Morgunblaðið - 01.11.1990, Page 46

Morgunblaðið - 01.11.1990, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1..NÓVEMBER 1990 © 1990 Universal Press Syndicate Það gleður mig, Gústi minn, að þér skuli líka samlokurnar mínar. Og hvernig hefur þú svo hugsað þér, Guðmundur, að koma þessu fyrir í frystikistunni. HOGNI IIREKKVISI íMímáM Hættum að gera kröfur - svar við bréfi einstæðrar móður Til Velvakanda. Ágætasta einstæða móðir. Vissulega má inargt betur fara í þessu þjóðfélagi svo einstæðir for- eldrar og þá sérstakiega einstæðar mæður þurfi ekki að lepja dauðann úr skel. T.d. er meðlagið sem feðrum er gert að greiða með börnum sínum til skammar fyrir þá og í engu sam- ræmi við það sem þarf til að fram- fleyta barni. Skattpíningin á ein- stæðum foreldrum er út í hött. Um þetta tvennt mætti skrifa heila opnu í Morgunblaðið — en þú talar um menntun. Ég veit það er sárt að hafa ekki tækifæri til menntunar. Þú kvartar yfir því að fá ekki lán sem geri þér kleift að lesa til stúdentsprófs. En þér eru margir vegir færir. I dag hefurðu möguléika á að stunda nám og vinna jafnframt fyrir þér og barn- inu þínu. Víst þarftu að leggja hart að þér. Þvi ráðlegg ég þér að skipu- leggja tíma þinn vel og gæta þess að eiga alltaf góðar samverustundir með barninu þínu. Þær stundir koma ekki aftur. Þú furðar þig eflaust á þessu svari mínu. Því ætla ég að segja þér í örfáum orðum frá mínum högum. I 20 ár hef ég verið einstæð móðir. ÞAKKIR Til Velvakanda. Mig langar til að biðja þig að koma á framfæri fyrir mig nokkrum þakklætisorðum. Það er nú svo, að því er frekar haldið á loft, sem miður fer heldur en hinu, sem vel er gert. Við hjónin ásamt vinahjónum okk- ar urðum þess aðnjótandi að dvelja í boði Gísla Sigurbjörnssonar í 10 daga í Ási í Hveragerði. Dvölin varð okkur mjög ánægjuleg og aðbúnaður allur frábær. Við vorum alls staðar boðin velkomin þegar vitað var að við vorum gestir Gísla. Má þar með- al annars nefna sundlaugina og þá ágætu aðstöðu, sem þar er. Margt eldra fólk hefur enga möguleika eða getu til að komast í vikudvöi í sumarhúsum félagasam- taka. Úr þessu bætir Gísli Sigur- björnsson og leggur lið eins og reyndar mörgum öðrum góðum mál- efnum. Þegar heim var komið ilmuðu rós- irnar, sem okkur voru færðar við brottförina frá Ási. Rósailmurinn minnir okkur á þann velvilja og hlý- hug sem við urðum aðnjótandi. Bestu þakkir. Ríigna H. Hjartar Þijú elstu börnin eru farin að heim- an og fengu góða menntun að vega- nesti út í lífið. í gegnum tíðina hef ég unnið ýmis „kvennastörf" og pen- ingalega séð Var lífið enginn dans á rósum. En það var ég sem bar ábyrgð á bömunum og uppeldi þeirra. Og í dag er ég svo stolt af bömunum mínum stóm og stolt af að hafa alið þau upp ein og óstudd. Ég segi þér þetta til að minna þig á að maður ber sjálfur ábyrgð á eig- in lífi. Ég bar ábyrgð á bömunum og það var skylda mín að koma þeim til manns — ekki þjóðfélagsins. í dag er ég komin á fimmtugsald- urinn og er að hefja nám. Bama- stúss er að mestu leyti að baki og ég get ekki lýst því hvað ég nýt þess að setjast loks á skólabekk. Við megum ekki gera sífelldar kröfur til þjóðfélagsins. Það leiðir til skattpíningar sem vinnandi fólk í okkar fámenna samfélagi stendur engin ADSTOÐ' ■ Scm „ ^ ég f* «nn j fLÍ, Msalcip>. barna- I is^nskra ivimsmann. >^r SÍ l'skóla. lært teirrus hr H ,i.v; s „im til stódentsprófs og P« hamið oe heimihð. UUt IS'IÍErt tilht ti. algert M * Atóðu. FéUgsmílastofnun linar ^ugaveikluð manneskja. lsss,íaaj=t Stfsfrsí'rt; . móður ^ er að reyna »«WygÖ ^ w rikrnn,. 4 -’ESSaSsssx iraðib. n greinum e. ekki undir. Hættum að væla öll í kór um að ráðamenn þjóðfélagsins eigi að gera þetta og hitt. Hættum að spyija: „Hvað getur þjóðfélagið gefið mér?