Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 51

Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 51 HANDKNATTLEIKUR B _ _ muiyuiiuiauiuMUMUo Pu ert ekki velkominn hér i gegn, Sigurður minn, gæti Guðmundur Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Víkingsliðsins, verið að segja við Sigurð Bjarnason í gær- kvöldi. Guðmundur og félagar stóðu upp sigurvegarar og hafa enn fullt hús stiga í deildinni. Stjarnan - Víkingur 22:23 íþróttahúsið í Garðabæ, íslandsmótið í handknattleik, 1. deild — VÍS-keppnin — miðviku- daginn 31. október 1990. Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 3:5, 5:5, 5:7, 7:9, 10:9, 11:11, 11:14, 13:16, 16:16, 16:19, 17:21, 19:23, 22:23. Mörk Stjörnunnar: Hafsteinn Bragason 5, Magnús Sigurðsson 5, Patrekur Jóhannesson 4, Sigurður Bjarnason 4, Axel Björnsson 2, Hilmar Hjaltason 2. Varin skot: Brynjar Kvaran 12/1. Utan vaílar: 2 mínútur. Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 5, Dagur Jónasson 5, Alexej Trúfan 4/1, Guðmundur Guðmundsson 3, Hilmar Sigurgislason 3, Birgir Sigurðsson 1, Karl Þráinsson 1, Ámi Friðeifsson 1. Varin skot: Hrafn Margeirsson 10, Reynir Þ. Reynisson 3. Után vallar: 10 mínútur. Áhorfendur: Um 500. Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson dæmdu vel. Góður sóknaríeikur Víkinga Víkingar hafa ekki enn tapað stigi í 1. deildinni. í gærkvöldi léku þeir trúlega besta leik sinn í vetur og tókst með því að leggja Stjörn- una að velli. Það var sérstaklega sóknarleikur Víkinga, sem var góður að þessu sinni, og vörnin var góð að venju — það gengur enginn í gegn- ■■■| um vörnina hjá Víkingum. Dagur Jónasson kom mjög sterk-' SkútiUnnar ur til leiks í síðari hálfleik, þegar hann kom inná. Hann Sveinsson skoraði fimm mörk auk þess sem hann varði glæsilega í s n,ar vöminni. Bjarki Sigurðsson er að komast í sitt gamla form og Trúfan var traustur þó svo hann hafi ekki átt neinn stjörnuleik. Það var oft gaman að fylgjast með sóknum Víkings. Eftir að leikkerfin fóru í gang stóðu allt í einu tveir fríir á miðri línu mótheij- anna og þá var ekki að sökum að spyrja. Stjörnumenn léku sem einstakl- ingar. Það vantaði allt samstarf hjá leikmönnum og hafa þeir oft leikið betur. Brynjar stóð þó fyrir sínu í markinu. Annars kom ágætur kafli hjá Stjörnunni í síðari hálfleik, þegar liðið var þremur mörkum undir. Magnús misnotaði vítakast, en heimamönnum tókst engu að síður að jafna metin. Víkingar hleyptu þeim þó ekki lengra, náðu forystunni aftur — og það dugði. Valur - KR ' 21:21 Gangujr leiksins: 1:0, 3:1, 4:4, 6:6, 9:9, 11:11 13:13, 16:16, 19:16, 20:17, 21:18, 21:21. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6, Jón Kristjánsson 5/1, Júlíus Gunnarsson 4, Jakob Sig- urðsson 3, Finnur Jóhannsson 2, Dagur Sigurðsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 17. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk KR: Páll Ólafsson (eldri) 10/1, Willum Þ. Þórsson 5, Sigurður Sveinsson 3, Konráð Olavsson 1, Páll Ólafsson (yngri) 1, Viðar Halldórsson 1. Varin skot: Leifur Dagfinnsson 21. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: GuðmundurKolbeinsson og Þorgeir Pálsson. Dæmdu vel. Áhorfendur: Um 100. " Fimmta jafntefli KR KR-ingar gerðu fimmta jafntefli sitt í 1. deild er þeir mættu Valsmönn- um að Hlíðarenda í gærkvöldi. