Morgunblaðið - 30.11.1990, Qupperneq 2
oeef H3HM3VÖVÍ..Q8 ÍTJOAaUTP.Ö'í /fiSAjaKuoaoi
MORGUNBLAÐIÐ FOSTU-ÐAGUR 30. NOVEMBER 1990
Hjúkrunarfélag íslands:
85% samþykkja
úrsögn úr BSRB
MIKILL meirihluti félagsmanna í Hjúkrunarfélagi íslands greiddi
atkvæði með úrsögn úr Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, en
talið var í atkvæðagreiðslu um það í gær.
Félagar í Hjúkrunarfélagi ís-
lands eru um 2.100 talsins, en þar
af eru 1.471 í BSRB. Af þeim
greiddu 1.229 atkvæði, eða 83,54%,
og voru 1.050 þeirra fylgjandi úr-
sögn úr BSRB, eða 85,43% þeirra
sem greiddu atkvæði. Gegn úrsögn-
inni voru 150, eða 12,2% af þeim
sem greiddu atkvæði, og auðir
seðlar voru 29, eða 2,35%.
Hótel Borgarnes:
Pétur
Geirsson
eignast
meirihluta
Borgarnesi.
TVEIR af stærstu hluthöfum í
Hótel Borgarnesi hf. hafa ákveð-
ið að selja Pétri Geirssyni veit-
ingamanni eignarhluta sinn. Bæj-
arstjórn Borgamess ákvað að
se^ja honum hlutafé sitt, 32%, og
Ferðamálasjóður, sem á 40%,
ætlar að gera slíkt hið sama,
þannig að Pétur éignast a.m.k
72% hlutafjár.
í byrjun mánaðarins gerði stjóm
Hótels Borgarness óformlegt sam-
komulag við Pétur Geirsson veit-
ingamann í Hreðavatnsskála um
kaup hans á hótelinu. Síðan kom í
ljós að meirihluti stjómar Kaupfé-
lags Borgfirðinga, sem á um -20%
hlutafjár, vildi ekki selja Pétri og
gerði kaupfélagið í framhaldi af því
tilboð í hlutabréf annarra eigenda
á grundvelli þess samkomulags sem
gert hafði verið við Pétur að við-
bættum 5%. Borgamesbær hafnaði
fyrir sitt leyti tilboði kaupfélagsins
og á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
kvöld var samþykkt með 5 atkvæð-
um, 2 sátu hjá, að selja Pétri hluta-
bréf bæjarins á því verði sem kaup-
félagið bauð. Ferðamálasjóður hafði
samþykkt að gera hið sama. Pétur
hefur boðist til að kaupa hlut ann-
arra hluthafa á sama verði. Á hlut-
hafafundi Hótels Borgamess hf. í
gærkvöldi var þessi niðurstaða
kynnt.
Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
og stjórnarformaður Hótels Borgar-
ness sagðist fagna því að þessi mál
væru komin í höfn og vona að hag
hótelsins væri vel borgið með þess-
ari lausn.
- TKÞ
Sigþrúður Ingimundardóttir,
formaður Hjúkrunarfélags íslands,
sagðist vera mj,ög ánægð með hvað
njúkrunarfræðingar hefðu tekið af-
gerandi afstöðu í þessu máli. „Það
hefur í vaxandi mæli komið fram
ákveðin gagnrýni á þá launastefnu
sem rekin hefur verið innan BSRB,
en þessi umræða í okkar félagi nær
aftur fyrir 1980, og í atkvæða-
greiðslu um þetta árið 1982 var
samþykkt með 10% atkvæða mun
að vera áfram í BSRB. Þá var
ástæðan vafalaust sú að samnings-
rétturinn var hjá BSRB, en frá því
samningsréttarlögin tóku gildi 1986
hefur félagið séð um sín kjaramál.“
Sigþrúður sagði að stjómir Fé-
lags háskólamenntaðra hjúkrunar-
fræðinga og Hjúkrunarfélags Is-
lands ynnu nú markvisst að því að
sameina félögin, en mikill meiri-
hluti félagsmanna í báðum félögun-
um hefur lýst sig fylgjandi því.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrstujólatrén reist
Fyrstu jólatrén hafa verið sett upp undánfarna daga. í gær var reist tré við Kalkofnsveg, skammt frá
Seðlabankanum. Síðan var tréð snyrt með því að sagaðar vom af því neðstu greinarnar.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH:
Kvótasalan ýtir undir hng--
myndina um sölu veiðileyfa
bryddir á bæjarútgerðum á ný
„ÉG ER anzi hræddur um að sú
staðreynd að kvótinn gengur nú
kaupum og sölum í vaxandi
mæli verði til þess, að hugmynd-
inni um sölu veiðileyfa vaxi hratt
fylgi. Þar á útgerðin ekki við
Bankar og sparisjóðir:
Engar vaxtabreytingar
ENGAR breytingar verða á vöxtum banka og sparisjóða um mánaða-
mótin en miðað við verðbólguútlit er gert ráð fyrir að nafnvextir
hækki eitthvað síðar í mánuðinum.
