Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 Er afnám samningsréttarins á stefnuskrá Alþýðubandalagsins? eftir Guðrúnu Kr. Óladóttur Undirrituð er ein sjö-menning- anna sem gekk út af fundi mið- stjómar Ajþýðubandalagsins sl. sunnudag. Ástæða útgöngu okkar var ekki eins og formaður flokksins lætur í veðri vaka á öldum ljósvak- ans, þ.e. að við hefðum verið í bull- andi minnihluta í afgreiðslu mála, heldur málsmeðferð forystumanna flokksins á eftirfarandi tillögu, sem undirrituð, ásamt nokkrum félögum úr ASÍ, BSRB og BHMR, stóð að. „Aðalfundur miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins, haldinn á Akureyri 26. október 1990, lýsir andstöðu við bráðabirgðalögin frá 3. ágúst sl. og skorar á Alþingi að hnekkja þeim. Með þessum bráðabirgðalögum er haldið áfram á þeirri braut að skipa launamálum með lögum og ómerkja kjarasamninga og nú þvert ofan í genginn dóm. Síendurteknar árásir á gerða samninga grafa und- an frjálsum samningsrétti og gera verkalýðshreyfingunni þar með ókleift að sinna hlutverki sínu.“ Það er skemmst frá því að segja BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 1 Leiklistarskóli Islands auglýsir: 1. Námskeið fyrir almenning um leikritun og leiklistarsögu. Lesnir verða valdir kaflar úr leikritum frá ýmsum tímabilum, skoðuð myndbönd og stiklað verður á stóru í leiklistarsögunni. Kennari Hafliði Amgrímsson, leikhúsráðunautur. Tími: 6., 8. og 13. nóvember kl. 20.00-22.00. Þátttökugjald: Kr. 3.500,-. 2. Fyrirlestra fyrir leikhúsfólk 1. Málvöndun, málstefna og framburður: Fyrirlesari Höskuldur Þráinsson, prófessor í íslensku nútímamáli við Háskóla íslands. Tími: 12. nóvember kl. 20.00. Þátttökugjald: Kr. 1.000,-. 2. Markmið og gagnsemi menntunar: Fyrirlesari Vilhjáimur Árnason, lektor við heimspeki- deild Háskóla íslands. Tími: 19. nóvember kl. 20.00. Þátttökugjald: Kr. 1.000,-. Þátttaka tilkynnist fyrir 7. nóvember nk. til skrifstofu skólans í síma 25020 (kl. 9.00-15.00). Skólastjóri. Föróunar námskeió Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunar eru kennd á eins kvölds námskeiðum. Aðeins 10 eru saman í hóp og fær hver þátttakandi persónulega tilsögn. Innritun og nánari upplýsingar ísíma 26525 milli kl. 10.00 og 17.00. Kennari: Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og lörðunarfræðingur Unnið með NO NAME COSMETiCS —.—. „Formaðurinn gleymir, eins og svo mörgu öðru, sínum eigin mikilvæga þætti í málinu, sem sé þeim að hann stóð sjálf- ur að gerð samningsins og kallaði hann þá tíma- mótasamning og við- hafði hástemmd lýsing- arorð um ágæti hans.“ að forystumenn flokksins þorðu ekki að láta fundinn taka afstöðu til þessarar tiljögu, heldur lögðu fram frávísunartillögu þess efnis að ástæðulaust væri að fjalla um bráðabirgðalögin þar eð miðstjóm- arfundurinn á Egilsstöðum hefði tekið skýra afstöðu til málsins og væri málið þar með afgreitt. For- ystumenn flokksins eru hinsvegar því miður iiia haldnir af minnisleysi því miðstjómarfundurinn á Egils- stöðum var haldinn í júlíbyrjun en bráðabirgðalögin voru sett, eins og fram kemur í tiliögunni, 3. ágúst, þ.e. mánuði eftir fundinn fræga á Egilsstöðum. Var minnislausum flutningsmanni frávísunartillög- unnar bent á þessa staðreynd og var frávísunartillögunni því breytt. Sú fádæma málsmeðferð sem fund- urinn lét viðgangast í málinu var ástæða þess að við gengum út, en ekki sú að við urðum undir í ein- hverjum atkvæðagreiðslum. Ég vil taka það skýrt fram að ég, ásamt fleiri flutningsmönnum Guðrún Kr. Óladóttir tillögu okkar, er algjörlega á móti uppbyggingu kjarasamnings BHMR og tek heilshugar undir þá skoðun fonnanns Alþýðubanda- lagsins að markaðslaunaþáttur kjarasamnings BHMR brjóti í bága við stefnu flokksins í kjaramálum. Formaðurinn hefur lýst því yfir að stefna flokksins byggist á mið- stjórnar- og landsfundarsamþykkt- um flokksins, ég ætla því að leyfa mér að grípa niður í síðustu lands- fundarsamþykkt flokksins, en þar segir m.a. um kjaramál: „Jafnlaunastefna er stefna Al- þýðubandalagsins. Fylgja þarf eftir þeirri hugsun sem fólst í samning- um BSRB (frá 1989, innskot höf- undar) en þar var áhersla á að hækka lægstu taxtana sett í önd- vegi. Sérstakt átak þarf að gera í málum hinna lægstlaunuðu og til að jafna þann mun sem er á launum karla og kvenna.