Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NOVEMBER 1990
Keflavík:
Leikfélagið sýnir söngleik
LEIKFÉLAG Keflavíkur frum-
sýndi í gærkvöldi söngleikinn
„Er tilgangur?" eftir Júlíus Frey
Guðmundsson í Félagsbíó í
■ FLOAMARKAÐ UR Lions-
klúbbsins Engeyjar (áður Lion-
essuklúbbur Reykjavíkur) verður
sunnudaginn 11. nóvember kl.
14.00 í Lionsheimilinu, Sigrúni
9. Fjölbreytt úrval verður af gömlu
og nýju. Allur ágóði rennur til líkn-
armála.
Keflavík. Leikstjóri er Halldór
Björnsson og koma fram um 30
leikarar í söngleiknum ásamt
hljómsveitinni Pandóru sem
flytur tónlistina. Næstu tvær
sýningar verða á morgun,
sunnudag, klukkan 16,30 og
20,30.
Júlíus Freyr leikur á trommur í
Pandóru og er hann sonur Rúnars
Júiíussonar hljómlistarmanns og
Maríu Baldursdóttur söngkonu.
Rúnar heitir fullu nafni Guðmund-
ur Rúnar en notar ekki Guðmund-
Vestfiröir: Rafbúð Jónasar Þór, Patreksfiröi • Bjarnabúö, Tálknafirði • Edinborg, Bíldudal • Verslun Gunnars cn
Sigurössonar,Þingeyri*EinarGuWimsson,Bolungandk*Straunur,lsafiröi»Noröuj1and: Kf.Steingríms^aröar.Hólmav^ X
»I
8>|
AEG
ÞVOTTAVÉLAR
Þegar þú kaupir AEG ertu að
fjárfesta í gæðatækjum sem endast
og losa þig við áhyggjur af
þvottadögum í leiðinni.
Eigum allar gerðir
AEG þvottavéla
til afgreiðslu af lager nú þegar.
Verð frá kr. 60.981 stgr.
Umboðsmenn um allt land.
BRÆÐURNIR
m ORMSSON HF
Lágmúla 9. Simi 38820
Þú svalar lestraiþöif dagsins
ásíöum Moggans! y
2 ‘
P 5
arnafnið. Því er von að fólk átti
sig ekki án skýringa á því að Jú-
líus Freyr skuli vera sonur „Rúnna
Júll“.
Þetta er fyrsta verk Júlíusar
Freys af þessu tagi en hann hefur
fengist við lagasmíð og fyrir mán-
uði sendi Pandóra-frá sér hljóm-
plötu með lögum eftir Júlíus Frey
og þá Þór Sigurðsson og Sigurð
Jóhannesson sem ásamt Júlíusi
sömdu tónlistina í aöngleiknum.
Verkið fjallar um strák sem tekur
ákvörðun um að hætta í skóla og
því sem í kjölfarið fylgir.
Leikfélag Keflavíkur var endur-
vakið fyrir rúmum tveim árum eft-
ir að engin starfsemi hafði verið í
3 ár. Hjördís Ámadóttir er formað-
ur leikfélagsins og sagði hún að
mikill áhugi væri fyrir leiklist í
Keflavík og kæmust færri leikarar
að hjá félaginu en vildu. Þetta er
5. verkið sem Leikfélag Keflavíkur
tekur til sýningar frá því að það
var endurvakið og sagði Hjördís
að reynt væri að velja verk þar sem
margir kæmu fram til að sem flest-
ir fengju að spreyta sig. Einnig
verður gefin út plata með lögunum
og söngvuranum sem koma fram
í söngleiknum sem verður fluttur
í Félagsbíó.
- BB
Jón Sigurpálsson á vinnustofu sinni á ísafirði.
Jón Signrpálsson
sýnir í Slunkaríki
JÓN Sigurpálsson opnar sýningu í Slunkaríki á ísafirði í dag, laug-
ardaginn 10. nóvember. Jón er búsettur á ísafirði og einn aðstand-
enda Slunkaríkis sem verið hefur hvað virkastur sýningarsala utan
höfuðborga,rsvæðisins.
Jón var við myndlistarnám við
Myndlistaskóla Reykjavíkur og
Myndlista- og handíðaskóla Islands
á árunum 1974-78 og síðan um
árabil í Hollandi, m.a. við Ríkisaka-
demíuna í Amsterdam.
Hann hélt fyrstu einkasýriingu
sína árið 1980 og hefur síðan hald-
ið sýningar einn og með öðram í
Hollandi, Danmörku og á íslandi.
Sýningin í Slunkaríki nú er sjöunda
sýning Jóns, en þar sýnir hann lág-
myndir unnar í gifs og skúlptúra
sem unnir eru með blandaðri tækni.