Samkvæmt nýrri verðbólguspá
Seðlabankans er gert ráð fyrir að
verðbólga verði um 8% að jafnaði
fram eftir næsta ári og að hún
aukist frá upphafi til loka desember.
í nýútkomnum Hagtöium mán-
aðarins, sem Seðlabanki íslands
gefur út, kemur fram að raunvext-
ir óverðtryggðra skuldabréfalána
viðskiptabanka og sparisjóða voru
að meðaltali 12,3% á þriðja ársfjórð-
ungi þessa árs og 12,8% á fyrsta
ársfjórðungi, og hafa ekki verið
hærri á þessum áratug. Á öðrum
ársfjórðungi voru raunvextirnir
hins vegar 4,6%. Seðlabankinn telur
að raunvextir óverðtryggðra
skuldabréfa stefni í að verða um
4%_ hærri en í fyrra.
í Hagtölum mánaðarins segir að
viðskiptabankar og sparisjóðir hafi
ekki náð að láta vaxtalækkanir al-
veg fylgja takti verðbólguhjöðnun-
arinnar á árinu. Þessi tregða bank-
anna hafi verið áberandi seinnihluta
sumars, en búast hefði mátt við
því, þegar verðbólga hjaðnaði, að
raunvextir lækkuðu.
Borgaraflokkurinn:
Formaður þingflokks
hættur að styðja sljórnina
GUÐMUNDUR Ágústsson formaður þingflokks Borgaraflokksins
tilkynnti Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra í gær að hann
styddi ekki ríkisstjórn hans lengur. Ástæðan mun vera óánægja með
að Borgaraflokkurinn fékk ekki mann í bankaráð Seðlabanka eins
og hann hafði gert kröfu um.
Steingrímur Hermannsson stað-
festi það við Morgunblaðið, að Guð-
mundur hefði tilkynnt sér að hann
teldi sig óbundinn af ákvörðunum
ríkisstjórnar en tæki afstöðu til ein-
stakra mála eftir efni þeirra. Þann-
ig sagðist Steingrímur telja að Guð-
mundur styddi bráðabirgðalög
ríkisstjórnarinnar, enda hefði hann
staðið að setningu þeirra. Guð-
mundur á sæti í efri deild og ríkis-
stjórnin heldur þar meirihluta eftir
sem áður.
Steingrímur sagði aðspurður að
Guðmundur væri óánægður með
skipan bankaráðs Seðlabankans.
„Hins vegar voru öll þau mál af-
greidd milli stjórnarflokkanna í einu
lagi þegar kosið var í bankaráð við-
skiptabankanna og Borgaraflokk-
urinn fékk mann í bankaráð Búnað-
arbankans svo ég hélt að það væri
afgreitt mál. Ég átti fund með for-
manni Borgaraflokksins [Júlíusi
Sólnes] á miðvikudagsmorgun og
hann staðfesti að þessi mál hefðu
verið afgreidd á sínum tíma. Þessi
mál voru svo rædd oftar en einu
sinni í fjarveru hans við dómsmála-
ráðherra [Óla Þ. Guðbjartsson] svo
þetta kom mér mjög á óvart,“ sagði
Steingrímur.
Steingrímur sagðist ekki líta
þetta mál alvariegum augum, og
vonaði að þetta jafnaði sig, þótt
honum þætti alltaf slæmt ef ein-
hver þingmannanna væri óhress.
Ekki náðist tal af Guðmundi
Ágústssyni í gær.
neina að sakast aðra en sjálfa
sig. Rétt er og að minna á, að í
mýjum lögum, sem taka gildi um
áramótin, segir að kvótinn myndi
ekki eignarrétt eða óafturkallan-
legt forræði,“ sagði Friðrik Páls-
son, forsljóri SH, meðai annars
á ráðstefnu Fiskiðnar um framtíð
fiskvinnslu i landi i gær.
