Morgunblaðið - 30.11.1990, Side 33
MORGUNBUyÐlÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990,
■ RÍKISÚTVARPIÐ minnist 60
ára afmælis síns um þessar mundir.
Af því tilefni taka starfsmenn þess
á móti gestum í bækistöðvum Ríkis-
útvarpsins í Reykjavík og úti á landi
á fullveldisdaginn, laugardaginn 1.
desember. Þar fer fram kynning á
hinni fjölþættu starfsemi sem liggur
að baki dagskrárgerð fyrir útvarp
og sjónvarp og verða gestirnir við-
staddir beinar útsendingar og upp-
tökur á dagskrárefni. Einnig verður
gerð grein fyrir ýmsum tækniatrið-
um, sem miklu varða í rekstri stofn-
unarinnar og þjónustu hennar við
notendur um land allt. Opið hús
verður kl. 13.30 til 18.00 í útvarps-
húsinu í Efstaleiti hjá Sjónvarpinu á
Laugavegi 176 og í landshlutastöðv-
unum á Fjölnisgötu 3A á Akureyri,
Fagradalsbraut 9 á Egilsstöðum og
Aðalstræti 22 á ísafirði.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
29. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 93,00 83,00 90,16 6,137 553.373
Þorskur (stór) 80,00 68,00 69,84 0,608 42.460
Ýsa 97,00 92,00 96,15 0,973 93.552
Ýsa (ósl.) 100,00 80,00 87,30 8,259 720.982
Karfi 47,00 47,00 47,00 1,527 71.786
Ufsi 40,00 40,00 40,00 0,114 4.560
Ufsi (ósl.) 33,00 33,00 33,00 0,108 3.564
Steinbítur 59,00 59,00 59,00 0,329 19.411
Steinbítur(ósl.) 59,00 42,00 46,15 0,388 17.905
Koli 58,00 48,00 57,50 0,179 10.293
Skötubörð 75,00 75,00 75,00 0,006 450
Smáýsa (ósl.) 54,00 53,00 53,38 0,323 17.243
Lýsa (ósl.) 45,00 45,00 45,00 0,073 3.285
Smáþorskur(ósL) 69,00 69,00 69,00 0,462 31.878
Langa (ósl.) 53,00 53,00 53,00 0,238 12.614
Keila(ósL) 20,00 20,00 20,00 0,282 5.640
Smáþorskur 80,00 80,00 80,00 0,522 41.760
Lúða 495,00 310,00 369,34 . 0,242 89.195
Langa 67,00 67,00 67,00 0,393 26.331
Keila 39,00 20,00 34,57 0,840 29.036
Samtals 82,00 28,628 2.347.464
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 135,00 72,00 102,26 32,797 3.353.932
Ýsa 100,00 59,00 87,96 2,572 226.221
Blandað 33,00 33,00 33,00 0,508 16.764
Skarkoli 80,00 80,00 80,00 0,020 ' 1.600
Skata 94,00 94,00 94,00 0,016 1.504
Skötuselur 180,00 178,00 178,23 0,071 12.654
Koli 75,00 75,00 75,00 0,292 21.900
Undm.fiskur 76,00 76,00 76,00 1,500 114.000
Síld 10,00 6,35 7,90 6ý,251 507.890
Hlýri 43,00 43,00 43,80 0,100 4.300
Karfi 48,00 45,00 46,27 32,346 1.496.760
Blálanga 72,00 55,00 69,13 2,199 152.041
Ufsi 55,00 15,00 41,16 3,020 124.290
Steinbítur 56,00 43,00 44,31 0,199 8.817
Langa 72,00 13,00 66,66 2,713 190.862
Kinnfiskur 250,00 250,00 250,00 0,018 4.500
Keila 48,00 33,00 37,21 3,145 ■ 117.026
Lúða 395,00 255,00 370,88 1,241 460.260
Kinnar 90,00 90,00 90,00 0,034 3.060
Gellur 301,00 301,00 301,00 0,023 6.923
Samtals 46,34 147.065 6.815.304
Selt var úr Ólafi Jónssyni, Búrfelli o.fl. Á morgun verður selt úr dagróðrabátum.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur,
19. sept. - 28. nóv., dollarar hvert tonn
Morgunblaðið/Silli
Umræður nefnir Sigurður þetta verk sitt.
Húsavík:
Fjölhæfur listamaður
Húsavík.
HINN fjölhæfi listamaður Sigurð-
ur Hallmarsson hafði sýningu í
Safnahúsinu á Húsavík um síðustu
helgi og sýndi þar um 40 vatnslita-
myndir. Þetta er þriðja einkasýn-
ing Sigurðar en hann hefur tekið
þátt í mörgum samsýningum.
Sýningin var mjög vel sótt enda
hin athyglisverðasta og seldust 32
myndir af 37 sem til sölu voru. Við
opnun sýningarinnar lék Katrín,
óperusöngvari, dóttir Sigurðar á
píanó við hrifningu sýningargesta.
Sigurður er fjölhæfur listamaður
og hefur um dagana auk málaralist-
arinnar fengist við leiklistina bæði
á sviði og í kvikmyndum, stjórnað
kórum og lúðrasveitum, og er nú
að stjórna sýningu á leikriti Kjartans
Ragnarssonar, Land míns föður, sem
búið er að sýna á Húsavík í 32 skipti
við mjög góða aðsókn og undirtekt-
ir. Sigurður hefur hlotið listamanna-
laun fyrir listsköpun sína.
- Fréttaritari
Garðar Sigurðsson og Kolbeinn Kristinsson velta fyrir sér pakkaðri
folaldatungu.
Hella:
Folaldakjötíð flýgur út
13% aukning í stórgripaslátruninni
Selfossi.