Sýningin í Slunkariki verður opin
fimmtudaga-sunnudaga kl. 16-18
til 2. desember nk.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi í dag:
Búist við að 8-10 þús-
und manns taki þátt
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins vegna uppstillingar á framboðs-
lista flokksins í Reykjaneskjördæmi við næstu alþingiskosningar
er í dag. Fimmtán bjóða sig fram. Kosning hefst víðast hvar klukk-
an 9 og lýkur alls staðar klukkan 20. Talning hefst í Hafnarfirði
kl. 16 í dag og er búist við að fyrstu tölur verði birtar klukkan 22
en að talningu ljúki aðfaranótt sunnudags. Að sögn Braga Mikaels-
sonar, formanns yfirkjörsljórnar, er búist við að 8-10 þúsund stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins taki þátt í prófkjörinu.
Þátttökurétt í prófkjörinu eiga
■ flokksbundnir sjálfstseðismenn í
Reykjaneskjördæmi, 16 ára og
eldri, og stuðningsmenn flokksins
sem eiga kosningarétt í kjördæm-
inu við næstu kosningar. Allir
þurfa að undirrita þátttökubeiðni
á kjörstað.
Við síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingar kusu rúmlega 15 þúsund
manns framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í kaupstöðunum og
stærstu kauptúnunum i Reykja-
neskjördæmi. í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins 1983 voru um 9
þúsund þátttakendur. Bragi sagði
ekki ólíklegt að þátttaka nú yrði
á bilinu 8 til 10 þúsund.
Frambjóðendur í prófkjörinu
eru: Sigríður A. Þórðardóttir, Árni
Ragnar Árnason, Ólafur G. Ein-
arsson, Guðrún Stella Gissurar-
dóttir, Salome Þorkelsdóttir,
Þröstur Lýðsson, Lilja Hallgríms-
dóttir, Viktor B. Kjartansson,
Hreggviður Jónsson, Árni M. Mat-
hiesen, María E. Ingvadóttir,
Sveinn Hjörtur Hjartarson, Sig-
urður Helgason, Kolbrún Jóns-
dóttir og Lovísa Christiansen.
Þátttakendur eiga að velja sjö
frambjóðendur, hvorki fleiri né
færri, með því að tölusetja nöfn
þeirra frá 1 til 7.
Kjörstaðir eru fjórtán. Þeir eru
opnir frá klukkan 9 til 20, nema
í Kjósarhreppi þar sem opið er frá
13 til 20. Kjörstaðirnir eru: Sjálf-
stæðishúsið, Austurströnd 3, Selt-
jarnamesi; Hlégarður i Mosfells-
bæ; Fólkvangur á Kjalarnesi; Ás-
garðurí Kjósarhreppi; Sjálfstæðis-
húsið, Hamraborg 1, Kópavogi;
Sjálfstæðishúsið, Lyngási 12,
Garðabæ; íþróttahúsið í Bessa-
staðahreppi; Sjálfstæðishúsið við
Strandgötu í Hafnarfirði; Iðndal 2
í Vogum; Festi í Grindavík; Sjálf-
stæðishúsið, Hólagötu 15, Njarð-
vík; Iðnsveinafélagshúsið, Tjarn-
argötu 7, Keflavík; Tjarnargata
2, Sandgerði og Samkomuhúsið í
Garði.
Yfirkjörstjórn verður með að-
setur í Sjálfstæðishúsinu, Hamra-
borg 1 í Kópavogi og svarar fyrir-
spumum um framkvæmd próf-
kjörsins.
'
Sófasett
Stakir sófar
Sérsmíðaðir hornsófar
Opið laugardag kl. 10.00-14.00.
Sýning sunnudag 11. nóv.
kl. 14.00-16.00.
VDhúsgögn
I M Bíldshöfða 8,
símar 686675 og 674080.
Framsóknarflokkurinn:
Skoðanakönnun
um val á frambjóð-
endum í Reykjavík
Skoðanakönnun fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna í Reykja-
vík um val á frambjóðendum
Framsóknarflokksins í Reykja-
vík, fyrir næstu kosningar til
Alþingis, fer fram nú um helg-
ina. Könnunin fer fram að Hafn-
arstræti 20, 3. hæð.
Rétt til þátttöku í skoðanakönn-
uninni hafa meðlimir í fulltrúaráði
framsóknarfélaganna í Reykjavík
og varamenn - þeirra, samtals 504
einstaklingar.
Eftirtaldir frambjóðendur eru í
skoðanakönnuninni: Anna Margrét
Valgeirsdóttir, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Bolli Héðinsson,
Finnur Ingólfsson, Guðmundur
Birgir Heiðarsson, Guðmundur G.
Þórarinsson, Hermann Sveinbjörns-
son, Sigfús Ægir Ámason og Þór
Jakobsson.
Þátttakendur eiga að raða fjórum
frambjóðendum. Niðurstaða skoð-
anakönnunarinnar er bindandi hvað
snertir þá frambjóðendur sem hljóta
50% eða meira gildra atkvæða í
eitthvert af ijórum efstu sætunum.
Kjörfundur hefst bæði laugardag
og sunnudag kl. 10:00 og stendur
til 22:00.
Að sögn Jóns Sveinssonar, for-
manns kjörnefndar, er búist við að
úrslit liggi fyrir um kl. 22:30 á
sunnudagskvöld.