Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
41
Minning:
Magnús Ingimund-
arson, Keflavík
Fæddur 2. mars 1936
Dáinn 2. nóvember 1990
Okkur langar með fáeinum orðum
að kveðja góðan vin, Magnús Ingi-
mundarson, sem lést eftir hetjulega
baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Magga á Skarði, eins og Bjarn-
firðingar kölluðu hann, gátum við
treyst til þess að hjálpa og gefa góð
ráð. Eftir að fjölskylda okkar fluttist
á Suðurnesin var hann okkur innan
handar. Alltaf voru móttökurnar
hlýjar hjá Magga og Dísú á Heiðar-
veginum. Mörg voru kvöldin sem við
sátum yfir spilum og umræðurnar
voru líflegar. Það var ósjaldan sem
stríðnisglampi kom í augu Magnúsar
og hann sagði einmitt það sem kall-
aði fram mestu viðbrögðin. Við mun-
um sakna þessara kvölda og margra
góða eiginleika í fari Magnúsar sem
. komu fram þegar hann var að leik
og störfum. Hann undi sér best þeg-
ar hann var hvað uppteknastur og
hafði margt fyrir stafni. Samt sem
áður sóttist hann eftir árlegri dvöl
í Bjarnarfirði þar sem rætur hans
og okkar voru og tilfinningabönd
sterkust.
Blessuð veri minning hans.
Við vottum Dísu, börnum, barna-
börnum, móður og systkinum Magn-
úsar okkar dýpstu samúð.
Bjarni, Sara og dætur.
Fyrir tæpri viku barst mér sú frétt
að fyri'verandi sveitungi minn og
nágranni, Magnús Ingimundarson
frá Skarði í Bjarnarfirði á Ströndum,
væri látinn langt fyrir aldur fram.
Ég hrökk óþægilega við. Að vísu
vissi ég að hann hafði verið sjúkur
að undanförnu en ekki bjóst ég við
að kallið kæmi svo skjótt.
Fundum okkar hefur ekki borið
mikið saman undanfarin ár vegna
búsetu okkar. Ótrúlega stutt finnst
mér síðan hann flutti suður með fjöl-
skyldu sinni, en þegar betur er að
gáð eru það nærri tveir áratugir.
Ég vil með fáeinum orðum minn-
ast þessa granna míns.
Magnús var fæddur 2. mars 1936
og var því aðeins 54 ára er hann
féll frá. Hann var sonur Njólu Dags-
dóttur og Ingimundar_ Magnússonar
sem lengi bjuggu á Asmundarnesi.
Það er ekki ætlan mín að rekja
æviferil Magnúsar. Það munu aðrir
gera sem betur þekkja til.
Ég þekkti hann Magga á Skarði,
eins og hann var alltaf kallaður,
býsna vel á ákveðnu aldursskeiði
mínu/Hann bjó á Skarði frá 1958
til 1971, og ef föður mínum hefði
að yersna og var síðustu vikurnar
alveg á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum.
Fékk hún þar mjög góða aðhlynn-
ingu og síðustu vikuna voru börnin
einnig hjá henni til skiptis. Hún lést
1. júní og var jarðsungin 8. júní frá
Egilsstaðakirkju.
Ég vil að leiðarlokum þakka
tengdamóðui' minni allt það sem hún
vat' mér og mínum börnum og bið
Guð að blessa minningu hennar.
Guðný Kristjánsdóttir
enst heilsa hefði hann skrifað um
þennan nágranna sinn kveðjuorð.
Foreldrar mínir vilja að það komi
fram, að þau Skarðshjón, Maggi og
Dísa, hefðu verið góðir grannar.
Maggi var greiðvikinn og hjálpsam-
ur, og ætíð fljótur til aðstoðar ef
þörf var á. Og oft var til hans leit-
að. Hann var drífandi í öllu sem
hann kom nærri og þau þakka hon-
um ánægjulega samfylgd í Bjarnar-
firði.
Hann gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum í sveit sinni. Vat' m.a. í
bygginganefnd skólans að Laugar-
hóli, formaður skói.anefndar og í
stjórn Kaupfélags Steingrímsfjarðar
svo fátt eitt sé nefnt. Þá má ekki
gleyma því að hann var um árabil
veghefilsstjóri og þurfti að annast
veginn inn að Brú í Hrútafirði.
Hann var dugmikill félagsmála-
maður og ætíð var eitthvað að get'-
ast þar sem hann var nærri.
I hugskoti mínu geymast þær
ntinningar um Maggá, að hann var
skemmtilegur félagi. Alltaf var kæti
og hressileiki þar sem hann fór.
Hann gat verið stríðinn og uppátekt-
arsamur og það kunnum við yngri
strákamir vel að meta. Aðgerðaieysi
og lognmolia var honum örugglega
lítt að skapi.
Hin síðari ár bar fundum okkar
Magga sjaldnar saman en áður. Við
hittumst nánast af tilviljun norður í
Bjarnarfirði öðru hvetju eftir að þau
hjón fluttu suður.
Ég vil ljúka þessum fátæklegu
minningarorðum með þeirri ósk að
Guð styrki þig, Dísa min, og ykkur
öll í sorg ykkar. Hafið hugfast að
minningin um góðan dreng verður
ekki frá okkur tekin þó hann hverfi
af sjónarsviðinu.
