Morgunblaðið - 30.11.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
27
Ólympíuskákmótið í Novi Sad:
Sovétmenn í efsta sæti
___________Skák______________
Karl Þorsteins
LOKASPRETTURÍNN er
framundan á Olympíuskákmót-
inu í Novi Sad í Júgóslavíu.
Þegar fjórum umferðum er
ólokið á mótinu er sovéska
skáksveitin í efsta sæti með 28
vinninga en á hæla hennar
kemur enska skáksveitin.
V2 IV2 vinningur skilja að sveit-
irnar en munurinn 'gæti minnkað
þar sem enska sveitin á biðskák
til góða. Keppnin er gríðarlega
jöfn og eins og sjá má skilur að-
eins einn vinningur sveitina_ í
fjórða sæti og því fjórtánda. ís-
lenska sveitin er í 9.-14. sæti með
24 vinninga og til samanburðar
er vinningshlutfallið það sama og
í Dubai fyrir fjórum árum, sællar
minningar:
1. Sovétríkin 28 v.
2. England 26 V2 v. + biðskák.
3. Júgóslavía 25 V2 v.
4. Búlgaría 25 v.
5. -7. Bandaríkin 24 V2 v. Tékkó-
slóvakía 24 V2 v. Júgóslavía-c 24 V2
v.
8. V-Þýskaland 24 v. + biðskák.
9. -14. A-Þýskaland 24 v.,
Svíþjóð 24 v., ísland 24 v., Portúg-
al 24 v., Ungvetjaland 24 v. og
Júgóslavía-b 24 v.
Góður sigur í síðustu umferðun-
um getur auðveldlega fleytt sveit-
um upp um 10 sæti. Því er ekki
að ósekju talað um að lokaumferð-
irnar skipti höfuðmáli í mótum
þar sem teflt er samkvæmt
Monrad-kerfi. Meginmarkmið
íslensku _ sveitarinnar á undan-
förnum Ólympíuskákmótum hefur
því beinst að því að koma í veg
fyrir að sveitin mæti allra sterk-
ustu sveitunum í síðustu umferð.
Góður árangur framan af móti
gæti auðveldlega farið í súginn
við slíka viðureign! í Ólympíu-
skákmótinu í Dubai 1986 mætti
sveitin Spánverjum í viðureign þar
sem báðir aðilar voru staðráðnir
í að vinna stóran sigur. Það tókst
hjá Islendingum og lyktir urðu
3V2-V2 fyrir jsland og 5. sætið var
staðreynd. Á ólympíuskákmótinu
í Þessalóniku tókst ekki jafn vel
til. A-Þjóðvetjar voru andstæðing-
ar sveitarinnar í síðustu umferð
og viðureignin endaði með jafn-
tefli 2-2 og sautjánda sæti varð
niðurstaðan.
Árangur sveitarinnar á mótinu
nú er með ágætum þótt með örlít-
illi heppni væri sveitin með fleiri
vinninga. Góður stígandi hefur
verið í taflmennskunni sem lofar
góðu fyrir lokaumferðirnar. Það
sem skort hefur á árangurinn er
einkum stórir sigrar’'jegn sveitum
sem álitnar eru nokkuð lakari en
hið íslenska. Það var aðeins gegn
Mexíkó í sjöundu umferð sem
slíkur sigur vannst. I 10. umferð
Umferð:
TD
. C
ci
c
T3
« M
| á
2 g
C
e
'Cð '-3
p, cs
œ ,±í
cS
•R
,0
g. M
.s- « s
^ o> ,5
e s *
cS .S
& 'C
'w 43
'O y,
bo g
Vinn. Skákir
Helgi Ólafsson 0 1 >/2 0 1 1 0 >/2 4 8
Margeir Pétursson 0 >/2 1 1 */2 >/2 >/2 1 >/2 5>/2 9
Jón L. Árnason >/2 1 0 >/2 1 1 1 0 5 8
Jóhann Hjartarson 1 1 >/2 1 0 1 >/2 >/2 1 6>/2 9
Héðinn Steingrímss. 1 >/2 0 l>/2 3
Björgvin Jónsson 1 0 >/2 l>/2 3
l>/2 4 l>/2 2>/2 2>/2 2>/2 3>/2 2>/2 2 2
mótsins tefldi íslénska sveitin við
þá bandarísku og lauk viðureign-
inni með jafntefli 2-2. Þótt fyrir-
fram teljist þau úrslit góð fyrir
landann var útlit fyrir íslenskan
sigur á meðan á viðureigninni
stóð. Á tveimur efstu þorðunum
lauk skákum Helga Ólafssonar
við Seirwan og Margeirs Péturs-
sonar við Gulko með jafntefli eft-
ir fremur stuttar viðureignir. Á
meðan yfirspilaði Jóhann Hjartar-
son stórmeistari Fedorowicz á
fjórða borði í kóngindversku tafli.
