Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 Vilja afnema eignarskatt vegna Þjóðarbókhlöðu FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram laga- frumvarp um afnám, laga nr. 83/1989, Þjóðarbókhlöðu og end- urbætur menningarbygginga. Flutningsmenn eru, Hreggviður Jónsson (S/Rn), Ellert Eiríksson (S/Rn), Kristinn Pétursson (S/Al) og Ingi Björn Albertsson (S/Vl). Fjórmenningarnir telja að með álagningu „Þjóðarbókhlöðuskatt- ins“ sé fólki freklega mismunað. Skatturinn leggist hvað þyngst á einhleypinga og þá sem sýnt hafi ráðdeiid og sparsemi. Flutnings- menn segja í greinargerð sem fylg- ir frumvarpinu, að skatturinn sé miklu hærri á íbúum Reykjaness og Reykjavíkur eða 79.1% af álagn- ingu ársins 1989 og sé orsakanna að leita í hærra fasteignamati íbúða suðvestanlands. Flutningsmenn telja ennfremur athyglisvert að, „eignir þeirra þeirra hjóna sem, greiða Þjóðarbók- hlöðuskattinn, bera 132 millj. kr. lægri skatt en ef eigmrnar væru í eigu einhleypinga. Hver einhleyp- ingur greiðir 10.625 kr. áður en þessi skattur leggst á sambærilega eign hjóna.“ í greinargerð segir að Þjóðarbókhlöðuskatturinn hafi ekki runnið til bókhlöðunnar eins og lög gera ráð fyrir. Þar kemur fram að á árabilinu 1987-89 voru innheimt- ar samkvæmt lögunum 445.34.739. kr. en einungis 206.453.718 kr. ráðstafað til Þjóðarbókhiöðunnar. Fjórmenningarnir segja að telja verði það álitamál hvort skattgreið- endur eigi ekki endurkröfurétt á hendur ríkissjóði fyrir þann hluta sem ekki hefur runnið beint til Þjóð- arbókhlöðunnar. Árni Gunnarsson Ingi Björn Albertsson Umferðarlög: Lagt til að helminga leyfi- legt áfengismagn í blóði Hulda Jensdóttir FIMM þingmenn úr jafnmörgum flokkum hafa lagt fram frumvarp um að leyfilegt vinandamagn í blóði verði 0,25 prómill í stað 0,5 prómill eins og núgildandi lög segja til um. Flutningsmenn eru: Árni Gunnarsson (A/Ne), Ragn- hildur Helgadóttir (S/Rv), Geir Gunnarsson (Ab/Rn), Kristín Ein- arsdóttir (SK/Rv) og Jón Kristj- ánsson (F/Al). Árni Gunnarsson hafði framsögu fyrir málinu í gær. Hann sagði til- ganginn að eyða óvissu þeirri sem ríkt hefði um áfengisneyslu og akst- ur bifreiða. Ennfremur sagði hann núgildandi umferðarlög valda því að ökumenn yrðu að meta hveiju sinni sjálfir, eftir að hafa neytt áfengis, hvort þeir væru hæfir til að aka bif- reið eður ei. Ræðumaður lét þess getið að flutningsmenn teldu eðlilegt að skekkjumörk yrðu 0,05 prómill og væri það sökum þess að vísindamenn teldu að mæling yrði ekki örugg fyrr en við 0,3 prómill, svo segja mætti að leyfilegt áfengismagn yrði í raun 0,3. Árni taldi rétt að geta þess, vegna sjónvarpsþáttar þar sem Frjálsar fóstureyðingar leiða til ábyrgðarleysis - segir Hulda Jensdóttir „FRJÁLSAR fóstureyðingar hvetja til fóstureyðinga. Fijálsar fóstureyðingar útiloka þörf fyrir fræðslu varðandi málið. Fijálsar fóstureyðingar leiða til ábyrgð- arleysis. Frjálsar fóstureyðingar leiða til þrýstings sem skapar glundroða og leiðir til ákvarð- anatöku undir óeðlilegum kring- umstæðum," sagði Hulda Jens- dóttir (B/Rv) sem mælti síðastlið- inn þriðjudag fyrir frumvarpi í neðri deild, um breytingu á lög- um nr. 25 22. maí 1975, um ráð- gjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyð- ingar og ófijósemisaðgerðir. I frumvarpi Huldu er lagt til að t: alls 13 af 16 lagagreinum falli brott, auk þess eru gerðar tillögur um nokkrar viðbætur og orðalags- breytingar á þeim greinum sem eftir standa. Samkvæmt frumvarp- inu mun innihald laganna breytast allverulega. T.a.m. er lagt til að 9. gr. laganna falli út, en þar eru m.a. fóstureyðingar heimilaðar vegna félagslegra ástæðna. Flutningsmaður sagði rn.a. í ræðu sinni að verðandi mæður yrðu oft fyrir utanaðkomandi þrýstingi á tímaskeiði sem sé þeim erfitt bæði