Friðrik sagðist hafa áhyggjur af
því í hvaða átt umræðan um kvót-
ann væri að sveigjast. Rétt væri
að minna á, að aðalrökin gegn sölu
veiðileyfa í upphafi hefðu verið, að
útgerðin þyldi ekki þær álögur, sem
því fylgdu. Því miður hefðu þær
röksemdir reynzt haldlitlar, þegar
vaxandi hluti kvótans gengi kaup-'
um og sölum, án þess að eigendur
hans hefðu nokkuð með það að
gera. Hann spáði miklum átökum
um kvótann og sagði að meginmein-
semdin, sem við ættum við að glíma
í sjávarútvegi í dag, væri sú, að
okkur hefði ekki tekizt nægilega
vel í upphafi að skilgreina vandann.
Hann nefndi einnig að ein alvar-
legustu hliðaráhrifin af setningu
kvótalaganna, sem við værum nú
rétt að sjá brydda á, væru bæjarút-
gerðir, ef svo mætti kalla, sem
væru að verða til. Þar væru byggð-
arlög að reyna að kaupa aftur dýr-
um dómum þann kvóta, sem þau
hefði' misst, eða væru í þann veginn
að missa, þegar skip væru seld
þaðan. Verðið á kvótanum markist
af hagnaði og hagnaðarvon eða ef
til vill einnig örvæntingu.
Friðrik ræddi síðan um markaði
fyrir sjávarafurðir og sagði: „Við
getum betur nýtt okkur ferskfisk-
markaðina, sem títt eru nefndir,
með útflutningi á ferskum flökum,
en það gerum við ekki, vegna þess
að við látum undan þrýstingi Evr-
ópubandalagsþjóðanna um að flytja
mikið til þeirra óunnið, í stað þess
að segja við þá, að við getum ein-
faldlega ekki sætt okkur við þá
mismunun, sem felst í því að þurfa
að borga allt að 42% eða jafngildi
þess á fiskflök. Ég hef þá bjarg-
föstu trú, að við fengjum hlustað á
- þetta sjónarmið, enda er til dæmis
Humber-svæðinu mikið kappsmál
að fá ferskan fisk til sín í dreifingu
og þeir myndu mikið á sig leggja
svo að til mikils samdráttar i fersk-
fiskframboði þyrfti ekki að koma.
Mér finnst það vera skylda
stjórnvalda, að segja þessum mönn-
um það strax, að í framtíðinni verði
allur fiskur af íslandsmiðum til-
reiddur 'á íslandi og nútíma- og
framtíðartækni í umbúðum og
flutningum verði notuð til að
tryggja að við getum nýtt okkur
þá beztu markaði fyrir frystan,
ferskan, saltan, grafinn, reyktan
eða kæstan fisk eða hvað sem hann
kallast. Það skiptir engu máli, en
það á að vinna hann á íslandi."
Óly mpíuskákmótið:
Naumt tap
fyrir A-Þjóð-
verjum
ÍSLENSKA skáksveitin tapaði
naumlega fyrir þeirri austur-
þýsku, 1,5-2,5 í 11. umferð
Olympíuskákmótsins í Novi Sad
í Júgóslavíu. Sveitin er nú í
kringum 15.-20. sætið með 25,5
vinninga, en Sovétmenn leiða
mótið með 30 vinninga og bið-
skák.
I viðureignunum fjórum fékk
Helgi Ólafsson fljótlega betra tafl
gegn Bonsh en andstæðingnum
tókst að veijast og ná jafntefli.
Margeir Pétursson var með svart
gegn Knaak, tókst aldrei að jafna
taflið, og tapaði. Jón L. Árnason
tefldi franska vörn gegn Uhlman
og samdi um jafntefli í 25. leik.
Jóhann Hjartarson reyndi mikið að
vinna Gruenberg á 4. borði en tókst
ekki.
Sovétmenn hafa þegar fengið 2,5
vinninga gegn Búlgurum en ein
skákin fór í bið. Þá er jafnt í viður-
eign Englendinga og Júgóslava en
þar er einnig biðskák. Bandaríkja-
menn unnu stórsigur á c-liði Júgó-
slava, 4-0, og komust við það í 2.
sætið með 28,5 vinninga.
Sjá skákþátt bls. 27.
'ð£&