“ Spyijum heldur: „Hvað get ég gefið þjóðfélaginu?" Ef okkur tækist að breyta þessum landlæga hugsunarhætti væri kannski von til að ráðamenn þjóðarinnar gætu rétt við þjóðarskútuna sem er okkar sam- eiginlega fley og við bemm öll ábyrgð á. „Gömul“ einstæð móðir Biðjið fyrir friði á írlandi Til Velvakanda. Ég hef í rúm 50 ár lesið Morgun- blaðið spjaldanna á milli — oft með trega, oft með gleði. Þar sem ég er nú, að því er virð- ist breskur þegn, því ég dirfðist að giftast þeim manni sem ég vildi eyða lífinu með, en við erum ekki ung lengur, nema í anda. Ástæða þess að ég minnist á þetta er sú að karlinn minn er írskur að upp- runa. Fæddur í Belfast. Það er, sem allir heijans árar ætli að reyna að svæfa þetta „heilaga", sem við köll- um hjónaband. Ég hef aldrei til írlands komið og veit því ekki af reynslu hvemig land og þjóð eru. Hins vegar á ég margar bækur sem segja frá ýmsum kynlegum hlutum þar í landi — auk þess sem bóndi minn hefur sagt mér frá sögu landsins — hörm- ungum þess og undraverðu skaplagi þessa fólks. Meginástæða þess, að ég rita þessar línur er: Hvers vegna írar vega íra eða írar vega Englend- inga. Hvers vegna kaþólskir vega þá sem ekki eru kaþólskir og öfugt. Þetta ónefnda stríð sem er svo öflugt og hroðalegt er háð í nafni hans sem elskar allt. Hvers vegna? Þó veit ég, að barátta góðs og ills í þessum heimi er svo óskapleg að fólki hlýtur að sundla. Samt sem áður eru írar afar gott og hjartahlýtt fólk. Þó eru illu heilli svo heiftúðúgar manneskjur til að þær hika ekki við að taka mannslíf. Ég veit að saga þessa lands er mörg hundruð ára gömul og ég rek hana ekki hér. Vil ég þó biðja ykk- ur, sem elska Jesúm, að biðja hann sem öllu ræður og sem hugar að hveijum einstakling alla tíma — biðjið fyrir friði á Irlandi. Guðlaug Skagfjörð SEFJUN Til Velvakanda. Sefjunin er orðin slík, hvað snertir hand- og fótbolta, að í þriðja sinn, sem nakinn maður hleypur inn á völl, sefur gæslan á verðinum. Ekki veit ég hvað viðkomandi beri maður ætlast fyrir á íþrótta- velli, fremur en ég veit hvað ber- strípaður listtúlkandi í Hallargarð- inum ætlaði sér í fyrra. Nýlistamað- urinn stóð þar röskar fjórar stund- ir. Enginn veitti honum athygli, því fleiri skemmtiatriði voru á dagskrá. Nema hvað loks gömul kona hringdi til lögreglunnar — af ótta við að beri maðurinn yrði innkulsa. Þetta veit ég, því gamla konan sagði mér þetta sjálf. Ekki hefur bandalag íslenzkra listamanna verið krafið um fjársektir útaf þeim bera manni. Persónulega finnst mér, að ör- yggisráð fótboltamanna ætti að refsa einhveijum öðrum völlum en íslandsvelli — útaf einum berum Guðrún Jacobsen manni! Yíkverji skrifar Fyrsti vetrardagur var helgaður íslenzkri tónlist á öldum ljós vakans, öllum útvarpsstöðvum landsins. Var þetta vel og voru þennan dag spilaðar fjölmargar plötur, sem sjaldan ef nokkurn tíma nú orðið heyrast í útvarpi. Sum lög- in voru kannski ekki ýkja merkileg, enda löngu fallin í gleymsku, og er það táknrænt fyrir tónlist, sem ekki er góð - hún gleymist. Þó get- ur verið gaman að spila þessa tón- list við tækifæri sem á fyrsta vetrar- dag, því að hún vekur upp gamlar minningar. Þannig var um eitt lag, sem Víkveiji heyrði þennan dag. Þetta var lagið „Ég vildi ég væri hænu hana grey“. Þetta lag hljómaði af rás 2 og virtist allt í lagi með plöt- una. Astæður þess, að Víkveiji undraðist, hve vel platan hljómaði var,að hann minntist þess að á æskuárum sínum var þetta lag allmikið spilað í nokkrar vikur, en þá barst fjöldi mótmæla frá hlust- endum, sem töldu að texti lagsins, væri leirburður, sem ekki ætti að flytja í ríkisútvarpinu. Og þá gerð- ist það, að einn þáttastjómandinn, Benedikt Gröndal, nú sendiherra, braut plötuna í beinni útsendingu, svona rétt tii þess að tryggja að hún heyrðist aldrei meir! Það er því kannski ekki skrýtið, að Víkveiji undrist nú rúmum 30 árum síðar, hvemig þáttastjórnend- ur hafi getað spila brotna plötu með jafnmiklum glæsibrag og gert var fyrsta vetrardag á rás 2. Raun- ar má og geta þess í þessu sam- bandi, að á hinni hlið plötunnar var Hreðavatnsvalsinn, ef Víkveiji man rétt. Sá góði vals hefur oft verið spilaður í útvarpið, en aldrei Hana- greyið, svo að Víkveiji hafi heyrt. xxx Nokkrir kunningjar Víkverja vom að ræða aðalfund mið stjórnar Alþýðubandalagsins og lýsti einn þeirra hvernig flokkurinn virtist vera að brotna upp í frum- eindir sínar. Úr hægri arminum kvamaðist brot, sem gengi í Al- þýðuflokkinn og vinstra megin kvamaðist einnig brot úr flokknum, sem væntanlega leitaði í eitthvert nýtt stjórnmálaafl til vinstri við Alþýðubandalagið. Ólafur. Ragnar Grímsson hefði lýst þessu bezt, er hann útskýrði, hvemig innan flokksins hefði myndast „breið miðja“. „Já“, sagði einn kunningj- anna, „lóksins skil ég hvað við er átt með orðinu miðflóttaafl!"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.