Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 9 Af alhug þakka ég þeim Jjölmörgu, sem mundu eftir mér á sjötugsafmœli mínu 14. okt. sl. og fœrðu mér veglegar gjafir, blóm og skeyti. Ég veit að hlýtt hugarþel í minn garð eru glceð- ur, sem ekki kulna. Lifið heil. Jakob Björgvin Þorsteinsson. TOYOTA NOTAÐIR BÍLAR Athugasemd! Bílar með staðgreiðsluverði eru einnig fóanlegir með lónakjörum skv. iónatöflu Toyota bílasölunnar. MMC GALAIMT GLS '88 Hvítur. 5 gíra. 4 dyra. Ekinn 51 þús/km. TOYOTA Hl LUX DC '88 Gulur. Bensínbíll. 5 gíra. 4 dyra. Ekinn 28 þús/km. Verð 1.250 þús. MMC PAJERO '86 Blár. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 91 þús/km. Verð 1.100 þús. 44 1 44 TOYOTA COROLLA XL '88 Grár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 55 þús/km.m. Verð760þús. SUZUKI VITARA JLX '89 Blár. 5gíra. 3 dyra. Ekinn 10 þús/km. Verð 1.150 þús. TOYOTA COROLLA STX ’86 Beige. 4 gíra. 5 dyra. Ekinn 50 þús/km. Verð 500 þús. - 44 7 33 TOYOTA -fáfas AttK CfaJé NÝBÝLAVEGI 6-8, KÓPAVOGI Miöstjórnarfundur Alþýóubandalagsins ályktar VANTRAUST Á ÞINGFLOKK — oa stefnuskráin ómerkt Miðflóttabandalagið Störf Alþýðubandalagsins snúast nú einkum um það, hverjir yfirgefa það með opinberum hætti. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður flokksins, hefur tamið sér að snúa öllum málum sér í vil. Þegar miðstjórnarmenn Alþýðubandalagsins yfirgefa aðalfund miðstjórnarinnar með þau orð á vörunum, að flokkurinn sé ekki lengur verðug- ur vettvangur fyrir þá, fagnar flokksformaðurinn brottgöngunni og segir að hin breiða miðja sé eftir í flokknum. Fyrir bragðið eru menn farnir að kalla flokkinn „miðflóttabandalagið" í íslensk- um stjórnmálum og má segja, að flokksformað- urinn sé aflið sem beini fólki frá miðjunni, þótt hann hrósi sér síðan af því, hve hún sé breið. Dapurleg fortíð Alþýðubandalagið á sér dapurlega fortíð. Það er arftaki Kommúnista- flokks íslands og Sósíal- istaflokksins, sem trúðu í blindi á forsjá Kreml- vetja og börðust fyrir sigri heimskommúnism- ans. Innan Alþýðubanda- lagsins hafa farið fram heitar umræður um það, hvort ekki skuli gert upp við þessa fortíð en þeir hafa orðið ofan .á, sem hafna slíkum sjónarmið- um. í staðinn hefur verið leitast við að láta eins og flokkurinn sé sögulaus og sprottinn upp af engu. Á miðstjómarfundinum á Akureyri um helgina vom stigin frekari skref á þeirri braut í von um að enn tækist að hindra hið óhjákvæmilega upp- gjör, sem ailir kommún- istaflokkar standa frammi fyrir. Miðstjórnin brást við fortíðarvandanum með tvennum hætti. I fyrsta lagi skorar hún á igör- dæmisráð Alþýðubanda- lagsins um land allt að beita sér fyrir sem mestri enduraýjun í efstu sætin á framboðslistum flokks- ins fyrir næstu kosning- ar. Telur miðstjómin nauðsynlegt að breyting- ar verði á skipan efstu sæta framboðslistanna sem víðast um land. í öðm lagi lýsti miðstjóm- in yfir þvi, að í komandi kosningum muni flokk- urinn ekki taka mið af stefnuskrá sinni, sem er síðan 1974. Til áréttingar á þessari furðulegu sam- þykkt segir miðsljómin, að Alþýðubandalagið hafi um áraraðir byggt störf sín og stefnu- áherslu á samþykktum landsfunda og annarra stofnana flokksins, sem hafi í reynd komið í stað skjalsins frá 1974. Þetta er eim einn katt- arþvotturinn í uppgjöri alþýðubandalagsmanna við fortíðina. Það er frá- leitt að ætla að skella skuldinni á þá einstakl- inga sem nú sitja í efstu sætum á framboðslistum Alþýðubandalagsins, þá Svavar Gestsson, Skúla AJexandersson, Ragnar Amalds, Steingrim J. Sigfússon, Iijörleif Gutt- ormsson, Margréti Frímannsdóttur og Geir Gunnarsson. Ólafi Ragn- ari er þessi áiyktun ekki á móti skapi, þar sem hann getur skotið sér á bak við það, að liann hafi ekki náð lqöri á þing! Ályktunin um stefnu- leysi flokksins er einstök. Um langt árabil hefur verið unnið að því að semja nýja stefnuskrá fyrir Alþýðubandalagið. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir til að ná sam- komulagi um nýja stefnu hefur það ekki tekist. Nú er því einfaldlega lýst yfir, að flokkurinn sé án grundvallarstefnu. Miðstjórn Alþýðu- bandalagsins hefur þaim- ig bæði hafnað mönnum og málefnum í eigin flokki fáeinum mánuðum fyrir kosningar en hún forðast að taka á mein- semdinni sjálfri, það er raunverulegu uppgjöri við fortíðina. Fordæmi frá Kúbu í Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við Carlos Tablada Perez, kúb- verskan hagfræðidoktor og félagsfræðing. Fyrir- sögnin á viðtalinu er þessi: Umrótið í A-Evr- ópu hefur engin áhrif á stefnu okkar. Ýmsir í Alþýðubandalagjnu vildu áreiðanlega taka undir með þessum stuðnings- manni Fidels Kastrós en innan flokksins starfa einlægir aðdáendur bylt- ingarinnar á Kúbu, sem hafa oftar en einu sinni lagt leið sina til hinnar suðlægu eyjar í því skyni að aðstoða Kastró og fé- laga hans við byltingar- störfin. í viðtalinu við hinn kúbverska hagfræðing stendur: „Tablada var spurður hvort hami gæti nefnt eitthvert atriði í fræðum Marx og Leníns sem hon- urn fyndist að hefði bmgðist, einkum þegar litið væri á atburði síðustu ára í kommún- istarikjunum. Hann svar- aði því til að það væri ekki til aðeins ein tegund af marx-lenínisma, ekki einvörðungu ein fyrir- mynd, módel, að sósíal- isma. „í A-Evrópu varð kreddufestan of mikil, líka í memiingarmálum. Þeir vam-æktu að leggja áherslu á huglæga þátt- inn, hið mannlega, það tókst ekki að virkja fjöld- ann. Sósíalisminn er ekki bara aukin vörufram- Iciðsla heldur á hann að þróa samstöðuna og bijóta niður eigingimina. Eg er enginn dómari, enginn guð og get því ekki dæmt um marx- lenínismann, get aðeins bent á að til em ólíkar leiðir. í Sovétríkjunum glötuðu menn hæfileik- anum til að gagnrýna, þjóðfélagið staðnaði og nauðsynleg endumýjun varð ekki.“ Þessi röksemdafærsla minnir óþægilega á orða- gjálfrið í málflutningi marxista hér á landi á undanförnum árum. Þama er reynt að ræða um sósialismann á þeim • forsendum, að hann sé upphaf „hins nýja maims". Hvemig á að virkja fjöldann til fylgis við stefnu sem rýrir lífskjör hans jafnt og þétt? Stalín gerði það með gúlaginu og svipu óttans. Hið sama gerir Kastró enn í dag á Kúbu. Lýsingar þeirra sem hafa sloppið úr fangelsum Kastrós em hryllilegar. Pyntingamar em ómamieskjulegar og til- efni ofsókna og harðræð- is pólitískir duttlungar. Þegar veldi kommún- ismans hrynur á Kúbu á hið sama eftir að koma í Jjós og í öðrum koinm- únistarikjum, að fólkið var neytt til undirgefni og lifði við sult og seyru. Auðlind opnar þér greiðfæra leið inn á hlutabréfamarkaðinn. A AUÐLIND H F. Hlutabréfasjóbur í vörslu Kuupþiugs hf. Hlutabréf í Auðlind hf. eru seld hjá Kaupþingi hf., Reykjavík, Kaupþingi Norðurlands hf., Akureyri, Verðbréfaviðskiptum Búnaðarbankans, Hafnarstræti, og bjá nokkrum sparisjóðum. Auðlind er hlutabréfasjóður í vörslu Kaupþings, settur saman af hlutabréfum og skuldabréfum traustra og vel rekinna fyrirtækja. Þegar þú kaupir Auðlindarbréf •áttu möguleika á ávöxtun sem er langt umfram almennar sparnaðarleiðir, •býðst þér mun betri trygging en gildir um almenn hlutabréf af því að hlutabréf sjóðsins eru frá mörgum fyrirtækjum, •færðu heimild til skattaafsláttar til jafns við þá sem kaupa hlutabréf í einstökum fyrirtækjum, • nýtist þér sérfræðiþekking um hlutabréfamarkað- inn hjá ráðgjöfum Kaupþings. Sölugengi verðbréfa 1. nóvember 1990 Einingabréf 1 5,136 Einingabréf 2 2,787 Einingabréf 3 3,377 Skammtímabréf 1,729 Auðlindarbréf 1.000 KAUPÞING HF Kringlunni 5, st'mi 689080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.