Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990
37
Engin ástæða er til
að leggja UMFI niönr
eftirÞóri
Haraldsson
Ungmennafélag íslands var
stofnað árið 1907 af framsýnum
mönnum sem sáu nauðsyn þess að
hin nýstofnaða félagsmálahreyfing
ungmennafélaganna hefði sam-
starfsvettvang sem næði yfir allt
landið undir kjörorðunum „ísland
allt“ og „Ræktun lýðs og lands“.
Forystumenn ungmennafélaganna
stóðu nokkrum árum síðar að stofn-
un íþróttasambands íslands í þeim
tilgangi að ÍSÍ yrði samstarfsvett-
vangur allra félaga sem stunduðu
íþróttir og því hvöttu þeir öll ung-
mennafélög til að gerast líka aðilar
að ÍSÍ, en á þeim árum voru ung-
mennafélögin nær eini félagsskap-
urinn sem stóð fyrir íþróttaiðkun í
landinu.
Bæði þessi samtök höfðu sinn
tilgang sem hlaut að skarast nokk-
uð en þar sem ungmennafélags-
hreyfingin sinnti þá mun fleiri
málefnum en íþróttum, og gerir
enn, þá var ÍSI í raun ætlað að
samræma þennan eina þátt af
starfsemi ungmennafélaganna og
ná til allra annarra sem íþróttir
stunduðu.
Rökin fyrir tilveru beggja þess-
ara aðila eru enn þau sömu og
voru þá, enda má sjá að í gegnum
tíðina hafa ungmennafélögin barist
fyrir mörgum þjóðþrifamálum og
ber þar hæst sjálfstæði íslensku
þjóðarinnar, fánamálið, varnir gegn
vímuefnum, landgræðslu og skóg-
rækt, umhverfismál hverskonar,
félagsmálafræðslu, leiklist, menn-
ingarstarf og margt fleira auk
íþróttanna. Ungmennafélögin voru
áður nefnd „félagsmálaskóli þjóð-
arinnar" og það er enn réttnefni
því ungmennafélögin hafa alla tíð
lagt mikla áherslu á félagsmála-
fræðslu, virkjun og þátttöku ungs
fólks í stjórnun hreyfingarinnar.
A síðari árum hefur íþróttastarf
ungmennafélaganna aukist mjög
og eflst og víða um landið er það
mest áberandi í starfi félaganna.
Ungmennafélögin eru líka oft einu
félögin á stórum svæðum sem sinna
íþróttastarfi og almennu félags-
málastarfi fyrir ungt fólk og einnig
fyrir hina eldri sem áhuga hafa. I
gegnum tíðina hafa ýmis félög ver-
ið stofnuð til að sinna ýmsum af
þeim málefnum sem ungmennafé-
lögin hafa einnig á stefnuskrá
sinni, t.d. skógrækt, bindindismál
og margt fleira. Oft hafa ung-
mennafélagar verið hvatamenn og
stofnendur slíkra félaga til að ná
til þeirra sem vilja einbeita sér að
hveijum málaflokki fyrir sig, en
ungmennafélögin hafa áfram sinnt
þessum málum, sum lagt þar aðalá-
herslur í starfi sínu, víða með mikl-
um dugnaði og hafa náð verulegum
árangri.
Margir sem ekki þekkja til, halda
að ungmennafélögin séu ekki í takt
við íslenskt nútímasamfélag. Sú
verulega fjölgun félga í ungmenna-
félögum um allt land, sem orðið
hefur á síðustu árum, sannar hins
vegar að svo er ekki. Nú eru aðild-
arfélög UMFÍ um 250 talsins með
um 42.000 félagsmönnum á öllum
aldri (skv. félagatali með kenni-
tölum), og hefur fjölgað úr 28.000
félögum frá.árinu 1987, eða 50%
á aðeins 4 árum. Þá má einnig
benda á að á síðustu árum er al-
menningur að vakna til vitundar
um að ýmis mál sem ungmennafé-
lögin hafa barist fyrir í fjölda ára
eru mál sem koma þeim við og
vert er að berjast fyrir bæði á inn-
lendum og erlendum vettvangi.
