Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
15
hefur gerst á öðrum stöðum á
hnettinum. Enda eru amerískir
listamenn börn síns tíma og um-
hverfis líkt og evrópskir. Á sama
hátt bíður maður spenntur eftir
því, að upp rísi stórir og sterkir
sovézkir myndlistarmenn, sem
túlka sín sérkenni svo afdráttar-
laust, að öllum útlendum megi
vera þau augljós.
Þessi sýning á að marka upphaf
verkefnisins Aldarlok, sem á að
endurspegla það ástand, sem ríkir
í nútímalist og nota til þess listina
sjálfa. Reiknað er með að verkefn-
inu verði lokið á tíu árum og munu
þekktir listamenn frá ýmsum lönd-
um sýna verk sín og skipst verður
á sýningum milli landa. Lista-
mennirnir munu í verkum sínum
túlka afstöðu sína og skilning á
því ástandi sem ríkir í listinni á
mörkum tveggja alda og jafnframt
tveggja árþúsunda. Verkefninu á
svo að ljúka með einni allsherjar
sýningu — stórfenglegri sýningu
á árinu 2000, og á hápunktur sýn-
ingarinnar að verða uppsetning
minnisvarða um aldarlokalist.
Dálítið vafasamt markmið eins
og það er sett fram, og er ekki
víst að það nái tilgangi sínum, því
að hversu færir voru listamenn
síðustu aldamóta um að dæma,
hvað væri einkennandi fýrir lifandi
list á þeim miklu uppstokkun-
artímum?
Erum við svo miklu gáfaðri í
nútímanum?
Ekki sýnist mér það, og þetta
ber einhvern svip af miðstýringu,
heimséndakenningu og öðru slíku,
því að auðvitað er þessu hleypt
af stokkinum af fólki, sem álítur,
að list sín og skoðanabræðra sé
nútíðin, framtíðin og eilífðin. Og
skondið er, að menn skuli vilja
baktryggja sig á þennan hátt tíu
ár fram í tímann.
En hugmyndin í sjálfu sér er
góðra gjalda verð, þótt hún hafi
öll skilyrði til að mistakast í þessu
formi og þá einkum, ef forsjár-
hyggja, markaðsöflin og kaup-
stefnusjónarmiðin ein eigi að
kveða á um, hvað sé núlist, eins
og J)au gera í nútíðinni.
Eg vil þó trúa því að það verði
sem fyrr listamennimir sjálfir og
hugvit þeirra, sem muni hafa
síðasta orðið.
Víst minnir heilmargt á Sov-
étríkin á sýningunni, en það hefur
jafnvel meiri svip af að vera í
anda hinnar opinberu stefnu í list-
um liðinna áratuga, en frelsun úr
viðjum hennar, að viðbættum ýms-
um kunnuglegum táknum úr vest-
rænni núlist.
Sé maður ekki altekinn af ein-
hverri þröngri hugmyndafræði-
legri kreddu í listum, þá fer þessi
sýning fyrir ofan garð og neðan
hjá skoðandanum og skapar mikið
tóm sem krefst uppfyllingar. Þótt
ýmsir kunni að hafa gaman af,
hygg ég að það stafi um margt
af ókunnugleika um þróunina í
Rússlandi, og þeir voru margir af
annarri gerð myndlistarmanna,
sem ótrauðir buðu ríkisforsjá og
miðstýringu birginn. Voru sumir
hundeltir og hraktir úr landi.
Skulu þeir gleymdir og eiga
þeir að teljast sýkill eða kýli á
líkama listarinnar?
Slíkur áróður gegn þeim, sem
brautina ruddu þekkir maður
næsta of vel hér vestan megin.
En sýningin er þó með sanni
heimsóknar virði, því að mikilvægt
er að vera með á nótunum, og það
verður spennandi að fylgjast með
hinu nýja gerska ævintýri og eng-
inn fortekur, að meðal listamann-
anna kunni ekki að leynast vaxtar-
broddur framtíðarinnar.
YERA,—vandaðir borðdúkar og servíettnr.
Haldirðu veglegan málsverð skaltu vanda
til borðbúnaðarins.
Vera borðdúkar og servíettur eru úr góðu, mjúku og straufríu efni.
Ótrúlega mikið úrval fallegra og bjartra lita.
Og nú er um að gera að nota hugmyndaflugið við servíettubrotin.
Jólasendingin komin
5% staðgreiðsluafsláttur
kosta)íboda1
•--,--/V_____/
Kringlunni 8-12, sími 689122.
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FOSTUDAGUR TIL FJAR
D
<