andlega og líkamlega. En þeir sem mest hvöttu til fóstureyðingarinnar sem allsheijarlausnar hverfi oftast úr myndinni eftir að aðgerðin sé afstaðin, firrtir allri ábyrgð. Hulda sagði ennfremur að konur sem hug- leiddu fóstureyðingu nytu ekki þeirrar þjónustu sem nauðsynleg væri í íslenska velferðar- og heil- brigðiskerfinu. Flutningsmaður sagði farsælla að veija þeim fjár- munum sem fóstureyðingar kost- uðu íslenska skattborgara „konum til hjálpar og börnum til lífs“. Hulda fór nokkrum orðum um félagslegar afleiðingar fóstureyð- inga og taldi blasa við að fólk á miðjum aldri og yngra myndi ekki njóta í framtíðinni þeirrar um- hyggju og þjónustu sem nú þætti sjálfsögð. Hulda sagðist gera sér grein fyrir því að hér væri um við- kvæmt mál að ræða en hvatti Al- þingi til að skoða málið óhlutdrægt og veðja á lífið svo sem kostur væri. Málinu var vísað til heilbrigð- is- og tryggingamálanefndar. Óvarlegt að niður- greiða bensínverð Áminning fjármálaráðherra FJARMALARAÐHERRA, Olaf- ur Ragnar Grímsson, mælti í gær í neðri deild fyrir frum- varpi til laga um tímabundna lækkun tolls af bensíni. Lagafrumvarpið mun veita fjár- málaráðherra heimild til að lækka toll af bensíni úr 50% í allt að 30% Jafnframt er ráðherranum heimilt að ákveða að tollalækkunin skuli gilda frá 1. október 1990. í ræðu Ólafs Ragnars kom m.a. fram að tilgangur þessa lagafrum- varps er sá að hlutur ríkisins af aðflutningsgjöldum og virðisauka- skatti af bensíni hækki ekki í krónutölu frá því sem var við síðustu verðlagningu bensíns og að ákvörðun um þessa lækkun væri tekin í samráði við samtök launþega og atvinnurekenda og væri ætlað að styrkja samkomulag um kjaramál, þjóðarsáttina svo- nefndu. Ráð er fyrir því gert að lög þessi gildi til áramóta en ráðherrann sagði að ætla mætti að heimsmark- aðsverð lækki til muna á þeim tíma frá því háa verði sem spákaup- mennska hefði leitt til. Fjármála- ráðherra lét einnig í ljós ánægju með að olíufélögin hefðu dregið hækkunarbeiðni sína til baka. í ræðu fjármálaráðherra kom fram að þ'essi tollalækkun mun kosta ríkissjóð um 50 milljónir króna á mánuði ef miðað er við það háa innkaupsverð sem horfur voru á þegar frumvarpið var samið. I lok ræðunnar minnti Ólafur Ragnar á að hagfræðingar og al- þjóðlegar hagstofnanir hefðu ítrek- að varað við því að grípa til opin- berra aðgerða í því skyni að greiða niður hækkanir til neytenda til lengri tíma. Að tillögu fjármálaráðherra var frumvarpinu vísað til annarrar umræðu og fjárhags- og viðskipta- nefndar. fram kom að áfengismagn kom fram í prófum á andardrætti eftir drykkju maltöls, að það væri blóðsýnið sem gilti, ekki andardrátturinn. Árni ræddi nokkuð ítarlega um skaðsemi ölvunaraksturs og um- fang, og rakti nokkrar tölur máli sínu til stuðnings. T.d. að ? ""unum 1978-87 hefðu 1.100 mam asast í umferðarslysum sem hefðu beint tengst áfengisneyslu og 66 hefðu beðið bana. Þetta væri óstjórnlegur tollur, enda þótt tryggingarfélög bættu eignatjþnið þá yrðu látnir aldrei bættir. Árni greindi einnig frá því að árlega væru 2.400-2.500 manns teknir vegna gruns um ölv- unarakstur og misstu að jafnaði um 2.000 manns ökuleyfið. Það væri mat löggæslumanna og þeirra sem væru sérfróðir á þessum vettvangi að þessar tölur væru aðeins brot af vandanum. Stundum væri talað um að þrefalt fleiri ækju ölvaðir en þeir sem næðust. Árni vildi að það kæmi alveg skýrt fram að tilgangur þessa frumvarps væri ekki að hvetja til bindindis held- ur að draga skarpa línu milli áfengis- neyslu og aksturs. í máli Árna kom sterklega fram að ekki væri verið að skerða persónufrelsi einstaklinga heldur eyða óvissu meðal fólks hvort það mætti aka. Tilgangurinn væri að draga úr slysum og til þess þyrfti að gera öllum ljóst að áfengi og akstúr mætti ekki, og