Morgunblaðið - 30.11.1990, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
49
stærstu fjárbænda landsins. Söðlaði
síðar yfir í hrossa- og laxveiðibú-
skap. Búskapurinn á bökkum Þver-
ár var ævintýri líkastur og veitti
Kjartani ómælda lífsfyllingu, eftir
því sem ég veit bezt. Þar var hann
kóngur í ríki sínu, óháður öllum,
ftjáls eins og fuglinn fljúgandi. Þar
var hann á sínum heimavelli.
Jöfnum höndum gegndi Kjartan
oft lögfræðistörfum, rak eigin skrif-
stofu og var oft tímabundið fulltrúi
sýslumanna og fulltrúi sakadóm-
araembættisins í Reykjavík. Eftir
að bústörfum lauk að mestu, starf-
aði hann sem lögfræðingur hjá
Skattstofu Reykjavíkur og síðustu
starfsár sín sem fulltrúi hjá borgar-
fógetaembættinu í Reykjavík. Þetta
er starfsævi hans í hnotskurn.
Um lögfræðistörf Kjartans er ég
r'' ekki dómbær. Jafn glöggskyggn
maður sem hann var, hlýtur reynsla
hans og þekking að hafa nýtzt hon-
um vel í starfi. Eins veit ég, að lög
í sjálfu sér, samin af misvitrum lög-
fræðingum og samþykkt af ennþá
misvitrari alþingismönnum, voru
honum aldrei heilög kýr. Til þess
var hann alltof mannlegur. Tii þess
skynjaði hann hljómkviðu lífsins,
mannlega þáttinn á samskiptum
einstaklinganna, alltof vel.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu, var æviferill Kjartans óvenju-
legur og litríkur. Bóndi og lögfræð-
ingur. En það segir ekki söguna
alla. Hann var fyrst og fremst
menntamaður í þess orðs fyllstu og
beztu merkingu, feikn vel lesinn og
góður tungumálamaður.
Kjartan var maður mikill á velli,
vörpulegur og höfðinglegur í fasi,
enda höfðingi í sjón og reynd. Hann
var bjartur yfirlitum og bauð af sér
góðan þokka. Bak við alvarlegt yfir-
bragð leyndist létt lund, þótt eðlis-
læg hógværð jaðraði stundum við
afskiptaleysi. Kjartan var flug-
greindur og stálminnugur. Ráða-
góður var hann og með eindæmum
ráðhollur. Vinum sínum var hann
trölltryggur. Hann gat glaðzt með
glöðum, en naut sín að öðru jöfnu
bezt í heimahúsum innan um ást-
vini sína, eiginkonu og börn. Þeim
unni hann ósvikið.
Leiðir skilja og leiðir liggja sam-
an á ný. Eftir áralanga dvöl mína
erlendis, fjarri borg minni við sund-
in, fjarri gömlu og góðu Grettisgöt-
unni, tókum við Kjartan þráðinn
upp á ný, sem að vísu hafði aldrei
slitnað. Við hittumst og við kvödd-
umst og við glöddumst og við
hryggðumst. Nú voru æskuárin
langt að baki, en vegurinn til þeirra
auðrataður, þegar mikið lá við.
Villuljós á vegi framtíðarinnar
glöptu ekki sýn.
I dag drúpi ég hryggur höfði, þó
of bjart sé yfir minningunni til að
trega. Ég hugsa til eiginkonu hans
og barna, svo og annarra ástvina,
og óska þeim alls velfarnaðar.
Blessuð sé minning vinar míns,
Kjartans Jónssonar.