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik. Páll Ólafsson (éldri) hélt KR-ingum á floti með mjög góðum leik. Hann skoraði 6 af fyrstu 8 mörkum KR-inga og átti slök Valsvörnin í miklum erfiðleikum með' að stöðva hann. Þeir brugðu á það ráð að taka Pál úr umferð en það hafði ekki tilætluð áhrif. Valsmenn réðu einnig illa við Leif Dagfinnsson í marki KR og varði hann hvert skotið á fætur öðru. Valsmenn náðu þó yfirhöndinni um miðbik síðari hálfleiks og þegar þijár mínútur voru eftir höfðu þeir þriggja marka forskot. Flest- ir gerðu ráð fyrir sigri Vals, en í lokin fór liðið illa að ráði sínu. Þrjú ótímabær skot Júlíusar færðu KR-ingum boltann og með mikilli baráttu tókst þeim að jafna. Þegar hálf mínútu var eftir fengu þeir tækifæri til að komast yfír en Einar varði skot Páls. KR-ingum tókst að stöðva sókn Vals og Leifur Dagfinnsson varði skot Júlíusar úr aukakasti á síðustu sekúndinni. KR-ingar börðust af miklum krafti og áttu líklega besta leik sinn í vet- ur. Páll og Leifur áttu frábæran leik og Willum var góður. Einar varði vel í marki Vals og Jón Kristjánsson og Valdimar áttu ágætan leik. Péturhi. Sigurðsson skrifar VlKINGUR 9 9 O 0 220: 184 18 VALUR 9 7 1 1 217: 193 15 STJARNAN 9 6 0 3 211: 202 12 KR 9 3 5 1 207: 200 11 UAUKAR 7 5 0 2 163: 162 10 FH 9 4 2 3 210: 205 10 KA 8 3 1 4 188: 174 7 IBV 8 3 1 4 195: 190 7 ÍR 8 1 1 6 174: 193 3 GRÓTTA 8 1 1 6 160: 180 3 fram 8 0 2 6 161: 190 2 SELFOSS 8 0 2 6 154: 187 2 Körfuknattleikur EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA Evrópukeppni bikarhafa: 2. umferð, síðari leikir: Zaragoza(Spá.)—Bayeruth (Þýsk.).lOl: 90 — Zaragoza sigraði samanlagt 195:180. Dyn. Moskva (Sov.)—Dozsa(Ung.) .113: 72 — Dynamo sigraði samtals 199:146. Hapoel Gatil (Isr.)—Slask (Póll.) 118: 95 — Hapoel sigraði samtals 227:179. Lahti (Finnl.)—Ovarense (Port.). 77: 75 — Ovarense sigraði samtais 161:154. Rauða Stj. (Júg.)—Pasahahre (Tyrk.)..86:76 — Rauða Stjarnan sigraði samtals 171:170. Sialonika (Grikk.)—Sunderland (Eng.) 97: 85 —~~Saicrmka:-~sigraðr • saintals" 198rl74- Verða 24 lið á HM á íslandi 1995? ALÞJÓÐA handknattleiks- sambandið, IHF, tók vei í hug- myndir um stofnun Evrópu- sambands á þingi sambands- ins á Madeira. Verði það að veruleika og Evrópukeppni landsliða komið á bendir alit til þess að liðum í úrslita- keppni Heimsmeistaramóts- ins verði fjölgað úr 16 í 20 eða 24. Evrópukeppnin verði þá jafnf ramt forkeppni fyrir HM og ámóta fyrirkomulag verði í öðrum heimsáifum, en b- og c-keppni lögð niður. Breytingin geturfyrst orðið 1995, en þá fer keppnin fram á íslandi. Evrópumót landsliða í hand- knattleik er í burðarliðnum og er stefnt að fyrstu úrslita- keppninni vorið 1994. Hugmyndir eru uppi um að þau átta lið, sem leika til úrslita, trvggi sér jafn- framt farseðilinn á HM. Þau flmm eða sex iið, sem verða næst því að leika til úrslita, fara einnig á HM auk efstu liða í forkeppni annarra heimsálfa. Ýmsar hug- myndir hafa komið fram og eru skoðanir skiptar um framkvæmd- aratriði, en almennur vilji virðist vera fyrir breyttu fyrirkomulagi. Handboltinn á mestu fylgi að fagna í Evrópu og því er talið eðlilegt að flest iiðin á HM séu frá Evrópu. Þetta er svipað fyrir- komulag og tekið var upp í knatt- spyrnunni fyrir Heinismeistara- keppnina á Spáni 1982, en þá var liðum fjölgað. Evrópukeppnin í handknattleik getur í fyrsta lagi byijað eftir HM í Svíþjóð, en þar verða 16 lið. Ef af verður kemur því