Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 42
42 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hæfileiki þinn til að sjá hlutina í samhengi þjálpar þér núna til að gera áætlanir til langs tima. Þú getur unað vel við þann árang- ur sem þú hefur náð í starfi þínu undanfarið. Naut (20. apríl - 20. maí) Óþarfa viðkvæmni kemur í veg. fyrir að þú vinnir með fuilum aflcöstum fyrri hluta dagsins. Þetta lagast þegar líður á daginn og þú hefur ákveðið hvemig bregðast skuli við ákveðnum vandamálum. k—------------------------ Tvíburar (21. maí - 20. júni) 1» Segðu ekkert sem sært getur annað fólk. Þú færð mikilvægan stuðning frá vinum þínum. Kvöld- ið kemur þér þægilega á óvart. Krabbi (21. júní - 22.. júlí) Það gætir ákveðins kæruleysis hjá þér fyrri hluta dagsins, en í dag eru ástvinir óvenju nálægir hveqir öðrum. Einhleypingar færast sumir skrefi nær því að hnýta tryggðabönd. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) íEinn ættingja þinna er stuttur í spuna og það getur leitt til orða- hnippinga. Þú reynir að vinna upp tíma sem þér flnnst hafa farið fyrir lítið undanfarið. Öll hugsun þín snýst urn verkefnið sem þú glímir við í vinnunni. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú ert miður þín fyrri hluta dags- ins. Síðdegis tekst þér að komast út úr þessum vítahring og ert þá sjálfsöruggari og hressari en þú hefur verið lengi. Gerðu eitthvað VSkemmtilegt i kvöld. Vog (23. sept. - 22. október) Ef þau kaupir eitthvað í dag hafðu það varanlegt. Þú getur lent í deilu við vin þinn, en óskar einskis fremur en að fá að vera í friði. Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Heimsæktu gamian vin núna. Þér gengur vel með skapandi verk- efni sem þú hefur fengið til úr- lausnar. Næstu 'vikurnar fæstu við eitthvað sem gefur þér mikið í aðra hönd. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) S§0 Hafðu gát á því sem þú segir fyrri hluta dagsins, þar sem þú ert með mörg járn í eldinum. Þú gætir gert að engu alla þá fyrir- höfn sem þú hefur lagt á þig undanfarið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Samband þitt við einn vina þinna er eitthvað spennt um þessar mundir, en samband þitt við ann- an vin þinn traustara en nokkru sinni fyrr. Sinntu ferðalögum núna og búðu þig undir að tak- ast á við erfitt rannsóknarstarf. Vatnsberi j_(20. janúar - 18. febrúar) Það sem gerist á bak við tjöldin snýst allt á sveif með þér núna. Láttu ekki sverfa til stáls víð samferðarmenn þína í dag. Einn vina þinna reynist þér ómetanleg- ur bandamaður. Fiskar .(19. febrúar - 20. mars) ' Það reynir á gildismat þitt í dág. * Þú. endumýjar gamla vináttu núna og hittir nýtt fólk. Þér finnst félagsiífið spennandi. AFMÆtiSBARNIÐ er sjálfstætt , og treystir fyrst og fremst á eig- • íð frumkvæði. Því mundi ganga vel í viðskiptalífinu. Það kýs helst að gera hlutina eftir sínu höfði og þarf að tjá einstaklingseðli sitt á skapandi hátt. Það á auð- velt með að orða hugsun sína og umgangast fólk. Stjörnuspána á atí lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi ‘ byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI SMÁFÓLK WELL,(4lf FANCV MEETINÖ VOU HERE..KEAAEMBEK ME? LINU5 VAN PELT? Hæ, þú! Gaman að hitta þig hér ... manstu eftir mér? Lalli Loðmundar? i'll have mint CH0C0LATE CMlP PLEA5E Ég ætla að fá ís með inyntu og súkkulaði, takk. Ég ætla að fá það sama takk... Ertu fyrir myntu og súkkulaði? Nú er ég hissa ... Flest eldra fólk vill helzt vanillubragð! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Fyrir utan útspilin, eru sam- skiptareglur varnarinnar eink- um þijár: (1) kall/frávísun, (2) talning, (3) hliðarköll. Allar eru þessar reglur einfaldar, en vand- inn felst í því að greina á milli hvenær hvaða regla er í gildi. Venjan er að kall í sama lit hafi forgang þegar makker spilar út í slaginn, en talning þegar sagn- hafi sækir lit. Hiiðarköll geta gilt í báðum tilfellum. Suður gefur; AV á hættu. Vestur ♦ ÁG109 yn ♦ 743 + K853 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 hjarta Pass 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu Pass Pass Dobl Pass Pass Pass Útspil: spaðaás. Það er augljóst að 5 hjörtu vinnast ef vestur skiptir ekki yfir í lauf í öðrum slag. En því skyldi hann gera það? Eða með öðru orðalagi: Hvernig á austur að kalla í laufi? Er það hægt? Nú fylgja margir þeirri reglu að hliðarkall sé ráðandi þegar EINSPIL KEMUR UPP í blind- um. Ef norður ætti aðeins einn spaða, væri augljóslega til- gangslaust að halda áfram með litinn, svo spaðaafkast austurs væri hreint hliðarkall — hátt spil fyrir tígui, lágt fyrir lauf. En í þessu tilviki á blindur tvíspil í spaða og því er eðliiegt að kall og frávísun í sama lit sé gildandi. Hins vegar getur austur gefið makker vissar leið- beiningar með vali sínu á frá- vísunarspili. Þeir spilarar sem kalla hátt-lágt myndu láta fjark- ann, en drottninguna til að kalla í tígli. (Svo óeðlilega hátt spil hefur tilhneigingu til að vekja makker). Hinir sem kalla með lágum spilum yrðu að láta milli- spil, til dæmis sjöuna. Sem er uppburðarlítið spil, en ætti að vinna verkið ef vestur hugsar málið. SKÁK ♦ 53 y 9864 ♦ G109 ♦ ÁG76 Austur ♦ KD8764 y D3 ♦ ÁD652 ♦ - Suður ♦ 2 ♦ ÁKG105 ♦ K8 ♦ D10942 Umsjón Margeir Pétursson Úrslit á áskorendamóti kvenna sem lauk í Borzhomi í Sovétlýð- veldinu Georgíu fyrir mánaðamót- in urðu mjög óvænt. Þetta enda- tafl kom upp á mótinu í viðureign þeirra Jun Xie (2.360), Kína, sem hafði hvítt og átti leik, og Elenu Akhmilovskayu-Donaldson (2.430), Bandaríkjunum. 22. Rxf7! - Hxf7 (22. - Hg8 hefði veitt heldur meira viðnám.) 23. Hxd7+! - Kx(17 24. Hxf7+ - Ke6 25. Hxg7 - Kxe5 26. Hxc7 og kínverska stúlkan vann hróksendataflið auðveldlega. Úr- slitin urðu þessi: 1 .-2. Alisa Maric, Júgóslavíu og Jun Xie 4 'A v. af 7 mögulegum, 3.-4. Galliamova og Joseliani, Sovétríkjunum 4v. 5. Gaprindashvili, Sovétríkjunum 3 'A v. 6. Akhmilovskaya-Donald- son 3 v. 7. Kachiani, Sovétríkjun- um 2'A v. 8. Klimova-Richtrova, Tékkóslóvakíu 2 v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.