Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 20

Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 Skerðingin á tekjustofnum kirkjunnar: Samræmist ekki sið- ferðisboðskap kirkjunn- ar að skerast úr leik - segfir fjármálaráðherra um gagn- rýni Olafs Skúlasonar biskups „ÉG TALDI að kirkjunnar menn vildu taka þátt í því endurreisn- arstarfi sem unnið er að í efna- hagsmálum. Lykillinn að árangri er að allir taki þátt og þess vegna hefur því miður orðið að grípa til niðurskurðar á fjárframlögum til menntamála, heilbrigðismála, byggðarlaga og opinberra fram- kvæmda svo dæmi séu nefnd. Ég hefði talið að það samræmdist ekki siðferðisboðskap kirkjunnar að skerast úr leik í þessum efn- um,“ segir Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra um gagn- rýni biskups á niðurskurð ríkis- valdsins á tekjustofnum kirkj- unnar, sem kom fram við setn- ingu kirkjuþings á þriðjudag. „Það kemur mér undarlega fyrir sjónir ef kirkjunnar menn ætla að vera þeir einu sem segja, ekki ég! Það samræmist a.m.k ekki því kristna hugarfari sem afi minn, sem var meðhjálpari í sóknarkirkjunni á Þingeyri í 40 ár, kenndi mér. En kannski er biskupinn með annað hugarfar en afi minn. Sá ágæti maður kenndi mér að kirkjan ætti að vera fremst í flokki þeirra sem vilja taka þátt í erfiðleikum, og síðust þeirra sem segja, ekki ég. Nú eru kannski aðrir tímar. Nú stendur kirkjan kannski fyrst og fremst í fjárfestingum," sagði fjár- málaráðherra. Ráðherra sagði að sú breyting sem gerð var með staðgreiðslukerf- inu fæli I sér að ríkið hafí tekið að sér að innheimta sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld. „Það er staðreynd að innheimtuhlutfallið í staðgreiðsl- unni er aðeins í kringum 95%, svo að eðli málsins samkvæmt ætti það sem skilað var til sókna og kirkna að vera í réttu hlutfalli við innheimt- una. Þá væri hin svokallaða skerð- ing í kringum 60 milljónir, eða meginhluti þeirrar upphæðar sem hér um ræðir,“ sagði ráðherra. „Það er grundvallarspurning hvort ríkið eigi að skila 100% til kirkjunnar þegar ekki innheimtast nema 95% gjaldanna. Mér hefði .fundist eðlilegt að kirkjan tæki mið af þeirri staðreynd, eins og aðrir, að innheimtuhlutfallið er ekki 100%. En biskup virðist vera að biðja úm 100% og er í reynd að biðja um 5% styrk umfram það sem innheimtist. Þótt það sé rétt sam- kvæmt lagatextanum þá er spurn- ing hvort það er eðlilegt eða sann- gjarnt sjónarmið. Hér er því um 20 til 30 milljónir að ræða af 1100 milljónum, sem væri þá framlag kirkjunnar í glímunni við efnahags- erfiðleikana í Jrjóðfélaginu, þegar búið er að taka tillit til innheimtu- hlutfallsins. Er það svo stór upphæð að ástæða sé til að flytja heilaga vandlætingarræðu á kirkjuþingi vegna þess? Það er satt að segja miklu lægri upphæð en flestir hafa lagt inn í þessa glímu,“ sagði Ólaf- ur Ragnar. Kvaðst hann einnig hafa orðið var við í viðræðum við ýmsa kirkj- unnar menn að það væri misjafnt hvernig einstakar sóknir ráðstafi þessum fjármunum. „Sumir nota þá til framkvæmda en aðrir virðast bara safna auði. Það væri fróðlegt að fá yfirlit yfir hvernig kirkjan ráðstafar þeim rúma milljarði sem hún fær á hveiju ári. Hluti hans rennur til kirkjugarðanna og Ólafur Skúlason biskup hefur verið í for- svari fyrir Kirkjugarða Reykjavík- ur. Hann hefur borið þá hugmynd upp við mig að þar væru fjárráð 'orðin svo mikil að rétt væri að allar jarðarfarir væru ókeypis. Fulltrúar einkaframtaksins í útfararþjónustu hafa komið til mín og kvartað yfír óeðlilegri samkeppni frá útfarar- þjónustu kirkjugarðanna, sem greinilega fái niðurgreiðslufé í gegnum opinber gjöld, og geti þess vegna boðið lægra verð. Þessi veru- leiki lítur talsvert öðrúvísi út eftir þeim erindum sem berast inn til fjármálaráðherra en málflutningur biskups á kirkjuþingi, sem mér fannst vægast sagt mjög sérkenni- legur fyrir mann í hans stöðu," sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra. Síðustu áldósirnar renna í pressu Hringrásar hf. 25 milljónir dósa hafa verið pressaðar þarna, en nú flyst þessi starfsemi til Endurvinnslunnar hf. Morgunblaðið/Sverrir Þarna bíða tvö þúsund tonn af brotajárni eftir að fara í skip til Asíu. Endurvinnslufyrirtækið Hringrás hf. hefur safnað járninu og flokkað það. Tvö þúsund tonn af brotajárni seld úr landi Eina leiðin til að losna við það, segir Sveinn Asgeirsson framkvæmdastjóri Hringrásar TVÖ þúsund tonn af brotajárni bíða þess nú á athafnasvæði endur- vinnsiufyrirtækisins Hringrásar hf. við