fjölg- unin fyrst til framkvæmda hér á landi. FH - ÍBV 27:27 íþróttahúsið við Kaplakrika, íslandsmótið í handknattleik — VÍS-keppnin — miðvikudaginn 31. október 1990. Gangur leiksins: 3:2, 4:5, 5:9, 9:10, 10:13, 13:14, 15:14, 17:17, 20:17, 20:20, 22:22, 22:24, 24:24, 24:25, 25:25, 25:26, 26:26, 26:27, 27:27. Mörk FH: Guðjón Arnason 8/2, Óskar Helgason 7/2, Þorgils*Óttar Mathiesen 5, Pétur Petersen 3, Gunnar Beinteinsson 1, Magnús Einarsson 1, Sveinn Bragason 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15/1 (þar af 4 er knötturinn fór aftur til mót- heija), Bergsveinn Bergsveinsson 2 (þar af 1 er knötturinn fór aftur til mótheija). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 10, Sigurður Gunnarsson 7/2, Sigurður Friðriksson 5, Jóhann Pétursson 3, Haraldur Hannesson 1, Sigbjörn Óskarsson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 9/1 (þar af 2 er knötturinn fór aftur til mót- heija), Ingólfur Amarsson 6 (þar af 1 er knötturinn fór aftur til mótheija). Utan vallar: 2 minútur, og Sigmar Þröstur fékk rautt spjald í lok fyrri hátfleiks fyrir að bijóta á manni i hraðaupphlaupi og Sigurður Friðriksson fyrir mótmæli. Áhorfendur: 250. Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli Olsen. Þorgils Ottar jafnaði á síðustu stundu Þorgils Óttar Mathiesen jafnaði, 27:27, er 13 sekúndur voru eftir við mikinn fögnuð Hafnfirðinga. Leikurinn var kaflaskiptur og mikið um mistök. Liðin skiptust á að hafa forystu. Áberandi var hve bitlausari sókn FH-inga var vegna fjarveru Óskars Ármannssonar og Stefáns Kristjáns- sonar, sem báðir eru meiddir. Þessi spilamennska boðar Ágúst ekki gott fyrir Evrópuleikinn annað kvöld, gegn tyrknesku Ásgeirsson meisturunum — sem komnir eru til landsins og fylgdust skrifar með leiknum í gærkvöldi. Eyjamenn fóru mjög vel af stað, léku af miklum krafti, en þegar leið á fyrri hálfleik var eins og þeir misstu einbeitingu og heimamenn náðu að jafna. í seinni hálfleik gripu Eyjamenn til þess ráðs að taka Guðjón Árnason úr umferð og náðu við það frumkvæðinu, en FH-ingum tókst að jafna með gífur- legri baráttu undir lok leiksins. Eftir að Guðjón var tekinn úr umferð lék Þorgils Óttar á miðjunni fyrir utan; og í lokin snéri hann einmitt á vörn Eyjamanna, braust í gegn og skoraði af öryggi, jöfnunarmarkið. Úrslitin voru sanngjörn þegar á heildina er litið. Ikvöld Fjórir leikir eru á dagskrá í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. ÍBK fær Hauka í heimsókn til Keflavíkur, KR-ingar taka á móti Grindvíkingum í Laugardalshöll, Njarðvíkingar mæta Tindastóli í Njarðvík og loks eigast við Þór og Snæfell í íþróttahöllinni á Akur- eyri. Leikirnir hefjast allir kl. 20.00, svo og viðureign ÍS og ÍR í 1. deild kvenna, í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Jón Sveinsson. Jónmeðí Barcelona Jón Sveinsson leikur með Fram í síðari leik liðsins gegn Barcel- ona á miðvikudaginn. Leikurinn fer fram í Barcelona og Jón kem- ur frá Bandaríkjunum, þar sem liann stund.ar nám. „Hann flýgur til London og þaðan til Barcelona. Hann ætti að vera kominn þangað á sunnu- daginn og bíður eftir okkur þegar við mætum á mánudaginn,“ sagði Jóhann Kristinsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram. Pétur Ormslev og Viðar Þor- kelsson verða einnig með Fram en þeir voru í leikbanni í fyrri leik liðanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.