Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 25 Sovétlýðveldið Rússland: 500-daga áætlun um efnahagsumbætur hafin Moskvu. Reuter. STJORNVOLD í Rússlandi, stærsta .lýðveldi Sovétríkjanna, byrjuðu í gær að framkvæma eigin áætlun um róttækar efnahagsumbætur. Rússneska þingið samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að lýsa yfir því að lýðveldið hefði fullan ráðstöfunarrétt yfir auðlindum þess. Hvernig yfirráð auðlindanna nást er þó enn óljóst. „Ég held við getum sagt að við höfum byijað í dag. Ráðherrafundi, þar sem áætlanir um einkavæðingu stærstu viðar- og pappírsverksmiðja landsins voru íhugaðar, er nýlokið, - einkavæðing er þegar hafin,“ sagði aðstoðarforsætisráðherra Rúss- lands, Gennadíj Fílsjín í gær. Hann sagði að Rússar sæktust ekki eftir deilum við forseta Sovétríkjanna, Míkhaíl Gorbatsjov, en að vitað væri engu að síður að hraðar efna- hagsbreytingar myndu mæta mikilli mótstöðu meðal íhaldsafla innan af ráðuneytum Sovétstjórnarinnar Sovétstjórnarinnar. Rússneska þingið, sem lýsti yfir fullveldi lýðveldisins í júní síðastliðn- um, samþykkti að hefja 500-daga áætlun um efnahagsumbætur frá og með 1. nóvember. Þá tilkynnti þingið að Rússar myndu hefja við- ræður um efnahagssamvinnu við stjórnvöld annarra Sovétlýðvelda innan tíðar. Löggjöf, sem leyfír stofnun verð- bréfafyrirtækja og fjárfestingu út- lendinga, verður væntanlega sam- þykkt síðar í þessum mánuði. Norræna ráðherranefndin; Aukið atvinnufrelsi norræns háskólafólks FORMAÐUR norrænu ráðher- ranefndarinnar, Thor Pedersen, innanríkisráðherra Danmerkur, og sendiherrar Norðurlandanna í Kaupmannahöfn, skrifuðu í síðustu viku undir samning sem kveður á um starfsréttindi þeirra sem eiga að baki háskóla- nám eða annað þriggja ára nám á sviði æðri menntunar, að því er segir í fréttatilkynningu frá nefndinni. Nýi samningurinn gerir íbúum Norðurlanda kleift að hreyfa sig frjálst á milli landanna. Danskur lögfræðingur getur þannig stundað lögmannsstörf í Noregi eða Svíþjóð, finnskur endurskoðandi getur fengið starfsréttindi sín við- urkennd hjá stjórnvöldum í Dan- mörku og sænskur hagfræðingur getur sótt um stöðu hjá hinu opin- bera í Finnlandi. Samningurinn felur í sér að krafan um ríkisborgararétt í bú- setulandinu fellur niður. Stjórnvöld geta þó áskilið sér rétt til að láta landsmenn í einstök- um löndum ganga fyrir um stjórn- unarstöður hjá hinu opinbera, í réttarkerfinu, hjá her og lögreglu og annars staðar, telji þau að ör- yggi ríkisins krefjist þess. Samningur þessi er viðbót við samning sem þegar er í gildi á milli landanna um sameiginlegan vinnumarkað Norðurlandanna fyr- ir flesta starfshópa innan heil- brigðiskerfísins, dýralækna og kennara í grunnskólum og fram- haldsskólum. Þess er vænst að samningurinn taki gildi sumarið 1991 þegar gengið hefur verið frá nauðsyn- legri löggjöf varðandi hann í hinum einstöku löndum. Pakka tölvum í poppkorn Amsterdam. Reuter. HOLLENSKT tölvufyrirtæki hefur hætt að nota frauð- plast til pökkunar á tölvum og tölvuhlutum en notar þess í stað poppkorn. Þannig telur það sig leggja sitt af mörkum til umhverfisverndar. Talsmaður fyriitækisins, Corblan Intemational BV, sagði að byrjað hefði verið að nota poppkorn við pökkun fyrir þremur mánuðum og gefist vel. Það væri allt eins gott til síns brúks og frauðplast en af því væri engin mengun. Popp- kornið væri dýrara en það teldi fyrirtækið ekki eftir sér. „Svo borða sumir poppkornið þegar þeir taka upp úr pökkunum en við mælum ekki með því,“ sagði talsmaðurinn. 1990 8. nóvember kl. 20 1 1 Iðtgnttl M Metsölublaðá hvetjum degi! á Laugavegi 33, 2. hæð Það er ótrúlega mikið af eigulegu efni á Skífuútsölunni á efri hæðinni á Laugavegi 33. Plötur, geisladiskar og kassettur ’' á verði frá kr. 49,- Líttu við á Laugavegi 33, 2. hæð. S-K-l-F-A-N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.