Sem dæmi um þetta má nefna
umhverfismál, skógrækt, land-
græðslu, nauðsyn á eflingu íslensks
atvinnulifs, kaupum á innlendri
framleiðslu og íþróttaiðkun al-
mennjngi til heilsubótar. Þessi
stefnumál ungmennafélaganna eru
í fullu samræmi _ við kröfur og
áhugasvið flestra íslendinga, enda
eru ungmennafélagar á öllum aldri,
í öllum starfsstéttum, með ólík
áhugamál, óháð flokkspólitík, en
sameinast í starfi ungmennafélag-
anna, sjálfum sér og öðrum til
hagsbóta. Þetta er ástæðan fyrir
því að ungmennafélögin eru síung
og hafa alla tíð verið í takt við
tímann án þess að missa sjónir á
grundvallaratriðum sem koma
þjóðinni allri til góða.
Laugardaginn 20. október birtist
í Morgunblaðinu grein eftir Ágúst
Ásgeirsson_ sem eitt sinn var for-
maður FRÍ, þar sem hann lýsir
þeirri skoðun sinni að sameina beri
ISÍ og UMFÍ hið allra fyrsta. Að
sjálfsögðu er honum heimilt, eins
og öðrum, að hafa sína skoðun á
þessu málefni eins og öðrum, og
koma þeim á framfæri ef honum
sýnist svo. Það er grundvöllur
fijálsra skoðanaskipta_ í lýðræð-
isríki eins og við teljum ísland vera.
Öðrum er þá jafnheimilt að hafa
aðra skoðun og lýsa henni eins og
ég hef gert hér í inngangi greinar
minnar, en ég get ekki látið staðar
numið við það, þar sem í grein
Ágústar kemur fra'm svo greinileg-
ur þekkingarskortur á uppbygg-
ingu ungmenna- og íþróttahreyf-
inganna í Iandinu að mér þykir
undrum sæta að hann hafi ein-
hverntíma verið í forsvari í íþrótta-
hreyfingunni.
Mér þykir því rétt að skýra þetta
mál fyrir þeim sem áhuga hafa,
um leið og ég geri athugasemdir
við ýmislegt í málflutningi hans í
nefndri grein.
Ágúst leggur til að þeir tveir
ágæti_smenn_ sem eru í forystu
UMFÍ og ÍSÍ setjist niður og sernji
um sameiningu þessara hreyfinga,
en reyndar kemur fram í greininni
að hann telur eðlilegt að UMFÍ
einfaldlega renni inn í ISI og ung-
mennafélagar sem áhuga hafa á
öðru en íþróttum leiti sér annars
samstarfsvettvangs fyrir áhugamál
sín.
Grundvallarmisskilningur hans
er sá að allt vald í ungmenna- og
íþróttafélögum kemur neðan frá,
frá félögunum sjálfum, á fundum
og þingum, en ekki er um að ræða
stjórnun ofan frá, frá stjórnum eða
formönnum eins og ráða má af
grein hans. Það eru því félagarnir
sjálfir sem ákveða stefnu og störf
félaganna og síðan_ héraðssam-
banda, sérsambanda, ÍSÍ og UMFÍ,
og kjósa stjórnir til að framfylgja
henni. Ef félagarnir eru óánægðir
með stefnuna þá breyta þeir henni
og ef þeir eru óánægðir með stjórn-
endurna þá skipta þeir um, og jafn-
vel fella þá í kosningum eins og
Ágúst ætti að vita.
Félögin og þau sambönd sem þau
ákveða að koma á fót og vera aðil-
ar að, eru í raun ekkert annað en
þjónustustofnanir til að sinna þörf-
um, óskum og störfum félaganna,
auk þess að samræma og skipu-
leggja starfið til að allt gangi
snurðulaust fyrir sig. Sé áhugi fyr-
ir hendi, sé þörf fyrir starfsemi
félags, hvort sem það er lítið ung-
mennafélag eða fjölmennt lands-
samband eins og UMFÍ, þá ákveða
félagarnir hvort þeir vilji að það
starfi áfram, sinni sínu hlutverki
af heilindum og ábyrgð og þjónustu
þá.
Það eru því félagarnir sem
ákveða hvort þeir vilji að til séu
UMFÍ og ÍSÍ, hvernig og að hverju
þau starfa, en fráleitt er að halda
að formenn þeirra, þótt báðir séu
ágætismenn, geti sest niður og
samið um að leggja niður heila
æskulýðs- og félagsmálahreyfingu
sem telur 42.000 félaga.
Ágúst taldi í nefndri grein að
við gætum dregið lærdóm af þeim
ánægjulegu breytingum sem orðið
hafa í Austur-Evrópu í lýðræðisátt,
og er ég sammála honum um að
ýmislegt má af þeim læra. Það ber
þó að varast að líta á breytingar á
einu sviði einhvers staðar í heimin-
um og ákveða að þess vegna skul-
um við hér breyta skipulagi á allt
öðru sviði, sem reynst hefur vel.
