Morgunblaðið - 30.11.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
41
Hallbjörn Hjartarson/Kántrý 6 í Nashville
Kántrýkóng'urinn o g snill-
ingar úr Vesturheimi
leiða saman hesta sína
Hljémplötur
Ásgeir Sverrisson
Hallbjöm Hjartarson, kúreka-
söngvarinn einstaki frá Skaga-
strönd, hefur fyrir löngu sýnt og
sannað að heiðarleiki og náttúrugáfa
eru ekki síður mikilvægir eiginleikar
á tónlistarsviðinu en frumleiki, skól-
un og sköpunargáfa. Þessir hæfileik-
ar koma enn á ný skýrt í ljós á nýj-
ustu plötu Hallbjörns „Kántrý 6 í
Nashville“ en á henni nýtur hann
aðstoðar réttnefndra snillinga úr
Vesturheimi og íslenskra atvinnu-
tónlistarmanna. Þegar þvílíkt mann-
val ieiðir saman hesta sína hlýtur
sá fundur að teljast sögulegur og
það er þessi plata með réttu því aldr-
ei áður hefur Hallbirni og félögum
tekist jafn vel upp á löngum ferli
kúrekasöngvarans.
Á plötunni njóta þeir Hallbjörn
Hjartarson, Vilhjálmur Guðjónsson
gftarleikari, Magnús Kjartansson
píanóleikari, Finnbogi Kjartansson
bassaleikari og Halldór Hauksson
trymbill aðstoðar færustu atvinnu-
manna í Bandaríkjunum á sviði
kántrýtónlistar. Þeir eru allir starf-
andi í Mekka kántrýtónlistarinnar,
Nashville, hafa leikið með mörgum
þekktustu rokk- og kántrýstjörnum
Bandaríkjanna og nægir þar að
nefna Elvis Presley, Tammy Wyn-
ette, Lorettu Lynn, Roy Rogers,
Chet Atkins og B.B. King. Snilldar-
legur hljóðfærasláttur þessara
manna og vandaðar útsetningar
þeirra Vilhjálms, Magnúsar og Hall-
björns gera nýju plötuna sérlega
áheyrilega auk þess sem metnaður
og framtakssemi „íslenska kántrý-
kóngsins" (en svo nefnir fram-
kvæmdastjóri Omni Sound-hljóð-
versins í Nashville Hallbjörn Hjart-
arson) hlýtur að teljast öldungis til
fyrirmyndar.
Það er að sönnu rétt að frumleiki
er ekki einkenni kántrýtónlistar og
lítið fer fyrir því að menn reyni að
feta í fótspor landnemanna og btjóta
ný lönd undir sig á þessum vett-
vangi. Þetta á einnig við um Hall-
björn Hjartarson. Lagsmíðar hans
hafa aldrei verið frumlegar þó svo
textarnir á fyrstu plötunum hafi
verið sérstakir og framúrstefnulegir.
Hallbjörn hefur aldrei ætlað sér að
finna upp hjólið, fyrir honum hefur
vakað að skapa heiðarlega, íslenska
kántrýtónlist og það hefur honum
tekist. Á nýju plötunni kemur einnig
fram að hann er í mikilli framför
sem lagasmiður og tónlistarmaður.
Segja má að fyrsta lagið „Án þín“
gefi tóninn. Þetta er hressilegt lag
og stórbrotið sóló petal stíl-gítarleik-
arans Sonny Garrish vekur strax
athygli. (Þetta hljóðfæri var í eina
tíð nefnt „fetilgítar“ en fyrrnefnda
heitið hlýtur að teljast betra). Vil-
hjálmur Guðjónsson sýnir einnig
ágæta takta. Raunar er hann meira
áberandi á þessari plötu en „Kántrý
5“ sem kom út í fyrra og er það
vel. Vilhjálmur Guðjónsson hefur
lengi verið í fremstu röð hér á landi
og sýnir á þessari plötu að íjölhæf-
ari og smekklegri gítarlejkari er
vandfundinn. Næsta lag, „I einver-
unni“, er prýðileg kántrýballaða og
róið er á kunnugleg mið, með ágæt-
um árangri, í þriðja laginu „Davíð
frændi". Það fjallar um Davíð Odds-
son borgarstjóra en eins og aðdáend-
ur Hallbjörns muna var á-síðustu
plötunni að finna stórbrotið lag og
texta um Steingrím Hermannsson
forsætisráðherra og þótti mörgum
sem hendingin „leggur víða á hluti
mat“ lýsti honum og raunar mörgum
íslenskum stjórnmálamönnum vel.