Fedorowicz gafst upp eftir 40
leiki. Jón L. Árnason hafði tögl
og halgdir í viðureign sinni gegn
Benjamin á þriðja borði. Hann
stóð til vinnings uns tímahrak
kom til sögunnar. Jón urðu þá á
alvarleg mistök sem gerðu væn-.
lega stöðu skyndilega tapaða.
Árangur íslensku skákmann-
anna hefur verið misjöfn á mótinu
eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu. Jóhann Hjartarson hefur
besta vinningshlutfallið, rúm 72%
og hefur teflt mjög sannfærandi
á mótinu.
Helgi Ólafsson vann góðan sig-
ur í 6. umferð gegn filippeyska
skákmeistaranum Torre.
Hvítt: Torre
(Filippseyjum)
Svart: Helgi Ólafsson
Frönsk vörn
1. e4 — cð, 2. Rf3 — e6, 3. c3
— d5, 4. e5 — b6, 5. d4
Skákin hefur tekið óvænta
stefnu strax í upphafi. í stað hefð-
bundinnar Sikileyjarvarnar er nú
komin upp franskt tafl. Ég geri
ráð fyrir að í undirbúningi fyrir
skákina hafi hvorugan keppanda
grunað að svo færi!
5. - Dd7, 6. Ra3 - Ba6, 7.
Bxa6 — Rxa6, 8. Rc2?!
Nú getur hvítur ekki vænst
frumkvæðis. Eðlilegra var að leika
8. De2 — Rc7, 9- b3 og vera tilbú-
inn að drepa til baka með riddara
á d4.
8. - Re7, 9. 0-0 - Rc6, 10.
Bg5 - h6, 11. Bh4 - Be7, 12.
Bxe7 - Dxe7,13. Rfel?! - cxd4,
14. cxd4 - 0-0, 15. Rd3 -
Rab4!, 16. Rcxb4
Möguleikar svarts eru heldur
betri þótt undir eðlilegum kring,-
umstæðum væri jafntefli rökrétt
úrslit í framhaldinu. Nú kom ekki
síður til álita að leika 16. Rdxb4
- Rxb4, 17. Re3 - Rc6, 18. a3.
16. - Rxb4, 17. Rf4 - Dg5, 18.
Re2 — Hac8, 19. a3 — Rc6, 20.
f4?
Eðlilegra var að leika 20. Dd3
't.d. 20. - Ra5, 21. Hacl - Rc4,
22. b3. Peðsfórnin í næsta leik
er nær þvinguð því svartur hótaði
21. - De4.
20. - Dg6, 21. f5 - exf5, 22.
Rf4 - Dg5, 23. Dd3 - Re7, 24.
Hael - Rg6!, 25. Rxd5 - Hfd8,
26. Hxf5 - Dh4, 27. g3 - Dg4,
28. Rc3
Nú gekk ekki 28. Rf4? - Rh4!.
Helgi hefði þurft að sjá endataflið
fyrir þegar hann lék sínum 24.
leik.
28. - Dxd4, 29. Dxd4 - Hxd4
í endataflinu hallar á hvítan.
Peðið á e5 er veikt og svörtu hrók-
arnir virkir. Mótspyrna Torre er
fremur veik í framhaldinu, hann
missir peðið bótalaust og stendur
þá uppi með gjörtapaða stöðu.
