Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990
Litrænir töfrar
________Myndlist______________
BragiÁsgeirsson
Það má segja um myndverk
Bjargar Þorsteinsdóttur um
þessar mundir, að meginstefið í
þeim séu markvissar tilraunir til
að beisla form- og litræna töfra
ásamt innri lífæðum málverksins.
Og ætli þetta séu ekki kappnóg
stefnumörk fyrir allt lífið, hve fjör-
gamall sem listamaðurinn nú verð-
ur, því eins og sagan segir okkur
nennum við að fietta upp í upp-
sláttarbókum og skoða sýningar-
sali heimsborganna, þá eru hinir
fremstu núlistamenn síðustu ára-
tuga enn að rækta sinn .garð af
kappi, sem þeir sáðu í við upphaf
ferils síns. Og skiptir þá ekki
máli hvort um er að ræða iðkend-
ur strangflatamálverksins, sjálf-
sprottins, ljóðræns og sértæks
myndmáls eða hugmyndafræði-
legrar listar.
Það er mikill misskilningur, að
menn þurfi skilyrðislaust að vera
ávallt í takt við erlendar menning-
arheildir og hafi hér ótvíræðum
skyldum að gegna við útbreiðslu
þeirra, vera einskonar sendiráð-
herrar núviðhorfa sem efst eru á
baugi hveiju sinni.
Slíkt nefnist einfaldlega línu-
dans í útlandinu.
Má nefna það í framhjáhlaupi,
að einn af metsölurithöfundum í
Frans, Alexandre Jardin, sem er
einungis 25 ára gamall(!), sagði- í
viðtali nýlega, „að franski menn-
ingarheimurinn væri alltof lokaður
fyrir umheiminum. Hérumbil allar
bókmenntir á frönsku væru fran-
skar, vegna þess að menn opna
sig ekki fyrir útlandinu. Ég lít á
mig sem Evrópubúa og tel það
markmið mitt að opna erlendum
bókum leið til Frakklands.“
Þarna sjáum við svart á hvítu
hve mikilvægt Frökkum hefur þótt
að rækta eigin garð til þessa og
þannig verið i hópi mestu einangr-
unarsinna Evrópu, og ekki viður-
kennt neinar erlendar menningar-
heildir nema þær væru undir áhrif-
um frá þeim sjálfum. Enda hafa
þeir uppskorið eftir því á undan-
förnum áratugum, er þeir hafa
misst forystuna á svo mörgum
listasviðum.
En þetta sýnir einnig svart á
hvítu að hér þarf samræmi á hlut-
unum og hve nauðsynlegt það er
að rækta eigin garð og sýna hér
vissa íhaldssemi, þótt menn séu
um leið opnir fyrir útlendum áhrif-
um hvaðanæva.
Og það er einmitt það góða við
list Bjargar Þorsteinsdóttur um
þessar mundir að hún ræktar eig-
in garð kappsamlega, enda hefur
hún uppskorið það ríkulega með
mun lífmeiri og sannari myndum
en frá henni komu á árum áður.
Menn eiga nefnilega ekki að
reyna að sannfæra aðra um að
menn séu nútímalegir með því að
vera með í leiknum, heldur með
því að rækta eigin garð og gera
það ötullega.
Okkur á t.d. ekki að liggja
meira á að fá útibú af franskri
list hingað, en útlendum að marka
tóftir listar sinnar við íslenska
garða.
Víst eru merkjanleg áhrif París-
arskólans í myndum Bjargar, en
ég tel hana stöðugt kafa dýpra í
eigin lífsvitund.
Myndir hennar eru um þessar
. Leitið til okkar:
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Igtf
Björg Þorsteinsdóttir við tvö verka sinna.
mundir öðru fremur málverk og
ekki snefill meira, en fjölbreytileg
vinnubrögðin bera um leið vott um
hve víðfeðmt svið málverksins sé.
Á sýningu Bjargar Þorsteins-
dóttur í sölum Listasafns ASÍ eru
32 olíukrítarmyndir og 10 vatns-
litamyndir.
Margar olíukrítarmyndimar eru
mjög stórar og ábúðarmiklar og
hin umbúðalausu og kröftugu
vinnubrögð Bjargar koma vel fram
í þeim, en það eru þó myndir mik-
ils form- og listræns samræmis
sem vöktu óskipta athygli mína
eins og t.d. myndimar „Mósaik“
(8) og „Miðaldaminning“ (9), en
af litlu myndunum voru það „Mið-
aldaminning II“, IV og V. Ég ef-
ast þó um að þetta séu endilega
bestu myndirnar á sýningunni, en
í þeim er viss hljómmikill og heil-
steyptur tónn.
Vatnslitamyndirnar vöktu
óskipta athygli mína fyrir mikla
„artistíska“ kennd eins og t.d.
„Kvöld“ (33), „Formleikur 11“
(35), „Randalín“ (36) og „Dögun“
(37).
