Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 31
MORGtíNfeLAÐÍÍ) LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
31
Heima er best
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Rekin að heiman („Where
the Heart Is“). Sýnd í Laugar-
ásbíói. Leikstjóri: John Bodr-
man. Aðalhlutverk: Dabney
Coleman, Uma Thurman, Suzy
Amis, Joanna Cassidy, Chri-
stopher Plummer.
Efnishyggjan og sambands-
leysið innan fjölskyldunnar, til-
ætlunarsemi barnanna, fiiTÍngin
í hjónabandinu, kynslóðabilið,
sumsé afvegaleitt miðstéttarlífið
í stórborginni, er viðfangsefni
leikstjórans John Boorinans í
nýjustu mynd hans, Rekin að
heiman.
Það er sannarlega metnaðar-
full mynd sem hefur allar réttu
meiningarnar og hjartnæman
boðskap fram að færa en frá-
sagnaraðferðin sem valin til að
segja frá, farsaleikurinn, er í
höndum leikstjórans bæði þreyt-
andi og ófyndin.
Boorman („Deliverance", Von
og Vegsemd) er öflugur leik-
stjóri hvort sem hann er að fjalla
um harkaleg samskipti mannsins
við náttúruna eða glimrandi
skemmtilega æsku sína í seinna
stríðinu, en hér bregst honum
bogalistin.
Myndin segir frá fjölskyldu-
föður sem orðinn er þreyttur á
að hafa uppkomna krakkana
sína á heimilinu en af hveiju
kemur aldrei fram í myndinni.
Svo hann rekur þá að heiman
til að standa á eigin fótum en
tryggir þeim húsnæði og þangað
safnast vinir þeirra og úr verður
nútímalegt kommúnulíf lista-
manna, róna (Plummer óþekkj-
anlegur i lítilli rullu) og áhuga-
manna um yfirskilvitleg efni.
Þegar verður hrun á verðbréfa-
markaðnum missir faðirinn
aleiguna og sameinast aftur
börnunum sínum en af því svona
myndir mega ekki enda ilia er
hnýtt lagleg, lítil og algerlega
ósannfærandi slaufa í endann.
Það er skrautlegur mannsöfn-
uður í myndinni en samt furðu-
lega óspennandi. Eins og í
síðustu mynd sinni fjallar Boor-
man um stóra fjölskyldu en hér
er ólíku saman að jafna. Fai’sa-
kennt handritið, sem reynir mik-
ið að vera skoplegt án árangurs,
ristir aldrei djúpt; oft er það
hreinlega vitleysislegt og brand-
ararnir falla flatir. Boorman hef-
ur áður gert slæmar myndir
(„Exorcist 11“ er ein) en yfirleitt
eru þær þrælgóðar og vonandi
er þessi aðeins ein af fáum und-
antekningum.
REYKNESINGAR!
Tryggjwn Þresti Lýðssyni glæsilega kosningu
í 6. sœtið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Þröstur er vanur að vinna, vanur að stjórna
og óhræddur að takast á við ný verkefni.
Þröstur er okkar^maður!
STUÐNINGSMENN
Kauptu beintjrá byggingaraöilanuni - engjr miMtíöir
■ Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá framboðið af einbýlishúsum, raðhúsum og íbúðum, - og ef þú leikur golf, þa eru hér tveir golfvellir - þeir bestu á Spáni!
EINSTAKT TÆKIFÆRI Við útvegum bankaábyrgð á byggingartímanum.
Ef þú ákveður þig í þessum mánuði þá býðst5% afsláttur af heildarverðinu. 1 5ára ábyrgð á húsnæðinu.
TOPINVEST INTERNATIONAL HB TORRE-BEACH INTERNATIONAL S.A.
ÞU
ÆTTIR ÞÁ
AÐ KOMA
A SYNINGU
OKKARÁ