Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
25
Bandaríkin:
Margir per-
sónuleikar
báru vitni
Oshkosh, Wisconsin. Reuter.
MARK Peterson, 29 ára gamall
verslunarmaður, var á fimmtudag
fundinn sekur fyrir bandarískum
rétti um að hafa nauðgað einu af
46 „sjálfum" 27 ára gamallar konu
með rofinn persónuleika. Málið er
talið munu hafa bæði lagalegt og
geðlæknisfræðilegt fordæmis-
gildi.
Peterson var fundinn sekur um
að hafa nauðgað einum af aðskildum
persónuleikum konunnar — léttúðug-
um — sem hann kallaði vísvitandi
fram í því skyni að færa sér í nyt
sjúkleika konunnar. Kviðdómurinn
tók sér sex klukkustundir til að kveða
upp sektarúrskurðinn. Peterson
sagði að hann mundi áfrýja úrskurð-
inum. Saksóknarinn í málinu, Joseph
Paulus, sagði að úrskurðurinn væri
sigur fyrir lagalega stöðu fólks sem
væri andlega vanheilt. „Úrskurður-
inn er til vitnis um að fólk með rof-
inn persónuleika nýtur sömu borg-
araréttinda og aðrir þegnar lands-
ins,“ sagði hann á fundi með frétta-
mönnum.
Málið hefur vakið athygli meðal
lögmanna og geðlækna um allan
heim. Það getur orðið stefnumark-
andi í réttindamálum andlega van-
heils fólks og haft fordæmisgildi um
það hvers konar vitnaleiðslur eru
leyfðar-fyrir rétti.
Meðan á réttarhaldinu stóð voru
nokkrir af persónuleikum konunnar
kallaðir í vitnastúkuna og látnir
sveija eið að framburði sínum hver
fyrir sig. Um leið og konan fór úr
einni pérsónunni í aðra, breyttist
rödd hennar og látæði.
03) HONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Verð frá 799.000,- stgr.
Fallegt
útlit og frá-
bærir eiginleikar
prýða þennan vinsæla
bíl, sém fæst nú með
auknum búnaði.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi,
t.d. 25% útborgun og mismunurinn
lánaður í allt að 36 mánuði á bankakjörum.
Við tökum góða notaða bíla upp í nýja og lán-
um jafnvel mismuninn.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA l
REYKJANESKJÖRDÆMI 10. NÓVEMBER 1990
SIGURÐUR HELGAS0N
Framboð Sigurðar Helgasonar er einfalt, látlaust og
lýðræðislegt. Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi eru
beðnir um að kynna sér starf hans og reynslu á liðnum
áratugum, jafnt á sviði lögmennsku sem stjórnmála.
Það er kjósenda að ákveða röð á framboðslistann.
Sigurður er reiðubúinn til hvaða sætis sem er.
STUÐNINGSMENN SIGURÐAR HELGASONAR