Jón P. Ragnarsson
pjisrrjpw^
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Minning:
Jón Bjamason
Nú þegar bróðir minn, Jón *
Bjarnason frá Haga, hefur kvatt
þennan heim, reikar hugurinn
ósjálfrátt til liðins tíma. A slíkum
stundum verða jafnvel löngu liðin
hverdagsleg atvik að dýrmætum
fjársjóði minninganna. Ein fyrsta
bernskuminning mín er frá leik
okkar bræðranna, þar sem ég naut
þeirra forréttinda að sitja á pallin-
um á „stóra vörubílnum" sem Nonni
hafði smíðað og var svo stór að
enginn nema þessi stóri bróðir minn
' gat dregið. Nonni var mjög laghent-
ur og var þegar á barnsaldri mjög
áhugasamur um smíðar og ýmiss
konar vélagrúsk og viðgerðir, enda
minnist ég þess að sjálfsagt var að
byija að gá niður í smíðahús eða út
í skemmu, ef maður þurfti að leita
hans. Oft var ég að sniglast í kring-
um hann þegar hann var að gera
við gamla jeppann jafnaldra sinna,
enda vildi ég fyrir engan mun missa
af „prufutúrnum" upp á Ásinn sem
alltáf fylgdi. Ég man líka hve stolt-
ur ég var af bróður mínum, sem
gat ekið um Hólana með skóla-
krakkana, þótt þeir væru ófærir
öllum öðrum vegna snjóþyngsla,
I uppvextinum var Nonni mjög
hraustur og sterkur og gekk að
öllum helstu störfum sem fullgildur
vinnumaður, löngu fyrr en aldur
sagði til um. Fyrir hann hefur
eflaust verið ævintýri líkast að
fylgjast með vélvæðingu búskapar-
ins, því að þótt ekki séu nema 10
ár á milli okkar var það nóg til
þess að hann hafði kynnst síðustu
dráttarhestunum, sem notaðir voru
í Haga. Eftir föður okkar hef ég,
að þegar ný vél kom á bæinn var
Nonni ekki í rónni fyrr en hann
skildi til fulls hvernig einstakir hlut-
ar, ósýnilegir sem sýnilegir, virk-
uðu. Manni lærðist fljótt að hvort
sem um var að ræða bilað leikfang
éða bilaða vél var öruggasta lausn-
in að „fá Nonna til að líta á þetta“,-
eins og það var gjarnan orðað svo
hæversklega. Það breytti engu þótt'
Nonni flytti til Blönduóss, alltaf var
jafn sjálfsagt að koma fram í Haga
til að líta á eitt eða annað sem
þarfnaðist viðgerðar.
Þótt leiðir skildu og dagleg störf
okkar væru ólík, urðu þeir ófáir
„prufutúrarnir“ af ýmsu tagi sem
við fórum saman á seinni árum.
Aðalstarf Nonna var að reka vöru-
bifreið og var hann alla tíð farsæll
bílstjóri. Hann var óragur við að
aka við erfiðar aðstæður og lét
ekki aðra segja sér fyrir verkum,
um hvað væri fært og hvað ekki,
ef því var að skipta. Þar sem hann
situr við stýrið á „stórum vörubíl"
er sú mynd sem ætíð mun standa
mér fyrir hugskotssjónum.
Fyrir rúmlega ári greindist sá
alvarlegi sjúkdómur sem nú hefur
lagt bróður minn að velli á miðri
leið. í þetta sinn reyndist torfæran
ofviða og hann varð að lokum að
lúta æðri dómi. Hann tók veikindum
sínum af nugrekki og reyndi að lifa
sem eðlilegustu lífi milli sjúkrahús-
dvalanna, dyggilega studdur af Sig-
urbjörgu konu sinni. Þegar við
kvöddumst í sumar var engan bil-
bug á honum að finna. Hann var
fullur bjartsýni og hafði jafnvel á
orði að hann myndi heimsækja mig
til Kanada. Hvorugan okkar grun-
aði að hann yrði svo fljótt kallaður
til þeirrar ferðar sem bíður okkar
allra.
Elsku Sibba, Bjarni og Gummi!
Ég og fjölskylda mín biðjum ykkur
allrar blessunar í sorg ykkar, megi
góðar minningar gera söknuðinn
léttbærari.
