur Guðbjörnsson Borgarvegi 42 Njarðvík, sluppu naumlega þegar
verið var að hífa steypustyrktarjárn upp á tengivagn í höfninni
í Ytri-Njarðvík í gær. Mennirnir stóðu uppi á vagninum og voru
að stýra járninu sem var um 12-13 tonn þegar önnur af tveimur
vírstroffum, sem notaðar voru, slitnaði skyndilega og járnið datt
niður á vagninn og þaðan á bryggjuna.
„Ég skil það ekki enn hvernig stjóri sem stóð við tengivagninn
þeim tókst að komast undan,“ þegar atburðurinn átti sér stað.
sagði Sverrir Örn Olsen bifreiða- „Annar -mannanna var nýbúinn
að fara undir búntið til að þeir
stæðu ekki báðir sömu megin. Þá
heyrðist skyndilega mikill brestur
þegar vírinn slitnaði og járnið féll
á vagninn úr um 2 m hæð. Járnið
var ekki fyrir miðju og lenti utar-
lega á vagninum og þaðan niður
á bryggju. Maðurinn sem var þeim
megin náði að hoppa niður á
bryggjuna og búntið lenti við hlið-
ina á honum á sama andartaki.
Þarna munaði ekki hársbreidd að
illa færi,“ sagði Sverrir Örn Olsen.
Sverrir sagði að tengivagninn
væri ónýtur eftir og flak eitt og
honum þætti afar ólíklegt að hann
yrði notaður aftur. Sverrir sagði
að aðkoman í bílnum hefði verið
hrikaleg, þar hefði allt verið á tjá
og tundri eftir höggið þegar járn-
ið datt niður á tengivagninn.
Hvorki Jón né Sigurður vildu í
gærkvöldi ræða þennan atburð
við fréttaritara Morgunblaðsins.
BB
Morgunblaðið/Sigurgeir
Brandugla um borð íKatrínu
Vestmannaeyj u m.
Gísli Sigmarsson, skipstjóri á Katrínu VE, er hér með branduglu,
sem skipveijar náðu um borð í bátnum við Hrollaugseyjar fyrir
skömmu, og afhentu Náttúrugripasafninu í Eyjum. Kristján Egils-
son, safnvörður kom henni í fóstur hjá Óskari Sigurðssyni vita-
verði á Stórhöfða sem hefur annazt hana síðan. Uglan virðist
vandlát á æti, því það eina, sem hún hefur fengizt til að éta, eru
mýs, og framboðið á þeirri fæðutegund er heldur takmarkað hér.
Grímur
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur:
Reykja\ikurborg undirbýr
kaup á hlutabréfum í Glit
Atvinnutækifæri sköpuð fyrir fatlaða
HUGSANLEGT samstarf við Glit
hf., er til umræðu í Atvinnumála-
nefnd Reykjavíkur. Davíð Odds-
son borgarstjóri, hefur lýst því
yfir að hann muni bera fram til-
lögu við gerð fjárhagsáætlunar
næsta árs, um að borgin kaupi
hlutíibréf í fyrirtækinu að verð-
mæti 5 milljónir og skapi þar
með atvinnu tækifæri fyrir fatl-
aða.
Að sögn Jónu Gróu Sigurðardótt-
ur formanns Atvinnumálanefndar,
hefur verið í gangi tilraunaverkefni
fyrir fatlaða hjá Glit hf. og tóku
15 til 16 manns þátt í henni á
síðasta ári. „Þetta verkefni þótti
takast vel og með þessu framlagi
borgarinnar er verið að kanna hvort
ekki gæti orðið framhald þar á,“
sagði hún. „Þetta er á umræðustigi
en það stendur ekki á borginni að
vilja greiða fyrir að þetta gangi
upp. Þarna gæti verið um fasta
vinnu fyrir fatlaða að ræða og vinnu
fyrir aðra sem eru í starfsþjálfun
eða um tuttugu manns. Við teljum
að með þessu verði brotið blað í
atvinnumálum fatlaðra ef af verð-
Borgarráð:
Útfararstofa sækir um
lóð undir kirkjugarð
Útfararþjónusta og líkistu-
vinnustofa Eyvindar Arnasonar
hefur sótt um lóð til borgarráðs
undir kirkjugarð. Umsókninni
var vísað til umsagnar borgarrit-
ara.
Að sögn Davíðs Ósvaldssonar
útfararstjóra, .telur hann .að.fyrir-.
tæki hans hafi ekki sömu sam-
keppnisaðstöðu og Kirkjugarðar
Reykjavíkur. Kirkjugarðsgjöldin
renni óskipt til opinberra aðila, sem
geta þá boðið lægra gjald fyrir út-
fararþjónustu. Fái hann hins vegar
lóð undir kirkjugarð komi hluti
kirkjugarðsgjalda í hans hlut..