MEIRI eftirspurn er eftir foialdakjöti hjá sláturhúsi Þríhyrnings hf.
á Hellu á þessu hausti en áður. Búið er að slátra um 1.000 folöldum
og kjötið hefur aídrei selst betur en nú.
Þríhyrningur hf. rekur stórgripa-
slátrun á Hellu þar sem slátrað er
nautgripum, svínum, hrossum og
folöldum. Á einu ári hefur orðið 13%
aukning í stórgripaslátruninni.
Sláturhúsið á Hellu er eitt þriggja
sláturhúsa sem rekin eru undir sam-
eiginlegri yfirstjórn Hafnar hf. á
Selfossi og Þríhymings hf. Auk þess
falla undir þá yfirstjóm tvær kjöt-
vinnslustöðvar, á Selfossi og í
Þykkvabæ, og tvær verslanir, önnur
á Hellu og hin á Selfossi. í sláturhús-
inu í Þykkvabænum er eingöngu
slátrað sauðfé, stórgripum á Hellu
en bæði sauðfé og stórgripum á
Selfossi, í sláturhúsi Hafnar hf.
Það eru 50—55 manns sem vinna
hjá þríhyrningi hf. á Hellu og í
Þykkyabæ, við verslun, í sláturhús-
unum í kjötvinnslunni. Við þetta
■ SÝNING tveggja ungra lista-
manna stendur nú yfir í mennta-
málaráðuneytinu. Guðjón Bjarna-
son sýnir rúmlega 60 olíumálverk
og skúlptúra og Sigríður Rut
Hreinsdóttir sýnir 20 vatnslita-
myndir. Sýningin er öllum opin á
venjulegum skrifstofutíma frá kl.
9-17 alla virka daga og stendur
til 5. janúar 1991.
bætast síðan 40—44 þegar sauðfjár-
slátrun hefst á haustin í Þykkvabæ.
„Folaldakjötið er mjög gott, ekki
síst folaldatungan,“ sagði Garðar
Sigurðsson aðstoðarsláturhússtjóri á
Hellu. „Henni er skellt í kalt vatn
eftir suðuna og húðin tekin af og
þá ertu kominn með sælgæti. Þetta
má borða kalt með heitri pipar- eða.
gráðostasósu," sagði Garðar.
—Sig. Jóns.
Teppavélaleiga
Kristínar:
Tækjakostur
endurnýjaður
Teppavélaleiga Kristínar hefur
nú endurnýjað og bætt tækjakost
sinn, en fyrirtækið leigir út vélar
til hreinsunar á gólfteppum og
húsgögnum.
Teppavélaleiga Kristínar leigir út
vélar af Karcher-gerð með tvöfaldri
vél en við þeð eykst sogkraftur
þeirra verulega. Leigan er opin alla
daga og hægt er að fá vélarnar
sendar heim, sé þess óskað.
■ FÉLAGAR í Ungmennahreyf-
ingu Rauða kross Islands munu
kanna viðhorf ungs fólks til alnæm-
is í tengslum við alþjóðlega alnæmis-
daginn sem er 1. desember. Könnun-
in verður framkvæmd á Háskólaball-
inu að kvöldi 30. nóvember og þrem-
ur almennum. dansleikjum í höfuð-
borginni daginn eftir. Þátttakendur
í könnuninni verða spurðir nokkurra
almennra spurninga um alnæmi.
Vonast er til að svörin muni gefa
einhverja vísbendingu um þekkingu
og viðhorf þess fólks sem sækir al-
menna dansleiki til sjúkdómsins.
Þátttakendum verður afhentur
smokkur til að leggja áherslu á
umræðuna um öruggt kynlíf. Álíka
könnun var gerð á sama vettvangi
í fyrra í samráði við landlæknisem-
bættið. Niðurstöður kannana
tveggja bornar saman og niðurstöð-
ur síðan kynntar íjölmiðlum í frétta-
tilkynningu.
------♦♦ »------
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líffræðinemar að ganga frá út-
sendingu efnis.
Jólasöfnun
Hjálparstofn-
unar undirbúin
UNDIRBÚNINGUR vegna árlegr-
ar jólasöfnunar Hjálparstofnunar
kirkjunnar stendur nú sem hæst.
Líffræðinemar lögðu hönd á plóg-
inn um síðustu helgi og gengu frá
útsendingu efnis sem sent verður inn
á öll heimili landsmanna næstu daga.
---------------
Athugasemd
Leyfi mér að óska að Morgunblað-
ið birti eftirfarandi athugasemd
við greinarstúf er birtist í Morg-
unblaðinu í gær:
í Morgunblaðinu 28. nóvember sl.
birtist traustsyfirlýsing 26 manna
og kvenna á störf frú Margrétar
Eggertsdóttur sem er tónlistarráðu-
nautur Kirkjugarða Reykjavíkur.
Þeir sem undir þetta rita eru prestar
og organistar sem allir hafa haft
samband við frú Margréti vegna
sinna starfa. Yfírlýsing þessi var
fyrst og fremst ætluð stjórn Kirkju-
garða Reykjavíkur. Að máli við okk-
ur sem fyrir þessu stóðum, hafa
komið margir þeir sem ekki náðist
til á þeim skamma tíma er við höfð-
um og lýst stuðningi sínum við téða
yfirlýsingu.
Þetta er skiljanlegt þegar það er
skoðað, hveijum sökum frú Margrét
er borin, og varla eðlilegt að þeir
sem betur vita nenni að sitja hjá
þegjandi.
Kjartan Sigurjónsson,
organisti, formaður fél. ísl. organ-
leikara.
Kristín með eina af teppahreinsi-
vélunum.