Ingimundur Ingimundarson,
Borgarnesi.
Auglýsing um prófkjör
í Reykjaneskjördæmi
Atkvæðaseðill
í prófkjöri Sjálfstæðisfiokksins i Reykjaneskjördæmi 10. nóvember
1990.
Kjósa skal 7 frambjóðendur hvorki fleiri né færri. Skal það gert
með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn þeirra frambjóðenda
í þeirri röð, sem óskað er að þeir skipi framboðslistann. Þannig
að talan 1 skal sett fyrir framan nafn þess frambjóðanda, sem
óskað er að skipi fyrsta sæti framboðslistans, taian 2 fyrir fram-
an nafn þess frambjóðanda, sem skipa skal annað sætið, talan
3 fyrir framan nafn þess, sem skipa skal þriðja sætið o.s.frv.
Sigríður A. Þórðardóttir, kennari, Mosfelli, Mosfellsbæ.
Árni Ragnar Árnason, fjármálastjóri, Vatnsvegi 22 A, Keflavík.
Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, Stekkjarflöt 14, Garðabæ.
Guðrún Stelfa Gissurardóttir, nemi, Hamraborg 36, XLópavogi.
Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, Reykjahlíð, Mosfellsbæ.
Þröstur Lýðsson, framkvæmdastjóri, Brattholti 4A, Mosfellsbæ.
Lilja Hallgrimsdóttir, húsmóðir, Sunnuflöt 9, Garðabæ.
Viktor B. Kjartansson, tölvunarfræðingur, Heiðarhvammi 9, Keflavík.
Hreggviður Jónsson, alþingismaður, Daltúni 30, Kópavogi.
Árni M. Mathíesen, dýralæknir, Suðurbraut 10, Hafnarfirði.
María E. Ingvadóttir, viðskiptafræðingur, Vallarbraut 20, Seltjarnamesi.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur, Brekkutúni 7, Kópavogi.
Sigurður Helgason, viðskipta- og lögfræðingur, Þinghólsbraut 53 A, Kópavogi.
Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, Heiðvangi 60, Hafnarfirði.
Lovísa Christiansen, innanhúss arkitekt, Kirkjuvegi 15, Hafnarfirði.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi um val
frambjóðenda á framboðslista flokksins við næstu alþingis-
\ kosningar í Reykjaneskjördæmi fer fram laugardaginn 10.
nóvember.
Kosning fer þannig fram, að setja skal tölustaf fyrir framan
nöfn frambjóðenda í þeirri röð, sem óskað er að þeir skipi
framboðslistann.
Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóð-
anda, sem óskað er að skipi fyrsta sæti framboðslistans,
talan 2 fyrir framan náfn þess frambjóðanda sem óskað
er að skipi annað sætið, talan 3 fyrirframan nafn þess sem
skipa skal þriðja sætið o.s.frv.
Kjósendur eru beðnir að athuga að kjósa skal 7 frambjóð-
endur, hvorki fleiri né færri, með því að setja tölustafi við
nöfn þeirra, sem þeir óska að skipi 1., 2., 3., 4., 5., 6. og
7. sæti framboðslista flokksins við komandi alþingiskosn-
ingar. Kosning fer fram laugardaginn 10. nóvember og er
aðeins kosið þann dag, en fram til prófkjörsdags fer fram
utankjörstaðakosning í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl: 9.00-
17.00 alla virka daga, í Kópavogi, Sjálfstæðishúsinu,
Hamraborg 1, kl. 17.30-19.00 og íSjálfstæðishúsinu, Hring-
braut 92, Keflavík, kl. 17.30-19.00
Laugardaginn 10. nóvember verður kosið á eftirtöldum
stöðum:
Seltjarnarnesi: Sjálfstæðishúsinu, Austurströnd 3, kl. 9.00-20.00.
Mosfelfsbæ: Hlégarði, kl. 9.00-20.00.
Kjalarnesi: Fólkvangi, kl. 9.00-20.00.
Kjósarhreppi: Ásgarði, kl. 13.00-20.00.
Kópavogi: Sjálfstæðishúsinu, HamXLaborg 1, kl. 9.00-20.00.
Garðabæ: Sjálfstæðishúsinu, Lyngási 12, kl. 9.00-20.00.
Bessastaðahreppi: íþróttahúsinu, kl. 9.00-20.00.
Hafnarfirði: Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu, kl. 9.00-20.00.
Vogum: Iðndal 2, kl. 9.00-20.00.
Grindavík: Festi, kl. 9.00-20.00.
Njarðvík: Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, kl. 9.00-20.00.
Keflavtk: Iðnsveinafélagshúsinu, Tjarnargötu 7, kl. 9.00-20.00.
Sandgerði: Tjarnargötu 2, Sandgerði, kl. 9.00-20.00.
Garði: Samkomuhúsinu, kl. 9.00-20.00.
Kosningu lýkur kl. 20.00 á öllum kjörstöðum.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi.
Athugið að kjósa skal 7 aðila hvorki fleiri né færri.
María E. Ingvadóttir
Sveinn Hjörtur Hjartarson Sigurður Helgason
Kolbfún Jónsdóttir
Lovísa Christionsen