ætti ekki að fara saman. Öfgar í frumvarpinu Ingi Björn Albertsson (S/Vl) þakkaði flutningsmönnum fyrir að vekja athygli á þessu máli en hann væri ekki sammála tillögunni. Hann taldi vænlegra að beita jákvæðum áróðri og upplýsingum. Oft lentu menn í þessu fyrir vankunnáttu, drykkju t.d. hressilega um helgar- kvöld en héldu sig svo vera undir mörkum daginn eftir. Inga Birni þóttu vera öfgar í þessu frumvarpi og spurði hvort ekki væri þá skrefið stigið til fulls og mörkin sett á núllið. Hann taldi það einnig íhugunarefni fyrir kirkjuþing hvort ekki ætti að hvetja kirkjugesti til að skilja bílana eftir heima ef geng- ið yrði til altaris, leita yrði álits þess. Einnig benti hann á að fáanlegt væri á markaði áfengt sælgæti. Að endingu ítrekaði ræðumaður að auka þyrfti áróður og hans vegna mætti herða viðurlög. Stefán Valgeirsson (SKJ/Ne) taldi það vera af hinu góða að lækka áfengismörkin, slíkt hvetti fólk til að passa sig. Friðjón Þórðarson (S/Vl) efaðist ekki um góðan tilgang flutnings- manna en taldi þá skjóta yfir mark- ið. Hann taldi vænlegast að fram- fylgja núgildandi lögum. Friðjón taldi viðurlög við brotum vera all- ströng og ekki þurfa að herða þau. Friðjón greindi frá því að sýslumenn og löggæslumenn yrðu að sæta mikl- um stórmælum ef þeir færu fram úr útgjaldaheimildum og benti á að það yrði að sjá þeim fyrir nægilegu fé til að sinna skyldustörfum sínum. Friðjón greindi m.a. einnig í ræðu sinni frá þeirri lagatúlkun, áð það væri lögbrot að setjast undir stýri eftir að hafa varist kvefi með konj- akssopa, — jafnvel þótt veigunum væri spýtt aftur. Kristín Einarsdóttir (SK/Rv) vildi svara nokkmm atriðum sem komu fram í umræðunni. Hún sagði að mörkin væru ekki 0 prómill sökum þess að þá gæti fólk trauðla neytt ýmissa lyija, einnig létts maltöls og pilsners. Kristín taldi að ein teskeið af blóði Krists messuvíni, myndi ekki hækka áfengishlutfallið í blóði kirkjugesta yfir mörkin 0,25 pró- mill. Hún taldi að eftirlit með ölvuna- rakstri yrði auðveldara eftir lækkun áfengismarkanna, núna freistaðist fólk að taka áhættu. Ódýrt konjak Árni Gunnarsson (A/Ne) sagði ýmislegt fram hafa komið í umræð- unni sem bæri vitni fordómum eða skilningsleysi. Þetta mál snerist um forvarnir. Hann ítrekaði skýringar Kristínar um að ekki væri ætlunin að torvelda neyslu lyfja, maltöls eða létts pilsners, né heldur altarissakra- mentisins. Árni taldi ekki neyslu- máta á konjaki sem Friðjón Þórðar- son greindi frá vera algengan og ráðlagði mönnum sem svo verðust kvefi að hafa konjakið heldur ódýrt. Árni benti einnig á að, sú mæling sem giltiværi úr blóði en ekki andar- drætti. Árni Gunnarsson tók undir skoðun Inga Björns Albertssonar að auka þyrfti áróður en lagðist gegn því að herða refsingar. Það væri t.d. óheppilegt að dæma ungt fólk til fangelsisvistar með óheppilegum fé- lögum, jafnvel forhertum glæpa- mönnum. Að endingu lét ræðumaður þess gétið, að frumvarpið væri til- komið vegna óska löggæslumanna og annarra sem ynnu að umferðarör- yggí- Ingi Björn Albertsson (S/Vl) var Árna Gunnarssyni sammála í van- þóknun á því að spýta góðu konj- aki. Ingi Björn benti þingmönnum á að til væru fleiri refsingar en fang- elsisvist, t.d. mætti skylda menn til að sópa göturnar. Ræðumaður saknaði upplýsinga um hve margir ökumenn, sem hefðu verið teknir grunaðir um ölvunar- akstur, hefðu mælst með áfengispró- sentu á bilinu 0,25-50. Einnig ám- innti hann menn um að áfengi fýnd- ist víða, messuvín væri áfengi, einkasöluvara seld í ÁTVR. Einnig vissi hann þess dæmi að menn hefðu keypt heilu kassanna af áfengu sæl- gæti til að halda sér við eftir áfengis- drykkju. Frumvarpið var afgreitt til ann- arrar umræðu og íjárhags- og við- skiptanefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.