Lærdómur sá sem Ágúst vill til-
einka sér af lýðræðisbreytingunum
í austri er býsna merkilegur. Breyt-
ingar þar urðu vegna kröfu al-
mennings um aukið lýðræði og
Vélskóli íslands 75 ára:
Afmælisrit um vélskólamenntun
í TILEFNl af 75 ára afmæli
Vélskóla íslands hefur skólinn
gefið út bókina Vélstjóramennt-
un á íslandi eftir kennarann
Franz Gíslason sagnfræðing.
Afmælisfagnaður verður haldinn
laugardaginn 3. nóvember nk. Hát-
íðarhöld hefjast kl. 13.30 með sam-
komu í hátíðarsal Sjómannaskólans
en kl. 19.00 um kvöldið hefst af-
mælisskemmtun í Súlnasal Hótel
Sögu og verður kvöldfagnaðurinn
jafnframt árshátið Vélstjórafélags
íslands.
Stjórnvöld ákváðu 1911 að koma
á vélstjórafræðslu. Var hún starf-
rækt sem deild í Stýrimannaskólan-
um í Reykjavík 1912-14. Árið 1915
var svo stofnaður sérstakur tveggja
vetra skóli fyrir vélstjóra, Vélstjóra-
skólinn í Reykjavík. Nafni skólans
var svo breytt í Vélskólann í
Reykjavík. Árið 1966 er mótor-
námskeið Fiskifélags Islands sam-
einuð skólanum ásamt hluta af iðn-
námi vélvirkja. Námið tók fjóra
vetur og nafn skólans breyttist í
Vélskóli íslands.
Nemendur öðlast atvinnuréttindi
í fjórum þrepum sem kallast 1.-4.
stig. Árlega útskrifast 30-35 nem-
endur úr 4. stigi.
Núverandi skólameistari Vélskól-
ans er Andrés Guðjónsson.
Ný umferðarljós í Kópavogi
KVEIKT verður á nýjum um-
ferðarljósum á gatnamótum
Nýbýlavegar og Birkigrundar
(Hjallabrekku) fimmtudaginn 1.
nóvember nk.
Ljós þessi eru tímastýrð og sam-
stillt við umferðarljós á gatnamót-
um Nýbýlavegar/Túnbrekku og
Nýbýlavegar/Dalbrekku.
Ljósin verða umferðarstýrð frá
Laufbrekku og Birkigrund, hnapp-
ar eru fyrir gangandi vegfarendur
sem leið eiga yfir Nýbýlaveg. Frá
kl. 01.00 til 07.00 verða ljósin lát-
in blikka gulu og gildir þá bið-
skylda á Birkigrund og Hjalla-
brekku.
Þórir Haraldsson
„ Allt tal um sameiningu
UMFÍ og ÍSÍ, og að
UMFÍ skuli renna inn í
ÍSÍ, er því fráleitt á
meðan félagarnir og
iðkendurnir vilja hafa
þessar tvær hreyf ingar
aðskildar, og á meðan
þær sinna sínu hlut-
verki og þjónustu við
sína aðila með sóma.“
vegna þess að skipulagið þar skil-
aði ekki sínum tilgangi. Þess vegna
vill Ágúst að hér verði gengið í
þveröfuga átt, lýðræðið skuli ekki
ráða heldur eigi tveir menn að
ákveða hvernig allir félagarnir eigi
að hafa sitt skipulag og hvernig
það sé þeim fyrir bestu. Minn lær-
dómur er á allt annan veg; þetta
sýnir einmitt hvernig á að gera
hlutina, þ.e. að hafa lýðræðið í
hávegum, láta félagana. sjálfa ráða
en ekki fámennisstjórnir í líkingu
við þær sem búið er að steypa af
valdastólum víðast í Austur-Evr-
ópu. Það hefur verið einn mesti
styrkur ungmennafélags- og
íþróttahreyfinganna frá upphafi að
þær hafa fylgst með tímanum,
unnið að þeim málum sem félag-
arnir vilja og alla tíð haldið sínu
lýðræðislega skipulagi.