Sundahöfn að verða skip- að út og seld úr landi, líklega til Asíu. Sveinn Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri Hringrásar segir að íslenska stálfélaginu hafi ver- ið boðið járnið til kaups, en svar hafi ekki borist og því sé ekki um annað að ræða en að selja það úr landi. Hringrás hf. er nú að vinna síðustu áldósirnar fyrir Endurvinnsluna hf., sem hefur tekið það verk til sín og hafa þá alls um 25 milljónir dósa verið únnar hjá Hringrás. Sveinn segir Hringrás hf. hafa en félagið hefur engu svarað enn- safnað þessu brotajárni, ásamt þá, sem er dálítið furðulegt," seg- ýmsum öðrum málmum, og flokk- ir Sveinn. Hann segir Hringrás að. Það sé á því endurvinnslu- safna brotamálmum á höfuðborg- stigi, að selja megi í bræðslu og arsvæðinu og víða um land og til mikil verðmæti í því falin. „Við þess hafí verið komið upp gáma- erum búnir að bjóða Stálfélaginu flutningakerfi. að kaupa þessi tvö þúsund tonn, Síðan byijað var að endurvinna áldósir hér á landi hefur Hringrás hf. séð um það verk, samkvæmt samningi við Endurvinnsluna hf. Á rúmlega einu og hálfu ári segir Sveinn að búið sé að taka við 500 tonnum af dósum og endurvinna, en það eru um 25 milljónir dósa. Hann segir Hringrás hafa keypt dósirnar af Endurvinnslunni, pressað þær og selt í bræðslu er- lendis. Hann segir 30 til 35 tonn af dósum falla til á mánuði. í dag, fimmtudag, verða að líkind- um unnar. síðustu áldósirnar hjá Hringrás, þar sem Endurvinnslan hf. hefur ákveðið að taka þetta verk að sér með eigin tækjabún- aði. Ellefu þúsund bindi bættust í Háskóla- bókasafn í fyrra ÁRSSKÝRSLA Háskólabóka- safns fyrir árið 1989 er nýkom- inn út. Þar kemur fram að rit- auki safnsins á árinu nam um 11 þús. bindum, þar af eru tímarit sem berast reglulega um 3.500. Heildarfjöldi binda í safninu er um 285 þúsund. Útlán á árinu voru um 31.500, en mjög mikið af ritum er notað á staðnum án þess að um gagnkvæm lán sé að ræða. Millisafnalán voru alls um 7.000, en þar er um gagnkvæm lán á ritum milli bókasafna að ræða eða útvegum ljósrita af greinum. Þarna er aðallega um viðskipti við erlend söfn að ræða. Þá voru gerðar um 100 heimild- arleitir í erlendum gagnabönk- um. í ársskýrslunni er lýst' þeirri áætlun sem háskólaráð gerði árið 1986 um eflingu safnsins á árunum 1987-89. Samkvæmt henni hafa kaup bóka og tírnarita tvöfaldast á þessu tímabili og starfsliði fjölgað nokkuð^ 18 stöðugildi eru nú við safnið. í skýrslunni segir enn frem- ur, að á þeim tíma sem áætlun háskólaráð var gerð hafi nýlega verið sett lög um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu og vonir því staðið til að byggingunni yrði lokið og hún tekin í notkun árið 1990. Efling safnsins var talin nauðsynleg m.a. til að búa það undir þau miklu umskipti sem yrðu með tilkomu bókhlöðunnar. Stjórn- völd skiluðu hins vegar ekki til byggingarframkvæmdanna nema hluta af því fé sem innheimtist sam- kvæmt umræddum lögum. Enn eru því nokkur ár, þar til búast má við að byggingin verði tilbúin. Þetta veldur safninu gífurlegum vand- ræðum og er um þriðjungur rita safnsins í geymslum úti í bæ, auk þess sem starfrækt eru 17 útibú utan aðalsafns. í ársskýrslunni er minnt á, að safnið verði 50 ára 1. nóvember 1990 og að á því ári hefjist tölvuvæðing á safnrekstrin- um sem valda muni byltingu í vinnubrögðum við aðföng og skrán- ingu og bæta verulega þjónustu við notendur. „ „ Ljósm.: Vignir A kápu Ársskýrslu Háskólabókasafns er mynd af Finnmörk, en svo var bókastofa heimspekideildar í Alþingishúsinu nefnd til heiðurs Finni Jónssyni prófessor sem gaf Háskóla íslands bókasafn sitt. Á myndinni eru þeir Pétur Sigurðsson háskólaritari (t.h.) og dr. Einar Ól. Sveinsson en hann annaðist bókasafn heimspekideildar nokkur ár. Myndin er iíklega tekin veturinn 1939-40. Kringlan: Kynna matar- gerð og framreiðslu KYNNING verður á störfum kjötiðnaðarmanna, matreiðslu- manna, bakara og framreiðslu- manna í Kringlunni í dag, fimmtudag, og á morgun frá kl. 13-19, og gefst almenningi þar kostur á að fylgjast með fagfólki að störfum. Á kynningunni munu kjötiðnað- armenn hluta skrokka, úrbeina kjöt og útbúa til matreiðslu, og mat- riðslumenn matriða krásir eftir kúnstarinnar reglum, en þeir skipt- ast á að sýna listir sínar klukku- stund í senn. Þá munu bakarar meðal annars sýna tertuskreytingar og marsipangerð, og framreiðslu- menn sýna hvernig leggja má ■ á borð og skreyta við hin ýmsu tæki- færi. JNNLEN-T

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.