Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 52
M3? V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsmgamiöill! Morgunblaðið/Árni Sæberg VEL TIL VINA Það fer vel á með Sankti Bernharðs tíkinni Jósefínu og kindinni, sem nýlega varð á vegi hennar í girðingu í Kópavoginum. Vakti tíkin, sem er á við meðalkálf að stærð, ósvikna athygli kindarinnar, sem klifraði upp á girðinguna til þess að geta skoðað hana nánar. FIMMTUDAGUR 1. NOVEMBER 1990 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Tafír á við- ræðumum 'sölu á sfld FYRIRHUGUÐ för viðræðu- nefndar Síldarútvegsnefndar til Sovétríkjanna hefur frestazt nokkuð, en farið verður utan strax og Sovétmenn staðfesta viðræðufundi. Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra, segir það mat sitt að viðræður hefjist alveg á næstunni. Hann segir að unnið hafi verið að því eftir öllum leiðum að koma viðræðum á, bæði af hálfu stjórnvalda og salt- enda. Sovétmenn tilkynntu fyrir' ^iokkru að ekki yrði um nein salt- síldarkaup að ræða á þessari vertíð og að auki gætu þeir ekki staðið við samning frá síðustu áramótum um kaup á 50 þúsund tunnum í haust. Ljóst er að engar beinar við- ræður um sölusamninga á saltsíld hefjast fyrr en gerður hefur verið viðskiptasamningur milli þjóðanna og hefjast' þær viðræður væntan- lega á ný um miðjan mánuðinn. Viðræður í Moskvu um saltsíld munu því snúast um fyrrnefndar þúsund tunnur. Skot í Skaftá LEITARMENN í eftirleit sem flugu yfir Skaftá í gær urðu var- ir við brennisteinsfnyk og sáu að jökullitur var kominn á ána í gær. aö sögn oddsteins Kristjánsson- Endurskoðun almennu kjarasamninffanna: ar bonda í Hvammi virtist sem litið 1 --------------------ös--------------------- hlaup væri í ánni síðustu daga en nú væri það í rénun. Hækkun á olíu frestað OLÍUFÉLÖGIN hafa ákveðið að fresta beiðni um hækkun á verði gasolíu um sinn, en nýir gasolíufarmar koma til landsins i þessum mánuði. Farmar af svartolíu og bensíni koma einnig til landsins í mánuðinum, en að sögn Bjarna Bjarnasonar, markaðs- stjóra hjá Olíufélaginu hf., mun verð á þessum tegundum ekki hækka á næstunni. Líkleg krafa um kauphækk- un vegna gjaldskrárhækkana LÍKLEGT er að krafa komi fram um almenna launahækkun vegna boðaðra gjaldskrárhækkana ríkisstofnana á næsta ári, í endurskoð- un á kjarasamningunum sem fer fram í þessum mánuði. Þetta kom fram hjá Ara Skúla- syni hagfræðingi hjá Alþýðusam- bandi Islands á ráðstefnu Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga iim fjárlagafrumvárþið í gær. I frumvarpinu er boðuð 4% hækkun á verðskrám Ríkisútvarpsins, 8% hækkun á gjaldskrá Pósts og síma, 8% hækkun á áburði og 7% hækk- un á sementi. Gert er ráð fyrir 7% verðbólgu í frumvarpinu. Ari sagði að í febrúarsamning- unum á þessu ári hefði verið miðað við stíft aðhald í verðskrám opin- berra fyrirtækja, og á síðustu mánuðum hefði fyrirtækjum verið Vextir hjá íslandsbanka hækkaðir um 0,5-2% í dag BANKARÁÐ íslandsbanka ákvað í gærmorgun að hækka vexti um 0,5-2% og helstu vextir verða því hinir sömu og þeir voru í sumar til 1. október, þegar þeir lækkuðu. Rfignar Önundarson framkvæmda- stjóri hjá Islandsbanka segir að vaxLalækkunin 1. október hafi verið rótímabær. „Vextir verða ekki lækkaðir með handafli, svoleiðis lækk- anir standast ekki ef efnahagslegar forsendur eru ekki fyrir hcndi. Það má segja að hafi verið um síðustu mánaðamót, því að þá þegar var orðið ljóst að verðbólga færi aftur vaxandi siðustu mánuði árs- ins og því væru ekki efnisleg rök fyrir þessari lækkun sem þá var knúin fram,“ segir hann. Helstu vextir íslandsbanka verða því sem hér segir: Forvextir af víxlum 13,75%, almenn skuldabréf B-flokkur 14,25%, sértékkareikn- ingar 3%, almennar sparisjóðsbæk- ur 3%. I kjölfar þjóðarsáttarsamning- anna í febrúar síðastliðnum náðist samkomulag milli bankanna og að- ila vinnumarkaðarins um að vextir skyldu ákvarðaðir með hliðsjón af lánskjaravísitölu næstliðins mánað- ar og áætlaðri lánskjaravísitölu næstu tveggja mánaða hveiju sinni. Eftir þessu segir Ragnar að vextir hafi verið lækkaðir fram í aprílmán- uð, þeir hafi síðan staðið óbreyttir til 30. september. Verðbólgan, mæld eftir þessari aðferð, segir Ragnar að hafi fyrir mánuði verið 3,6% en sé núna 5-7% eftir því hvort áætlað sé að olíu- verðshækkun hafi áhrif á laun og þar með á launa- og lánskjaravísi- tölu. „Það er orðið ljóst núna, að vaxtalækkunin 1. október var ótímabær vegna þess, að í október- bytjun tók að gæta útlánsaukningar umfram innlánsaukningu og það leiddi þegar til versnandi lausafjár- stöðu innlánsstofnana í mánuðin- um. Það er snögg og veruleg breyt- ing í átt til þenslu, vegna þess að þegar bankar lána meira en þeir fá inn, veldur það þenslu. Fleiri þættir en vextir hafa þarna áhrif, en þó er ljóst að vextir hafa aðhalds- hlutverki að gegna, ekki síst þegar á miklu veltur að komið sé í veg fyrir þenslu,“ segir Ragnar Önund- ítrekað bent á að þau væru í nýju rekstrarumhverfi vegna hjöðnunar verðbólgu og ættu að miða verð- hækkanir við það. En boðaðar gjaldskrárhækkanir ríkisins, og fyrirhuguð 9-10% hækkun bensín- gjalds umfram verðbólgu, bentu til þess að ríkisstjórnin ætlaði ekki að taka þátt í þjóðarsáttinni öllu lengur. Már Guðmundsson efnahags- ráðgjafi íjármálaráðherra sagði á ráðstefnunni að þessar fyrirhugðu gjaldskrárhækkanir væru miðaðar við allt næsta ár og i tveimur til- fellum væri hækkunin örlítið um- fram verðlagsforsendur. Már sagði einnig, að til lengdar væri það ekki heppileg aðferð að ná niður verðbólgu með hallarekstri ríkis- sjóðs, og OECD varaði m.a. við því. Hann sagði, að þegar tekið væri tillit til bensíngjalds, væru verðhækkunar áhrif fjárlagafrum- varpsins um 1/2%. FRÁ OG með 1. nóvember verður verðlag Morgun- blaðsins sem hér segir: Mánaðaráskrift kr. 1100. Grunnverð dálksentimetra auglýsinga kr. 725 á virkum dögum, en kr. 760 á sunnu- dögum. I lausasölu kr. 100 eintakið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.