Eg vona hinsvegar að þeir aust-
urfrá eigi eftir að byggja upp öflug-
ar hreyfingar til að starfa að
íþrótta- og félagsmálum sem starfi
á lýðræðislegan hátt líkt og hér
hefur verið næstum alla þessa öld
og náð hafa miklum árangri til
hagsbóta fyrir íslensku þjóðina og
íslenskan æskulýð.
Ágúst nefnir einnig sparnað og
hagræði af því að leggja UMFI
niður, sem felist í minni skrifstofu-
kostnaði og færri fundum sem full-
trúar þurfa að sækja. í þessu sam-
bandi vil ég benda á að þrátt fyrir
tvöföldun á félagsmannafjölda inn-
an UMFÍ á sl. 12 árum hefur starfs-
mönnum ekki fjölgað, rekstar-
kostnaður hefur ekki aukist og
gjöld á félagsmenn hafa ekki auk-
ist. Þá vita allir að það getur verið
dýrt að starfa eftir leikreglum lýð-
ræðisins, ódýrara væri að fá bara
1-2 menn til að taka allar ákvarð-
anir og hlíta þeim. Þetta er hinsveg-
ar ekki það sem félagarnir vilja,
þeir vilja taka ákvarðanirnar sjálfir
og bera ábyrgðina þótt því fylgi
einhver kostnaður.
Allt tal um sámeiningu UMFÍ
og ÍSÍ, og að UMFÍ skuli renna inn
í ISI, er því fráleitt á meðan félag-
arnir og iðkendurnir vilja hafa þess-
ar tvær hreyfingar aðskildar, og á
meðan þær sinna sínu hlutverki og
þjónustu við sína aðila með sóma.
Sorglegt er að kappið hjá Ágústi
sé svo mikið að vanvirða þurfi
minningu svo mikilhæfs leiðtoga
sem Guðbrandur Magnússon var,
og gefa því í skyn að hann hafi
verið slíkur óheilindamaður að
vinna að því að leggja UMFÍ niður
meðan liann var formaður samtak-
anna. Hann, eins og margir aðrir
forystumenn ungmennafélaganna;
vann af heilindum að stofnun ÍSI
og hvatti ungmennafélög til að
ganga í ÍSÍ, en það hafði ekkert
með það að gera að leggja UMFÍ
niður.
Að lokum vil ég fagna því að
aukin opinber umræða verði um
störf og markmið ungmenna- og
íþróttafélaganna í landinu því þau .
vinna ómetanlegt starf í íslensku
þjóðfélagi, sem margir þakka og
fagna á hátíðarstundum, en muna
síður eftir þegar rætt er um fjár-
muni í nauðsynlega uppbyggingu
og rekstur þessa mikla starfs. Oll
umræða verður hins vegar að vera
byggð á þekkingu og skilningi á
eðli hreyfinganna og hinni lýðræð-
islegu uppbyggingu og störfum
þeirra.
Þessi félagasamtök, eins og
mörg önnur hafa ekki beitt slagorð-
um til að ná athygli almennings,
heldur hafa látið verkin tala og
lagt mikla vinnu á sig til að fjár-
magna það starf sem unnið er. Ég
vona að svo verði áfram, en jafn-
framt að störf ungmennafélags-
og íþróttahreyfinganna verið metið
að verðleikum í almennri umræðu
og áherslum stjórnvalda í uppbygg-
ingu og fjárveitingum. Þjóðfélags-
legt gildi þessa starfs er slíkt að
allt fjármagn og aðstoð við það
skilar sér margfalt aftur til þjóðfé-
lagsins sem betri heilsa, meiri af-
köst, færri vandamál og því auknar
tekjur.
Þar sem Ágúst Ásgeirsson, fyrr-
verandi formaður FRI, er einnig
blaðamaður á Morgunblaðinu vil
ég hér með bjóða honum að sitja
Sambandsráðsfund UMFÍ sem
haldinn verður 3. nóvember nk. í
Nesjaskóla, skammt frá Höfn í
Hornafírði, til að liann geti aflað
sér upplýsinga og kynnt sér af eig-
in raun hið þróttmikla starf sem
ungmennafélögin vinna.
Höfundur er varaformaður UMFÍ
ogerað Ijúka námi í lögfræði.
Nýja BAMBO baby-soft buxnableyjan er meira samanþjöppuð
og tekur þess vegna minna pláss í hilluhum.
Fjórar mismunandi stærðir, sem spanna allt bleyjutímabil
barnanna eru til. MAXI stærðin er síðan sérhönnuð í tvær
gerðir: Ein fyrir stelpur og ein fyrir stráka.