Rúnari Kristjánssyni, höfundi text-
ans, tekst ekki alveg jafn vel upp í
laginu um Davíð borgarstjóra en þó
er þar að finna mjög glögga lýsingu
sem minnir um margt á hnitmiðaðar
mannlýsingar Islendingasagna:
„Það er gustur í hárinu á honum,
og heilanum undir því.“
Af öðrum lögum sem standa upp
úr á þessari plötu skulu nefnd
„Hundurinn Húgó“, „Blakkur",
„Fijáls ég vera vil“ og „í dag er ég
glaður". „Hundurinn Húgó“ hefst á
kántrýöskrum sem hljóma munu
kunnuglega í eyrum unnenda banda-
rískrar sveitatónlistar. „Blakkur" er
prýðilega samið íslenskt kántrýlag
°g mjög vel flutt. Að auki hlýtur
texti Elísabetar Árnadóttur að telj-
ast sá þjóðlegasti sem birst hefur á
íslenskri kántrýplötu til þessa, sbr:
„... markar fótur foldar stig. Höndin
strýkur mjúkan makkann, hér er
mál að hvíla sig.“ Hér er kveðið um
íslenskan hestamann/kúreka í ís-
lenskri sveit og ættu þeir sem ala
með sér efasemdir um að kántrýtón-
list geti nokkru sinni orðið íslensk
að kynna sér lagið og textann. Hall-
björn fer á kostum í laginu „í dag
er ég glaður", snillingarnir sem með
honum leika fá stutta einleikskafla
og Hallbjörn eggjar menn til afreka
með hvatningarhrópum.
Fagmennskan og metnaðurinn
sem einkenna þessa nýjustu plötu
Hallbjörns Hjartarsonar ætti að vera
öðrum íslenskum tónlistarmönnum
til fyrirmyndar. Hún ætti jafnframt
að vera öllum þeim sem eiga sér
drauma hvatning til að láta þá ræt-
ast. Framtakssemi og heiðarleika á
þessu sviði ber vitaskuld að styðja
og víst er að aðdáendur Hallbjörns
og unnendur íslenskrar kántrýtón-
listar munu ekki verða fyrir von-
brigðum með „Kántrý 6 í Nashville".
A
- sÆæjtÁ
§■
m
Við tökum smá forskot á jólin og leggjum á
borð að höfðingja sið. Að sjálfsögðu er allt
það besta úr íslenska búrinu, til dæmis
heitt og kalt hangikjöt ásamt laufabrauði.
Við lumum einnig á klassískum jólarétta-
uppskriftum frá útlöndum og berum fram
danska riíjasteik, sænska síldarrétti, gljáð
grísalæri og margt íleira girnilegt góðgæti
sem ómissandi er á höfðingjaborðum.
Jólaglögg að hætti hússins. Jólahlaðborðið,
í hádeginu og á kvöldin.
Leitin að fallegasta piparkökuhúsinu.
Móttaka á piparkökuhúsum hefst 8. desember.
Skilafrestur er til 28. desember.
Vegleg verðlaun.
Holiday Inn - Bylgjan - Veröld
■\\(C$UC$jCU) ^VUfV
Sigtúni 38-Sími: 689000
i
kg o&eins __; J
0% «súnw,ioo%
á laugar dag til
Allar búðir opnar
MEIANGE
smjörlíki, 500g
bnct í baksturmn
$011
urta
létt
itiiu
400
íöriíki
biw
ÆSHHKaBF fBBBBBr BStiBBHS
AIIKUG4RDUR
VIÐ SUND - JL-HÚSINU
GARÐABÆ - HAFNARFIRÐI
staður
IMJÖDD