Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
Nýtt áfall fyrir Margaret Thatcher:
Stjómarandstæðingar
Reuter
Fjölmenn mótmæli íRóm
Tæplega 200.000 málmiðnaðarmenn efndu til mótmæla í Róm í gær
til að krefjast hærri launa, styttri vinnutíma og bættra vinnuskiiyrða
en samningur þeirra rann út fyrir tíu mánuðum._ Þetta eru ein fjöl-
mennustu mótmæli sem efnt hefur verið til á Ítalíu í áraraðir. Á
myndinni gengur einn mótmælendanna á stultum, klæddur sem djöf-
ullinn.
sigra í aukakosningum
[ boxinu er: Hamborgari,
franskar og kók.
Einnig leikir. sælgæti. blaðra
og óvæntur glaðningur.
larlfnn
Shekhar falin
stjómarmynd-
un á Indlandi
Nýju Dehlí. Reuter.
CHANDRA Shekhar var falin
og er búist við að stjórn hans
dag. Shekhar er leiðtogi hóps
úr Janata Dal-flokknum, flokki
sætisráðherra.
Singh baðst lausnar fyrir sig
og stjórn sína á miðvikudag eftir
að hann hafði orðið undir í at-
kvæðagreiðslu á þingi landsins um
vantrauststillögu á stjórnina. Rajiv
Gandhi fyrrum forsætisráðherra,
hafði hafnað boði um stjórnar-
myndun í fyrradag og hið sama
gerðu leiðtogar annarra flokka.
Ramaswamy Venkataraman for-
seti var andsnúinn því að gera
leiðtoga lítils klofningshóps að for-
sætisráðherra en þar sem enginn
annar vildi taka að sér starfann
átti hann ekki annarra kosta völ
en kveðja Shekhar á sinn fund í
gær og fela honum stjómarmynd-
un.
í klofningsflokki Shekhars eru
aðeins 56 þingmenn af 505 sem
stjórnarmyndun á Indlandi í gær
sverji embættiseið í dag, laugar-
þingmanna sem klufu sig nýlega
Vishwanaths Prataps Singhs for-
sæti eiga á indverska þinginu en
þar sem m.a. flokkur Rajivs Gand-
his, Kongress-flokkurinn, hefur
lýst stuðningi við stjórnarmyndun
Shekhars nýtur minnihlutastjórn
hans stuðnings 280 þingmanna. í
samkomulagi Shekhars og Gandhi
er þeim síðarnefnda í sjálfsvald
sett að ákveða hvenær efnt verður
til nýrra þingkosninga en fæsta
stjórnmálaleiðtoga mun fýsa í nýj-
ar kosningar í bráð vegna mikilla
efnahagsörðugleika og spennu í
sambúð hindúa og múslima.
Shekhar er 63 ára og hélt í
desember sl. að röðin væri loks
komin að sér að taka við pólitísku
forystuhlutverki eftir langan
stjórnmálaferil. En eftir leynimakk
hlaut Singh hins vegar stuðning
Reuter
Chandra Shekhar forsætisráð-
herra Indlands
flokksins í starf forsætisráðherra.
Þegar Singh vildi nýverið efna til
kosninga um umdeilda áætlun sína
um að auka fjölda opinberra starfa
sem frátekin væri fyrir lágstéttar-
fólk úr röðum hindúa og vegna
deilna hindúa og múslima um
mosku í bænum Ayodhya sá Shek-
har sér leik á borði og klauf sig
út úr Janata Dal-flokknum. Lítið
fylgi reyndist á þingi við kosning-
ar eins og atkvæðagreiðslan um
vantraust á stjórn Singhs sl. mið-
vikudag leiddi í ljós, en 346
greiddu atkvæði gegn stjórninni
en aðeins 142 með.
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
Verkamannaflokkurinn sigr-
aði í tvennum aukakosningum í
Bretlandi sl. fimmtudag. íhalds-
flokknum gekk illa, tapaði nær
M TÓKÍÓ. Lögreglan í Tókíó und-
irbýr nú mestu öryggisráðstafanir
sem nokkru sinni
hafa verið gerðar
í borginni síðan í
heimsstyrjöldinni
síðari. Ástæðan er
keisarakrýning
Akíhítos prins á
mánudag. Frá og
með deginum í dag
verður umferð um
miðborg Tókíó
minnkuð um
30-50%. 37.000 lögreglumenn
verða á verði í borginni vegna hót-
ana vínstrisinnaðra öfgamanna um
að trufla krýningarathöfnina. Þjóð-
höfðingjar frá 157 löndum koma
um Haneda-flugvöll til að vera við
athöfnina og verður hluta hrað-
brautar milli flugvallarins og mið-
borgarinnar einnig lokað.
■ JERÚSALEM. írsaelski herinn
hefur ráðist á búðir Hizbollah-
hreyfingarinnar, öfgasinnaðra
múslima. Heimildarmenn innan
ísraelska hersins sögðu að búðirnar
væru um 15 km fyrir austan Jez-
zine. Vamarmálaráðherra ísraels,
Moshe Arens, sagði á fimmtudag
að á ísraelar myndu ekki láta Líbani
ná yfirráðum yfir Jezzine-borg, sem
er miðja vegu milli Beirút og ísra-
elsku landamæranna.
fjórðungi atkvæða sinna frá
síðustu kosingum. Engin mót-
framboð hafa enn borist gegn
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra í væntanlegu leiðtogakjöri
íhaldsmanna en sagt er að þing-
menn ræði ákaft sín í milli hvort
það komi til greina. Einn þeirra
segir kjósendur orðna leiða á
Thatcher, þeir vilji nýja forýstu.
