Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 Morgunblaðið/Rúnar Þór Halldór Jónsson bæjarstjóri, Jón Hjaltason söguritari, Lárus Zophoníasson forstöðumaður Amtsbóka- safnsins og Þröstur Asmundsson formaður menningarmálanefndar Akureyrar. Saga Akureyrar kynnt á Amtsbókasafni: Vissulega ánægður með að 1. bindið er komið út - segir Jón Hjaltason söguritari SAGA Akureyrar, 1. bindi, var kynnt á Amtsbókasafninu i gær, en bókin er nýlega komin út. Söguritari er Jón Hjaltason sagnfræðingur, en hann hóf að rita söguna árið 1987. Alls verða bindin þijú, hið fyrsta nær frá landnámsöld og fram til ársins 1862 er Akureyri fékk kaupstaðarréttindi öðru sinni. I 2. bindi verður fjallað um söguna frá 1862-1940 og hið 3. og síðasta nær frá árinu 1941 til vorra daga. „Þegar ég er spurður um efni og innihald bókarinnar, þá segi ég gjarnan að hún sé prentuð á góðan pappír, en um mnihaldið verði menn að dæma sjálfir," sagði Jón í samtali við Morgun- blaðið. „En ég er vissulega afar ánægður með það að 1. bindið er komið út, það er ákveðinn áfangi.“ I bókinni segir frá komu Helga hins magra til Eyjafjarðar, land- námi, harðindum og mannfelli, þá greinir frá margvíslegum hremmingum kaupmanna, deilum um kaupstaðarlóðir og aðdrag- anda þess að bærinn breyttist úr kaupstað í höndlunarstað. Greint er og frá brauðstriti bæjarbúa, baráttunni um prentsmiðju og kirkju, löggæslu og fyrstu bæjar- stjórnarkosningunum. Handriti að bókinni skilaði Jón í mars síðastliðnum og hefur síðan fylgt því eftir í prentsmiðju ásamt því að velja myndir og skrifa myndatexta auk annars, en sam- hliða hefur hann viðað að sér heimildum vegna skrifa 2. bind- is.„Það er einkar spennandi tími, en á þeim tíma óx bærinn mikið, íbúafjöldinn fór úr tæplega 300 á árinu 1862 og var kominn í ná- lega 1.400 um aldamót. Það er mjög áhugavert, einkum fyrir þær sakir að á þeim tíma stóð bæjar- stjórn um það vörð, að fátækling- ar flykktust ekki hingað. Fólk þurfti að sækja um dvalarleyfi og fékk það til eins árs í senn. Litist bæjarstjórn að þeim tíma loknum ekki svo á að menn myndu spjara sig sæmilega var þeim vísað úr bænum,“ sagði Jón. Norðurland eystra: 25 gefa kost á sér í prófkjöri framsóknar PRÓFKJÖR vegna framboðslista Framsóknarflokksins í Norður- landi eystra verður haldið á aukakjördæmisþingi flokksins sem haldið verður á Húsavík á morgun, sunnudag. Alls gefa 25 kost á sér, en kosið verður bind- andi kosningu í sjö efstu sæti list- ans. Um 200 fulltrúar félaganna í kjördæminu taka þátt í kosning- unni, en fyrirkomulagið er þann- ig að fyrst er kosið um 1. sæti listans og Síðan koll af kolli fram til 7. sætis. Frambjóðandi þarf að ná yfir 50% atkvæða, að öðru kosti er kosið á ný um sætið. Samkvæmt reglum um prófkjör framsóknarmanna í Norðurlands- kjördæmi eystra hefur verið dregið um röð manna og er hún þannig: Guðmundur Stefánsson, Akureyri, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Bárðar- dal, Áslaúg Magnúsdóttir, Akur- eyri, Bjarni Aðalgeirsson, Húsavík, Bragi V. Bergmann, Akureyri, Val- gerður Svérrisdóttir, Grýtubakka- hreppi, Jón Illugason, Skútustaða- hreppi, Sigfús Karlsson, Akureyri, Daníel Árnason, Akureyri, Jakob Bjömsson, Akureyri, Ari Teitsson, Reykdælahreppi, Kristján Karl Kristjánsson, Þórshöfn, Gunnlaug- ur Aðalbjörnsson, Öxarfirði, Sigfríður-Þorsteinsdóttir, Akureyri, Jóhanna Valdimarsdóttir, Eyja- íjarðarsveit, Guðlaug Björnsdóttir, Dalvík, Bjarney Bjarnadóttir, Sval- barðsstrandarhreppi, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Eyjaijarðarsveit, Þorgeir Hlöðversson; Ljósavatns- hreppi, Sara Hólm, Reykjahreppi, Guðmundnr Bjarnason, Húsavík, Kristján Ólafsson, Dalvík, Halldóra Jónsdóttir, Aðaldælahreppi, Helga Jónsdóttir, Ólafsfirði, Pétur Sig- urðsson, Litla Árskógssandi. ■ FYRSTU tónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar verða á morgun, sunnudag, en þeir verða haldnir í Samkomuhúsinu og hefj- ast kl. 17. Á tónleikunum verða leikin Saga dátans og Pulcinella svítan eftir Rússann Igor Strav- ipsky, en sú tónlist hefur verið með því vinsælasta sem hann samdi. Einnig verður fluttur Konsert fyrir slagverk og litla hljómsveit, eftir Frakkann Darios Milhaud, en ein- leikari á slagverk verður Karl Pet- ersen. