Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NOVEMBER 1990 49 Athugasemd Til Velvakanda. I grein í Morgunblaðinu um versl- unarmannahelgina minntist Pétur Pétursson þulur á frænda minn Ola Coghill og gerir nokkra gi-ein fyrir honum, meðal annars að hann hafi verið sonur hins þá vel þekkta fjár- kaupmanns Coghills frá Skotlandi og Sigríðar Einarsdóttur, sem reyndar var móðir mín en hálfsyst- ir Óla, aðeins örlítið yngri. En móð- ir Óla hét að vísu Sigríður en var Ólafsdóttir. Amma mín, er bjó með manni sínum Einari Eyjólfssyni í Reykjavík en dvaldi sumarlangt í Mjóafirði, þar sem Einar hafði út- gerð, en þar fæddist móðir mín. Börn Óla urðu þrjú, sem öll hafa búið vestur í Kanada, sonur sem látinn er fyrir skömmu og tvær dætur er ég hefí jafnan samband við. Hafa þau öll komið hingað til lands í heimsókn. En vegna þessa frændfólks okkar þarna vestra þótti mér heldur leitt að vera nokk- uð að minnast á kvennamál gamla Coghills bæði vegna afkomenda hans vestra og hér í Reykjavík. Misskilnings virðíst hafa gætt í símtali er ég átti við Pétur þar sem ég benti honum á umrætt rang- hermi í grein hans er ég ætlaðist til að hann léti leiðrétta, en á það hefi ég hvergi rekist, því vænti ég þess að þér birtið þessa athugasemd mína. S. M. Gísladóttir Þessir hringdu .. . Hálsmen Silfurhálsmen með steini fannst við Hamrahlíð í síðustu viku. Upplýsingar í síma 32148. Lyklakippa Lyklakippa fannst í Hafnarfirði fyrir skömmu. A henni er mynd af trukk og þrír lyklar, tveir bílly- klar og einn húslykill. Upplýsing- ar í síma 52655. Úr Sporöskjulagað kvenúr tapaðist við Ryðvarnarskálann eða hús Landsvirkjunar fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 689800 eða 613552. Gleraugn Gleraugu og svartir fingravettlingar fundust við Holtsgötu. Upplýsingar í síma 11052. Köttur Fressköttur, grábröndóttur á baki og rófu en hvítur á trýni, hálsi, kviði og loppum, er í óskil- um. Hann er með bláa hálsól. Eigandi hans er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 651480. Kápuruglingur Til Velvakanda. Ég uppgötvaði fyrir skömmu mér til skelfingar að kápa sú sem ég taldi mig eiga og hefur hangið óhreyfð inni í skáp í allt sumar er alls ekki kápan mín. Að vísu er hún mjög lík, dökkblá ullar- kápa, síð, merkt Gazella. Ég hlýt að hafa tekið hana í misgripum í einhverju fatahengi hér í borg. Ef einhver saknar kápunnar sinnar og kannast við þessa lýs- ingu getur hún hringt í síma 74478, því ég vil endilega koma henni í réttar hendur. Um leið auglýsi ég eftir kápunni minni, sem áðurnefnd lýsing á við, nema vörumerkið er Maura. B.I. Maríu á þing Til Velvakanda. Við kjósendur í Reykjaneskjör- dæmi viljum minna sem flesta á að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í dag og hvetjum alla að kjósa athafnakonuna Maríu E. Ingvadóttur, sem gefur kost á sér í 2.-4. sæti listans. María hefur sýnt að hún er verðugur fulltrúi hins almenna launþega. Hún hefur barist mikið fyrir neytendamálum og er meðai annars varaformaður Neytendasamtakanna. Ferill Maríu er glæsilegur. Hún lauk viðskiptafræðinámi 1984 og hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðar- störfum á síðustu árum m.a. verið deildarstjóri hagdeildar SÍS og er nú fjármáiastjóri Útflutningsráðs. Hún hefur tekið verulegan þátt í félags- og stjórnmálum og var um skeið formaður Hvatar, félags sjálf- stæðiskvenna. Jón Tryggvason HAFÐU BtTUR EN BAWKINM! HnPPRÞRENlVn HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS Jóla- basar Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík er í dag kl. 14.00 í Veltubæ, Skipholti 33 (áður Tónabíó). Glæsilegur jólavarningur, kökur, fatnaður og happdrætti. Basarnefndin Prófkjör sjálfstæóismanna í Reykjaneskjördæmi MENNTUN REYNSLA ÞEKKING Kjósum Sigríði Önnu í öruggt sœti Við styðjum framboð Sigríðar Önnu Þórðardóttur Jónína Michaelsdóttir, blaðamaóur, Hafnarfirði Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri, Grindavík Árni Emilsson, útibússtjóri, Garðabæ Siguröur Valur Ásbjarnarson, sveitarstjóri, Bessastaðahreppi Halla Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Kópavogi Þórdís Sigurðardóttir, skrifstofústjóri, Mosfellsbæ Magnús Erlendsson, fv. forseti bæjarstjórnar, Seltjarnarnesi Jónína Guðmundsdóttir, kennari, Keflavík Guðmundur Ósvaldsson, framkvæmdastjóri, Hafnarfirði Kristín S. Kvaran, fv. alþingismaður, Garðabæ Arnór L. Pálsson, bæjarfulltrúi, Kópavogi Fríða Proppé, ritstjóri, Garðabæ Hilmar Sigurðsson, viðskiptafræðingur, Mosfellsbæ Júlía G. Ingvarsdóttir, kennari, Garðabæ Ragnheiður Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Mosfellsbæ <r-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.