“ Það er því hár- rétt hjá formanninum að kjara- samningur BHMR brýtur í bága við stefnu flokksins, en formaðurinn gleymir, eins og svo mörgu öðru, sínum eigin mikilvæga þætti í mál- inu, sem sé þeim að hann stóð sjálf- ur að gerð samningsins og kallaði hann þá tímamótasamning og við- hafði hástemmd lýsingarorð um ágæti hans. Á öðrum stað í þessari sömu landsfundarsamþykkt, og þar með stefnu flokksins, stendur skýrum stöfum: „Alþýðubandalagið mótmælir öll- um hugmyndum um að takmarka samnings- og verkfallsrétt launa- fólks. “ Það var því í fullu samræmi við stefnu flokksins sem við sjö- menningar lögðum fram tillöguna gegn bráðabirgðalögunum. For- maðurinn lét sér eftirfarandi setn- ingu um munn fara í fréttatíma ríkissjónvarpsins sl. sunnudag þeg- ar hann var spurður álits á útgöngu okkar félaganna: „Tel nauðsynlegt að þeir sem eru í flokknum fylgi stefnu flokksins. “ Það vildi ég óska að formaður Alþýðubandalagsins tæki þessi orð nú einu sinni til sjálfs sín, því ég hef hvorki heyrt sjálfa mig né aðra þá er að tillög- unni stóðu viðhafa nein þau orð eða athæfi sem ekki fellur að stefnu flokksins. Fyrir mér er samnings- rétturinn helgasti réttur launþega- hreyfmgarinnar, sá grundvöllur sem verkalýðshreyfingin byggir til- veru sína á. Samningsrétturinn kemur því ekkert við hvernig inni- hald einstakra kjarasamninga er, eða hvort einstaka kjarasamningur falli mér eða öðrum í geð. Síendur- teknum árásum á samningsréttinn verður að linna, ogþað verður fróð- legt að heyra í forystumönnum AI- þýðubandalagsins þegar t.d. Sjálf- Prófkjör sjálfstæðismanna á Reykjanesi: Kynning á Þresti Lýðssyni eftir Svölu Árnadóttur Þröstur fæddist í Reykjavík 20. desember 1955. Hann varð síðan stúdent frá Verslunarskóla íslands árið 1975. Var síðan í fyrsta hópn- um, sem útskrifaðist úr Útflutn- ings- og markaðsskólanum. Þröstur byijaði 11 ára gamall að vinna hjá Heklu hf., og vann þar alltaf með skólanum til ársins 1979. Það ár hóf hann störf, sem fram- kvæmdastjóri hjá Hilmari Helga- syni hf., og gegndi því starfi til ársins 1981. Frá þeim tíma hefur hann starfað sem framkvæmda- stjóri hjá heildversluninni Marinó Péturssyni hf., en heildverslunin flytur inn hráefni til byggingariðn- aðar. Þröstur og eiginkona hans, Klara Sigurgeirsdóttir, fluttu í Mosfells- bæinn árið 1979. Voru þau ein af þeim fyrstu sem keyptu sér íbúð hjá Byggung hf. Hafa þau búið í Brattholti 4a síðan. Þau eiga 3 börn 16, 13 og 8 ára. Þröstur hefur um árabil verið mjög virkur í félagsmálum og hvar sem hann kemur fylgir honum hress andblær. Það má segja að það sem hann tekur sér fyrir hendur vinnur hann ötullega að. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn hefur hann gegnt mörgum trúnaðarstörf- um og má þar m.a. nefna: Hefur verið í blaðnefnd Varmár, sem er blað sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, frá árinu 1918. Tvisvar sinnum í uppstillingamefnd og einu sinni í prófkjörsnefnd. Oft og iðu- FLUGLEIÐIR HLUTHAFAR FLU6LEIÐA Athugiö að forgangsréttur hluthafa fé- lagsins til að skrá sig fyrir nýjum hlutum rennur út 7. nóvember næstkomandi. Áskrift þarf því að berast aðalskrifstofu Flugleiða, Reykjavíkurflugvelli, eigi síðar en miðvikudaginn 7. nóvember. FLUGLEIÐIR HF. Svala Árnadóttir lega fundarstjóri á pólitískum fund- um og einnig leiðbeinandi varðandi fundarsköp á vegum Sjálfstæðisfé- lags Mosfellinga. Sat í stjórn Sjálf- stæðisfélags Mosfellinga árin 1987-1989. Valinn í stjórn hús- byggingamefndar er sá um bygg- ingu félagsheimilis sjálfstæðis- manna í Mosfellsbæ. Átti sæti í tómstundaráði Mosfellsbæjar á seinasta kjörtímabili og á nú sæti í húsnæðisnefnd á vegum Mosfells- bæjar. ' Félagsmál og íþróttir eru aðal- áhugamál Þrastar. í góðra vina hópi tekur hann gjarnan í gítarinn og er þá oft glatt á hjalla í kringum um hann. Atvinnuuppbygging — sérstak- lega iðnaðarmál — er sá málaflokk- ur, sem Þröstur leggur áherslu á. Svo vill hann gjarnan sjá rekstur hins opinbera rekinn eins og fyrir- tæki. Höfundur er fyrrverandi formaður SjálfsUeðisfélagsins í Mosfcllsbæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.