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður Roar Kvam, en hljóðfæra- leikarar verða um 30 talsins. ■ LINDIN við Leiruveg fékk fyrir nokkru vínveitingaleyfi og í tilefni af því er ætlunin að bjóða upp á ódýrasta bjór á landinu í nóvember. Veitingastaðurinn tekur um 30 manns í sæti og þar er opið frá kl. 9 á morgnana til 23.30 á kvöldin. Auk hefðbundins matseðils eru einnig í boði léttir réttir, síldar- og kabarettdiskar og ostabakkar. „Það er alltaf mjög mikið að gera hérna á sumrin, oftast fullt út úr dyrum, en yfir vetrarmánuðina er rólegra, Akureyringar eru dálítið tregir við að fara út að borða, þó svo að mokkur breyting hafi orðið þar á síðustu ár,“ sagði Aðalsteinn Guðmundsson umsjónarmaður Esso-nestanna. ■ MINNISVARÐI um Jón Sveinsson (Nonna) verður vígður að á Möðruvöllum í Hörgárdal á morgun, sunnudaginn 11. nóvemb- er, en þar var hann fæddur. Athöfn verður í Möðruvallakirkju og við varðann, en hún hefst kl. 15.30. Við athöfnina talar sóknarprestur- inn og konur úr Zontaklúbbi Akur- eyrar. Rakin verður 'saga minnis- varðans og helstu atriði úr ævi Nonna. Jón Sveinsson Móttökumar hafa komið mér á óvart - segir Kristinn G. Jóhannsson list- málari sem sýnir í FÍM-salnum „ÉG ER afar ánægður, sýningin hefur fengið góða aðsókn og móttökurnar hafa komið á óvart,“ sagði Kristinn G. Jó- hannsson listmálari á Akureyri, en hann sýnir nú í FIM-salnum í Reykjavík. Sýningin verður opin fram til 18. nóvember og er opin daglega frá kl. 14-18. ' Á sýningunni eru 27 verk, sem öll eru unnin á síðasta ári, en Krist- inn var einnig á ferð fyrir sunnan í fyrrahaust og sýndi þá líka í FÍM- salnum. „Sýning um gamburmosa og stein,“ er yfirskrift sýningarinn- ar, en Kristinn kvaðst einkum hafa málað mosa og gijót undanfarið „svona það sem næst manni er,“ eins og hann orðaði það. „Ég hef valið mér myndefni úr Kristinn G. Jóhannsson listmál- ari sýnir í FÍM-salnum. náttúrunni á síðustu árum, yrki um það sem nálægt okkur stendur og það má segja að þessi sýning sé nýtt tilbrigði við það stef sem ég hef einbeitt mér að á undanförnum árum.“ Sýning Kristins í FIM-salnum var opnuð um síðustu helgi og kom þá fjölmargt gesta. Við opnunina seld- ust 10 myndir og sagðist Kristinn ángæður með þær góðu viðtökur sem hann hefði fengið. Dalvík og Hrísey: Konur minna á „Skylduna“ KONUR í Kvennadeild SVFÍ á Dalvík stóðu nýlega fyrir því að setja upp skilti við Dalvíkurhöfn þar sem sjófarendur eru minntir á Tilkynningaskylduna. Hafa Jtvennadeildir innan Slysavarna- félagsins staðið fyrir uppsetn- ingu slíkra skilta víða um land: Nú þegar vetur fer í hönd og veður gerast ótrygg veitir ekki af að minna sjófarendur á að tilkynna sig. Mikill misbrestur er á því að skipstjórar sinni þessari skyldu sinni og eru þekktar auglýsingar í útvarpi þar sem sjófarendur eru minntir á að tilkynna sig til næstu Slysavarnakonur á Dalvík minna sjómenn á Tilkynningaskylduna. strandstöðvar. Með tilliti til þessa höfðu slysa- varnakonur á Dalvík forgöngu um að útbúa skilti með áminningu til sjómanna. Nutu þær aðstoðar björgunarsveitar SVFÍ á Dalvík og voru skiltin sett þannig upp að allir sjófarendur sem um Dalvíkurhöfn fara ættu að taka eftir. Fréttaritari Sjómenn í Hrísey eru einnig minntir á að tilkyiina sig. Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.