Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Þýfi fyrir ema miUjón fór til íikni- efnakaupa Rannsóknarlögregla ríkisins hefur upplýst innbrot í hús í Seljahverfi í vor. Þrír sautján ára piltar játuðu verknáðinn, en þýf- ið var metið á um eina milljón króna. Mestan hluta þess höfðu þeir notað til fíkniefnakaupa. Innbrotið var framið í mars og var meðal annars stolið skotvopn- um, haglabyssum og rifflum, ásamt skotfærum, myndbandstæki, sjón- varpi, segulbandstæki og skartgrip- <«um. Fyrir nokkru komst fíkniefna- lögreglan í tæri við byssu, sem reyndist úr þessu innbroti. Rann- , sóknarlögregan hefur nú upplýst málið og hafa þrír sautján ára pilt- ar játað innbrotið. Þýfið hafði að mestu leyti farið til fíkniefnakaupa og er hluti þess fundinn. Gripinn við ieit að hjálp- artækjum MAÐUR var staðinn að verki að- faranótt föstudags þegar hann reyndi að brjótast inn í verslun við Grundarstíg, sem selur meðal annars svokölluð hjálpartæki ást- arlífsins. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði maðurinn brotið rúðu og var að reyna að komast inn. Hann hafði skorið sig á glerbrotum og lét í veðri vaka við lögregluna að hann þyrfti sérstaka meðferð vegna þess að hann væri smitaður af eyðni. Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs hf.: Getum ekki beðið lengur með Rúðubrot tefur skoðun á TF-SIF Morgunblaðið/Árni Sæberg TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, hefur verið til skoðunar undan- farna daga. Hér er um að ræða svokaliaða stærri skoðun, sem gerð er á 400 flugtíma fresti. Að sögn Jóns Pálssonar, flugvirkja hjá Landhelg- isgæslunni, reyndist þyrlan vera í góðu lagi, nema hvað lítil sprunga fannst í framrúðunni. í viðgerð stækkaði sprungan þannig að skipta verður um rúðu. Nýja rúðu þarf að sérpanta frá Frakklandi og tefst því skoðun þyrlunnar um tvo eða þrjá daga. Myndin sýnir flugvirkja Landhelgisgæslunnar fjarlægja sprungnu framrúðuna. Furðuljós í Reykhólasveit Miðhúsum. HEIMILISFÓLKIÐ í Mýrar- tungu í Reykhólasveit sá furðu- ljós yfir svonefndum Bæjardal, í norður eða norðaustur, klukkan 18.20 í gær. Sýnin stóð í um 15 mínútur. Jens V. Hansen, bóndi í Mýrartungu, sagði að ljósið hafi verið allbjart en í kringum það einhver dekkja. Bein sjónlína virtist vera um fjórir kílómetrar. Sveinn að bjóða 95 oktana bensín Til þess þarf að breyta samningum við Sovétríkin KRISTINN Björnsson forstjóri Skeljungs hf. segir þörf fyrir 95 oktana bensín á markaði hér á landi vera svo brýna, að olíufélögin geti ekki beðið öllu lengur með að bjóða það. Hins vegar sé það ógjörningur að óbreyttum samningum um olíukaup af Sovétmönnum. „Við höfum fengið í sífeilt aukn- um mæli fyrirspurnir frá bílaum- boðum og Félagi íslenskra bifreiða- eigenda vegna þess að margir nýrri bílar, og allir bílar sem eru með mengunarvarnabúnað, ganga ekki vel á 92 oktana bensíni. Þeir eru gerðir fyrir að minnsta kosti 95 oktana bensín, blýlaust, og Rússar geta ekki selt okkur það. Þeir geta 'Tnðjón Þórðarson gef- ur ekki kost á sér á ný FRIÐJÓN Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Vestur- landskjördæmi tilkynnti á aðalfundi sjálfstæðisfélaganna í Dalasýslu í fyrrakvöld að hann gæfi ekki kost á sér til þingframboðs í kom- andi alþingiskosningum. Friðjón situr nú sitt 30. þing. „Ég var staddur á þessum fundi og'fannst tilvalið að segja því fólki sem fyrst valdi mig í framboð fyrir þijátíu og sjö árum fyrst frá þess- •ISri ákvörðun sem ég hef verið að velta fyrir mér um tíma,“ sagði Friðjón í samtali við Morgunblaðið. Hann fór í framboð fyrir Sjálfstæð- isflokkinn í Dalasýslu vorið 1953. „Þá féll ég en náði nokkuð góðum árangri tel ég. í næstu kosningum, 1956, náði ég kosningu sem 11. l^ndskjörinn þingmaður á broti úr atkvæði og sat á þingi tii 1959.