Dregið saman í hnotskurn þá
er Björg Þorsteinsdóttir í senn
stórvirk í listsköpun sinni og í ótv-
íræðri framsókn.
f DEIGLUNNI
________Myndlist______________
BragiÁsgeirsson
Iðkun myndlistar hefur dijúga
sérstöðu meðal listgreina svo sem
kunnugt er og má segja, að allt
lífið sé einn samfelldur námsferill.
Þessi námsferill er að sjálfsögðu
margbreytilegur, en víst er að
þroski lætur bíða eftir sér, ein-
beiti menn sér ekki að reglubund-
inni vinnu og slaki hvergi á og em
hér fyrstu tíu ár þróunarferilsins
hvað mikilvægust.
Málarinn Sigurbjöm Jónsson
sem heldur sína fyrstu einkasýn-
ingu í listhúsinu Nýhöfn um þess-
ar mundir, hefur tvenns konar
námsferil að baki, sem er nám við
MHÍ, en þar er lögð áhersla á sitt
lítið af hveiju og fjölda kennara í
anda framhalds-, fjölbrauta- og
listiðnaðarskóla, svo og hreint
akademískt nám í New York, þar
sem menn verða að gjöra svo vel
að halda sig við efnið frá morgni
til kvölds, treysta á eigin mátt og
einungis njóta stuðnings læri-
meistara, sem kemur af og til og
gagnrýnir verkin.
Hvort hér ráði svo íhaldssemi
eða fijálslyndi fer svo eftir hveij-
um skóla fyrir sig.
Þetta eru tveir meginásar lista-
kennslu í heiminum í dag og lista-
sagan segir manni, að þeir sem
lengst ná að verða gagnmenntað-
astir í listinni, eru þeir sem láta
engin hjáleit viðhorf trufla sig og
hafí numið um lengri eða skemmri
tíma hjá sama lærimeistaranum.
Sjálfsagt og eðlilega eru í flest-
um tilvikum merkjanleg áhrif frá
lærimeistaranum á fyrstu sýningu,
en sé eitthvað í einstaklinginn
spunnið þá hverfa þau smám sam-
an. Það er einnig svo, að merkjan-
leg eru áhrif frá lærimeistara Sig-
urbjörns, Leland Bell, í mörgum
verka hans og koma þau bæði
fram í lit sem vali myndefna. Bell
er mikill aðdáandi tónlistar og
hefur frá unga aldri leikið á
trommur og á forláta slíkar heima
hjá sér, auk þess sem hann hefur
leikið í hljómsveitum.
Amerísk áhrif eru og merkjan-
leg í fleiri myndum á sýningunni
og af líkum uppruna og komu fram
hjá Nínu Tryggvadóttur fyrir
margt löngu.
Þetta er sem sagt allt í deigl-
unni hjá hinum unga manni og
víða bregður fyrir mjög hreinum
myndrænum tilþrifum svo sem í
málverkunum „Hljóðfæraleikar-
amir“ (II), „Hús (14) og „Stofa“
(29).
Það voru hinar minni og lát-
lausari myndir á sýningunni, sem
einkum vöktu athygli mína þar
sem áherslan er lögð á skýra og
samþjappaða heild mettaðra lita
og einfaldra forma.
Þótt það sé mest áberandi á
Sigurbjörn Jónsson
sýningunni, að gerandinn standi á
þróunarskeiði og í miðri deiglu,
þá kemst Sigurbjöm Jónsson vel
frá þessari frumraun sinni og með
réttu framhaldi, aga og hagnýt-
ingu þekkingar sinnar má vænta
mikils af honum.
Snæfellsnes:
Erindrekar
Krabbameins-
félagsins
fara í skólana
Stykkishólmi.
Á VEGUM Krabbameinsfélags
íslands komu hingað í heimsókn
þau Erna Haraldsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og Oddur Al-
bertsson kennari en þau eru
fræðslufulltrúar félagsins. Komu
þau til að vekja athygli á skað-
semi tóbaksnautnar og annara
vanbindandi efna um leið.
Þau fóru einnig í skólana í
Grundarfírði, Ólafsvík og Hellis-
sandi og í Laugagerðisskóla.
Ræddu við nemendur og kennara
og bentu ungmennunum á hversu
skaðlegt og dýrt það er að ánetjast
þessum efnum. Það gæti orðið að
svo slæmum vana að ekkert yrði
við ráðið og hefði oft flýtt fyrir
eyðileggingu lífsins.
Lúðvík Haildórsson skólastjóri
segir að svona heimsóknir séu mjög
kærkomnar og þær hafi sín áhrif
og undir það tóku þeir kennarar
sem fréttaritari hitti að máli.
- Árni.
PC-Byrjendanámskeið
Notkun tölva byggist á þekkingu og feerni. Þér býðst
nú 60 tíma vandað nám á sérstaklega góðum kjörum.
Ritvinnsla
Töfiureiknir
Stýrikerfið
Tölvuskóli íslands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22