Besti möguleiki hans í stöðunni
var líklega að leika 30. e6! — f6,
31. Hd5. Eftir 31. - Hxd5, 32.
Rxd5 — Kf8, 33. Re3 er ekki
útséð um úrslit. í framhaldinu er
Helgi í essinu sínu. Úrvinnslan
er hnökralaus og lærdómsrík.
30. HT2? - He8, 31. Hfe2 -
He7, 32. h4 - h5, 33. Kg2 -
Hd8, 34. Rb5? - Hd5!, 35. Rd6
— Hexe5, 36. Hxe5 — Rxe5!, 37.
Re4 - f6, 38. He2 - Hd3, 39.
Rc3 - Kf7, 40. Re4 - Rc4, 41.
Rf2 - Hb3, 42. Rdl - Hd3, 43.
Rf2 - Hd2!, 44. Hxd2 - Rxd2,
45. Rd3 - g5, 46. b4 - Ke6,
47. a4 — Rc4, 48. b5 — Re5, 49.
Rb4 - Kd6, 50. Rc2 - Kd5, 51.
Rb4+ - Kc5, 52. Rc2 - Rg6,
53. Kh3 - g4+, 54. Kg2 - f5,
55. Re3 - Re7, 56. Rc2 - Rd5,
57. Kf2 - f4, 58. gxf4 - Rxf4,
59. Kg3 - Rd5
Og hvítur gafst upp.
Alexander Stefáns-
son hættir á þingi
ALEXANDER Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Vestur-
landskjördæmi, hefur ákveðið að hætta þingmennsku eftir þetta
kjörtímabil. Alexander kom fyrst inn á þing sem varaþinginaður 1973
og sat nokkur þing sem slíkur en aðalmaður varð hann 1978 og hefur
hann setið á þingi óslitið siðan. Hann var félagsmálaráðherra í ríkis-
sljórn Steingríms Hermannssonar frá 1983 til 1987.
„Niðurstaða mín var sú að skyn-
samlegast væri að hætta þing-
mennsku í vor því þetta er orðinn
nokkuð langur tími,“ sagði Alexand-
er.
Alexander hefur starfað að félags-
og stjórnunarmálum frá 1949, en þá
varð hann kaupfélagsstjóri í Ólafsvík
og tók sæti í sveitarstjórn 1953 þar
sem hann sat óslitið til 1981, og
varð oddviti og sveitarstjóri Ólafsvik-
ur 1963 og var það óslitið til 1981.
Þá er hann stofnandi og varaformað-
ur í Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi frá 1969 og varaformaður í
Hafnarsambandi sveitarfélaga. Hann
hefur gegnt mörgum stjórnunar-
störfum á Alþingi og sat meðal ann-
ars í fjárveitingarnefnd frá 1978 að
undanskildum ráðherraárunum.
„Það verður vissulega eftirsjá að
því að hætta á þingi en það er eigi
að síður mikil ánægja að geta litið
yfir farinn veg. Mér hefur fallið vel
Alexander Stefánsson.
að starfa á Alþingi og ber hlýjan hug
til allra þingmanna og starfsmanna.
Þetta hefur verið ákaflega góður
tími,“ sagði Alexander.
1: SAMYO ff
IVIDEO:
Hvar sérðu
það betra?
VRD4890 kr. 117.873,-
O
W
• Super VHS myndbandstæki • Mynd í mynd
(PIP) • Fjögurra hausa • Tveir hraðar á mynd
og hljóð • HiFi Stereo • Nicam • Stafrænt
(Digital) o.fl.
VHR 5700 kr. 65.025,-
stgr.
• HiFi Stereo • Nicam • Fullkomin kyrrmynd
og hægspilun • Hleður sig á einni sekúndu
• Audio-video • SCART-tengi o.fl.
VHR 7350
kr. 48.690,-
stgr.
• Tveir hraðar á hljóði og mynd • Fjögurra
hausa • SCART-tengi • Hleður sig á einni sek-
úndu
VHR7100 kr. 37.980,-
stgr.
• Hraðstart, hleður sig á eínni sekúndu •
SCART-tengi • Leitar að eyðu á spólu • Mynd
frá sjónvarpi meðan horft er á myndbandstæki
• Hraðstart • Fjölrása fjarstýring með upptöku-
minni • Myndleitun í báðaráttir • Truflunarlaus
kyrrmynd
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
i