“ Eftir kjördæmabreytinguna var Friðjón 3. maður á lista Sjálfstæðis- flokksins í Vesturlandskjördæmi og náði ekki kjöri en var varaþingmað- ur næstu árin. Arið 1967, þegar Sigurður Ágústsson lét af þing- mennsku, fór Friðjón aftur á þing og hefur setið á Alþingi síðan. „Þetta hefur vissulega vérið góð- ur tími og lærdómsríkur, en ein- hvern tímann verður að nema stað- ar og það er gott að geta hætt á meðan maður er í fullu fjöri,“ sagði Friðjón um ákvörðun sína. Hann er 67 ára gamall. Friðjón sagðist ekki vita hvað tæki við hjá sér eftir að hann lætur af þingmennsku í vor, sagðist eiga Friðjón Þórðarson eftir að hugleiða það. Friðjón vildLað lokum flytja vin- um og stuðningsmönnum á Vestur- landi sérstakar þakkir fyrir góðan stuðning og mikið traust. „Ég óska Vestlendingum alls góðs á komandi árum,“ sagði hann. bara selt okkur 92 oktana blýlaust bensín," segir Kristinn. í dag kaup- um við 98 oktana blýbensín í Vestur-Evrópu og við getum auðvit- að fengið 95 oktana bensín hvenær sem okkur kemur það til hugar. Það hins vegar gengur ekki að vera með þijár tegundir af bensini, það er engin bensínstöð á landinu byggð fyrir það,“ segir hann. Kristinn segir þeirri hugmynd hafa verið hreyft að í ljósi þeirra samninga sem nú fara í hönd við Sovétmenn yrði það orðað við þá, hvort möguíegt sé að íslendingar hætti að kaupa af þeim bensín og kaupi þá aðeins af þeim gasolíu og svartolíu. Magn þeirra tegunda yrði þá aukið til þess að ná sama tonna- fjölda og hefur verið, ef mönnum byði svo við að horfa. Hann segir þetta einnig snerta mengunarvarnir, þar sem í mörgum tilvikum er 95 oktana bensín skil- yrði þess, að hægt sé að nota bíla með mengunarvarnarbúnaði, þar sem bílarnir ganga ekki eða illa á 92 oktana bensíni og mengunar- varnarbúnaðurinn eyðileggist ef notað er blýbensín. „Okkar tillaga er beinlínis sú að það verði skoðað núna í fullri al- vöru hvort eigi að hætta að kaupa bensín af Rússum ef þeir ekki geta selt okkur 95 oktana blýlaust bensín," segir Kristinn. Hann segir viðskiptasamningana við Sovétríkin koma í veg fyrir að til dæmis Skeljungur geti boðið 95 oktana bensín að eigin frumkvæði, vegna þess, að félagið yrði, sam- kvæmt stjórnvaldsákvörðun, eftir sem áður að kaupa jafn mikið af 92 oktana bensíni af Sovétmönnum. Því væri ógjörningur að bjóða 95 oktana bensín í stað 92 oktana, nema þessari skyldu verði létt af. Sjá viðtöl við viðskiptaráð- herra og forstjóra olíufélag- anna á bls. 4. Sat fastur í eiginjámum LÖGREGLAN í Reykjavík var kölluð í hús í borginni á fimmtudag. Þar hafði maður sett á sig handjárn, en gat ekki losað sig aftur. Lögreglan náði járnunum af manninum, en þar sem óleyfilegt er að flytja handjárn tii landsins eða framleiða þau hér tók hún þau í sína vörslu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lögreglan þarf að losa fólk úr slíkum járnum. Fyrir nokkru var lögreglan til dæmis beðin um að aðstoða konu, sem var hlekkj- uð við hjónarúmið með handjárn- um. Sú skýring fylgdi með, að handjárnin hefðu verið þáttur í ástarleik hjónanna fyrr um kvöldið, en að honum loknum hefði lykillinn ekki fundist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.