Kosið var í kjördæmunum Brad-
ford North og Bootle við Liverpool.
í Bootle voru aukakosningar fyrr á
árinu, en nýi þingmaðurinn lést
sviplega skömmu eftir að hann var
sestur á þing. Bootle er eitt af ör-
uggustu kjördæmum Verkamanna-
flokksins en flokkurinn vann Brad-
ford North af íhaldsflokknum í
kosningunum 1987. Verkamanna-
flokkurinn vann að þessu sinni yfir-
burðasigur i báðum kjördæmum,
fékk 52% atkvæða í Bradford
North, Fijálslyndir lýðræðissinnar
25% og íhaldsmenn 17%. Verka-
mannaflokkurinn hlaut að venju
þorra atkvæða í Bootle. Kjörsókn
var tæp 39% þar en ríflega 50% í
Bradford North.
Talsmenn Verkamannaflokksins
hafa fagnað úrslitunum og segja
þau skýra vísbendingu kjósenda um
að flokkurinn muni sigra í komandi
þingkosningum. Kenneth Baker,
formaður íhaldsflokksins, sagði úr-
slitin íhaldsmönnum vonbrigði,
sérstaklega í Bradford North. Hann
taldi þó að þau myndu ekki hafa
áhrif á úrslitin í næstu þingkosning-
um. Þær verða í síðasta lagi sum-
arið 1992 en Thatcher getur rofið
HELGAR- 1
TILBOD
Barnaboxið vinsæla
kr. 390.=
þing fyrr og efnt til kosninga ef
henni finnst það vænlegt. Nýjustu
skoðanakannanir gefa til kynna að
Verkamannaflokkurinn hafi allt að
21% meira fylgi en íhaldsmenn á
landsvísu.
Þessi úrslit koma á erfiðum tíma
fyrir stjórn Thatcher og talið er að
þau ýti undir að boðið verði fram
gegn henni í leiðtogakjöri flokksins,
sem verður haldið 20. nóvember nk.
Thatcher hefur þegar tilkynnt
framboð en þau verða að berast
fyrir nk. fimmtudag. Hart er deilt
um stefnu Thatcher í málefnum
Evrópubandalagsins en hún berst
gegn frekari samruna aðildarríkj-
anna. Ein af nefndum lávarðadeild-
arinnar, með íhaldsmenn í forystu,
gagnrýndi í gær stefnu Thatcher.
Hvatt var til þess að Bretar tækju
þátt í væntanlegu myntbandalagi
EB-ríkjanna og jafnframt að That-
cher og stuðningsblöð hennar forð-
uðust herskáar yfirlýsingar og stór-
yrði gegn frekara Evrópusamstarfi.
Ítalía — Atlantshafsbandalagið:
Leynilegar skæruliða-
sveitir verði leystar upp
Rnm Rnulni'
Róm. Reuter.
ITOLSK stjórnvöld hafa beðið ráðamenn hjá Atlantshafsbandalaginu
(NATO) að leggja niður leynilegar skæruliðasveitir sem komið var
á fót á sjötta áratugnum til að veijast hugsanlegri innrás Sovét-
manna. Stjórnarandstaðan hefur krafist afsagnar Guilios Andreottis
forsætisráðherra vegna málsins en grunsemdir hafa vaknað um að
liðsmenn sveitanna hafi tekið þátt í hryðjuverkum til að auka á glund-
roða og minnka þannig líkur á að kommúnistar kæmust til valda.
Andreotti segir að yfirstjórn
NATO hafí verið beðin að kanna
hvort enn sé þörf fyrir sveitimar
sem nefnast Gladio. Hann segir að
áætlunum sveitanna hafa verið
breytt á sínum tíma og þær þjálfað-
ar í að smygla herforingjum, stjórn-
máialeiðtogum og vísindamönnum
frá hernumdum svæðum ef til styrj-
aldar kæmi. Sveitirnar hafi lengi
verið undir stjórn nefndar hjá yfir-
herstjórn NATO. 1956 hafi verið
ákveðið að Gladio skyldi einnig
skipuleggja andspyrnuhreyfingu í
samráði við bandarísku leyniþjón-
ustuna ef landið yrði hernumið og
varð liðsafli sveitanna hluti vamar-
liðs NATO árið 1959. Alls munu
622 ítalir hafa gegnt störfum í
skæruliðasveitunum.
í umræðum á þingi gáfu stjórnar-
andstæðingar í skyn að liðsmenn
Gladio hefðu átt aðild að fjölda
sprengjutilræða á árunum 1969-
1984. Alls fórust 143 í tilræðunum
en tilræðismennirnir furidust ekki.
Francesco Cossiga Ítalíuforseti
sagði nýlega að hann væri hreykinn
af því að hafa skipulagt verksvið
sveitanna er hann var ungur aðstoð-
arráðherra varnarmála. Dómari í
Feneyjum vill fá að yfirheyra forset-
ann vegna málsins. Ríkisstjórnin
mun e.t.v. þurfa að leita álits stjórn-
lagadómstóls til að fá úr því skorið
hvort forsetinn megi svara spurn-
ingum dómarans er þegar hefur
yfirheyrt Andreotti.