Lárus H. Bjarnason
Vegna mistaka við vinnslu
þessara kveðjuorða er þau birt-
ust í blaðinu, eru þau birt hér
aftur. Eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á mistökunum. Og
í annarri grein sem birtist
samtímis um hinn látna, eftir
Bjarna Jónsson, átti að standa
að hann hafi verið 10 mánaða
er hann fór í fyrstu fjárrekstrar-
ferðina með Jóni, sem var faðir
hans.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR,
Skeggjastöðum,
Garði,
verður jarðsungin frá Útskálakirkju í Garði laugardaginn 1. desem-
ber kl. 11.00.
Jón Haraldsson,
Þórdís Jónsdóttir, Axel Guðmundsson,
Hildur Axelsdóttir,
Ingvar Jón Gissurarson, Margrét Hallgrímsdóttir,
Nicolai Gissur Ingvarsson.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
KJARTAN JÓNSSON
lögfræðingur,
Selbraut 26,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 30. nóvem-
ber, kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hans,
er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Þorbjörg Pétursdóttir,
Pétur Kjartansson, Jón Kjartansson,
Magnús Kjartansson, Guðmundur Kjartansson,
Sigrún Kjartansdóttir, Margrét Kjartansdóttir,
Kristján Kjartansson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar,
GUÐNÝ INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Eskihlið 12A,
Reykjavík,
lést á Vifilsstöðum 28. nóvember.
Auður Aðalsteinsdóttir,
Ragnheiður Aðalsteinsdóttir,
Bessi Aðalsteinsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MAGNÚSÍNA S. JÓNSDÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
(áður Grettisgötu 83),
lést á Dropiaugarstöðum miðvikudaginn 28. nóvember 1990.
Gunnar Ó. Engilbertsson, Arnfrfður Richardsdóttir,
Erlingur G. Sigurðsson, Pirkko Sartoneva,
Ásthildur E. Gunnarsdóttir, Skúli Skúlason,
Magnús J. E. Gunnarsson,
Magnús O. Erlingsson
og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
er lést 22. nóvember 1990, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 1. desember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á SÍBS og Hjartavernd.
Einar Júlíusson,
Júlíus Helgi Einarsson, Sveinbjörg Eydís Eiriksdóttir,
Einar Kristinn Friðriksson, María Vilbogadóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
SIGURLÍNA GUÐRÚN
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Efri-Miðvik, Aðaldal,
Suðurgötu 12,
Keflavík,
er andaðist á sjúkrahúsi Keflavíkur að
morgni laugardagsins 24. nóvember sl., verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 1. desember nk. kl. 14.00.
Guðmundur F. Sölvason,
Margrét Sölvadóttir,
Karitas Sölvadóttir,
Hafsteinn Sölvason,
Ásta Sölvadóttir,
Hilmar R. Sölvason,
Sölvi Stefánsson,
barnabörn, barnabarnabörn
Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Friðrik L. Baldvinsson,
Gerald Hásler,
Sigríður Oddsdóttir,
Hiimar Valdimarsson,
Björg Jónsdóttir,
Inga Árnadóttir,
og barnabarnabarnabörn.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar,
HARALDAR ELÍASSONAR
múrarameistara,
Dalbraut 27.
Guð blessi ykkur öll.
Skarphéðinn Haraldsson, Helga Guðjónsdóttir,
Guðmundur Haraldsson, Eyrún Óskarsdóttir,
Rannveig Haraldsdóttir,
Kolbrún Haraldsdóttir, Magnús (var Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar verður verslunin lokuð frá
kl. 13.00 t'l 15.00 í dag, föstudaginn 30. nóvember.
Grensáskjör,
Grensásvegi 46.
Lokað
í dag, föstudag, milli kl. 13.00 og 14.30 vegna
jarðarfarar KJARTANS JÓNSSONAR, lögfræðings.
Gullhöllin,
Laugavegi49.
Lokað
Sælgætisgerðin Freyja hf. verður lokuð frá kl.
12.0Q í dag, föstudaginn 30. nóvember, vegna
jarðarfarar GUÐMUNDAR JÓNSSONAR.
Sælgætisgerðin Freyja hf.